Morgunblaðið - 03.03.1985, Page 66

Morgunblaðið - 03.03.1985, Page 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARS 1985 Fórnarlömb kjamorkusprengju STALÍNS okkar, Orest Y. Zvyagintsev. Margir starfsmanna stofnunar- innar létust tiltölulega ungir. Nöfn sumra þeirra, eins og til dæmis Boris N. Sudarikovs, sem lézt á sextugsaldri, birtust í vís- indaritum í svörtum ramma. Nokkrir stúdentanna, sem útskrif- uðust frá Moskvuháskóla og hófu störf hjá IONKH, létust úr bráð- um geislunarsjúkdómum. V ísindamen nirnir aðeins brot Sá fjöldi vísindamanna, sem nefndir hafa verið á nafn hér að ofan, og tugir annarra vísinda- manna, sem létust af völdum geislunar og minnzt er í vísinda- ritum, eru aðeins smábrot af heildinni. Fjöldi tæknimanna sem sýktust er enn meiri. Eftir að vís- indamenn hönnuðu sovézku kjarn- orkusprengjuna, unnu hundruð þúsunda verkfræðinga og verka- manna að smíði hennar. Leiðin frá úraníumnámunum að tilrauna- svæðunum var lögð likum þeirra. Á fyrsta áratug þróunar sprengj- unnar (1946—1955), voru það fangar í sovézkum vinnubúðum, sem lögðu mest af mörkum. I fangabúðunum voru jafnvel ein- földustu öryggisráðstafanir van- ræktar. Geislunarsjúkdómar bættust þar ofan á slysahættuna í námunum og verksmiðjunum. í sérhverri tilraun með sprengjuna var ekki eingöngu viðkomandi verkfræðingum hætta búin, held- ur einnig íbúum nálægra héraða. Alexander Solzhenitsyn telur í Gulag-eyjaklasanum upp fjölda mannvirkja, sem fangar byggðu og störfuðu við. Á þennan lista ber að bæta iðjuverinu í Norilsk, sem vinnubúðafangar byggðu. Fang- arnir unnu við námugröft og hreinsun á úraníummálmgrýti þegar ég heimsótti staðinn með vísindamanninum I. Chernyaev árið 1946. Hann var þarna sem ráðgjafi framkvæmdastjórnarinn- ar varðandi aðferðir við að að- skilja úraníum í þessari svonefndu „makaróní-verksmiðju" — en það nafn var notað til að breiða yfir ógnir úraníumvinnslunnar. Vísindamenn á Vesturlöndum vissu um margar tilraunir, sem gerðar voru með sovézku kjarn- orkusprengjuna. Geislavirkt ryk barst oft út fyrir landamæri Sov- étríkjanna, til dæmis í apríl 1956, þegar rykið barst til Kína. Fjölda þeirra, sem létust vegna áhrifa geislavirks ryks (og af öðrum sök- um þeim tengdum), var haldið vandlega leyndum í Sovétríkjun- um. Og það var ekki fyrr en löngu seinna, eða árið 1976, að dr. Zhor- es Medvedev svipti hulunni af stórslysinu sem varð við eldsvoða og sprengingu árið 1958 við verk- smiðju í sunnanverðum Úralfjöll- um, þar sem unnið var með geisla- virk úrgangsefni. Geislavirkt ryk- ið barst yfir stórt landsvæði; tugir þúsunda urðu fyrir geislun, og hundruð létu lífið. Hvers vegna létust svona margir? Athuganir á hættunni í sam- bandi við kjarnorkusprengjuna og kjarnorkuiðnaðinn í Sovétríkjun- um vekja tvær miklar spurningar: Hvers vegna létust svona margir? Og hvernig fóru Sovétríkin að því að halda stórslysi leyndu þar til grein Medvedevs birtist árið 1977? í upphafi kjarnorkuáætlunar- innar í ágúst 1945, gaf Stalín vís- indamönnunum fyrirmæli um að smíða sprengjuna á sem stytztum tíma, hvað sem það kostaði. Til að ná því takmarki, voru yfirvöldin hvorki spör á fjármagn né manns- líf. IONKH-stofnunin okkar var ekkert einstök að því er varðaði algjöran skort á öryggisráðstöfun- um