Morgunblaðið - 14.03.1985, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
Gorbachev mælti yfir moldum
Chernenkos af grafhýsi Lenins en
honum tii vinstri og hægri handar
voru aðrir félagar í stjórnmálarádinu.
lendum fréttamönnum þótti ein-
kenna ræðu Gorbachevs. í fyrsta
lagi, að hún var samhljóða ræðu
Chernenkos þegar hann mælti yfir
moldum Andropovs, og í öðru lagi,
að hann flutti mál sitt styrkri
röddu, sem barst vel út yfir Rauða
torgið. Hefur það ekki verið svo í
langan tíma í tíð þriggja öldunga
á valdastóli.
AP/Símamynd
„Trúr þjónn flokks og fólks
og mikill friðarins maður“
sagði Gorbachev um forvera sinn þegar Chemenko var jarðsettur
Moskvu, 13. mare. AP.
KONSTANTIN U. Chernenko var borinn til grafar í dag og lagður til hinstu
hvíldar á Rauða torginu. Hleypt var af fallbyssum honum til heiðurs og
langdregið vælið í verksmiðjuflautunum barst um borgina á ákveðinni
stundu. Eftirmælin flutti arftaki hans, Mikhail Gorbachev, og voru þau helst,
að Chernenko hefði verið trúr þjónn flokks og fólks og mikill friðarins
maður.
Kista Chernenkos var lögð í
gröf, sem er yst til hægri í röð
látinna Sovétleiðtoga og annarra
forystumanna milli Kremlarmúra
og grafhýsisins yfir smurðan lík-
ama Vladimirs Lenin, föður Sov-
étríkjanna. Augnabliki áður en
kistan var látin síga niður í gröf-
ina kyssti Anna, ekkja Chernenk-
os, mann sinn og kvaddi hinstu
kveðju.
Gorbachev og hinir níu félagar
stjórnmálaráðsins stóðu uppi á
grafhýsi Lenins þegar líkfylgdin
fór hjá og þaðan flutti hann eftir-
mælin um manninn, sem aðeins
ríkti í Kreml í 13 mánuði. Sagði
hann, að mikill harmur væri kveð-
Óvenjulegur
Sovétleiðtogi
London, 13. mars. AP.
SOVÉSKI leiðtoginn Mikhail Gorbachev vakti undrun gestgjafa sinna í
London í desember sl., er hann stöðvaði bfialest og fór óvænt til
bústaðar breska forsætisráðherrans í Downing-stræti 10, meðan Marg-
aret Thatcher var í Peking, að því er frá var greint í gær, þriðjudag.
„Hann hafði setið kvöldverð-
arfund með þremur fyrrverandi
forsætisráðherrum Bretlands,
þeim Harold Wilson, James
Callaghan og Hume lávarði, dag-
inn áður. Og það var ekki á
dagskránni hjá honum að skoða
Downing-stræti 10, hann langaði
bara til að sjá staðinn," sagði
Peter J. Shaw, ritari Alþjóða-
þingmannasambandsins, sem
annaðist Gorbachev meðan á
Lundúnaheimsókninni stóð.
Shaw sagði, að Gorbachev
hefði verið á heimleið til sovéska
sendiráðsins, þegar einhver sam-
ferðamannanna benti á bústað
breska forsætisráðherrans.
„Allt í einu snarstansaði bíla-
röðin," sagði Shaw. „Ég var aft-
arlega í röðinni og hélt, að
eitthvað hefði farið úrskeiðis. En
það var Gorbachev sem hafði
látið nema staðar og sagði: „Við
skulum endilega líta á staðinn.““
Shaw sagðist loks hafa yfir-
gefið bílinn og þá hefði Gorbach-
ev staðið fyrir utan Downing-
stræti 10 og glápt á húsið eins og
hver annar ferðamaður.
Ég bað lögreglumann, sem var
á verði fyrir utan, að gera okkur
þann greiða að leyfa Gorbachev
að kíkja inn fyrir dyrnar. I sömu
svifum kom starfslið hússins og
bauð að ganga í bæinn. Jólatréð
stóð alskreytt í einu horninu og
gjafirnar hjá. Og það var hátíð-
arblær yfir öllu.
