Morgunblaðið - 12.01.1985, Page 4

Morgunblaðið - 12.01.1985, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1985 Morgunblaðið/Friðþjófur. „Við höfum fengið nokkrar ábcndingar og unnið er að rannsókn málsins, en ennþá hefur enginn verið handtekinn,“ sagði Helgi Daníelsson, yfirlögreglu- þjónn hjá RLR. Á lögreglustöðvum hangir uppi mynd af manni, sem lýst er eftir vegna svikanna og grunaður er um að hafa haft 125 þúsund krónur út úr tveim bönkum. Sveik 125 þúsund út úr 2 bönkum Veiting skelvinnsluleyfis til Hraðfrystihúss Grundarfjarðar: Pólitísk úthlutun — segir Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri í Ólafsvík „ÞETTA er bara pólitísk úthlutun framsóknarráðherra til Sam- bandsfrystihúss. Ég get ekki sætt mig við svona vinnubrögð, því með þessari úthlutun eru fallin öll þau rök, sem notuð hafa verið fyrir synjun leyfis til okkar. Þau voru, að ekki væri hægt að gefa út fleiri NORSK HYDRO hefur fest kaup á öllum hlutabréfum í a/s Mowi, en Mowi er stærsU fiskiræktarfélag Vinsældalisti Rásar 2: Grafík með lög í 4., 10. og 19. sæti VINSÆLDALIfm rásar 2 hefur tekið nokkrum breytingum frá því { síðustu viku. Jólalögin eru smám saman að falla af listanum og önn- ur lög koma í staðinn. Hljómsveitin Wham! er með þrjú lög á lista yfir 10 vinsælustu lögin, en nú eru ís- lendingar heldur betur að herða sig því Grafík er með þrjú lög á listan- um yfir 20 vinsælustu lögin og þar af tvö í tíu efstu sætunum. Svona lítur listinn út sem kynntur var á fimmtudagskvöldið: 1. ( 3) One Night in Bangkok — Murray Head 2. ( —) Everything She Wants - Wham! 3. (13) Sex Crime — Eurythm- ics 4. ( 7) Húsið og ég (Mér finnst rigningin góð) — Grafík 5. ( 1) Last Christmas — Wham! 6. ( 6) Love Is Love — Culture Club 7. ( 2) Do They Know — Band Aid 8. ( 5) The Wild Boys — Duran Duran 9. ( 4) Heartbeat — Wham! 10. ( -) 16 - Graffk lcyfi vegna þess, að það skerti hlut þeirra, sem fyrir væru. Fyrst svona er komið, sé ég engan mun á því, hvort leyfið er veitt til Ólafsvíkur eða Grundarfjarðar,“ sagði Guð- mundur Björnsson, framkvæmda- stjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur, er Morgunblaðið innti hann álits á Noregs og talið komið lengst í rækt- un Atlantshafslaxins. A/s Mowi er hluthafi í fyrirtækinu ÍSNÓ hf., sem hefur verið með fiskiræktartilraunir í Lónum í Kelduhverfi. Islendingar eiga 55% í ÍSNÓ hf. en a/s Mowi 45%. Eyjólfur Kon- ráð Jónsson alþingismaður er stjórnarformaður ISNÓ. Hann sagði í þessu tilefni: „Mér virðist allt benda til þess að Norsk Hydro ætli að gera alvöru úr þeirri yfir- lýsingu, sem nýr aðalforstjóri gaf í blöðum í Noregi, er hann tók við störfum 1. marz á síðasta ári. Hann sagði þá að stoðir Norsk Hydro væru fjórar: olían, áburð- urinn, léttmálmar og kemískur iðnaður. Nú væri verið að reisa hina fimmtu og það væri fiski- raektin og nefndi sérstaklega í því sambandi meðal annars starfsem- ina á íslandi." Stjórnarfundur í ÍSNÓ er ákveðinn um næstu mánaðamót. Fyrirhugað var að halda hann á íslandi, en við þessa breytingu hafa Norðmennirnir óskað eftir að íslendingar kæmu til fundar ytra. Eyjólfur sagði að kaup Norsk Hydro á a/s Mowi breyttu ekki starfsemi a/s Mowi. Allt starfslið og sérfræðingar héldu áfram störfum við a/s Mowi og einnig yrði forstjórinn, Thor Mowimckel, áfram tengdur félaginu, a.m.k. fyrst í stað. Yrði a/s Mowi því sér- stök deild innan Norsk Hydro. veitingu skelvinnsluleyfis til Hraðfrystihúss Grundarfjarðar. „Hraðfrystihús Ólafsvíkur hefur fyrir allnokkru sótt um skelvinnsluleyfi og var sú um- sókn studd af atvinnumálanefnd Ólafsvíkur. í águst síðastliðnum fengum við synjun og umsóknin var því ítrekuð 2. nóvember, þar sem við töldum synjunina órökstudda. En nú hefur ráð- herra úthlutað Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar