Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
velja bestu myndina, verðlaun eru
um 40.000 ísl. kr.
Til að taka þátt í keppninni þarf
að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Að vera barn; öll börn fædd eftir
28. júní 1972 geta verið með.
2. Að teikna eða mála mynd um
frið, allar gerðir eru leyfðar, stærð-
ir og litir. Myndin þarf bara að vera
á einhvern hátt um frið.
3. Að merkja myndina með nafni
og heimilisfangi á bakhliðina.
4. Að senda myndina til: Samtök
íslenskra lækna gegn kjarnorkuvá,
c/o Læknafélag Islands, Domus
Medica, Eiríksgötu 3, Reykjavík.
Myndirnar þurfa að hafa borist
fyrir 1. maí 1985. í>ann dag verða
allar myndirnar sendar til Búda-
pest. Niðurstöður keppninnar verða
svo væntanlega kunnar um mitt
sumar.
Ef frekari upplýsinga er óskað
Samtök íslenzkra lækna gegn kjarnorkuvá:
Efnt til alþjóðlegrar
teiknisamkeppni barna
ALÞJÓÐLEG samtök lækna gegn
kjarnorkuvá (International Physici-
ans for Prevention of Nuclear War,
IPPNW) hafa nú starfað í rúm fjögur
ár. Samtökin voru stofnuð af tveimur
læknum, Bandaríkjamanninum Bern-
ard Lawn og Sovétmanninum Evgueni
Chazov. f samtökunum eru nú yfir
100.000 læknar frá a.m.k. 40 löndum.
Samtök íslenskra lækna gegn kjarn-
orkuvá eru aðili að IPPNW. Tilgang-
ur samtakanna er að dreifa upplýsing-
um og fræðilegu efni um áhrif kjarn-
orkuvár á heill og heilbrigði. Samtök-
in eru með öllu óháð starfandi stjórn-
málahreyfingum.
Á liðnum misserum hefur
IPPNW staðið að söfnun undir-
skrifta meðal lækna um stöðvun
vígbúnaðarkapphlaupsins (Physisi-
ans Call for an end to the Nuclear
Arms Race) Undirskriftirnar verða
sendar stjórnvöldum kjarnorku-
veldanna. Yfir ein milljón lækna
frá nær 90 löndum hafa nú þegar
skrifað undir skjalið.
Þegar undirskriftasöfnuninni
lýkur verður í fjölmiðlum skýrt
frekar frá þessu máii.
Nú er h.v. yfirstandandi teikni-
samkeppni barna á vegum alþjóða-
samtaka lækna gegn kjarnorkuvá.
Börn frá öllum löndum heims geta
tekið þátt í keppninni. Óskað er eft-
ir veggspjöldum sem fjalla á ein-
hvern hátt um frið. Öllum myndun-
um verður síðan safnað saman og
þær sýndar á þingi samtakanna i
Búdapest í sumar. Dómnefnd mun
varðandi teiknisamkeppnina verða
þær að sjálfsögðu fúslega veittar.
Sama gildir um upplýsir.gar eða
fræðilegt efni tengt kjarnorkuvá.
(FréUatilkynning)
Kammertónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar verða
haldnir í MH í kvöld
ÞRIÐJU kammertónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands á þessu starfsári
verða haldnir í kvöld og hefjast þeir klukkan 20.30 í sal Menntaskólans við
Hamrahlíð. Einleikarar á tónleikunum verða þau Edda Erlendsdóttir píanó-
leikari og Einar Grétar Sveinbjörnsson fiðluleikari. Þau eru bæði starfandi
erlendis. Edda starfar í París og Einar í Malmö þar sem hann er konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitarinnar þar.
Á efnisskránni eru þrjú verk.
Fyrst verður Brandenborgarkon-
sert nr. 3 eftir Bach fluttur. Þar
næst kemur Sinfónía nr. 29 eftir
Mozart og síðast á efnisskránni
verður frumfluttur í heild sinni
hér á landi konsert fyrir fiðlu, pí-
anó og 13 blásara eftir Álban
Berg.
Edda lauk einleikaraprófi í pí-
anóleik 1973 frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík. Þá hlaut hún
franskan styrk til að stunda nám
við Tónlistarskólann í París og
lauk hún prófi þaðan 1978. Edda
hefur haldið tónleika bæði úti á
landi og í Reykjavík. Einnig hefur
hún spilað í París og víðar í
Frakklandi. Hún starfar nú sem
píanóleikari í París og jafnframt
er hún kennari við Tónlistarskól-
ann í Lyon.
