Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
Gráa byltingin
— eftir Guðfinnu
Ragnarsdóttur
Einn af öðrum hverfa þeir
grænu blettirnir í borginni og
malbikið teygir úr grárri kruml-
unni yfir mannlífið. Malbikið og
steinsteypan. Það sem einu sinni
lendir í þeim heljarklóm verður
aldrei grænt aftur. Með grænu
blettunum hverfur hið mannlega
úr umhverfinu, frelsistilfinning og
víðátta kaffærast í járnbentri
steinsteypunni, hlýjan og mýktin
visna með grasstráunum.
Sá blettur sem næstur er á fórn-
arlistanum er í Laugarneshverfi,
nánar tiltekið vestan undan Laug-
arneskirkju. Þar breiðir hann úr
sér, grænn og fagur við kirkjutúni,
íbúum og öðrum vegfarendum til
yndisauka. Frá honum blasir
Laugarneskirkja við, há og tíguleg
og í norðvestri Flóinn og Engey.
Þessi blettur á sér langa og merka
sögu og nokkuð þyrnum stráða í
seinni tíð.
Þegar fyrstu íbúar Laugarnes-
hverfis settust þar að féll þessi
litli blettur inn í víðfeðm tún jarð-
arinnar Kirkjubóls, þar sem hæn-
urnar gögguðu í hlaðvarpanum og
Fúlilækur hlykkjaðist til sjávar
eins og langur ormur.
Mikið vatn hefur til sjávar
runnið síðan og margt breyst í
Laugarneshverfinu líkt og á öðr-
um stöðum í vaxandi borg, og fátt
við það að athuga. Hægt og síg-
andi lutu grænu blettirnmir í
lægra haldi fyrir rauðamöl og síð-
ar malbiki, og þar kom að að ein-
ungis kirkjutúnið var eftir. Þar
var svo skipulagður hinn fegursti
listigarður og undu nú flestir glað-
ir við sitt.
Kringlumýrarbrautin teygði
smám saman úr sér til sjávar og í
anda grænu byltingarinnar, þegar
mönnum urðu ljós verðmæti
hinna grænu svæða, var meðfram
henni snyrt og fegrað og fyrr en
varði grænkaði hinn forni tún-
skiki á ný, öllum til yndisauka.
Kirkjunni til fegurðar, hverfinu
til yndis og öllum þeim mikla
fjölda innlendra og útlerdra veg-
farenda sem um gangstíginn á
túninu fara til ómældrar ánægju.
Ást íbúa Laugarneshverfis á
grænu blettunum sínum kom vel i
ljós þegar sóknarnefnd Laugar-
neskirkju vildi byggja safnaðar-
heimili á kirkjutúninu, eða — ef
það ekki gengi — á túnskikanum
vestan undan kirkjutúninu.
Þá risu hverfisbúar upp — nær
allir sem einn — og mótmæltu.
Mörg hundruð manns skrifuðu
undir mótmæli og fjöldi funda var
haldinn bæði með borgaryfirvöld-
um og sóknarnefnd. Endirinn á
þeirri miklu deilu varð sá, að
safnaðarheimilinu var valinn ann-
ar staður.
Undu nú flestir glaðir við sitt,
enda kirkjutúnið skipulagt sem
listigarður og neðratunið komið
inn á skipulag sem grænt svæði.
Það var því ekki að undra þótt
íbúum hverfisins brygði í brún
þegar menn sáust vera að mæla
blettinn nú í haust. Við nánari eft-
irgrennslan kom í ljós að búið var
að úthluta túninu! undir 300 m2
byggingu fyrir fjölfötluð börn.
Sama túni og hundruð Laugarnes-
búa höfðu barist fyrir að halda
grænu aðeins nokkrum árum iður.
