Morgunblaðið - 03.03.1985, Side 2
2
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARS 1985
2.300 tonn af kinda-
kjöti flutt út í ár
BÚIÐ er að flytja út % af þeim hluta kindakjötsframlciðslu síðasta hausts
sem þörf er talin á að selja úr landi. Er það meira en oftast áður á þessum
tíma árs, að sögn Magnúsar Friðgeirssonar, framkvæmdastjóra búvörudeild-
ar SÍS. Sagði hann að við þetta sparaðist verulegur kostnaður við geymslu
kjötsins.
Ráðgert er að flytja út 2.300
tonn af framleiðslu siðasta árs, en
það er 1.500 tonnum minna en
flutt var út af framleiðslu ársins
1983. Sagði Magnús að við lok
verðlagsársins, þann 1. september
nk., væri gert ráð fyrir 800 tonna
birgðum, sem væri í það minnsta.
Hesfamaður fót-
brotnaði í
árekstri við bfl
HEffTAMAÐUR fótbrotnaði á báð-
um fótum er hann lenti í árekstri við
bfl í Hveragerði um klukkan 15.30 á
fostudaginn.
Slysið vildi þannig til að maður-
inn kom ríðandi suður Reykja-
mörk og fór yfir Heiðmörk er
hann lenti á bíl sem kom akandi
austan Heiðmörkina. Við árekst-
urinn kastaðist maðurinn af baki
með fyrrgreindum afleiðingum.
Hann var fluttur á sjúkrahús í
Reykjavík þar sem gert var að
meiðslum hans.
Þá yrði komið jafnvægi á sölumál-
in eftir fækkun sauðfjár undan-
farin ár, en í ár og sérstaklega í
fyrra, hefði útflutningurinn verið
þetta mikill vegna uppsafnaðs
vanda frá síðustu árum. Sagði
hann að á næsta verðlagsári væri
gert ráð fyrir að aðeins þyrfti að
flytja út um 1.000 tonn af kinda-
kjöti, nema því aðeins að innan-
landsneyslan minnkaði verulega.
Kindakjötið í ár fer aðallega til
Norðurlandanna en nokkuð til
Vestur-Þýskalands. Ekki er gert
ráð fyrir neinum útflutningi til
Bandaríkjanna en þangað var
flutt talsvert af sérstaklega pökk-
uðu kjöti í fyrra. Gert er ráð fyrir
að 650 tonn fari til Færeyja og
annað eins til Svíþjóðar, 370 tonn
til Noregs, 260 tonn til Danmerkur
og 100 tonn til Finnlands. Þá er
gert ráð fyrir að 230 tonn verði
seld til V-Þýskalands. Nokkuð
mismunandi verð fæst fyrir kjötið
eftir löndum, 30 til 45% af ónið-
urgreiddu heildsöluverði, að sögn
Magnúsar Friðgeirssonar.
Breiðholt:
Eldur í herbergi
ELDUR kom í upp herbergi í fjöl-
býlishúsi við Yrsufell um klukkan
10.30 i gærmorgun, laugardag.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang
var talsverður reykur í herberginu
og tókst fljótlega að ráða niður-
lögum eldsins sem þar var. Barn,
sem var í herberginu þegar eldur-
inn kom upp, var flutt á slysadeild
af öryggisástæðum vegna hættu á
hugsanlegri reykeitrun.
Akranes:
Játar íkveikju
í skólanum
MAÐURINN, sem grunaður var um
íkveikju í Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi hinn 16. febrúar sl., hefur við
yfirheyrslur játað á sig vcrknaðinn.
Maðurinn var handtekinn dag-
inn eftir brunann i skólanum og
úrskurðaður í 10 daga gæslu-
varðhald vegna málsins. Á þriðju-
daginn síðastliðinn játaði hann að
hafa kveikt í bréfarusli i skólan-
um umræddan dag, en bruninn olli
umtalsverðu tjóni í skólanum. Að
sögn lögreglunnar á Akranesi eru
líkur á að maðurinn verði látinn
sæta geðrannsókn.
W 9
, & * s
Wf:
Heimir Steinsson
Séra Heimir
Steinsson
ritar hugvekju
í DAG birtist hugvekja eftir séra
Heimi Steinsson á blaðsíðu 9 hér
í blaðinu. Séra Heimir hefur orð-
ið við beiðni Morgunblaðsins um
að rita hugvekju á sunnudögum
fram á vor.
Séra Heimir Steinsson er
þjóðgarðsvörður og sóknar-
prestur í Þingvallaprestakalli.