„Gorbachev var ákaflega vin-
gjarnlegur í fasi og í hátíðar-
skapi,“ sagði Shaw.
En forsætisráðherrann, frú
Margaret Thatcher, var um
þetta leyti að skrifa undir Hong
Kong-samningana við Kínverja.
Hafði hún áður tekið á móti
Gorbachev á embættissetrinu í
Checquers fyrir utan London.
Hosni Mubarak Egyptalands-
forseti sagði eftir tveggja klukku-
stunda langar viðræður við Reag-
an, að nú væri „gullið tækifæri
fyrir þá sem vildu frið“.
Khalil Wazir, einn af æðstu for-
ystumönnum PLO, sagði í viðtali
við AP-fréttastofuna, að búast
mætti við „injög eldfimu ástandi"
í Miðausturlöndum í framhaldi af
neitun Bandaríkjamanna um að
taka þátt í viðræðum með PLO.
í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna beitti fulltrúi Bandaríkjanna
neitunarvaldi til að hindra fram-
gang ályktunar, sem fordæmdi
Israela fyrir ofbeldisverk í
Suður-Líbanon. Sagði bandaríski
fulltrúinn, Jeane Kirkpatrick, að
hún hefði verið tilbúin til að sam-
þykkja tillögu, þar sem fordæmd
hefðu verið ofbeldisverk allra
málsaðila í S-Líbanon.
inn að Sovétmönnum vegna frá-
falls Chernenkos, sem hefði verið
trúr þjónn flokks og fólks og ein-
arður baráttumaður fyrir hug-
sjónum kommúnismans. Sagði
hann, að Chernenko hefði ötullega
unnið að afvopnunarmálum og að
í þeim anda yrði áfram unnið.
„Sovétmenn hafa aldrei ógnað
nokkurri þjóð,“ sagði Gorbachev,
„og munu ekki gera. Við viljum
reynast góðir grannar og eiga frið-
samleg samskipti við allar þjóðir."
Gorbachev kom einnig að innan-
landsmálunum og hvatti til meiri
aga meðal þegnanna, meiri vinnu-
semi og meiri trúnaðar við flokk-
inn. Tvennt var það, sem er-
Viktor V. Grishin, formaður
flokksins í Moskvu, flutti einnig
ræðu og minntist Chernenkos sem
vinar og félaga og sleppti öllum
pólitískum skírskotunum.
Að lokinni útförinni tók Gorb-
achev á móti erlendum gestum og
í kvöld ætlaði hann að ræða sér-
staklega við Rajiv Gandhi, forsæt-
isráðherra Indlands, George Bush,
varaforseta Bandaríkjanna, Mar-
garet Thatcher, forsætisráðherra
Breta, Francois Mitterrand, for-
seta Frakklands, Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands, og
Mauno Koivisto, forseta Finn-
lands.
Fram hefur komið hjá banda-
rískum embættismönnum, að
Bush hafi í fórum sínum bréf frá
Reagan til Gorbachevs þar sem
lagt er til, að þeir finnist að máli í
Bandaríkjunum.
AP/Símamynd
Mikhail S. Gorbachev, hinn nýi leiðtogi Sovétmanna, og Andrei A. Gromyko, utanrfkisráðherra, fylgja Chernenko tfi
grafar. Var hann lagður til hinstu hvfldar á Rauða torginu, rétt við Kremlarmúra.
Reagan um tillögu Egypta:
Jákvætt framlag
en dugir ekki til
Washington, 13. mars. AP.
RONALD Reagan forseti sagði í gær, að tillaga Egypta um að koma af stað
friðarviðræðum í Miðausturlöndum væri „jákvætt framlag“, en dygði ekki
til. Kvað hann ísraela og nágranna þeirra í Arabalöndunum „enn langt frá
því að setjast að samningaborði'*.
