Morgunblaðið - 12.01.1985, Side 22

Morgunblaðið - 12.01.1985, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1985 Gyðingar mótmœla Símamynd/AP. Um 200 gyðingar frá Eþíópíu efndu til mótmælaaðgerða fyrir utan þinghúsið í Jerúsalem vegna þeirrar ákvörðunar æðstaprests gyðinga í ísrael að Eþíópíugyðingar verði því aðeins taldir til gyðinga að þeir gangi í gegnum trúarlega hreinsunarathöfn. Það finnst hinum þeldökku einum of mikið, þeir hafi þegar gengið í gegnum slíka siði. Líbanon:' „Jihad“ segjast halda prestinum Beirút, 11. janúar. AP. „HEILAGT stríð Islams“, hryðjuverkasamtökin alræmdu í Líbanon hafa lýst sig ábyrg á ráni á bandaríska prestinum Lawrence Jenco. Maður sem talaði arabísku með líbönskum hreim, hringdi í skrifstofu AP í Beirút og færði þessi tíðindi. Sagði hann að „Jidah Islami" hefði staðið að ráninu og myndu Jenco og fjórir aðrir bandarískir gíslar sem samtökin hefðu í haldi verða drepnir ef allir Bandaríkjamenn í Líbanon hefðu sig ekki á brott hið snarasta. Það voru sex menn, gráir fyrir gefið upp nafn hinna gíslanna sem járnum, sem höfðu Jenco á brott með sér. Embættismenn sögðu að það væri í raun útilokað að fá fulla vissu fyrir því hvort í síman- um hafi verið hryðjuverkamaður frá Jihad, eða einhver hugsjúkur prakkari. AP-menn reyndu að spyrja manninn um málið, spurðu meðal annars hvort hann gæti hann talaði um. Það gat hann ekki, en sagðist myndu hringja aftur seinna og hafa þá allt á hreinu. Jihad hefur áður sagst hafa Bandaríkjamennina fjóra í haldi og hafa þeir haft í frammi ýmsar hótanir, að öðrum kosti yrði þeim unnið mein. Dæmigerð fjárlög Svía á kosningaári CBS greinir frá óhöpp- um kjarnorkukafbáta Stokkhólmi, 10. janúar. Frá fréttaritara Morgunblaósins. SÆNSKA stjórnin kynnti fjárlagafrumvarp sitt fyrir næsta ár í dag og þar fylgja þau loforð að fjárlagahallinn verði sá minnsti í sex ár. Óljóst er í dag hvaða stjórn það verður sem fagnar þeim ávinningi, ef næst, því í haust verður kosið til þings í Svíþjóð. í frumvarpinu er ekki að finna neitt sem kemur verulega á óvart og er það dæmigert fyrir fjárlaga- frumvarp á kosningaári. Einkenn- ist það af bjartsýni þar sem, auk minni haila, er gert ráð fyrir minnkandi erlendum lántökum, minni verðbólgu, minna atvinnu- leysi og betri afkomu heimilanna. Stjórn jafnaðarmanna nýtur mikilla óvinsælda meðal kjósenda samkvæmt skoðanakönnunum og Afvopnunarmál: Kínverjar vara við bjartsýni Peking, 11. janúar. AP. KÍNVERSKA fréttastofan opinbera, Xinhua, sem er málgagn stjórnarinnar, gerði fund George Schultz og Andrei Gromyko í Genf á dögunum að umtalsefni öðru sinni í dag. Var þar varað við of mikilli bjartsýni, vígbún- aðarkapphlaupinu væri fjarri því að vera lokið þó ráðherr- anir hafi horfíð brosmildir hei;n á leið frá Genf. Xinhua hafði eftir sérfræðing- um sínum í Genf, að niðurstöður Genfarfundarins hafi ekki verið annað en „nýjar startholur", öll erfiðu verkefnin væru enn óleyst og það væri langt því frá að horf- urnar væru góðar, svo mikið bæri á milli. Þá greindi Xinhua frá því helsta sem samningalið risaveldanna ættu eftir að reka sig á, Bandarík- in haldi enn áfram að koma fyrir meðaldrægum kjarnorkueldflaug- um í Vestur-Evrópu þrátt fyrir reiði Rússa, afstöðu Rússa til hugmynda Bandaríkjamanna um kjarnorkuvarnarkerfi í geimnum og síðast en ekki síst hugmyndir varðandi eftirlit með