Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
17
Póstur og sími best í stakk bú-
inn til að leggja breiðbandskerfi
— eftir Ólaf Tómasson
framkvæmdastjóra
Undanfarna daga og vikur hafa
birst opinberlega nokkrar greinar
um breiðbandskerfi á vegum
sveitarfélaga. Má þar nefna grein
Sigfúsar Björnssonar í Skipu-
lagsmálum höfuðborgarsvæðisins,
1 1985 og greinar í Alþýðublaðinu
26.02, 1.03, og 2.03, DV 28.02 og í
Morgunblaðinu 3.03 1985. í öllum
þessum greinum er vitnað til
hugmynda um, að sveitarfélögin
byggi upp breiðbandskerfi til
dreifingar á sjónvarpsefni og noti
síðan þetta sama kerfi til gagna-
flutninga eða annarra fjarskipta.
Ef ný útvarpslög rýmka rétt
manna til að dreifa hljóðvarps- og
sjónvarpssendingum, breyta þau
ekki neinu um önnur fjarskipti,
t.d. gagnasendingar, sem falla al-
farið undir einkarétt ríkisins,
samkvæmt fjarskiptalögum frá
1984. Eins og fram kemur í grein
Sigfúsar er hægt að nota núver-
andi talsímakerfi fyrir hluta af
þessum gagnaflutningum, en hann
varar hins vegar við bjartsýni á
möguleikum símakerfisins til
þeirra hluta.
Það verður ef til vill ekki hægt
að nota hið venjulega simanet til
allra hugsanlegra gagnaflutninga,
en áður en farið er út í uppbygg-
ingu á stærra kerfi, þarf að gera
sér grein fyrir, hver þörfin er. í
núverandi símakerfi geta notend-
ur fengið módem annaðhvort á
sérlínum eða línum, þar sem skipt
er milli tals og gagnasendinga eft-
ir að sambandið er tengt upp.
Sendihraði þessara módema er
allt að 9600 bit/s og á styttri leið-
um 19200 bit/s, sem er mesti
hraði, sem t.d. SKÝRR getur nú
tekið á móti.
Ef einstök fyrirtæki þurfa meiri
hraða, er hægt á núverndi
strengjakerfi að fasttengja allt að
2 Mbit/s milli ákveðinna notenda
með stafrænu kerfi, en nú þegar
hafa verið sett upp yfir 100 slík
símakerfi á höfuðborgarsvæðinu,
sem hvert um sig getur flutt 30
talrásir, sem hver um sig er 64
Kbit/s. Þessar talrásir verða einn-
ig notaðar fyrir gagnaflutninga.
Póst- og símamálastofnunin
mun strax á næsta ári hefja bygg-
ingu breiðbandsnets á Reykjavík-
ursvæðinu, sem byggist á ljósleið-
aratækni til flutnings á talsam-
böndum og öðrum fjarskiptum á
aðalleiðum milli símstöðva og ef
til vill annarra dreifipunkta í
símakerfinu. Þetta net er það
sveigjanlegt, að auðvelt er að
koma þar við miklu af gagnasend-
ingum og einnig sendingum á
sjónvarpsrásum, ef óskað er.
Lagðir verða f þessum tilgangi
strengir með mörgum ljósleiður-
um og gert ráð fyrir, að hvert par
ljósleiðara beri 140 Mbit/s, sem
síðar mætti stækka f 565 Mbit/s
eða jafnvel meir eftir þörfum
samkvæmt áætlaðri tækniþróun.
En 140 Mbit/s hraði er nægi-
legur til að flytja 1920 talrásir eða
2—4 sjónvarpsrásir, hins vegar
virðist þörfin f sambandi við aðrar
gagnasendingar óljós, en ef til vill
vilja fyrirtæki tengja saman svo-
kölluð LAN-kerfi, sem er nærnet,
sem notuð verða innan stórra
fyrirtækja.
í DV er haft eftir Gesti ólafs-
syni, að fyrir liggi upplýsingar
um, að Póst- og simamálastofnun-
in muni ekki ráða við það verkefni
að leggja slíkt net um höfuðborg-
arsvæðið, fyrr en eftir aldamót.
Þessar upplýsingar hefur Gestur
ekki frá Pósti og síma, en ljóst er,
að sú stofnun er mun betur í stakk
búin en sveitarfélögin til að sinna
slíku verkefni, sem er á hennar
sérsviði.
Sveitarfélögin þyrftu að koma
upp nýrri tæknideild, þar sem
verkefnið er alls óskylt öðrum
verkefnum sveitarfélaganna. Hins
vegar er aðalatriði þessa máls,
hver þörfin er fyrir þetta net og
hver á að greiða kostnað af því.