Einar hóf sitt tónlistarnám í
Reykjavík og síðar í Bandaríkjun-
um. Síðustu sautján árin hefur
hann verið búsettur í Malmö í Sví-
þjóð og verið þar konsertmeistari
borgarhljómsveitarinnar. Hann er
í miklum metum sem einleikari og
kammertónlistarmaður. Fyrir
hann hafa m.a. verið samdir fimm
fiðlukonsertar auk einleiksverka
og kammertónlistar.
Stjórnandi tónleikanna verður
þýski hljómsveitarstjórinn Klaus-
peter Seibel, en hann er íslenskum
tónleikagestum að góðu kunnur
frá fyrri heimsóknum sinum.
Hann hefur stjórnað miklum
fjölda tónleika, austan hafs og
vestan, svo og óperusýningum við
mörg helstu óperuhús heimsins.
Hann er aðalstjórnandi sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Núrnberg og
jafnframt fyrsti hljómsveitar-
stjóri óperunnar í Hamborg og
prófessor við tónlistarháskólann
þar.
Á biaðamannafundi er haldinn
var í tilefni tónleikanna, sagði
Edda að ákveðið hefði verið að
flytja konsertinn eftir Alban Berg
vegna 100 ára afmælis hans og í
Aöalfundur kartöflubænda:
Skorar á ríkisstjórnina aö taka
upp niðurgreiðslur á kartöflur
- Kartöflubændur eru þá tilbúnir til
aö fresta hækkun á kartöflum
„MESTUR tíminn fór í að ræða sölumálin með tilliti til hinna miklu birgða af
kartöflum sem bændur eiga enn og hvernig mögulegt er að jafna sölunni sem
réttlátast niður. Niðurstaðan varð sú að miða við það að hafa landið sem eitt
sölusvæði í ár til að leysa vandann vegna hinnar miklu framleiðslu," sagði
Magnús Sigurðsson í Birtingaholti, formaður Landssambands kartöflubænda,
þegar hann var inntur eftir helstu málum á aðalfundi sambandsins, sem nýlega
var haldinn í Reykjavík. Enn eru til í landinu um 75%af kartöfluuppskeru sl.
hausts, að sögn Magnúsar.
Hann sagði að rætt hefði verið
um vanda þeirra kartöflubænda
sem eingöngu lifa af kartöflurækt.
Hann sagði jafnframt að samþykkt
hefði verið á stjórnarfundi í
Grænmetisverslun landbúnaðar-
ins, sem haldinn var daginn eftir
aðalfundinn, að beina þeim tilmæl-
um til þeirra aðila heima í héruð-
um sem úthluta sölu til bænda að
reyna næstu tvo mánuði að auka
heldur söluhlutdeild þeirra kart-
öflubænda sem eingöngu lifa af
kartöfluræktinni. Sagði Magnús að
á aðalfundinum hefði verið sam-
þykkt tillaga þar sem kartöflu-
bændur eru hvattir til að standa
saman og að reyna að stöðva þá
sem selja framleiðslu sína beint til
verslana.
Á fundinum var samþykkt
áskorun til ríkisstjórnarinnar um
að greiða niður verð á kartöflum
fyrir almennan markað, eigi minna
en 6 kr. á kíló. Lýsti fundurinn því
yfir að verði orðið við þessari
áskorun muni kartöflubændur
fresta þeirri rúmlega 5% hækkun á
kartöflum sem bændur eiga rétt á
frá og með 1. mars sl. og benti á að
slík lausn gæti orðið til verulegra
hagsbóta fyrir neytendur.
Magnús sagði að niðurgreiðslur á
kartöflum og frestun hækkunar
væri hugsað til þess að liðka fyrir
sölu og einnig til þess að menn
væru síður að reyna að selja beint.
Með því að selja beint stæðu menn
ef til vill persónulega betur að vígi,
en það væri á kostnað annarra.
Þetta sagði hann að margir bænd-
ur teldu hið mesta óréttlæti. Við
þetta bættist að verulegur hluti
þeirra kartaflna, sem seldar væru
beint, færu fram hjá mati, ekki
væri staðið í skilum með sjóðagjöld
af þeim og hætta væri á að verð-
mæti þeirra kæmi ekki fram til
skatts. Taldi hann að ríkið myndi
þar fá til baka peninga á móti
niðurgreiðslunum.
Magnús sagði að lokum að á
fundinum hefði verið rætt um
framtíðarskipulag samtakanna.
Stjórninni hefði verið falið að móta
tillögur um að taka upp búmark og
framleiðsluleyfi í greininni til að
draga úr hættu á offramleiðslu.
Henni hefði einnig verið falið að
gera framtíðaráætlanir um skipu-
lag sölumálanna og skiptingu
landsins í sölusvæði.
Guðmundur H. Guðjónsson stjórnar kórnum, gestir við Kór Landakirkju. MorKunblaðið/Sigurgeir
athöfnina í baksýn.