Hann tók við þessum störfum
1. janúar 1982 en hafði þá stýrt
Skálholtsskóla í 10 ár eða frá
upphafi.
Morgunblaðið/Bjarni
Utanríkisráðherra, Geir Hallgrímsson, og þingmenn Sjálfstæðisfiokksins á Norðurlandi eystra heilsuðu upp á
starfsfólk Hraðfrystihúss Þórshafnar sl. föstudag. Hér ræðir Geir Hallgrímsson við Snorra Bergsson. Á milli
þeirra er oddviti Þórshafnarhrepps, Þorkell Guðfinnsson. Lengst til hægri Björn Dagbjartsson og á milli hans og
Geirs er framkvæmdastjóri hraðfrvstihússins, Jóhann Jónsson.
Loðnukvótinn tvö-
faldaður að hausti?
— Vísindamenn leggja til 600.000 til
700.000 lesta veiði við upphaf næstu vertíðar
VÍSINDAMENN hafa lagt til að við
upphaf næstu loðnuvertíðar verði
miðað við 600.000 til 700.000 lesta
heildaraflamagn. Er það rúmlega
helmingi meira, en miðað var við er
síðasta vertíð hófst. Norsk-íslenzka
fiskveiðinefndin ræddi þessa tillögu
og fleiri mál á fundi sínum í Reykja-
vík í líðandi viku, en engar ákvarð-
anir voru teknar þar.
Síðastliðið haust var miðað við
300.000 lesta heildarmagn og að
hlutur tslendinga yrði 195.000
lestir. Miðað við 700.000 lesta afla
við upphaf næstu vertíðar og það
magn, sem íslendingar hafa tekið
umfram ákveðna skiptingu, koma
rúmar 500.000 lestir í hlut þeirra
en tæpar 200.000 I hlut Norð-
manna. Hins vegar er búizt við
því, að Grænlendingar geri kröfu
til ákveðins magns, sem dregst frá
hlut okkar og Norðmanna, náist
um það samstaða.
Fljótshlíð:
Klemmdist á milli dráttar-
vélarskúffu og hliöstólpa
Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri
í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
fundur þessi hefði verið haldinn
að ósk Norðmanna. Farið hefði
verið yfir stöðuna á þessari vertíð
og ræddar tillögur um magnið á
næstu vertíð og veiðar erlendra
þjóða á loðnumiðunum. Ljóst
væri, að ekki væri hægt að ákveða
skiptingu loðnunnar nema taka
Grænlendinga inn f myndina.
Rætt hefði verið um óskir Norð-
manna um áframhaldandi veiðar í
landhelgi okkar, en þeir hefðu til
þessa haft 1.000 lesta kvóta, aðal-
lega lúðu og keilu. Engar ákvarð-
anir um þessi mál hefðu verið
teknar og málum vísað til næsta
fundar.
UNGUR piltur klemmdist á milli
dráttarvélarskúffu og hliðstólpa í
Fljótshlíð um klukkan 9.00 í gær-
morgun, laugardag. Var pilturinn
fluttur til Reykjavíkur á slysadeild.
Slysið vildi þannig til, að piltur-
inn var að opna hlið og hafði skilið
dráttarvélina eftir í handbremsu.
Vélin losnaði síðan úr handbrems-
unni og rann á piltinn, sem
klemmdist á milli dráttarvélar-
skúffunnar og hliðstólpans. Mun
hann hafa verið fastur í allt að
klukkustund áður en vart varð við
slysið. Drengurinn var fluttur til
Reykjavíkur á slysadeild þar sem
hann var i rannsókn er Morgun-
blaðið fregnaði síðast um hádegi í
gær.
Búvörurnar hafa hækkað
um 40—63 % á einu ári
SMÁSÖLUVERÐ þeirra landbúnaðarafurða sem sexmannanefnd verðleggur
í smásölu hefur hækkað á bilinu 40—63% á einu ári. Mest hefur skyrið
hækkað, 63% mjólkin hefur hækkað um 53% rjóminn um 49% smjörið 45%
dilkakjötið um 44% og osturinn og nautakjötið um 41% Sexmannanefnd
verðleggur kartöflur og hrossakjöt í heildsölu og á þessu tímabili hafa
kartöflurnar hækkað um 56,5% og hrossakjötið um 31%. Verð á kartöfium
breyttist ekki þegar nýtt verð landbúnaðarvara tók gildi núna um mánaða-
mótin en aörar vörur hækkuðu frá 5,5—9,4 %
Ofangreindar prósentur fást
með því að bera saman verð nokk-
urra algengra vörutegunda, ann-
arsvegar nú eftir hækkunina 1.
mars, og hinsvegar verðið sem
gilti á sama tíma fyrir ári. Mjólk í
1 I pökkum kostar nú 28,60 kr. en
kostaði fyrir ári 18,70, hækkun um
52,9%. Rjómi í 1 l fernum kostar
175,20 kr. en kostaði 117,45 kr.
