Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985 Kosið í Stúdentaráð og Háskólaráð í dag KOSNINGAR til Stúdentaráðs og Háskólaráðs fara fram í dag, fimmtudag. Fjórir listar eru í kjöri, A-listi Vöku, félags lýðræðissinn- aðra stúdenta, B-listi Félags vinstri manna, C-listi Félags umbóta- sinnaðra stúdenta og E-listi Manngildissinnaðra stúdenta, en þeir hafa ekki boðið áður fram. Kjördeildir, sem eru tíu, eru opnar frá kl. 9.00 til kl. 18.00. Á kjörskrá eru 4369 stúdentar. Talsmenn listanna sem í kjöri eru kynna sjónarmið sín hér á síöunni. Ólafur Arnarson Ólafur Arnarson, efsti maður á lista Vöku til ráðsins: Stúdentaráð á að einbeita sér að hags- munamálum stúdenta „STÍIDENTARÁÐ á að einbeita sér að baráttu fyrir hagsmunum stúd- enta. Menn eru kosnir í ráðiö til aö standa vörð um hagsmuni umbjóð- enda sinna, en ekki til að þrasa um dægurmál. Þess vegna er það af- dráttarlaus stefna Vöku, að lands- mál og utanríkismál, sem ekki skipta stúdenta máli, skuli ekki tek- in á nokkurn hátt til umfjöllunar í Stúdentaráði," sagði Ólafur Arnar- son efsti maður á lista Vöku til Stúd- entaráðs. „Undanfarið ár hafa Vaka og fé- lag umbótasinnaðra stúdenta starfað saman í meirihluta í Stúd- entaráði og að tilstuðlan Vöku hefur öllum pólitískum málum verið vísað frá. En svo ég víki að stefnuskrá okkar Vökumanna þá er fyrst að nefna frjálsa áskrift að Stúdenta- blaðinu, en við teljum það siðferð- islega rangt að skylda stúdenta til að kaupa blað, er þeir hafa sumir hverjir lítinn eða engan áhuga á.“ — Nú hefur Lánasjóður ís- lenskra námsmanna verið mikið til umfjöllunar og þá sérstaklega vegna afnáms víxillána til ný- nema? „Já, þetta er rétt, en ég vil benda á Vaka hefur í mörg ár bent á nauðsyn þess að lánasjóðurinn veiti 1. árs nemum venjulegt skuldabréfalán, sem er forsenda þess að nemendur geti hafið nám óháð efnahag. Þegar ákveðið var síöastliðið haust að afnema vixil- lán vildi Vaka að hafin yrði bar- átta fyrir skuldabréfum — snúið vörn í sókn. Um þetta gátu hinar fylkingarnar í Stúdentaráði ekki sameinast, heldur var reynt að þyrla upp pólitísku moldviðri, en slík vinnubrögð hafa alltaf skaðað hagsmuni stúdenta. Þegar rætt erum lánamál vill oft gleymast nauðsyn þess, að reglur um úthlutun lánanna séu þannig úr garði gerðar að náms- menn séu hvattir, en ekki lattir til þátttöku í atvinnulífinu og til að afla tekna. Á þetta atriði leggur Vaka þunga áherslu." — Ertu bjartsýnn á úrslit kosn- inganna? „Vissulega. Við Vökumenn höf- um unnið vel og kappkostað að kynna stúdentum stefnuskrá okkar. í trausti þess að stúdentar hafi kynnt sér stefnu og störf fylk- inganna er ég sannfærður um, að úrslitin verði Vöku í hag.