í upphafi kjarnarannsókn- anna. Hjá öðrum stofnunum, sem hófu störf á árunum 1945—1946, var afstaðan sú sama. Auðvitað reyndi enginn að andmæla fyrir- mælum Stalíns. Að sögn Medvedevs vissu starfsmenn, sem unnu með geisla- virka ísótópa, jafnvel ekkert um hættuna, sem af þeim stafaði árið 1951 (þótt tvö ár væru liðin frá því Sovétríkin sprengdu fyrstu sprengjuna). Á fyrsta áratug sprengjuáætlunarinnar, 1946— 1955, var meira að segja bannað að minnast á orðið „geislunar- sýki“. Tímaritið Gigiena i Sanit- aria (Heilsufræði og heilbrigði) birti ekki eina einustu grein um geislunarhættuna fyrr en árið 1955. í nóvember 1955 (rúmum tveimur árum eftir lát Stalíns) birtist þar grein um ráðstefnu um geislun, sem haldin var í Moskvu í júlí það ár. Höfundurinn sagði að ráðstefnan hafi verið sú fyrsta sinnar tegundar þar í landi. Minnzt var á geislunarsýki og ein- kenni hennar í mörgum skýrslum, sem lagðar voru fram á ráðstefn- unni, og rætt um sjúkdómsgrein- ingu og varnaraðgerðir. Ráð- stefnufulltrúarnir lögðu áherzlu á þörfina á frekari rannsóknum á bindingu geislunar. Eftir þetta birtust greinar um vandamálið ekki aðeins í þessu tímariti, held- ur einnig í uppsláttarbókum. Til að kveða niður ummæli á Vestur- löndum um að Sovétríkin hefðu engan áhuga á sjúkdómum af völdum geislunar, ritaði sovézkur prófessor grein í bandarískt tíma- rit um vandamál geislunar. Fjölgun sýkinga og dauðsfalla í Sovétríkjunum varð svo mikil á sjöunda áratugnum, að greinar um vandann tóku að birtast jafn- vel í dagblöðunum. í grein eftir A. Lebedinsky prófessor, sem var fé- lagi læknavísindaakademíunnar (Baráttan gegn geislunarsýki, Pravda 18. ágúst 1964) segir bein- línis: „Geislunarsýki er afleiðing slysa, sem verða við starfrækslu kjarnakljúfa. Mörg svona tilfelli hafa hinsvegar því miður komið fyrir í efnarannsóknarstofum." Til að vera alveg sannleikanum sam- kvæmt hefði átt að standa þarna „tugir þúsunda" í staðinn fyrir mörg, og setningunni átt að ljúka með orðunum „kjarnorkuverum og tilraunasvæðum". Hvernig voru slysin falin? En hvernig fóru Sovétríkin að því að fela umfang hörmunganna? Svarið er ósköp einfalt: með sér- stöðu sovézkrar ritskoðunar. Til að fá skýra mynd af ritskoðun Stalíns, verða menn að þekkja til bókar, sem gefin var út á síðari hluta fimmta áratugarins, og bar heitið Listi yfir upplýsingar, sem bannað er að birta í fjölmiðlum. Eftir „leyndarfyrirmælin" ill- ræmdu frá 1947, varð ég að lesa þessa bók í stöðvum Fyrstu deild- arinnar, þar sem ég hafði verið skipaður (ásamt þremur öðrum IONKH-vísindamönnum) ritskoð- ari greina, sem starfsmenn okkar höfðu samið til birtingar. Meðal hundruða atvika, sem bókin bannaði að skýrt yrði frá, voru: sjúkdómsfaraldur; slys í námum, verksmiðjum og tilrauna- svæðum; slys í sambandi við ýms flutningatæki; allar náttúruham- farir, þar á meðal jarðskjálftar. Allar hagskýrslur voru bannaðar. Hversvegna ættu því sovézkir fjöl- miðlar að birta skýrslur (eða ein- stakar frásagnir) yfir dauðsföll vegna geislunar, jafnvel þótt þau skipti tugum þúsunda? Fjölmiðl- arnir létu ósagt frá enn meiri hörmungum, til dæmis hungurs- neyðinni sem fylgdi í kjölfar þess að bændur voru neyddir til að taka upp samyrkjubúskap á árun- um 1932—33, en þá létust um 5 milljónir