(49,2%). 1 kg af skyri kostar 48 kr.
en kostaði 29.45 kr. fvrir ári
(63%). Kílóið af 1. fl. smjöri kost-
ar 319 kr., kostaði 219,50 kr.
(45,3%). Eitt kíló af 45% osti kost-
ar 267,50 kr. en kostað i 189,90 kr.
(40,9%).
Verð á nautgripakjöti hækkaði
um nál. 5,5% að þessu sinni. Kíló
af nautakjöti, UNI I heilum og
háKum skrokkum, kostar nú
185,60 kr. en kostaði 131,70 kr.
(40,9%). Kílóið af 1. flokks dilka-
kiöt.i
ósk kaupanda, kostar nú 177 kr. en
kostaði 123,05 kr. fyrir ári og hef-
ur því hækkað um 43,8%. Hrossa-
kjöt hækkaði um 5,5% núna um
mánaðamótin. Heildsöluverð kílós
af 1. flokks hrossakjöti er eftir
hækkun 90,17 kr. en var 68,76 fyrir
ári, þannig að heildsöluverðið hef-
ur hækkað um 31,1%. Verði kart-
aflna var ekki breytt að þessu
sinni. Heildsöluverð 1. kg af 1.
flokks kartöflum í 2,5 kg pokum er
nú 24,42 kr. en var 15,60 kr. fyrir
ári, þannig að þær hafa hækkað
um 56,5%.
Það skal tekið fram að við mat á
þessum samanburði verður að
hafa það í huga að niðurgreiðslur
hafa lækkað verulega á tímabil-
Spurt og svar-
að um fjármál
húsbyggjenda
TEKIÐ er á móti spurningum í
þáttinn „Spurt og svarað um
fjármál húsbyggjenda" í síma
10100 frá klukkan 10.30 til
klukkan 12 mánudaga til föstu-
daga. Morgunblaðið hefur
fengið sérfræðinga Húsnæð-
isstofnunar ríkisins, Fjárfest-
ingarfélagsins og Útvegsbank-
ans til að svara spurningunum
og birtast svörin fáum dögum
eftir að spurningunum hefur
verið komið á framfæri við
blaðið. Óskað er eftir að fyrir-
spyrjendur geti um nafn og
heimilisfang.
Þátturinn er í dag birtur á bls. 4.
Kveimalistinn
tekur þátt í
sameiginlegum
fundi kvenna
f TILEFNI af frétt Morgunblaðsins í
gær hefur Guðrún Agnarsdóttir,
þingmaður Kvennalista, óskað eftir
að taka fram eftirfarandi:
Kvennalistinn hefur ekki hafn-
að þátttöku í sameiginlegum fundi
samstarfsnefndar kvenna 1985,
sem fyrirhugað er að halda 8.
mars næstkomandi í Háskólabíói.
Allt frá í janúar síðastliðnum
hafði Kvennalistinn þó heitið
samtökum kvenna á vinnumark-
aði fulltingi við undirbúning fund-
ar á þessum degi, sem samtökin
hugðust efna til eins og þau gerðu
á síðastliðnu ári. Þetta loforð mun
Kvennalistinn halda. Hins vegar
harmar Kvennalistinn það, að
ekki skuli hafa náðst samstaða
meðal kvenna um fundahöld á
þessum alþjóðlega baráttudegi
kvenna. Kvennalistinn hvetur til
samstöðu kvenna um að leita rétt-
ar síns og skorar á íslenskar konur
að huga að því á baráttudegi
kvenna 8. mars.
Ráðstefna SUS um heilbrigðismál
Annað kvöld kl. 19.30 gengst SUS
fyrir ráðstefnu 1 Valhöll um heil-
brigðismál þar sem flutt verða erindi
um íslenska heilbrigðiskerfið, ókosti
hins opinbera og miðstýrða heil-
brigðiskerfis, um einkarekstur
heilsugæslu í þéttbýli, ofi.
Að loknum erindunum verða
panelumræður þar sem þeir Vil-
hjálmur Egilsson hagfræðingur,
Páll Gíslason yfirlæknir, Ólafur
ö. Arnarson læknir, Friðrik Soph-
usson alþm. og Víglundur Þor-
steinsson læknir munu ræða nýjar
leiðir i heilbrigðismálum.