Nú er ekkert, sem bendir til
þess, að dreifing sjónvarpsefnis í
fyrsta áfanga verði ódýrari í kap-
alkerfi en í núverandi formi, þ.e. á
þráðlausu kerfi, en hægt verður að
senda 15—20 sjónvarpsrásir á höf-
uðborgarsvæðinu þráðlaust, en ef
um verður að ræða mikinn fjölda
rása síðar meir getur orðið hag-
kvæmt að byggja upp kapalkerfi,
sérstaklega ef það er byggt upp í
tengslum við símakerfið. Það hlýt-
ur því að teljast vafasamt í meira
lagi, ef sveitarfélögin ákveða að
leggja fé skattborgaranna í dýr-
ara dreifikerfi sjónvarps til þess
eins að eiga möguleika á að taka
inn í það kerfi þjónustu, sem heyr-
ir undir Póst og sima samkvæmt
lögum Alþingis, einkum þar sem
engar þarfir hafa komið fram
varðandi gagnaflutninga umfram
það, sem hægt verður að uppfylla í
núverandi kerfi Pósts og síma.
Nú er verið að byggja upp nýtt
tölvunet, sem verður notað til að
flytja gagnasendingar milli
landshluta, þar sem notendur geta
verið með mismunandi gagna-
sendingarhraða milli 50—64000
bit/s.
Erlendis er að þróast svokallað
ISDN (Integrated Services Digital
Network), með stafrænum sam-
böndum alveg til notenda á venju-
legri símalínu, sem notar 64
Kbit/s talrás og 16 Kbit/s rás
fyrir gagnasendingar, viðvörun-
arkerfi og fleira, sem þá geta farið
fram samtímis tali. Þegar ekki er
þörf á, að tal og gagnasendingar
fari samtímis fram, er hægt að
nota einnig 64 Kbit/s talrásina
fyrir gagnasendingar svipað og
gert er í dag með 4800 og 9600
bit/s módemum. Nú er hafin upp-
bygging stafræna kerfisins hér-
lendis með uppsetningu stafrænna
símstöðva á höfuðborgarsvæðinu
og nokkrum stöðum úti á landi.
Einnig verður langlínunetinu-
smám saman breytt í stafrænt
kerfi.
Við íslendingar erum á undan-
förnum árum búnir að horfa alltof
oft á það, að bæði opinberir aðilar
og einkaaðilar rjúki í vanhugsaðar
framkvæmdir, sem skila ekki
nægilegum arði til að standa und-
ir útlögðum fjárfestingum. Niður-
staða þess verður ávallt sú, að
kostnaðinum er velt yfir á al-
menning í formi versnandi lífs-
kjara. Dæmi um þetta eru mý-
mörg.
Þegar menn hafa komið sér
saman um, að grundvöllur sé fyrir
rekstri breiðbandskerfisins, m.a.
fyrir sjónvarp alveg til notenda,
mun ekki standa á því, að Póstur
og sími byggi upp þetta kerfi, en
það yrði fyrst og fremst spurning
um fjármagn, hve hratt það yrði
gert.
Við ákvörðun um uppbyggingu
breiðbandskerfis er nauðsynlegt
að taka tillit til annarra þarfa en
sjónvarpsdreifingar, sérstaklega
skal hafa i huga sambyggingu með
ISDN, og nauðsynlegt er að gæta
þess, að kerfin fylgi viðurkennd-
um alþjóðastöðlum, sem ekki eru
fullgerðir, en verið er að vinna að.
En eins og fram kom i grein minni
um þessi mál i ágúst 1983 i ritinu
„Skipulag höfuðborgarsvæðis",
mæli ég eindregið með samvinnu
milli Pósts og síma og sveitarfé-
Ólafur Tómasson
„ ... mæli ég eindregid
með samvinnu milli
Pósts og síma og sveit-
arfélaganna og að könn-
un verði gerð á þörfum
fyrir byggingu breið-
bandskerfa.“
laganna og að könnun verði gerð á
þðrfum fyrir byggingu breið-
bandskerfa.
Ólafur Tómassoa er framkræmda-
stjóri tæknideHdar Pósts og síma.
BRr'* "
Fermingar-
gjöfin í ár
SVIGSKÍÐI
frá kr.
2.490
Allt í einum pakka
Gönguskíði + gönguskór + bindingar + stafir, tilboö kr. 4.000
meö sléttum sóla sem þarf áburö. Sami pakki en skíöi þurfa
ekki áburö, 4.500 kr.
Göngugallar aöeins
300
Loftpúðasamlokusvigskórnir
Svigskórnir í ár sem fara sigurför um all-
an heim.
Kastinger loftpúöaskórnir frá Austurríki.
Fisléttir, þægilegir — notandi pumpar sig
fastan aftur í hælinn. Ef bíöa þarf eftir lyftu
þá losar notandi sig á meöan, en þegar
upp er komiö pumpar hann sig fastan
aftur.
Stæröir 5 til 12. Hvítir og svartir.
4.950.
PÓSTSENDUM
Ásetning
á meðan
beöiö er
ÁRMÚLA 38 — SÍMI 83555.