Skipulagsstjóri talaði um
gleymda(!) lóð og í borgarstjórn
þóttust menn ekki kannast við
nein mótmæli. Síðan fylgdu þau
svör að ekkert skipulag gilti til ei-
lífðar og óforskammaðar aðdrótt-
anir um það hvort íbúarnir hefðu
eitthvað á móti fjölfötluðum börn-
um.
Á hverfisfundi með borgar-
stjóra var lítið gert úr málinu og
spurningar um það spyrtar saman
og afgreiddar í fljótheitum. Álit
allra þeirra, sem veita borgar-
stjóra og mönnum hans umboð til
þess að stjórna þessari borg, virð-
ist skipta litlu máli — að minnsta
kosti þegar það stangast á við
þeirra eigið — og er illt til þess að
vita.
íbúum Laugarneshverfis er
annt um grænu blettina sína og
berjast fyrir því að þeir fái að
haldast. Það er svo á valdi borgar-
stjóra og borgarstjórnar hvort
þeir virða þann vilja að vettugi.
En nú skal á það reynt.
Þau rök sem eindregið mæla
gegn byggingu á þessum græna
bletti, staðsettum milli Kringlu-
mýrarbrautar, Laugarnesvegar,
Hrísateigs og Hofteigs, vestan-
undan Laugarneskirkju eru eftir-
farandi:
1) Svæðið er sk. grænt svæði á
aðalskipulagi Reykjavikur-
borgar, og þaö er skylda okkar
allra að berjast fyrir því að
umhverfi okkar og barna
okkar verði ekki sneytt öllu
mannlegu og hefta útbreiðslu
gráu krumlunnar sem allt vill
gleypa.
2) Hatrammar deilur risu út af
þessu sama svæði og kirkju-
túninu fyrir rúmum tíu árum
og þar létu hundruð Laugarn-
esbúa í ljós eindreginn vilja
sinn um að varðveita þessi
grænu svæði. Það er því ekki
bara frekja, heldur ósvífni að
úthluta nú lóð á þessu sama
græna svæði.
3) Græna svæðið er kirkju,
hverfi og borg til mikillar
prýði.
4) Fyrir nokkrum árum voru
gróðursettar á báðum túnun-
um trjáplöntur sem sýnir, svo
ekki verður um villst, að svæð-
ið er engin „gleymd lóð“. Eða
veit önnur höndin ekki hvað
hin gerir hjá háttvirtum borg-
aryfirvöldum? Það er ekki vel
farið með fé borgarinnar ef
tré eru gróðursett annað árið
og síðan rifin upp hitt árið ef
einhverjum skyldi detta í hug
að fara að byggja á svæðinu.
5. Svæðið er samhliða Kringlu-
mýrarbraut og því lítt fallið
til búsetu. Það hefur hvergi
þótt viturlegt skipulag að
staðsetja íbúðir — hvað þá
heimili fyrir fjölfötluð börn —
ofan í hraðbraut.
6. Umferð um Kringlumýrar-
braut er gifurleg og stöðugur
niður frá henni. Það væri ef til
vill ekki úr vegi að líta á um-
ferðarþungamælingar á
brautinni áður en borgarstjór-
inn — ef til vill í ímyndaðri
góðmennsku — velur fjölfötl-
uðum börnum stað í niðandi
umferð og þeirri hávaðameng-
un og annarri mengun sem
henni fylgir.
7. Önnur mengun sem tekur við
þegar umferðarmenguninni
sleppir — sem sé að næturlagi
— er skemmtistaðurinn
Klúbburinn. Ekki verður öll-
um íbúum nálægra húsa
svefnsamt þegar gestir Klú-
bbsins halda heim á leið um
þrjúleytið á næturna. Ekki
vildi ég hafa það á minni sam-
visku að hafa boðið fjölfötluð-
um börnum upp á þá „næt-
urró“. Að ekki sé minnst á þær
fjölmörgu óboðnu næturheim-
sóknir sem íbúar Hofteigs,
Laugateigs, Laugarnesvegar
Guófinna Ragnarsdóttir
„DugnaÖur og góöur
oröstír stjórnvalda er
ekki alltaf undir því
kominn að framkvæma
hlutina, stundum felst
hann í aö láta þá
ógerða.“
og Sigtúns hafa orðið fyrir af
völdum Klúbbgestanna.
