Morgunblaðið - 03.03.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARS 1985
47
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gestir snæða kínverska rétti i Shanghai, nýja kínvereka veitingahúsinu við
Laugaveginn.
Morgunblaðið/Arni SCDerg
íigendur og matreidslumeistarar á Shanghai (f.v.) Yok Peck Gilbert Khoo,
Joachim Fischer og Steve Cheng Theng Pang.
„Ætlum að láta matinn tala fyrir okkuru
- segja veitingamenn á Shanghai, nýjum kínverskum veitingastað
OPNAÐ hefur verið veitingahúsið
Shanghai að Laugavegi 28 í Reykja-
vík, sem sérhæfir sig í kínverskum
réttum. Um matseldina sjá víet-
namskir matreiðslumeistarar, Yok
Peck Gilbert Khoo og Steve Cheng
Theng Pang, sem starfað hafa við
matreiðslu á kínverskum veitinga-
stöðum í Austurlöndum og á Norður-
löndum. Sá fyrrnefndi er eigandi
veitingastaðarins ásamt Joachim
Fischer. Hefur Gilbert verið búsett-
ur hér á iandi í sjö ár og Joachim
tæp tvö.
Veitingamennirnir buðu blaða-
mönnum í vikunni að öragða á
ýmsum þeim ljúffengu réttum,
sem er að finna á matseðli húss-
ins. Við komuna var fyrst boðið
upp á kínverskt te, grænt eða
svart. Þá var borin fram Wan
Tan-súpa með tilheyrandi núðlum,
sem í voru kjötbitar. Og eftir
bragðmikla vorrúllu voru aðal-
réttirnir bornir fram hver af öðr-
um.
Fyrst kom djúpsteiktur smokk-
fiskur með hrísgrjónum og sósu,
þá nautakjöt með bambusspírum,
súrsætur kjúklingur, þá Hainan-
kjúklingur i bragðmikilli sósu
kenndur við Hainan-héraðið i
Kína. Loks var fram borið hrís-
grjónaspaghettí vermicelli með
nauta- og svínakjöti, eggjum og
soyaspírum.
Á matseðlinum kenndi auk
þessa margra grasa, en rúmlega
100 réttir eru á seðlinum. Má þar
nefna Pekingsúpu, krabba- og
maissúpu, eggjadropasúpu, súr-
sætar rækjur og humar með
grænmeti, fisk, súrsætan eða í
karríi með grænmeti, smokkfisk
með grænmeti eða djúpsteiktan,
svínakjöt Chop Suey með bamb-
usspírum eða baunaspírum, svín-
akarrý, ýmiss konar nautakjöts-
rétti, einn þeirra með ostrusósu,
lambakjöt og kjúklingarétti, einn-
ig endur, svosem súrsætar cða
steiktar Peking-endur. Loks eru á
matseðlinum ýmsir hrísgrjóna- og
núðluréttir.
Shanghai býður upp á liádegis-
verð virka daga og laugardaga og
kvöldverð alla daga nema mánu-
daga. Hægt er að fá salarkynnin
leigð fyrir einkaveizlur & mánu-
dagskvöldum. Sæti eru íyrir um 30
manns i salnum, sem eigendur
sögðu heppilega stærð, svo hægt
væri að veita gestum sem bezta
þjónustu.
Að sögn Joachims Fischer Iiefur
húsið sótt um vínveitingaleyfi svo
hægt verði að bjóða upp á létt vín
með mat, en sterkir drykkir vrðu
tæpast fram bornir, að hans sögn,
fáist vínveitingaleyfið.
Þá verður lokað milli mála i'.
Shanghai, því kinversk matar-
gerðarlist er þess eðlis að langur
tími fer í að undirbúa næsta inál.
Að sögn Joachims verður áherzla
lögð á góða vöru, „því við ætlum
að láta matinn tala fyrir okkur,"
eins og hann orðaöi það.
STORSYNING
Laugardag frá kl. 10-4 ocy sunnudag frá kl. 1-5
Sýndar verða 1985 árgerðirnar af:
Mazda 323 ———— Mazda 626
Mazda E Series Mazda TSeries m —\IsJ L/ ÍAlg Mazaa 929i
Sérstaklega kynnum við nýjan MAZDA 929 EGI með nýrri 120 hestafla vél
með tölvustýrðri beinni innspýtingu. Ennfremur sýnum við úrval af notuðum
MAZDA bílum, sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð.
Gerið ykkur dagamun og KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞAÐ NÝJASTA FRÁ MAZDA,
og auðvitað verður heitt á könnunni.
-áii BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99