Morgunblaðið - 12.01.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1985
21
Símamynd AF.
Nýtt móðurmál lœrt
Á þessari hugljúfu mynd er ísraelsk stúlka að reyna að kenna ungum
eþíópskum gyðingi að tala og lesa hebresku með hjálp myndabókar.
Myndin var tekin { borginni Eialat á bakka Rauðahafsins. Litli
drengurinn er einn af þúsundum gyðinga sem ísraelsmenn fluttu
með leynd af hungur- og þurrkasvæðunum í Eþíópíu í fullkominni
óþökk stjórnvalda í landinu.
S-Kéreæ
23 biðu bana í bílslysi
Seonl, II. juúar AP.
TUTTUGU og þrír biðu bana, er
hópferðabíll féll ofan af brú
niður í fljót í grennd við Yong-
dong í Suður-Kóreu í dag. Lög-
reglan rannsakaði í dag öll atvik
varðandi slysið, en ekki hefur
enn verið greint frá þeim ástæð-
um, sem kunna að hafa valdið
slysinu.
Rabbfi settur af:
Sagði klámbrandara
í predikunarstólnum
Laadúnani, 11. jjinúar. AP.
SÓKNARNEFND ein hefur rekið
rabbía sinn. Ástæðan er sú, að
hann sagði gjarnan klámbrandara
úr predikunarstólnum. Sveið sókn-
arbörnum siðleysið og kærðu hann
til sóknarnefndar. Nefndin fann
þá Cohen rabbía til foráttu til við-
bótar að hafa ekki sinnt því sem
skyldi að heimsækja öldruð og
lasburða sóknarbörn.
Formaður sóknarnefndarinn-
ar, Stella Hollis, sagði sóknar-
börnin öll orðin uppgefnir á Co-
hen, „hann er vanþroskaður,
eigingjarn, skortir sannfæringu
og er í alla staði erfiður við-
fangs.“ Cohen var bara kátur
þrátt fyrir að hann stæði uppi
atvinnulaus, hann sagði: „Það
verður að hafa það, ég hef þó
alltaf kímnigáfuna og nú hef ég
enn minna að tapa á henni."
Dani, sem ekki lætur frosthörkurnar
líkti Andrei Gromyko Sviss við Sí-
beríu þegar hann kom til Genfar
fyrir viku. Verð á olíu hefur hækk-
að verulega í Rotterdam. Dagblöð
birta lítraverð á olíu á forsíðum og
benda á að verðið daginn sem
olían er pöntuð gildi. Orkufyrir-
aftra sér frá hefðbundnu útibaði.
tæki græða á kuldanum. Sala á
hitapokum og þykkum og góðum
kápum hefur einnig gengið vel. Og
kuldinn varð til þess að hollenskt
sokkaframleiðslufyrirtæki sem
fór á hausinn um áramótin opnaði
aftur og gengur nú velr
Kínverjar hyggjast
endurnýja flugflotann
Boeing-farþegaþotur eiga að taka við Ilyushin
Peking, 11. jan. AP.
RÍKISFLUGFÉLAGIÐ í Kína
hyggst leggja til hliðar 15 gamlar
sovézkar Uyushin IL-14-farþegaþot-
ur en kaupa í staðinn margar þotur
af gerðinni Boeing 747 og láta yfir-
fara og endurbæta eldri brezkar þot-
ur sínar af Trident-gerð.
Ekki hefur verið greint frá því,
hve margar nýjar farþegaþotur
keyptar verða né heldur hvenær
flugvélakaupin eiga að fara fram.
En kínverska fréttastofan hafði
það í dag eftir háttsettum emb-
ættismanni, að ríkisflugfélagið
myndi á næstu árum endurnýja
flugflota sinn algerlega. „Stórar
og nýjar flugvélar eiga að koma í
stað þeirra litlu og gömlu," hefur
fréttastofan eftir heimildarmanni
ðinum.
Þessi flugvélakaup eru þáttur í
alhliða umbótum á flugfélaginu,
sem fram eiga að fara til þess að
bæta bæði orðstír þess og þjón-
ustu, en félagið hefur til þessa
notið lítils trausts á alþjóðaflug-
leiðum. Hafa kvartanir fólks verið
tíðar yfir óvæntum töfum, lélegri
þjónustu og erfiðleikum við að
panta og kaupa farmiða hjá flug-
félaginu. Nú er ætlunin að tölvu-
væða farmiðapantanir félagsins
og refsingum verður beitt gegn
agabrotum starfsmanna.
Þá er áformað, að ríkisflugfé-
lagið bindi að lokum enda á einok-
un sína á innanlandsfluginu i
Kína. Er ætlunin að koma á fót
nýjum flugfélögum í einstökum
héruðum landsins, sem eiga svo að
keppa hvert við annað.
Æfing með Pershing:
Fjórir hermenn týna lífi
Heilbronn, 11. janúar. AP.
FJÓRIR bandarískir hermenn fór-
ust og margir slösuðust er hreyfill í
Pershing II stýriflaug fór óvænt af
stað við æfingar. Var hér um slys að
ræða.
Tveir hermenn létust samstund-
is í eldsvoða og tveir á leið i
sjúkrahús. Leynd hvílir yfir
óhappinu og engar frekari fréttir
af því að fá.
Herstöðin í Heilbronn er ein
þriggja stöðva í suðurhluta
Vestur-Þýzkalands þar sem
Pershing-flaugar eru geymdar.
Pppp
LADA 1200
ja-
syning
í dag frá kl. 1—4
Nýir og notaöir bílar
til sýnis og sölu.
III-550
Verö aðeins kr.
213.500,-
Góöir greiösluskilmálar.
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf
Í|Í*)(í)ÍÍÍ\ _i ______a i æ n: • nn nnn
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600