Morgunblaðið - 14.03.1985, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
Umfangsmestu hafrannsóknir til þessa:
65 sjómenn og
25 rannsóknar-
menn að störfum
UM ÞESSAR mundir standa yfir umfangsmiklar rannsóknir á helztu botn-
fisktegundum hér við land og standa þær í um tvær vikur. I>ad eru 65
sjómenn og 25 rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun, sem rannsóknirn-
ar stunda og er þetta í fyrsta sinn sem samvinna sem þessi railli stofnunar-
innar og sjómanna á sér stað. Rannsóknir fara fram á 5 togurum, sem
stofnunin hefur sérstaklega leigt til þessa verkefnis. Togað verður á 600
stöðum frá grunnslóð út á 500 metra dýpi umhverfis landið.
í fréttatilkynningu frá Haf-
rannsóknastofnun um rannsókn-
irnar segir ennfremur:
„Undirbúningsvinna hófst í
október sl. Þá var skipuð sérstök
verkefnisstjórn á Hafrannsókna-
stofnun undir forystu Ólafs K.
Pálssonar fiskifræðings. Auk verk-
efnisstjórnarinnar hafa margir
skipstjórar úr öllum landshlutum
unnið að undirbúningi rannsókn-
anna. Hann hefur m.a. falist í því
að velja þá 600 staði sem togað
verður á. Skipstjórarnir völdu
helming þeirra en fiskifræðingar
hinn helminginn. Mikil og góð sam-
vinna tókst milli sjómanna og haf-
rannsóknamanna um allan undir-
búning leiðangranna.
Um borð í hverjum togara eru 5
starfsmenn Hafrannsóknastofnun-
ar sem annast gagnasöfnun. Allar
upplýsingar eru jafnharðan settar
inn á tölvu til að flýta fyrir úr-
vinnslu þegar leiðöngrum lýkur.
Tilgangurinn með þessu átaki er
meðal annars að fá meiri vitneskju
um þorskstofninn og aðrar botn-
fisktegundir en nú er fyrir hendi.
Gefa slík vinnubrögð sjómönnum
og útvegsmönnum kost á að fylgj-
ast með og taka beinan þátt í rann-
sóknastarfseminni.
Ef vel tekst til verða þessar
rannsóknir endurteknar árlega
með stöðluðum veiðarfærum. Er þá
vonast til þess að breytingar í afla
þessara fimm togara endurspegli
breytingar á stærð fiskstofnanna.
Gildi rannsóknanna eykst því oftar
sem þær eru gerðar.
Allir fimm togararnir eru eins,
smíðaðir í Japan fyrir rúmum ára-
tug. Þeir eru:
Togari Skipstjóri
Arnar HU 1 Birgir Þórbjarnarson
Drangey SK 1 Kristján Ragnarsson
Hoffell SU 80 Högni Skaftason
Páll Pálsson IS 102 Guðjón A. Kristjánsson
Vestmannaey VE 54Eyjólfur Pétursson
Rannsóknasvæðinu er þannig skipt að Páll Pálsson verður á svæðinu frá
Snæfellsnesi norður að Strandagrunni. Arnar rannsakar Norðurlandsmið
austur á móts við Melrakkasléttu, Drangey verður út af norðaustanverðu
landinu, Hoffell rannsakar miðin út af sunnanverðum Austfjörðum og
suðausturlandi en Vestmannaey út af suðvesturlandi."
Leiðangursstjóri
Viðar Helgason
Sigfús A. Schopka
Guðni Þorsteinsson
Ólafur K. Pálsson
Einar Jónsson
Morgunblaðið/ ÓI.K.M.
Skólameistarar
ráða ráðum sínum
Menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, hefur fundað reglulega með
skólameisturum framhaldsskólanna frá því aö hluti kennara við skólana lögðu
niður störf hinn 1. mars. Á myndinni sjást skólameistararnir ásamt mennta-
málaráðherra á 4. fundi þeirra.
Standandi frá vinstri: Aðalsteinn Eiríksson, Kvennaskólanum i Reykja-
vík, Ragnhildur Helgadóttir, Hörður Lárusson, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneyti, Þorlákur Helgason, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Ingólfur
Þorkelsson, Menntaskólanum í Kópavogi og Þórir Ólafsson, Fjölbrauta-
skóla Akraness. Sitjandi frá vinstri eru: Ingólfur Halldórsson, Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, Kristinn Kristmundsson, Menntaskólanum á Laugar-
vatni, Guðmundur Sverrisson, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Örnólfur
Thorlacius, Menntaskólanum við Hamrahlíð, Þorsteinn Þorsteinsson,
Fjölbrautaskóla Garðabæjar, Ingvar Ásmundsson, Iðnskólanum í Reykja-
vík, Hafsteinn Sigurðsson, Fjölbrautaskólanum Ármúla, Kristján Bersi
Ólafsson, Flensborg, Björn Bjarnason, Menntaskólanum við Sund, Guðni
Guðmundsson, Menntaskólanum í Reykjavík, og Sólrún Jensdóttir, skrif-
stofustjóri í menntamálaráðuneytinu.
Verksmiðjuhús
Henson á Akra-
nesi tekið í notkun
Akranesi, 11. mars.
HIÐ nýja verksmiðjuhúsnæði
Henson hf. á Akranesi var form-
lega tekið í notkun sl. föstudag,
og í tilefni þess var gestum boðið
til opnunarathafnar þar sem ræð-
ur voru fluttar og fram fór tísku-
sýning á framleiðslu fyrirtækis-
ins.