skelvinnslu- leyfi, en við höfum engin svör fengið frekar. Hins vegar kemur mér þetta ekkert á óvart úr þessari átt. Þetta er alveg sama aðferð og ráðherrann notaði við veitingu á rækjuvinnsluleyfi í Ólafsvík á síðastliðnu ári. Við áttum líka umsókn um það, en nú veitir ráðherrann þessi leyfi án þess að ræða við aðra um- sækjendur. Það ber hreinlega að harma að ráðherra skuli leyfa sér að viðhafa vinnubrögð sem þessi," sagði Guðmundur. Staða framkvæmda- stjóra útvarpsins: 7 sóttu um llmsóknarfresti um stöðu fram- kvæmdastjóra hljóðvarpsdeildar Ríkisútvarpsins rann út síðastlið- inn fimmtudag. Sjö sóttu um stöð- una en henni gegnir Guðmundur Jónsson og lætur hann af störfum innan skamms. Umsóknirnar bárust frá eftir- töldum aðiljum: Elfu Björk Gunnarsdóttur, borgarbóka- verði, Guðbjörgu R. Jónsdóttur, starfsmannastjóra, Helga Pét- urssyni, fréttamanni, Ólafi Þorsteinssyni, deildarstjóra, Sumarliða Steinari Benedikts- syni, rithöfundi, Ævari Kjart- anssyni, varadagskrárstjóra. Sjöundi umsækjandinn óskar nafnleyndar. UNGUM MANNI, líklega á milli tvf- tugs og þrítugs, tókst að svíkja um 125 þúsund krónur út úr tveimur bönkum í Reykjavík með því að villa á sér heimildir. Málavextir eru þeir, að þann 20. desember síðastliöinn gekk maðurinn inn í Sparisjóð Kópa- vogs og stofnaði ávísanareikning án þess að þurfa að framvísa skilríkjum. Síðar kom í Ijós, að hann hafði opnað reikning undir fölsku nafni. Þann 3. janúar skrifaði maður- inn út 10 ávísanir að upphæð 625 þúsund krónur, tvær ávísanir að upphæð 63 þúsund krónur og átta að upphæð 62 þúsund krónur. Mað- urinn gekk í jafn marga banka og sparisjóði á höfuðborgarsvæðinu og stofnaði sparisjóðsbækur og lagði inn á reikninga og greiddi með innistæðulausum ávísunum. Síðar sama dag hugðist maður- inn taka fé út úr bókunum. Refja- laust gekk að fá innistæður í tveimur bönkum, samtals að upp- hæð um 125 þúsund krónur. Þegar hann hugðist taka út fé 1 þriðja bankanum var farið að athuga inn- leggið og hafði maðurinn sig þá á brott og hefur síðan ekki til hans spurst. Rannsóknarlögregla ríkis- ins vinnur að rannsókn málsins. Skákþing Reykjavíkur hefst um helgina SKÁKÞING Reykjavíkur 1985 hefst næstkomandi sunnudag, 13. janúar, og verður teflt í félagsheimili Taflfé- lags Reykjavíkur að Grensásvegi 46. í aðalkeppninni, sem hefst á sunnudaginn kl. 14, munu kepp- endur tefla saman í einum flokki 11 umferðir eftir Monrad-kerfi. Keppni í fiokki 14 ára og yngri á skákþingi Reykjavíkur hefst á laugardag, 19. janúar. f þeim fiokki verða tefldar níu umferðir eftir Monrad-kerfi. Norsk Hydro kaupir a/s Mowi * * — sem er eignaraðili að ISNO hf. Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra um málefni Landsvirkjunar: Ásakanir um offjárfestingu hitta Hjörleif Guttormsson „ÞAÐ BREGÐUR heldur betur nýrra við nú. Hingað til hefur það verið salan til stóriðjunnar sem hefur að þeirra sögn íþyngt íslenskum orkuneytendum og hækkað verðið á orkunni. Nú allt í einu er búið að uppgötva nýjan stórasannleika. Nú heitir það hjá þeim offjárfesting í orkumálum sem ber alla sökina. Það var nikið að menn uppgötvuðu eitthvað nýtt í þessum efnum. En það vill þannig til, að beri einhver einkanlega ábyrgð á offjárfestingu, sem nú er verið að ásaka aðra um, þá er það fyrirrennari minn, Hjörleifur Guttormsson, flokkur hans og fyrrverandi ríkis- stjórn,“ sagði Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra, er hann var spurður álits á greinargerð Finnboga Jónssonar, varamanns Olafs Ragnars Grímssonar, Alþýðubandalagi, í stjórn Landsvirkj- unar. Sverrir var fyrst spurður álits á þeim fréttum, að niðurstöður endurskoðunar Orkuspárnefndar stefni í það, að raforkuþörf lands- manna verði minni á næstu ár- um, en áður var áætlað. Hann sagði það rétt vera, að nú væri vitað að almenn