Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 25
I
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
25
tilefni af því að nú eru 50 ár liðin
síðan hann lést. „Berg samdi
verkið í tilefni af 50 ára afmæli
Schönbergs, en mjög náið sam-
band var á milli Bergs, Schön-
bergs og Weberns. Schönberg var
m.a. kennari Bergs og Weberns
um tíma. Berg byggir verkið upp á
nöfnum þeirra vinanna og notar
sérhljóðana í nöfnunum og býr til
nótnaheiti úr þeim,“ sagði Edda.
„Mottó verksins er: Allt er þegar
þrennt er.“
Berg er einn af merkilegri tón-
skáldum þessarar aldar. Hann var
af hinum svokallaða Vínarskóla
ásamt Webern og Schönberg, en
þeir vinirnir hjálpuðust að við
þróun þessarar nútímatónlistar,
sem konsertinn sem frumfluttur
verður á fimmtudaginn sýnir. „Ég
trúi að þessi tónlist eigi eftir að
eldast vel og verða vinsælli — hún
hefur lítið fengið að njóta sín hér
á landi enn sem komið er,“ sagði
Edda. „Jú, hún er nokkuð þung og
jafnframt er þetta tónlist sem
ekki er byggð upp á hefðbundnum
tóntegundum svo að vinirnir þrír
hafa verið mjög nútímalegir á sín-
um tíma.“
c,. -• , • . . Edda Erlendsdóttir píanóleikari, Klauspeter Seibel stjórnandi og Einar Grétar Sveinbjörnsson fiðluleikari á æfingu
þanLig að fófk vifdi ekkUaka vfð ** kammertónleik.n. sem fluttir verð. í sa. MH í kvöld.
nýjungum heldur hlusta einungis
á það gamla og sígilda aftur og
aftur. „Ég reikna mað að áheyr-
endur kunni að meta þessa tónlist
þegar það hefur kynnst henni
svolítið nánar. Að minnsta kosti
kann ég mjög vel að meta tónlist
sem þessa enda búin að vera að
spila hana lengi."
Edda sagðist oft furða sig á því
af hverju fólk gæti staðið í lengri
tíma og horft á sama málverkið.
„Tónlistin er þó á hreyfingu. Það
er ekki hægt að stoppa tónlistina
til að skilja hana, heldur verður að
spila verkið aftur og aftur til að
skilja hana.“
Gunnar Egilson, starfsmaður
Sinfóníunnar, sagði að húsnæði
hefði verið nokkuð stórt vandamál
þegar ákveðið var að halda þessa
kammertónleika. „Háskólabió er
allt of stórt og þar sem málverka-
sýningar njóta sín ekkert sérstak-
lega vel í kartöflugeymslum, þá er
ekkert sniðugt að fara með kamm-
ertónleika inn í einhverja íþrótta-
sali þar sem þeir njóta sín alls
ekki.
Við fengum þó sal Menntaskól-
ans í Hamrahlíð til afnota, sem
tekur um 300 manns og verðum
því að notast við hann á fimmtu-
dagskvöldið."
SAMSTÆÐA I___________
Útvarpsmagnari: 2 X 30 vatta (8
ohm hátalarar) eða 2X40 vatta
(4 ohm hátalarar) FM, MW og
LW útvarpsbylgjur.
Segulbandstæki: Með samhæfðu
og léttu stjómkerfi og dolby-
suðeyði.
Plötuspilari: Hálfsjálfvirkur,
reimdrifinn með vökvalyftu og
léttarmi.
Hátalarar: 2X50 vatta góðir
hátalarar.
Skápur: Tækjunum góðu er
haglega komið fyrir í skáp á
hjólum.
Með samstæðu II kemur
SÉR-MAGNARI 2X33 vatta
(8 ohm hátalarar) eða 2X43
vatta (4 ohm hátalarar) og
SÉR-UTVARP með FM, MW
og LW bylgjum.
Petta er kraftmeiri samstæða
með meiri fjölbreytni.
Plötuspilari, segulbandstæki,
hátalarar og skápur eru sömu
og fylgja samstæðu I. Stað-
greiðsluverðið er 31.980 krónur.
eða, með þægilegri 7.000 kr.
útborgun og eftirstöðvar
greiðist á 8 mánuðum.
Skipholti 19. Reykjavik.
S: 29800
SAMSTÆÐA II
Með þessu tilboði okkar viljum
við óska þér til hamingju með
ferminguna. Við bjóðum tvær
samstæður úr gullnu línunni
frá Marantz á sérlega hagstæðu
verði. Staðgreiðsluverð á
ódýrari gerðinni er aðeins
27.980 krónur eða gegn 7.000
króna útborgun og eftirstöðvar
greiðist á 8 mánuðum.