Morgunblaðið - 13.01.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
B 31
Sumarvinna nor-
rænna ungmenna
UNGMENNI á aldrinum 18—26 ára
geta Tengið Lekifæri til að kynnast
atvinnu- og menningarlífi annarra
Norðurlandaþjóða í sumar.
Norræn samstarfsnefnd, sem
stofnuð var til eflingar efnahags-
legu samstarfi á Norðurlöndum,
hefur beitt sér fyrir því að at-
vinnurekendur á Norðurlöndum
veiti ungmennum tækifæri til að
kynnast atvinnu- og menningarlífi
annarrar Norðurlandaþjóðar.
Agneta Björklund, frí AB Sam-
hállsraadet, raeð upplýsingabækling-
inn um „Nordjobb-85“.
Þessi samvinna atvinnurekenda
“Nordjobb-85“, hefur ekki verið
reynd áður, en hugmyndin er sú að
hér verði um atvinnuskipti að
ræða, þ.e. að íslensk ungmenni fái
jafn mörg atvinnutækifæri ann-
arstaðar á Norðurlöndum og hægt
verður að útvega hér.
Að því er Agneta Björklund frá
AB Samhállsraadet tjáði Mbl.,
standa vonir til að hér verði hægt
að útvega um 200 atvinnutækifæri
við ólík störf víðsvegar um landið.
Þar sem hér er um bein atvinnu-
skipti að ræða koma ungmennin
til með að fá greidd laun sam-
kvæmt almennum kjarasamning-
um í viðkomandi landi. Ferða-
kostnað til og frá landinu verða
menn að greiða sjálfir auk uppi-
halds í viðkomandi landi. Þar sem
ferðakostnaður til og frá Islandi
er mun hærri en milli annarra
Norðurlanda, stendur til að semja
við Flugleiðir um afslátt á far-
gjöldum.
Þess er vænst að þeir sem hafa
áhuga á að hýsa eithvert ung-
menni, sem kemur til með að
vinna hér á landi næsta sumar,
gefi sig fram við Norræna félagið
til að fá nánari upplýsingar. Þar
mun einnig liggja frammi upplýs-
ingabæklingur ásamt umsóknar-
eyðublöðum fyrir þá sem hafa
áhuga á að sækja um sumarstarf á
Norðurlöndum.
Norræna samstarfsnefndin
væntir þess að þetta samstarf inn-
an Norðurlandanna verði til að
auka enn frekar skilning og sam-
stöðu milli Norðurlandaþjóðanna
og að framhald verði á þessu sam-
starfi í framtíðinni.
Myndin var tekin á jólatrésskemmtun í nýja félagsheimilinu.
Djúpivogur:
Ný félagsaðstaða
tekin í notkun
Djúpavogi, 3. janúar.
VEÐUR hefur verið hið besta hér
um jól og áramót. Á gamlárskvöld
efndu unglingar til veglegrar
brennu á Bóndavörðuhrauni. Var
hún með þeim betri sem sést hafa
hér.
Hreppsnefnd bauð til dans-
skemmtunar í nýjum og vistleg-
um húsakynnum. Er það félags-
aðstaða í húsi sem er að hluta til
slökkvistöð. Húsið er alls um 250
fm, þar af samkomusalur um 125
fm. Fram til þessa hefur verið
notast við skólann og Neista
gamla til samkomu- og funda-
halda. Félagsaðstaðan var form-
lega tekin í notkun sunnudaginn
30. desember með ágætri jóla-
trésskemmtun fyrir börnin á
Djúpavogi. Séra Ingólfur Guð-
mundsson, farprestur þjóðkirkj-
unnar, messaði á aðfangadags-
kvöld í Djúpavogskirkju og í
sveitakirkjunum þremur jóla-
dagana.
Ungur listamaður, fæddur og
uppalinn á Djúpavogi, Guð-
mundur Guðjónsson, hélt sýn-
ingu í héraðsbókasafninu á
Djúpavogi dagana 18. til 23. des-
ember. Sýndi hann þar 23 graf-
isk verk. Fréttaritari.
30-60%
AFSLÁTTUR
Hin árlega teppabútasala
er hafin.
Renndu við og gerðu
góð teppakaup.
Hringbraut 120, sími 28603
rEPPABUTAR TEPPABUTP
mldas
Góð
kaup
S.S. heimiiissalami
K' ks 489,00
S.S. paradísarsalami
k'kg 509,00
S.S. piparsalami
k'kg 489,00
S.S. spægipylsa, sneiðar
kkg 610,00
Ali spægipylsa, sneiöar
ki ks 570,00
Kjötmiöst.spægipylsa kr. kg
320,00
Kjötmiöstöövarsalami, bitar
kk9 290,00
Bjórskinka
k' k9 295,00
Svínarúliupylsa
k' k9 250,00
Reykt medister kr. kg
140,00
Óöalspylsa kr. kg
130,00
Kjötbúöingur kr. kg
130,90
Tröllabjúgu kr. kg
153,00
Paprikupylsa kr. kg
130,90
Hangiálegg, sneiðar kr. kg
495,00
Rúllupylsa, sneiöar kr. kg
265,00
Beikon í stykkjum kr. kg
125,00
Beikon í sneiöum kr. kg
135,00
ítalska gullaschið kr. kg
290,00
Enskt buff kr. kg
375,00
Nautahakk, 10 kg pakkn. kr.
175,00
*
EL TORO
Kínverskar pönnukök-
ur. Algjört sælgæti, aö-
eins 44,- stk., tilbúnar í
ofninn eöa á pönnuna.