Morgunblaðið - 03.03.1985, Blaðsíða 72
72
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARS 1985
Ótrúlegt úrval
fermingargjafa
Club 8-raðhúsgögn
og svefnbekkur
Ótrúlegir möguleikar
Efni: Hvítt eöa Ijós viöarlitur.
Skrifborö — Skrifborösstólar
Fururúm — margar geröir
3 breiddir
Furunáttborö 3 geröir
Sendum um allt land
Vörumarkaðurinn hf.
J Ármúla 1A. S. 91-686112.
m. t i 'i* u M ** *
yKl •*. W^m
Moryunblaöið/Árni Sæberg
Þátttakendur í eðlisfræðikeppninni. Standandi fri vinstri: Ásgeir Ægisson MK og Sigurður Ass Grétarsson MR.
Sitjandi frá vinstri: Ingveldur Jónsdóttir MH, Reynir Kristjbörnsson MS og Sigurbjörn Þorkelsson MH. Á myndina
vantar Vilmund Pálmason úr MK.
Eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema:
Keppt til úrslita um helgina
Síðari hluti eðlisfræðikeppni fram-
haldsskólanemenda, sem Kðlis-
fræðifélagið og Félag raungreina-
kennara standa að með stuðningi
Morgunblaðsins, mun fara fram nú
um helgina 2. og 3 mars. Þá munu
hinir fimm efstu úr forkeppninni
keppa til úrslita bæði í skriflegum og
verklegum prófum.
Dagskrá keppninar er þannig:
Frá kl. 9—12 í gær fengust kepp-
endur við skrifleg verkefni í húsa-
kynnum Raunvísindastofnunar.
Síðan snæddu þeir hádegisverð í
Lækjarbrekku í boði staðarins en
kl. 14 var farið í heimsókn á Veð-
urstofu Islands og stofnunin skoð-
uð.
I dag, sunnudag, fást keppendur
við verkleg próf í húsakynnum
Raunvísindastofnunar. Að loknum
hádegisverði er Hótel Saga býður
til munu keppendur skoða Raun-
vísindastofnun Háskólans og
kynna sér starfsemina þar.
Lokahóf verður svo í Skólabæ,
Suðurgötu 26, kl 15:30 og þar mun
afhending verðlauna fara fram.
Fyrstu verðlaun eru 10 þúsund kr.
og koma efstu menn sterklega til
álita til þátttöku í Ólympíuleikun-
um í eðlisfræði sem fram munu
fara í Portoroz í Júgóslavíu í
sumar.
Keppendurnir 5 sem komust í
úrslit eðlisfræðikeppninnar eru:
Vilmundur Pálmason Mennta-
skóla Kópavogs, Sigurður Á. Grét-
arsson Menntaskólanum í Reykja-
vík, Sigurbjörn Þorkelsson
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
Reynir Kristbjörnsson Mennta-
skólanum við Sund, Ingveldur
Jónsdóttir Menntaskólanum við
Hamrahlíð og Ásgeir B. Ægisson
Menntaskólanum í Kópavogi.
1. a) Stöng af lengd a (allstaðar jafnsver og úr sama
efni) stendur lóðrétt og óstudd upp á endann.
Vegna smátruflunar fellur hún síðan út á hlið.
Neðri endinn er festur í jörðina með núningslausri
hjöru, svo hann lyftist ekki né renni til meðan
stöngin fellur. Loftmótstaða er enginn.
Verður hröðun miðpunkts tangarinnar meiri eða
minni en 9,8 m/sek2 á augnablikinu rétt áður en
stöngin skellur í jörðina? Rökstyðjið með útreikn-
ingum.
b) í Morgunblaðinu fyrir nokkrum ár-
um birtist í frétt: „Annað fjarskiptam-
astrið í Grindavík fellt í gær“ og fylgdi
Ijósmynd. Rökstyðjið með hliðsjón af a)
en án frekari útreikninga, hvort myndin
muni hafa litið út eins og i) eða ii) hér
við hliðina.
2. Fjögur eins viðnám, 500 ohm, eru tengd
í Wheatstones-brú og við hana 10 V raf-
hlaða. Þá fer enginn straumur um mæl-
inn M. Nú er R] breytt í 501 ohm og R2
í 499 ohm.
Áætlið þá, hve mikill straumur fer í
gegnum M, ef innra viðnám mælisins er
a) miklu meira en 500 ohm, t.d. 100
kíló-ohm
b) miklu inna en 500 ohm, t.d. 2 ohm.
Innra viðnám rafhlöðunnar er hverf-
andi lítið.
3. Á endum stangarinnar AB, sem er 2
metra löng, eru hátalarar, sem senda út
samfasa hijóðbylgjur. Maður er staddur
5 metra hornrétt frá miðju stangarinnar,
I P, og heyrir þá hljóðið vel. Uf hann
gengur frá P dofnar hljóðið fyrst en nær
aftur hámarki í Q, 1 m frá P.
a) Hver er bylgjulengd hljóðsins? Þarf
maðurinn aö ganga meira eða minna en
1 m frá Q í sömu átt tii að hljóðið nái
hámarki? Rökstyðjið.
b) Stönginni er snúið einn hring um
miðju sína. Hversu oft nær hljóðstyrkur-
inn lágmarki á meðan, t.d. í P?
4. llm bifreið eru gefnar eftirfarandi upp-
lýsingar. Hámarkshröðun 0 til 60 mph
(mílur á klukkustund) á 10 sekúndum.
Hámarkshraði 120 mílur.
a. ) Hve lengi er hún þá að komast eina
mílu, miðað við þá forsendu að hröðun
hennar sé stöðug og óháð hraðanum al-
veg upp að hámarkshraða, og milan er
1,6 Km.
b. ) Ef bifreiðin vegur 2 tonn, hvert þarf
vélarafl hennar að vera miðað við gefn-
ar forsendur, og hve hratt gæti hún ekið
upp Kamba (10% halla)?
Ekki er tekið tillit til neins viðnáms.
5. Tvegga kg kúla (með hreyfiorku 100
Kcal) rekst beint á eins kg kyrrstæða
kúlu og missir við það 75%af hreyfiorku
sinni.
a) Hver verður hreyfiorka iitlu kúiunn-
ar?
b) Hve stórum hluta af hreyfiorku sinni
gæti stærri kúiari tapað í minnsta og
mesta falli og eftir hverju fer það?
6. Varmaleiðni góðrar einangrunar er talin
0,03 watt/m<>C.
A) Hve mikill varmi streymir þá gegnum
1 fermetrn af 10 cm þykkri einangrun,
þegar hitastigsmunur yfirborðanna er
10°C?
b) Hve þykka einangrun þarf á 500 rúm-
metra kassa (hús) 10x10x5 metrar til
að hitareikningurinn sé ekki meiri en
1000 krónur á mánuði, miðað við að það
þurfi að halda innihaldi hans 15 gráðum
heitari en umhverfið, og að hver kílów-
attstund kosti 50 aura?
Áskriftarsíminn er 83033