“ Þórunn Sigurðardóttir Þórunn Sigurðardóttir, Vöku: Nauðsynlegt að kynna bet- ur starfsemi Stúdentaráðs „ÞAÐ er nauðsynlegt að kynna bet- ur starfsemi Stúdentaráðs og Há- skólaráðs fyrir stúdentum, fæstir vita hvað þar fer raunverulega fram og þá einkum fyrsta árs nemar,“ sagði Þórunn Sigurðardóttir í sam- tali við Morgunblaðið, en hún skipar 3. sæti á framboðslista Vöku til Stúdentaráðs. „Stúdentaráð er andlit stúdenta út á við og á að standa vörð um hagsmuni þeirra, þess vegna er mikilvægt að stúdentar nýti sér atkvæðisréttinn og kjósi næst- komandi fimmtudag. Við Vökumenn leggjum vel nestaðir upp í þessar kosningar og stefnuskrá okkar er skýr og hvet ég stúdenta til að kynna sér hana. í þessu sambandi vil ég nefna hugmyndir Vöku í lánamálum, en við viljum að skipuð verði sam- starfsnefnd menntamálaráðu- neytis, fjármálaráðuneytis og námsmanna til að endurskoða lög og reglur lánasjóðsins. Nefndin á að hafa það í huga að tryggja betur hagsmuni lánþega og fjárhagsstöðu sjóðsins. Þá viljum við Vökumenn að hætt verði að gera upp á milli lán- þega eftir því hvort þeir búa í föð- urhúsum eða ekki. Það er trú okkar að rangt sé að nemendur sem enn eru hjá foreldrum fái lægra lán eða aðrir, þar eð margir neyðast til þess af fjárhagsástæð- um. Þannig er gert upp á milli námsmanna á kostnað þeirra efnaminni," sagði Þórunn Sigurð- ardóttir að lokum. Helgi Jóhannesson, Vöku: Fyrirtæki Félagsstofn- unar eiga að vera rekin án halla „ÞAÐ ER mikilvægt að fyrirtæki Fé- lagsstofnunar stúdenta séu ávallt rekin sem best og án taps. Að mínu viti er það fullkomlega óeðlilgt að stúdentar greiði niður t.d. mat í matsölunni, með innritunargjöldum, þegar aðeins 2 til 3% stúdenta nýta sér þjónustu hennar," sagði Helgi Jóhannesson, en hann skipar annað sætið á framboðslista Vöku til Stúd- entaráðs, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. „Fulltrúar stúdenta eru í meiri- hluta í stjórn Félagsstofnunar og því er nauðsynlegt að þær fylk- ingar sem aðild eiga að Stúdenta- ráði hafi heilsteypta stefnu í mál- Helgi Jóhannesson efnum stofnunarinnar. Framund- an er stórátak í byggingu Garða fyrir stúdenta, en því miður virð- ist vera sem vinstri menn og um- bótasinnar veigri sér við að hefja framkvæmdir, ef marka má um- mæli fulltrúa þeirra í Stúdenta- ráði. Vaka vill hins vegar að þær hefjist sem fyrst þegar eða um leið og fjármagn hefur verið tryggt, en í þeim efnum er stefna Vöku skýr. Fyrirtæki FS eru mörg og er ljóst að gera þarf breytingar á rekstri og skipulagi margra þeirra. Nokkur óánægja hefur ver- 'ið með bóksöluna, bæði hvað varð- ar verð og þjónustu. Ég hygg að þetta eigi eftir að breytast nái stefna Vöku fram að ganga, en við viljum stækka húsnæði bóksöl- unnar, jafnframt því sem Háskól- inn gerist eignaraðili að henni. Jafnframt þessu þarf að efla fjölritunina með nýjum tækjum og gera hana samkeppnisfæra við sambærileg fyrirtæki. Eins og ég sagði í upphafi er nauðsynlegt að fyrirtæki Félags- stofnunar séu rekin hallalaust — innritunargjöld á að nota til upp- byggingar stofnunarinnar og til að bæta þjónustu hennar við stúd- enta og að þessu viljum við Vöku- menn vinna fáum við stuðning stúdenta," sagði Helgi Jóhannes- son að lokum. Guðmundur Auðunsson Guðmundur Auðunsson, Félagi vinstri manna: Fellum meiri- hluta Vöku og Umbótasinna GUÐMUNDUR Auðunsson er fyrsti maður á lista Félags vinstrimanna. Hann var beðinn að gera grein fyrir helstu stefnumálum vinstrimanna. „Mikilvægust eru lánamálin. Síðastliðið haust voru felld niður víxillán