manna í Úkraínu og rúmlega ein milljón í Kazakhstan úr hungri. Aðeins með því að bera saman tölur úr tvennum manntöl- um, árin 1926 og 1939, er unnt að sýna fram á fækkun íbúa Úkraínu og Kazakhstans þrátt fyrir heild- arfjölgun íbúa alls landsins á þessum árum. Fjöldi fórnarlamba Á meðan engar opinberar upp- lýsingar eru birtar um sovézk fórnarlömb geislunar, getum við aðeins gizkað lauslega á fjölda dauðsfalla hjá helztu þremur hóp- unum: vísindamönnum, tækni- fræðingum og verkamönnum; og einnig íbúanna í nánd við til- raunasvæðin. Árið 1950 voru alls 162.500 vísindamenn starfandi í Sovétríkjunum, og 60% þeirra, eða um 97.000, voru sérfræðingar í eðl- is- og efnafræði og tæknivísind- um. Sennilega tók um helmingur þeirra, um 48.000, þátt í þróun kjarnorkunnar á þann hátt að þeir áttu á hættu að verða fyrir geisl- un. Ef við tökum þennan fjölda og reiknum með svipuðu dánarhlut- falli og hjá IONKH, þar sem 5 af 80 vísindamönnum og tveir af 20 tæknifræðingum létust, ætti dán- artalan að vera milli 5 og 10%. Ef við förum milliveginn og reiknum með 7,5%, fáum við út að 3.600 vísindamenn hafi látizt á fyrstu fimm árum áætlunarinnar, og 44.900 til viðbótar þjáðst af sjúk- dómum tengdum geislun. Hér er varlega áætlað. I.N. Colovin, aðstoðarmaður Kurch- atovs, skrifaði að „mörg þúsund manns unnu að lausn kjarnorku- vandans á þessum árum (1945— 60) í verksmiðjum, stofnunum og tilraunastöðvum", og að þeim þátttakendum í kjarnorkuáætlun- inni fækki óðum, sem enn séu á lífi. Hinsvegar sagði svo náinn vinur minn, sem er háttsettur vís- indamaður, eftir eina af heim- sóknum sínum í kjarnorkuver í sunnanverðum Úralfjöllum: „Þú getur ekki ímyndað þér hve gífur- lega hátt dánarhlutfallið er hjá vísinda- og tæknimönnum þarna. í hvert sinn sem ég heimsæki orkuverið sé ég að stærð kirkju- garðsins hefur tvöfaldazt." Sé gengið út frá því að ein millj- ón verkfræðinga og verkamanna að minnsta kosti hafi unnið að þróun sprengjunnar, allt frá vinnslu úraníummálmgrýtis upp í sjálfa smíði sprengjunnar, og að milli 5 og 10% þeirra hafi látizt af þeim sökum, er útkoman 50—100 þúsund dauðsföll. Þessar tölur eru sambærilegar við fjölda látinna í Hiroshima. Hvað varðar tilraunir með sprengjuna, þá bætast við dauðs- föll þeirra sem unnu að og skipu- lögðu sprengingarnar, dauði fjölda sovézkra borgara, sem voru svo óheppnir að búa á landsvæð- um, sem urðu fyrir geislavirku ryki. Medvedev hefur skýrt frá því að tugir þúsunda manna hafi orðið fyrir áhrifum sprengingar á ein- um stað, þar sem unnið var úr geislavirkum úrgangi. Það er heldur ekki að efa að við hverja tilraunasprengingu bárust þján- ingar og dauði til þúsunda manna. Af þessum tölum áætla ég að fleiri hafi látið lífið við þróun sov- ézku kjarnorkusprengjunnar en samtals í bæði Hiroshima og Nagasaki. (llr New Scientist) Bandarískur ljósmyndari, 29 ára gamall, vill fræðast um ísland: Joseph V. Castilio, P.O. Box 8101, Flat 5224, C58490 San Luis Obispo, California 93409, Bandaríkjunum. Fimmtán ára japönsk stúlka með áhuga á dansi, söng o.fl.: Tomoko Fujita, 1-42-13, Hiroe 3 chome, Kurashiki-shi, Okayama, 712 Japan. Ellefu ára sænsk stúlka með áhuga m.a. á körfuknattleik, leik- húsi, tónlist, dans og dýrum. Skrifar á ensku auk sænsku: Katarina