Morgunblaðið - 14.03.1985, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
13
Hvassaleiti
Höfum fengiö í sölu tvö glæsileg parhús viö Hvassaleiti.
Afhendast fullgerö aö utan, pússuö meö gleri og útihurö-
um, járni á þaki, fokheld aö innan. Ferm.fjöldi hvers húss
200 fm meö bilsk. Möguleiki aö taka minni eign uppi
kaupverð.
Teikn. á skrifst. Verö 4,2 millj.
Séreign,
Baldursgötu 12,
símar 29077.
MK>BORG=*
Lækjargata 2 (Nýja Bíó-húsinu) 5. hæö.
S: 25590 - 21682 - 18485
Kéranoabraut. Falleg 150 fm sérhæö
meö nýrri eldhúsinnr. + bílsk. Ákv. sala.
Laus ftjótl. Verö 3.4 millj.
Flúöasel. Góö 110 fm ib. á 1. hæö ♦
bilskýti. Ákv. sala. Laus fljótl. Verö 2.2
millj.
Þverbrekka. Góö 70 fm 2ja herb. Ib.
Góöar Innr. Verö 1500-1550 þús.
Sundlaugarvegur. Góö 3ja herb. risíb.
Litiö undir súö. Akv. sala. Verö
1650-1700 þús.
Gaukshólar. Falleg 3ja herb. ib. ♦ bilsk.
á 7. hæö. Gott útsýni. Ákv. sala. Verö
1950-2000 þús.
Kjarrhólmi. Góö 3ja herb. íb. meö nýrri
eldhúsinnr. Akv. sala. Verö 1800-1850
þús.
Yrsufell. Gott 145 fm raöhús ♦ bilsk.
Góöar innr. Akv. sala. Mögul. á skiptum
á minni eign. Verö 3,3-3,4 millj.
Reyöarkvfal. Endaraöhús 240 fm ♦ 38
fm bilsk. Selst fokhelt i júni eöa júli.
Verö 2.6 millj.
Laufésvagur. Sórhæö ♦ ris. Sérlega
hentugt tækifæri fyrir laghentan mann.
Bílsk fylgir eigninni. Verö 2-2,1 millj.
Góöir greiösluskilmálar.
Sogavagur. Falleg 6 herb. ib. i fjórbýli.
Þvottahús i ib. Óvenju stór og góö bilsk.
fytgir eigninni. ib. er um 150 fm. Akv.
sala. Verö 3,4-3,5 mlllj.
Þverbrakka. Glæsileg 117 fm ib. á 9.
hæö. Óvenju vandaöar innr. Sérlega vel
um gengin eign. Ákv. sala. Laus ftjótl.
Verö 2,5 millj.
Læk jargata 2 (Nýja Bíóhúsinu) 5. hæö
Simar: 25590 og 21682.
Sverrir Hermannsson,
Guömundur Hauksson,
Þórarinn Kjartansson,
Brynjólfur Eyvindsson hdl.
Vegna gódrar sölu undanfarið vantar okkur allar
stærðir eigna i skrá. Höfum fjársterka kaupendur að
3ja og 4ra herb. íbúöum í Seljahverfi, ísumum tilfellum
óvenju góðar greiðslur í boði.
Vinsamlegast hafið samband við okkur sem fyrst.
MR-ingar viðhalda
ALLIR þeir sem hafa setið Menntaskólann í Reykjavík síðan 1930, að
minnsta kosti, eiga að kannast við „Selið“. Selið er stór skáli í eigu MR
og stendur hann á fallegum stað rétt fyrir ofan Hveragerði. Skálinn var
reistur á síðari hluta fjórða áratugarins og er því kominn vel til ára sinna
og orðinn dálítið þreyttur útlits. En þeir MR-ingar er nú sitja skólann
hyggjast bæta úr því, en þeir eru nokkuð einhuga um að vinna sjálfir að
því að laga og halda skálanum við svo að ekki fari enn verr fyrir honum.
Er Selið var reist á sínum tíma
þótti það nokkuð stórvirki, ekki
síst fyrir þær sakir að smíðina
önnuðust að mestu leyti nemend-
ur og kennarar skólans og voru
hinar svokölluðu „Selsferðir"
mjög vinsælar meðal nemenda.