því að hugs- anlegir samningar yrðu virtir, „Rússar munu seint vilja fá bandaríska eftirlitsmenn f heim- sókn til að gera vopnakönnun," sagði í frétt Xinhua. því er það brýnt fyrir Olof Palme að boða betri tíð ef stjórnin á að halda velli í kosningunum. Vegna þessa er atvinnulausum nú boðnir hækkaðir dagpeningar og tekjur hermanna hækka. Einnig verður aðstoð við þróunarríkin aukin og mun hún nema 1% af þjóðartekj- um. Jafnframt er boðuð aukin að- stoð við fatlaða, að tölvukennslu- stofur verði í öllum menntaskól- um landsins innan fjögurra ára, og boðuð er aukin aðstoð við fjöl- miðla. Hyggst stjórnin mæta þessum auknu útgjöldum með skatta- hækkunum og samdrætti í öðrum útgjöldum. Verður auglýsinga- og tilkynningaskattur hækkaður um eitt prósentustig, og er það 75. skattahækkunin, sem stjórn Palme ákveður. Skorin verða niður framlög til sveitarfélaga og lénsþinga, út- flutningsstyrkir og framlög til að auka samkeppnishæfni iðnaðar verða minnkuð. Einnig verða húsaleigustyrkir minnkaðir og felldir niður til barnslausra hjóna. Heildarútgjöld á fjárlagaárinu 1985/86 nema 320 milljörðum sænskra króna samkvæmt frum- varpinu, og er þar um að ræða 15 milljarða aukningu frá núgildandi fjárlögum. Er hallinn áætlaður 63,5 milljarðar, sem jafngildir 20% lækkun. Félagsmálaráðuneytið er það ráðuneyti sem tekur til sín mest fjármagn. Af öllum útgjöldum ríkissjóðs er fjórðungur þeirra til félagsmála. Wa.shington, 11. janúar. AP. BANDARÍSKA sjónvarpsstöóin CBS greindi frá því í dag, aó samkvæmt leyniskjölum sem hún hefði komist yfir og voru í vörslu leyniþjónust- unnar CIA, hafa mun fleiri óhöpp oróið meóal sovéskra kafbáta en hingaó til hefur verið taliö opinber- lega. Meðal þess sem CBS greindi frá, var óhapp sem varð í Eystrasalti árið 1981, er stórfelld bilun varð í kjarnorkuhreyfli sovésks kafbáts. Varð af mikil geisiun og varð að loka af hluta bátsins, en hluti áhafnarinnar var þar fyrir og lét- ust allir síðar vegna geislunarinn- ar. Alls sagði í frétt CBS, að sex atvik hefðu orðið þar sem brunar, geislun eða bilanir hefðu leitt af sér dauða fjölmargra áhafnar- meðlima. í frétt CBS greinir frá því að frá miðjum sjöunda áratugnum hefðu sex sovéskir kafbátar sokkið og með þeim 500 áhafnarmeðlimir. I einni af skýrslunum er frá því greint að einn kafbátanna sökk nánast við dyrastaf heimastöðvar sinnar á Kolaskaga. Auk þessa greindi CBS frá því hvernig 30 áhafnarmeðlimir á kjarnorku- knúða ísbrjótnum Lenin létu lífið árið 1965, kjarnorkuvél skipsins hefði brætt úr sér og geislunin reyndist mönnunum banvæn. Israel: Rfldsstjórnín ræðír brottflutning hers ÍSRAELSKA útvarpið greindi frá því í dag, að þingið myndi fjalla um það í næstu viku með hvaða hætti kalla skyldi herliðið heim frá suðurhluta Líban- on. Greindi útvarpsfrétt frá því að flestir ráðherrar ríkisstjórnarinnar væru hlynntir því að flytja herliðið til baka í álongum og myndu flutningarnir standa yfir í um það bil hálft ár. Útvarpið greindi frá þvi að ekki yrði til umræðu annað en að her- inn kæmi heim, spurningin væri einungis hvernig ísraelar gætu tryggt öryggi landamæra sinna við Líbanon, en þeir nefndu sem ástæðu fyrir innrásinni árið 1982, að skæruliðar Palestínumanna hreiðruðu um sig í suðurhluta Líb- anon og héldu uppi hryðjuverkum þaðan og hernaði á ísraelska grund. Yitzak Shamir utanríkisráð- herra er sagður