8. Svæðið er mjög áviðrasamt og
opið gegnt hafi. Það er því —
auk allra annarra ofantalinna
atriða — mjög illa fallið til
stöðugrar útivistar. Sú 1200
m! lóð sem á að fylgja húsinu
yrði því til lítilla útivistar-
nota.
9. Áætlað er að aðkeyrsla fyrir-
hugaðrar byggingar verði um
Laugarnesveg. Þeir sem eitt-
hvað þekkja til aðstæðna vita
að útkeyrsla af Laugarnesvegi
til norðurs út á Sundlaugarveg
i átt til miðbæjarins eða í átt
að Kringlumýrarbraut er í
einu orði sagt lífshættuleg. Það
má því búast við að fljótlega
yrði opnaður hringakstur um
Laugarnesveg og Hrísateig.
Það mundi því auka mjög
slysahættuna í hverfinu og þá
sérstaklega á Hrísateig. En
eins og borgaryfirvöldum ætti
að vera kunnugt hefur orðið
mikil fjölgun á barnafólki í
hverfinu á síðustu árum.
10. Þétting byggðar við hraðbraut
hefur að sjálfsögðu í för með
sér aukna umferð og þar með
aukna slysahættu, jafnt á
börnum sem fullorðnum. Leik-
tæki á lóð laða að sér önnur
börn úr hverfinu og þau yrðu
þá að leik aðeins nokkra metra
frá iðandi umferð hrað-
brautarinnar.
11. Ef fyrirhuguð bygging rís á
neðra túninu, verður Laugar-
neskirkja gerð að bakhúsi og
missir sinn tignarlega svip.
12. Það sem svo bítur höfuðið af
skömminni — ef til þessara
framkvæmda kemur — er að
fyrirhuguð innkeyrsla kemur
yfir núverandi innkeyrslu að
húsi sonar þess fólks sem upp-
haflega gaf borginni tún sín
undir kirkjuna. Þar má með
sanni segja að laun heimsins
eru vanþakklæti. Gleyint er þá
gleypt er. Ekki hefur verið
minnst á fyrirhugaða bygg-
ingu við þennan mann, sem
sleit barnsskónum í hlaðvarp-
anum á Kirkjubóli — þótt hin
nýja bygging bókstaflega
sleiki húshliðina hjá honum.
Sjálfsagt er auðvelt að sýna
fram á að fyrir slíkri tillits-
semi sé hvergi lagabókstafur.
En það sýnir þá bara að sjálf-
sögð tillitssemi og kurteisi eru
á undanhaldi líkt og grænu
blettirnir.
13. Að lokum: Græn svæði eru
íbúunum lífsnauðsyn í stöðugt
vaxandi borg. Okkur ber
skylda til að standa vörð um
þau. Velferð okkar og barna
okkar er undir umhverfinu
komin.
Ég skora því á borgaryfirvöld að
þau láti þennan blett í friði, ekki
bara í dag og á morgun, heldur um
ókomin ár. Dugnaður og góður
orðstír stjórnvalda er ekki alltaf
undir því kominn að framkvæma
hlutina, stundum felst hann í aó
láta þá ógeröa.
Þeim sem bera ábyrgð á þeim
fjölfötluðu börnum, sem þarna á
að velja stað, vil ég ráðleggja að
hugleiða þessi rök mín. Eftir nær
40 ára náin kynni af Laugarnes-
hverfinu, tel ég mig vel færa að
dæma um að staðsetning heimilis
á þessum stað verður öllum til
vanvirðingar sem að henni standa.