Mindelsohn, Ása Hajom, 51102 Skene, Sverige. Þrítug einhleyp brezk kona, sem kennir á dagheimili og hefur margvísleg áhugamál, m.a. að heimsækja ísland einhverju sinni: Sorrell Papworth, „Le Bateau“, 35 Swift Garden, Woolston, Southampton, Hants, England S02 9FQ. Bandarísk hjón, sem bæði verða sextug í ár, hafa mikinn áhuga á íslandi og hyggjast dveljast á ís- landi og ferðast um landið í 1—2 mánuði í sumar. Óska eftir að skrifast á við íslenzk hjón og fræðast þannig örlítið meira um land og þjóð: W.A. Reynolds, P.O. Box 19688, San Diego, California 92119, U.S.A. Fimmtán ára japönsk stúlka með áhuga á tónlist: Ayumi Saito, 919-104 Namiki, 4-chome, Sakuramura, Niiharigun, Post 305, Japan. Kanadískur frímerkjasafnari vill skrifast á við íslenzka frímerkja- safnara og skiptast á frímerkjum: John Oselies, Alberta Beach, Alta, Canada TOE 0A0. Ellefu ára sænsk stúlka með áhuga á hestum, íþróttum, tónlist o.fl. Skrifar á ensku auk sænsku: Maria Gustafsson, Bránna Tostared, S-51013 Björketorp, Sverige. Tæplega þrítugur Austur-Þjóð- verji með áhuga á íslenzkum bókmenntum og íslenzkri list: Ulrich Kreisel, DDR-2200 Greifswald, Hans-Beimler-Strasse 10, East Germany. Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka með margvísleg áhugamál: Bridget Belinda Biney, P.O. Box 1108, Cape Coast, Ghana. Frá Ástralíu skrifar 24 ára stúlka með íþróttaáhuga, starfar á póst- húsi, vill skrifast á við stúlkur á aldrinum 22—26 ára: Jacky Pyne, c/o Postal Staff, Gladstone 4680, Queensland, Australia. Tvítug vestur-þýzk stúlka, sem nemur barnahjúkrunarfræði, með margvísleg áhugamál. Skrifar á ensku og sænsku auk þýzku. Einn- ig kann hún lítilræði í frönsku: Ines Wernsmann, Anna-Luise-Strasse 15, 4690 Herne 1, W-Germany. Nítján ára japönsk stúlka með kvikmynda- og íþróttaáhuga. Vill skrifast á við stúlkur á sínum aldri: Junko Hattori, 1355-150 Hannan-cho, Tottori, Sennan-gun, Osaka, 599-02 Japan. Tíu ára sænskur piltur með marg- vísleg áhugamál, safnar m.a. frí- merkjum: Per-Niklas Skillemark, Ekviken Skavarp, S-570 60 Österbymo, Sverige. Tvítug finnsk stúlka með marg- vísleg áhugamál: Merja Váánánen, Mustavuori 4, SF-45730 Kuusankoski, Finland. Tíu ára bandarískur piltur með íþróttaáhuga: Joseph Fiorini, 6200 58th Street N.E., Marysville, Washington, 98270 U.S.A. Sextán ára japönsk stúlka með áhuga á tónlist: Hisami Watanabe, 475 Nagasawa, Imabari City, Ehime, 799-15 Japan. Frá Ghana skrifar 21 árs stúlka með margvísleg áhugamál: Cendy Collins, c/o Kojo Mensa, P.O. Box 468, Cape Coast, Ghana. Fjórtán ára bandarísk stúlka með margvísleg áhugamál. óskar eftir pennavinum 13—16 ára: Angelia Ann Neal, 1125 W.Broad St., Smithville, Tennessee 37166, U.S.A. Ellefu ára sænsk stúlka sem hefur mikinn áhuga á að fræðast eitt og annað um ísland: Nina Tapper, Haggatan 1, 81400 Skutskár, Sweden. Tíu ára gamall bandarískur piltur skrifar fyrir hönd 30 bekkjar- systkina, sem öll fengu mikinn ís- landsáhuga í landafræðitímum í skóla sínum í Tulare, sem er miðja vegu milli Fresno og Bakersfield í Kaliforníu. Langar krakkana að skrifast á við jafnaldra sína eða jafnöldrur: James Bionda, Kohn Elementary School, 500 South Laspina Street, Tulare, California 93274, U.S.A.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.