hafa ýmsar hug- myndir um framkvæmd brott- flutningsins og hann mun reifa þær á ríkisstjórnarfundum á næstunni. Er talið víst að hann muni ganga svo frá, að enginn lið- ur í áætluninni verði framkvæmd- ur án þess að stjórnin hafi áður lagt blessun sína á hann. Útvarpið sagði að trúlega myndi stjórnin semja nokkurs konar „stunda- skrá“ áætlunarinnar, en hún yrði ekki gerð opinber. Það eru tryggingarmálin sem standa í ísraelum, þeir vilja geta gengið svo frá hnútunum að PLO- menn geti ekki ráðist á ísraela frá Líbanon. ísraelar hafa stungið upp á því að við búðum þeirra í Líbanon taki fjölþjóðlegt lið frá Sameinuðu þjóðunum. Líbanir blása á það og segja stjórnarher- inn fullfæran um að halda uppi lögum og reglu á svæðinu. Þá skiptir skoðun Sýrlendinga afar miklu máli. Þeir eru ötulir stuðn- ingsmenn stjórnvalda í Líbanon og er meinilla við að ísraelar fái lausn sem feli í sér ávinning af innrásinni. Kínverjum kennt allt um jafnrétti og ástina Peking, 9. janúar. AP. KÍNVERJAR hafa tekid upp þá nýlundu að bjóða nýgiftum hjónum að setjast á skólabekk og kenna fólkinu að láta ástina endast og endast. Tuttugu ungir Kínverjar, tíu konur og tíu karlar, mæta nú reglulega tvisvar í viku og læra galdra vel heppnaðs hjónabands, en aðstandendur skólans vilja taka fram að eldra fólk er meira en velkomið, ástin eigi sér engin aldurstakmörk. Þá sé það ekkert launungarmál, að ein helsta kennslugreinin er sú að jafnrétti skuli ríkja, það sé fjarri því að vera sjálfsagt að karlinn ráði öllu og eigi allt eftir að í hjónabandið er komið. Yfirkennarinn, Wang Gongcai, sagði í samtali við kínversku fréttastofuna Xinhua, að hann segði við alla nemendur sína: „Þá fyrst ráðið þið fram úr vandamálum ykkar þegar jafn- rétti og skilningur ríkir á heim- ilum ykííar. Kommúnistastjórn- in í Kína hefur fyrir löngu hald- ið fram, að kúgun kvenna sé löngu iiðin tíð í landinu, slíkt þekktist ekki lengur. En í seinni tíð hefur kveðið við nýjan tón, yfirvöld viðurkenna að víða í Kína sé talsvert misrétti kynja á milli og sé algengast að karlarn- ir setji alls kyns klafa á konur sínar og eigni sér allt á heimil- inu, húsgögn, peninga og svo framvegis. Þá telji þeir sig geta sagt eiginkonum sínum enda- laust fyrir verkum án þess að þurfa að hlusta á mótbárur, hvað þá að þeir hlýði sjálfir skipunum kvenna sinna. Til- gangur skólans er m.a. að upp- ræta slíkt misrétti, en fyrirlestr- arnir sem fluttir eru fjalla um viðfangsefni allt frá getnaðar- vörnum og uppeldi barna til skipulagningar og samvinnu við húsverkin. Það er þó vonlaust að fara of geyst í vissa hluti í þessum efn- um, því þótt miklar breytingar hafi orðið í Kína á flestum svið- um síðustu 35 árin, þá eru siðir sem varða samskipti kynjanna enn margir afar rótgrónir. Áður skipulögðu foreldrar hjónabönd- in og skiptu þá hagsmunir all miklu máli. Nú er þetta form að mestu liðið undir lok, en samt sem áður hefur könnun leitt í ljós að einungis þriðjungur 579 hjóna sem spurð voru höfðu kynnst og orðið ástfangin án milliliða. Vegna vaxandi til- hneigingar til jafnréttis, hefur skilnuðum fjölgað stórlega og fjölmiðlar gera sér mikinn mat úr slíku og ekki síst ef karlarnir gerast sekir um barsmíðar. Yfir- völdum þykir þetta miður, en líta svo á að þetta sé millibils- ástand sem eigi verði hjá komist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.