Guðfínna Ragnarsdóttit er mennta-
skólakennari.
gorenje
^^SKANDINAVIEN *
Gæða ísskápar
Gorenje HDS 201K rúmar 260
lítra. Þar af er 185 lítra kælir
og 65 lítra djúpfrystir.
Sjálfvirk affrysting.
Hæð 138 cm, breidd 60 cm,
dýpt 60 cm.
Verð aðeins kr. 15.865,- stgr.
Sami gæðaflokkur og
ísskápar í mun hærri
verðflokkum.
Góðir afborgunarskilmálar,
- látið ekki happ úr hendi
sleppa.
Þetta er ekki bara draumur
- þetta er blákaldur
(A
Gunnar Asgeirsson hf.
&xXrtendsbraut >G Sm 9f 352Ö0
Setning Norðurlandaráðsþings:
Staðsetning íslenzka
fánans brot á lögum
VIÐ setningu Norðurlandaþings á
dögunum skartaði svió Þjóóleik-
hússins fánum Norðurlandaþjóó-
anna. Þar stóó íslenski fáninn annar
frá vinstri.
Lög um íslenska fánann voru
sett þann 17. júní 1944 og eru þau
númer 34. í 13. grein þessara laga
segir: „Dómsmálaráðuneytið get-
ur, ef þörf þykir, sett með reglu-
gerð sérstök ákvæði til skýringar
ákvæðum laga þessara." Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið setti í
reglugerð, í samræmi við þessa
lagagrein, leiðbeiningar um með-
ferð íslenska fánans og er hún
nefnd „Leiðbeiningar nr. 222 frá
1966“. Þar segir í 5. grein um með-
ferð fánans, c-lið: „Sé íslenski fán-
inn á stöng meðal annarra fána,
skal hann ætíð vera í miðju, eða
lengst til hægri."
Aðalsteinn Maack hjá embætti
Húsameistara ríkisins var einn
þeirra sem sá um uppsetningu
fánanna á þinginu og sagði hann í
samtali við blm. Morgunblaðsins
að þarna hafi orðið óviljandi mis-
tök, sem leiðrétt voru strax sama
dag. Þá var íslenski fáninn settur
í miðjuna, en sú staðsetning sam-
ræmist íslenskum lögum og er
hann þá einnig í réttri stafrófsröð
miðað við fána hinna Norðurland-
anna. Þannig var hann látinn
standa það sem eftir var þingsins.
Aðalsteinn sagði að á þessum
þingum sé fánunum yfirleitt raðað
í stafrófsröð og færðir til, þannig
Þaó slys varó hér í Ijósaskiptunum í
gærkveldi aó bifreið ók á reiöhest í
blindbeygju innan við Hrafnkelsstaði.
Tvær stúlkur voru í reiötúr með fimm
til reiðar er þær komu að blindbeygj-
unni, og tókst ekki betur til en svo aó
ökumaöurinn sá ekki hest annarrar
stúlkunnar og ók á hann með þeim
afleiðingum að stúlkan endasentist út
að ekki sé alltaf sami fáninn fyrst-
ur í röðinni.
í 14. grein laganna nr. 34 frá
1944 segir í 2. málsgrein að brot
gegn öðrum ákvæðum laga þess-
ara og gegn forsetaúrskurðum eða
reglugerðum settum samkvæmt
þeim varðar sektum. 1 3. máls-
grein þessarar lagagreinar segir
að mál út af brotum þessum fara
að hætti opinberra mála.
í skurð og hesturinn slasaöist það
mikið að aflífa þurfti hann.
Það var mesta mildi að stúlkan
meiddist ekki meira en raun varð,
því ekki reyndist nauðsynlegt að
flytja hana á sjúkrahús. Stúlkurnar
voru við tamningarstörf, en önnur
þeirra rekur tamningarstöð að
Brekku í Fljótsdal. — GVÞ
Fljótsdalur:
Knapinn þeyttist út í skurð
— aflífa varð hestinn
Fljótsdal, GeiUrgerói, 11. mars.