Aldarminning Brynjúlfs
Sigfússonar í Eyjum
Veslmannapyjum, 7. mars.
Að frumkvæði kórs Landakirkju í
Vestmannaeyjum var þess minnst
með veglegum hætti í Safnahúsi
Vestmannaeyja sl. föstudagskvöld
að 100 ár voru liðin frá fæðingu
Brynjúlfs Sigfússonar. Brynjúlfur
var fæddur I. mars 1885, borinn og
harnfæddur Vestmanneyingur af
kunnum ættboga, en hann var for-
ustumaður í tónlistarmálum Eyjanna
meðan heilsan entist honum, fram á
5. áratuginn. Aðeins 19 ára var hann
ráðinn organisti við Landakirkju ár-
ið 1904 og gegndi hann því starfi allt
til ársins 1941, en hann lést 10 árum
síðar eftir langvarandi heilsubrest.
Brynjúlfur Sigfússon stofnaði
fyrstu lúðrasveitina hér í bæ og
einnig kóra, m.a. stofnaði hann og
stjórnaði blönduðum kór er hann
gaf hið fagra nafn Vestmannakór,
en sá kór kom fram á öllum meiri-
háttar hátíðum og mannfögnuðum
um áratugaskeið. Brynjúlfur var
kaupmaður og rak myndarlega
mat- og nýlenduvöruverslun,
lengst af í eigin húsnæði, Helga-
felli við Kirkjuveg, er hann reisti
1925 en nú er veitingastaðurinn
Skútinn rekinn í þessu húsi.
í hljómleikaför með Vest-
mannakór til meginlandsins við
lýðveldisstofnunina 1944 frum-
flutti kórinn m.a. lag Brynjúlfs
„Eldgamla ísafold", mun Brynjúlfi
hafa þótt mál til komið að landar
hættu að syngja þessa einlægu
tjáningu við þjóðsöngslag Breta.
Af öðrum lögum Brynjúlfs má
nefna „Ólag“ við frægt kvæði
Gríms Thomsen „Eigi er ein báran
stök“. En „Sumarmorgunn á
Heimaey", þjóðsöngur Eyjanna
við ljóð Sigurbjörns Sveinssonar,
heyrist orðið mjög oft sunginn
með hljómfögru lagi Brynjúlfs.
Á 100. árstíðarhátíðasamkom-
una hafði frú Ingrid Sigfússon,
ekkju Brynjúlfs, verið boðið og
mætti hún þar með tveimur son-
um sínum, Hersteini og Þorsteini,
en elsti sonurinn, Aðalsteinn, er
búsettur í Danmörku. Kór Landa-
kirkju, félagar úr Lúðrasveit Vest-
Ingrid Sigfússon afhjúpar minn-
ingastein um Brynjúlf Sigfússon
organleikara, söngstjóra og tón-
skáld. Til vinstri Þorsteinn Brynj-
úlfsson, til hægri Jóhann Frið-
finnsson, formaður sóknarnefndar
Landakirkju.
mannaeyja og Geir Jón Þórisson
söngvari fluttu tónverk eftir
Brynjúlf Sigfússon undir stjórn
Guðmundar H. Guðjónssonar og
Hjálmars Guðnasonar. Þá fluttu
Haraldur Guðnason skjalavörður
og Þorsteinn Sigurðsson frá Blá-
tindi kafla úr ævistarfi Brynjúlfs.
Mikið fjölmenni var á hátíðinni og
sýndu Eyjabúar að þeir virða og
meta störf þessa eftirminnilega
frumherja í tónlistar- og menn-
ingarsögu Eyjanna. Frú Ingrid
Sigfússon og Þorsteinn þökkuðu
bæjarbúum fyrir mikla tryggð við
Brynjúlfur Sigfússon
minningu Brynjúlfs. Þess má geta
að frú Ingrid afhjúpaöi ágreiptan
minningarstein sem komið hafði
verið fyrir á húsi þeirra við
Kirkjuveg sem Brynjúlfur lét
reisa fyrir 60 árum.
Þriggja manna nefnd á vegum
kórs Landakirkju stóð fyrir fram-
kvæmd þessa listviðburðar en
hana skipuðu Sígríður Kristins-
dóttir, Jóhann Björnsson og Jó-
hann Friðfinnsson. Þá var í
tengslum við samkomuna sýning í
Byggðasafni Vestmannaeyja á
ýmsum hlutum úr búi Brynjúlfs
Sigfússonar sem eru í eigu safns-
ins.
Heimildamaður Mbl. við skrif
þessarar fréttar var Jóhann Frið-
finnsson, formaður sóknarnefndar
Landakirkju. — hkj.