Meðal viðstaddra voru al-
þingismenn, bæjarstjórnar-
menn á Akranesi, iðnaðarmenn
sem unnu við byggingu húsnæð-
isins svo nokkrir séu nefndir.
Verksmiðjan er mjög vistleg og
er aðstaða starfsfólks til fyrir-
myndar.
Hið nýja verksmiðjuhúsnæði
stendur við Kalmansvelli 1, sem
er við þjóðveginn á hægri hönd
þegar ekið er út úr bænum.
Bygging hússins var hafin 15.
september 1984 og hefur því
tekið tæpa 6 mánuði að fullgera
það.
Verksmiðjuhúsið er 807 fm að
stærð eða 3519 rúmm. og lóð
hússins er 3995 fm. Hönnun
annaðist Verkfræði- og teikni-
stofan sf. á Akranesi, en aðal-
verktaki byggingarinnar var
Þorgeir & Ellert hf. Húsið er
byggt úr forsteyptum undir-
stöðuklossum og útveggjaein-
ingum sem framleiddar voru
hjá Þorgeiri og Ellert hf. Burð-
arvirki hússins er úr þessum
einingum. Þak er borið uppi af
límtrésbitum og súlum. Inn-
veggjahleðslur eru úr múrsteini
og loftklæðning með lituðum
stálplötum.
Þessi byggingaraðferð hefur
reynst mjög fljótleg og þægileg,
og víst er, að þessi byggingar-
máti hentar mjög vel bygging-
um af þessari stærð. Kappkost-
að hefur verið að ljúka öllum
frágangi bæði utan og innan og
má í því sambandi nefna að
húsið var málað að utan í janú-
armánuði sem að öllu jöfnu
þykir ekki besti tíminn til
þeirra verka. Aðstaða starfs-
fólks er mjög rúmgóð og
skemmtileg. Stefnt er að því að
ljúka frágangi við lóð strax í
vor og verða þá m.a. bifreiða-
stæði lögð varanlegu slitlagi.
Þessum skamma byggingar-
tíma má þakka fyrst og fremst
aðalverktaka hússins, Þorgeiri
& Ellert hf., og starfsmönnum
fyrirtækisins, en aðrir verktak-
ar voru Skóflan sf. sem sá um
jarðvegsframkvæmdir, Tré-
smiðjan Akur sem annaðist
mestan part af tréverki innan-
húss, Pípulagningarþjónustan
sf. sem sá um pípulagnir, Rík-
harður Jónsson sf. sem lagði
gólfdúk auk málningar innan-
húss, Sveinn Knútsson múrara-
meistari sem sá um hleðslu á
milliveggjum auk flísalagnar.
Sveinn naut aðstoðar Ásmund-
ar Kristinssonar og hans
manna. Vélar og annar útbún-
aður var lagður til af nokkrum
fyrirtækjum og eiga þar stærst-
an hlut að máli Snæfell sf. sem
umboðsaðili fyrir JUKI-sauma-
vélar.
Henson-sportfatnaður hf. hóf
starfsemi sína 1969 og var
fyrstu árin til húsa í Lækjar-
götu 6b, þaðan flutti fyrirtækið
í eigið húsnæði á Sólvallagötu 9.
Það húsnæði dugði næstu 5 árin
því 1979 var enn flutt, þegar
húsnæði var keypt í Skipholti
37 þar sem aðalstöðvar fyrir-
tækisins eru nú.
Árið 1983 var stofnað útibú á
Selfossi þar sem fyrst og fremst
er framleiddur regnfatnaður.
Jafnframt hefur á ýmsum tím-
um verið leitað ásjár hjá nokkr-
um saumastofum í Reykjavík og
nágrenni með tímabundna
framleiðslu.
Á löngum tíma hafa orðið
miklar breytingar á framleiðsl-
unni og nú í seinni tíð hefur
einkum verið sveigt inn á tísku-
fatnað auk hefðbundins íþrótta-
og sportfatnaðar. Með hinni
nýju verksmiðju á Akranesi
aukast möguleikar mjög á því
að fullnægja eftirspurn sem
erfitt hefur reynst og jafnframt
að framleiða fjölbreyttari fatn-
að.
Forstöðumaður hinnar nýju
verksmiðju verður Sigurður
Lárusson sem þekktur er sem
fyrirliði ÍA í knattspyrnu og
leikmaður í landsliði íslands.
Verkstjóri verður Björg Hraun-
fjörð, sem menntað hefur sig í
fataiðnaði og m.a. annast
kennslu í faginu. Hjá Henson
hf. starfa nú um 100 manns, en
hér á Akranesi hafa verið ráðn-
ir 20 starfsmenn. Ráðgert er að
þegar framleiðsla er komin á
fulla ferð verði starfsmönnum
fjölgað til muna.
J.G.
Sjá viðtal við Halldór Einars-
son I viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í dag, bls. 8B.
Morgunblaðið/ Jón GunnlauKason
Frá vígsiu hins nýja verksmiðjuhúss Hensons hf. á Akranesi. Talið frá vinstri: Hermann Guðmundsson,
símstöðvarstjóri, Guðjón Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, Þorgeir Jósefsson, stofnandi og forstjóri
Þorgeirs og Ellerts hf., Helgi Jónsson, bankastjóri Landsbankans og hjónin Esther Magnúsdóttir og Halldór
Einarsson.