orkuþörf í land- inu yrði minni en fyrri spár hefðu reiknað með. Varðandi það hvort eitthvað gæti breytt þeirri stað- reynd, að draga þyrfti úr og seinka virkjunarframkvæmdum á næstu árum, sagði hann: „Við teljum sterkar líkur á, að við náum samningum um stækkun álversins í Straumsvík til að byrja með um 50% og til þess gætum við selt 600 gígawatt- stundir af Blönduorku af samtals 750 gígawattstundum, sem áformað er að hún framleiði. Þá gerum við okkur vonir um að unnið verði vasklega að athugu- unum á samstarfs- og sameignar- aðilum að kísilmálmverksmiðju I Reyðarfirði, sem þarf um 350 gígawattstundir á ári. Þá er bygging stóráliðjuvers ALCAN við Eyjafjörð álitleg, en aðeins sem framtíðarspá, því þótt við héldum rakleitt áfram með kannanir og síðan samninga þarf trúlega ein átta ár til að sjá fyrir þeirri orku sem þyrfti til þess, því slíkt áliðjuver sem þeir áforma mundi sjálfsagt þurfa um 2.000 gigawattstundir." Sverrir gerði síðan að umræðu- efni framkomnar ásakanir um umframorku Landsvirkjunar og kostnað henni samfara. Hann rifjaði upp þá gagnrýni sem Landsvirkjun varð fyrir á árun- um 1979—1982, þegar mikill orkuskortur varð vegna slæms vatnsbúskapar og sagði síðan: „Það er alveg ljóst, að ef við eig- um að búa við afhendingaröryggi í landi þar sem úrkoma er mjög sveiflugjörn verðum við að hafa orkuvinnslugetu fram yfir það sem við erum að selja á hverjum tíma. Við getum ekki selt for- gangsorku með öðrum hætti. Það er auðvitað matsatriði hversu mikil hún á að vera, en það er líka undir því komið, hversu mikla forgangsorku við seljum." Hann benti á til viðmiðunar að Norð- menn væru með um fjórar tera- wattstundir í varaorku, eða sem nemur um 4.000 gigawattstund- um. Varðandi niðurskurð á virkjun- arframkvæmdum sagði iðnaðar- ráðherra: „Við höfum haft opin augun fyrir því og ég og formaður Landsvirkjunarstjórnar höfum margsinnis allt frá því snemma í haust rætt um endurskoðun á þeim áformum sem uppi hafa verið. Þar höfum við sérstaklega rætt um kvíslaveitur og ef til vill Blöndu. Fyrsta skrefið var að skera niður áformaðar fram- kvæmdir um 200 millj. kr. og þannig stendur það nú í láns- fjáráætlunarfrumvarpi. Við höf- um ekki fuilkannað málið þannig að efni og ástæður geta orðið til að lækka þá tölu enn meira og draga enn verulega úr fram- kvæmdum." Varðandi umræðu um offjár- festingu sagði iðnaðarráðherra ennfremur: „Ég vil koma því að, að ég hef enn, þá ekki orðið þeirr- ar ánægju aðnjótandi að taka ákvarðanir um nýjar virkjanir. Ég er aðeins sekur um að hafa frestað Blöndu um eitt ár. Það var ekki heldur orkuframleiðslu- athöfn að ég skyldi fresta Suður- línu einnig um eitt ár, þegar ég kom í þetta embætti mitt. Eg átti engan hlut að máli um ákvörðun um Blönduvirkjun. Það er stjórn- málafiokkur sem nú leggur fram gagnrýni á offramleiðslu á raf- orku, sem réð þar ferðinni, ásamt með fyrrverandi ríkisstjórn. Ég átti því miður ekki því láni að fagna að taka ákvörðun um Grundartanga. Það var undir for- ustu Alþýðubandalagsins. Kvísla- veitumar voru heldur ekki á minni könnu. Nú kann einhver að svara því til, eins og Alþýðubandalagsfor- kólfarnir gera, að kenna Lands- virkjun um. Ég vil aðeins minna á það, að Landsvirkjun getur ekk- ert framkvæmt nema með sér- stöku leyfi stjórnmálayfirvalda. Landsvirkjun fær ekki fjárfram- lög til að framkvæma eitt eða neitt nema það sé samþykkt af hinu háa Alþingi. Ríkisstjórnir í landinu á hverjum tíma sjá því fyrir fjármagni og bera algjör- lega lokaábyrgð á því sem gerist og gerist ekki. Það er þýðingar- laust að vísa því til einhverra annarra. Landsvirkjun hefur auðvitað mikil áhrif á framgang mála vegna vísindamanna sinna. Þeir eru í vandasömu starfi en lokaábyrgðin er stjórnmála- mannanna."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.