Morgunblaðið - 03.03.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARS 1985
Kynning á vörum í byggingarvörudeild Sambandsins
ÞESSA viku hefur byggingarvörudeild
Sambandsins gengizt fyrir kynningu á
þeim vörum er fluttar eru inn þar í um-
boðs- og heildverzluninni Holtagörðum.
Haukur Hauksson deildarstjóri er
hefur umsjón með öllum innflutningi í
byggingarvörudeildinni sagði að á
þessari sýningu væri lögð áhersla á
allt sem viðkæmi baðherberginu. Þar
mætti finna t.d. Damixa-blöndunar-
tæki, Velux-rúllugardinur, gufuböð,
baðinnréttingar o.fl.
BANDARÍKIN-ÍSLAND
-á 2ja víkna fiestí
Aukin þjónusta Hafskips:
Siglum nú á 14 daga fresti NEW YORK - NORFOLK - REYKJAVÍK
HAFSKIP HF.
framtíð fyrir stafni
Davíð Scheving í Arnarflugsauglýsingu:
„Gráu hárin of mörg
og bumban of stór“
- til að leggja auglýsingar fyrir mig, segir hann
„Nei, ÉG er ekki að fara út í nýja
atvinnugrein. Til þess eru gráu hárin
of mörg og bumban of stór!“ sagði
Davíð Scheving Thorsteinsson, for-
stjóri Smjörlíkis hf., um mynd af sér í
auglýsingu frá Arnarflugi um nýtt
„annafargjald" fyrir kaupsýslumenn,
sem birtist í Mbl. í gær.
„Þetta er eiginlega grín,“ sagði
hann. „Þeir hringdu í mig og vildu
fá mig til að vera með í þessari aug-
lýsingu. Kg sló til og þeir skutu á
mig nokkrum myndum. Þeir létu
mig ranghvolfa svona í mér augun-
um svo það liti út eins og ég væri að
mæna upp á þetta góða tilboð,"
sagði Davíð.
„Aö öllu gríni slepptu þá var ég til
í þetta vegna þess að í mörg ár hefur
það ergt mig að þurfa að borga
hæsta fargjald sem til er, þegar ég
hef þurft að skreppa í örstuttar
ferðir til útlanda. I sætinu við hlið-
ina á mér hefur gjarnan setið fólk,
sem hefur verið að skreppa í helgar-
ferðir — skemmti- eða verslunar-
ferðir — og það borgar miklu lægra
gjald en ég jafnvel þótt gisting og
morgunmatur sé innifalið í þeirra
fargjaldi. Svona er búið að fara með
íslenska kaupsýslumenn í marga
áratugi. Þegar Arnarflugsmenn
sýna skilning á sérstöðu okkar, sem
förum oft í stuttar ferðir, þá vil ég
styðja viðleitni þeirra," sagði Davíð.
Þessi vika var einungis ætluð boðs-
gestum, en ætlunin er að opna þessa
sýningu almenningi og þá sérstaklega
fyrir hiísbyggjendur um aðra helgi.