Veður
víöa um heim
Lægst Hæst
Akursyri +1 1 snjóél
Amsterdam *2 7 skýjaó
Aþena 6 11 rigning
Barcelona 13 heíðskírt
Berlín -3 3 bjart
Brussel +2 5 skýjað
Chicago 1 9 skýjað
DuMín 5 8 skýjað
Feneyiar 8 rigning
Frankfurt +3 9 bjart
Genl 0 6 skýjað
Helsinki +4 2 skýjað
Hong Kong 13 15 skýjað
Jerúsalem 9 17 bjart
Kaupm.höfn +2 1 skýjað
Las Palmas 22 heiðskírt
Lissabon 9 19 bjart
London 2 8 skýjað
Los Angeies 8 19 bjart
Luxemborg 1 þokumóóa
Malaga 15 léttakýjað
Mallorca 9 súld
Miami 23 25 bjart
Montreal 44 3 bjart
Moskva +5 42 skýjað
New York 7 13 skýjað
Osló +1 5 bjart
París 1 8 bjart
Peking 4« 8 bjart
Reykjavík 0 héifskýjaö
Rio de Janeiro 20 34 skýjað
Rómaborg 5 13 skýjað
Stokkhólmur 2 4 skýjað
Sydney 21 27 bjart
Tókýó 4 10 skýjað
Vínarborg 42 2 bjart
Þórshöfn 3 skýjað
Tyrkneska sendiráðið í Kanada:
Gíslum haldið
í fjórar klst.
(HUwa, 13. mare. AP.
ÞRÍR vopnaðir menn, sem sögðust vera í hryðjuverkasamtökum Armeníu-
manna, réðust í dag inn í tyrkneska sendiráðið í Ottawa eftir að hafa sprengt
öfluga sprengju í anddyri hússins og drepið einn öryggisvörð.
Tóku þeir 12 gísla og héldu þeim ákærðir fyrir morð og fleira alvar-
fjórar klukkustundir áður en
þeir gáfust upp og lögreglumenn
færðu þá af vettvangi. Tyrkneski
sendiherran varnaði sér út um
glugga á annarri hæð af ótta við
að vera drepinn og slasaðist hann
talsvert, mjaðmagrindarbrotnaði,
handleggs- og fótbrotnaði.
Mennirnir þrír eru allir kanad-
ískir ríkisborgarar, 27, 30 og 35
ára gamlir, og hafa þeir verið
legt. í hópi gíslanna voru eigin-
kona og dóttir sendiherrans sem
út um gluggann stökk, þeim var
ekki unnið mein frekar en öðrum
gíslum. Mennirnir voru vel vopn-
um búnir, allir með afsagaðar
haglabyssur og skammbyssur, auk
þess sem þeir komu sprengiefni
fyrir víða í byggingunni. Tók það
sérfræðinga nokkurn tíma að gera
allar sprengjurnar óvirkar.
Hryðjuyerkamenn
í lífstíðarfangelsi
IWsneldorr. 13. m»rs. AP.
TVEIR hryðjuverkamenn úr Rauða herflokknum voru í dag dæmdir í ævi-
langt fangelsi fyrir að myrða iðjuhöld árið 1977.
Rétturinn fann Adelheid
Schulz, 29 ára gamla, og Rolf-
Klemenz Wagner, sem er fertugur,
sek um að hafa myrt Hans-Martin
Schleyer, formann vestur-þýska
vinnuveitendasambandsins, og
fjóra lífverði hans. Tók það dóm-
arann nokkurn tíma að lesa upp
dómsorðið en sakborningunum
lýsti hann sem félögum í vinstri-
sinnuðum hryðjuverkasamtökum,
Rauða herflokknum, sem auk
morðsins á Schleyer hefðu staðið
ásamt öðrum að sprengjutilræð-
um og bankaránum seint á síðasta
áratug.
Wagner fékk tvöfaldan lífstíð-
ardóm en Schulz var einnig dæmd
fyrir morðið á Jíirgen Ponto,
bankastjóra Dresdenarbankans.
og fékk þrefaldan lífstíðardóm. I
Vestur-Þýskalandi er heimilt að
endurskoða lífstíðardóm eftir 15
ára fangavist.