til fyrsta árs nema og þeim vísað á bankana. Við teljum að þetta sé aðför að hugmyndinni um jafnrétti til náms. Ástandið í dagvistunarmálum stúdenta er hrikalegt. Stúdentar þurfa að bíða í ár eftir dagvistun- arplássi. Vinstri menn berjast einnig gegn fjöldatakmörkunum, hverju nafni sem þær nefnast. Við teljum óeðlilegt að nemendur séu í sam- keppni innbyrðis. Háskóli íslands er með fjöldatakmörkunum að bjarga sér fyrir horn í stóru vandamáli, sem er gífurlegur hús- næðisskortur. Nauðsynlegt er að fjárveitingar verði veittar til upp- byggingar Háskólans. Alltof fá stöðugildi eru við Há- skólann. Við berjumst fyrir því að lýðræði verði aukið með aukinni þátttöku stúdenta í stjórnun skól- ans. Hvað málefni Félagsstofnunar varðar viljum við fá aukna þjón- ustu í matsölunni. Við viljum að Ferðaskrifstofa stúdenta og Bók- salan fái inni í fyrirhugaðri ný- byggingu við Háskólabíó, þar sem þessar stofnanir búa við gífurleg- an húsnæðisskort. Ekkert hefur verið gert í bygg- ingu garða, en við leggjum áherslu á að flýta þeim, vegna gífurlegs húsnæðisskorts stúdenta. Ég vil einnig minnast á Há- skólaútvarpið, sem ég tel vera heillandi verkefni fyrir stúdenta. Félag vinstri manna bar fram til- lögu í Stúdentaráði um stofnun Háskólaútvarps. Vinstri menn berjast fyrir því að koma þessu á sem fyrst ef ríkiseinokun verður aflétt. Nú hefur meirihluti Vöku og Umbótasinna starfað í ár og nán- ast ekkert komið frá þeim. Þeir hafa brugðist trausti og er nauð- synlegt að koma þessum meiri- hluta frá,“ sagði Guðmundur Auð- unsson að lokum. Ari Edwald, Félagi umbóta- sinnaðra stúdenta: Stúdentar verða að standa saman ARI Edwald, efsti maður á lista Fé- lags umbótasinnaðra stúdenta, var spurður að því hver væru helstu stefnumál félagsins. „Það sem að flestum snýr eru lánamálin," sagði Ari. „Umbóta- sinnar hafa lagt áherslu á að ríkið standi við skuldbindingar sínar gagnvart Lánasjóðnum. Við ieggj- um áherslu á að námslán miðist fyrst og fremst við framfærslu- byrði nemenda og að á hverjum tíma sé miðað við framfærslu- grundvöll. Við berjumst jafnframt fyrir auknum tekjuumreikningi þannig að námsmönnum verði ekki refsað, svo sem verið hefur, fyrir sjálfsbjargarviðleitni með því að taka virkan þátt í atvinnu- lífi í fríum. Við teljum að núver- andi kerfi hafi letjandi áhrif á námsmenn. Einnig höfnum við því að ekki megi taka tillit til þess hvort fólk býr í foreldrahúsum eða leiguhúsnæði. Vaka hefur sett fram þá skoðun að slíkt jafnist á við persónunjósnir. Vinstri menn hafa ekki komið með neitt nýtt í þessum málum, enda uppteknari við að fá Stúdentaráð til að mót- mæla byggingu ratsjárstöðvar á Vestfjörðum. Að frumkvæði Umbótasinna hefur verið hafinn undirbúningur að byggingu nýrra hjónagarða. Umbótasinnar hafa beitt sér fyrir samkeppni um hönnun þessara hjónagaröa. Við teljum ekki rétt, eins og aðrir hafa haldið fram, að það tefji fyrir framkvæmdum, þar sem nokkurn tíma þarf til að afla fjármagns til byggingarinnar. Til þess að stúdentar nái fram þessum baráttumálum og öðrum, Ari Edwald
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.