Skipulegar Selsferðir hafa hins-
vegar ekki verið á dagskrá síðast-
liðin fimm ár vegna ástands skál-
ans. Ferðir þær er farnar voru í
Selið voru yfirleitt skipulagðar í
tengslum við námið og félagslífið
og fóru kennarar með hópnum.
Til dæmis voru farnar sérstakar
náttúruskoðunarferðir, haldin
voru mælskumót, settir voru upp
leikþættir og lista- og skemmti-
kvöld voru tíð.
Tómas Guðbjartsson, inspector
scholae (en það er nafn það sem
formaður nemendaráðs MR geng-
ur undir), sagði að þrátt fyrir alla
þá vinnu sem núverandi nemend-
ur MR væru tilbúnir að leggja
fram til viðhalds húsinu vantaði
nokkurt fjármagn. „í haust voru
haldnir tveir fjölmennir skóla-
fundir þar sem ákveðið var að
vinna að því að lagfæra Selið svo
að hinar hefðbundnu ferðir þang-
að gætu haldið áfram og núver-
andi nemendur fengju að njóta
þeirrar Sels-stemmningar sem
pabbi, mamma, afi og amma urðu
aðnjótandi á sínum mennta-
skóla-árum."
Tómas sagði að gluggar væru
ónýtir vegna leka, fúa gætir víða,
raflagnir þarf að endurnýja og
siðast en ekki síst þarf að leggja
nýja hitalögn frá nýrri borholu
að húsinu. Við höfum fengið leyfi
Orkustofnunar um að fá að leggja
frá annarri nærliggjandi bor-
holu.“
„Ekkert hefur verið gert fyrir
húsið í ein átta ár, en nú hefur
verið ákveðið að ráðast í viðgerð
af fullum krafti eftir deyfð und-
anfarinna ára. Smiðir hafa verið
ráðnir og eru framkvæmdir þegar
hafnar. Nemendur treysta sér
eiginlega til að vinna allt sem
gera þarf nema smiðsvinnuna.
Fyrsti áfangi verksins er viðgerð
á gluggum og fúaskemmdum og
er sá kostnaður áætlaður rúm-
lega 200.000 krónur. Annar
áfangi, sem ráðist verður í um
leið og fjármagn fæst, er lagning
hitaveitu frá nýju borholunni'.
Hún mun kosta um 130.000 krón-
ur. Þriðji og síðasta áfanginn er
„Selinu“
svo endurnýjun á raflögnum auk
annarra viðgerða og er áætlaður
kostnaður við það um 150.000
krónur. Samtals eru þetta þá
orðnar 480.000 krónur.
Tómas sagði að fyrirhugaðar
væru vinnuferðir í Selið um helg-
ar og einnig verður unnið í hús-
inu í sumar að einhverju leyti.
„Kennarar hafa hvatt okkur mjög
og lýst yfir áhuga sínum.“
Til að fjármagna verkið hefur
skólafélagið ákveðið að snúa sér
til allra þeirra nemenda er setið
hafa MR síðan Selið var byggt.
Tómas sagði að þó nokkuð góð
viðbrögð hefðu verið í byrjun og
söfnuðust þá 70.000 krónur.
Skólafélagið átti 40.000 krónur,
sem gekk beint í viðhaldið, svo að
samtals eru þarna 110.000 krón-
ur. Þessir peningar eru þó ekki
nægjanlegir og vonumst við svo
sannarlega til að MR-ingar,
gamlir sem ungir, taki við sér því
allir hafa þeir átt sínar góðu
Sels-stundir.“ Tómas vildi að
fram kæmi að núverandi nem-
endur MR sætu ekki endilega ein-
ir að Selinu, heldur væri tilvalið
fyrir gamla árganga að halda ein-
mitt upp á stúdentsafmæli sín í
Selinu og væri húsið tilvalið fyrir
gamla árganga að hittast þar.
„Það gengur ekki til lengdar,
MR-ingum til skammar, að Selið
standi svona eitt og yfirgefið,"
sagði Tómas að lokum.