Morgunblaðið - 14.03.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
37
Sæluvikan hefst á
Sauðárkróki á morgun
Sauðárkróki, 12. mars.
SÆLUVIKA Skagfirðinga hefst á
Sauðárkróki um næstu helgi. Að
vanda verður þar margt til fróðleiks
og skemmtunar. Skákfélag Sauð-
árkróks heldur svonefnt Gróhe-
skákmót, sem hefst Töstudaginn 15.
mars og lýkur á sunnudag. Teflt
verður í Gagnfræðaskólanum. Laug-
ardaginn 16. mars kl. 14 verður
opnuð í Safnahúsi Skagfírðinga sýn-
ing á verkum Hrings Jóhannessonar
listmálara og kl. 16 sama dag flytur
Haraldur Ólafsson lektor erindi í
boði Safnahússins, sem hann nefnir
„Landnám á fslandi í Ijósi mann-
fræðinnar".
Að öðru leyti verður laugardag-
urinn einkum helgaður börnum og
unglingum, m.a. verður skemmtun
á vegum barnaskólans og dans-
leikir fyrir þessa aldurshópa.
Sunnudaginn 17. mars verða tvær
guðsþjónustur í Sauðárkróks-
kirkju, sem sóknarpresturinn, sr.
Hjálmar Jónsson, annast og opið
hús fyrir aldraða verður í safnað-
arheimilinu síðar um daginn. Um
kvöldið frumsýnir Leikfélag Sauð-
árkróks gamanleikinn „Húrra
krakki" eftir Arnold og Bach.
Leikstjóri er Eyþór Arnason.
Leikurinn verður sýndur flesta
daga vikunnar.
A mánudag og þriðjudag verða
kirkjukvöld í Sauðárkrókskirkju.
Þar syngur Kirkjukór Sauðár-
króks undir stjórn Guðrúnar Ey-
þórsdóttur. Jóhann Már Jóhanns-
son syngur einsöng við undirleik
Guðjóns Pálssonar og nemendur
Tónlistarskólans á Sauðárkróki
leika saman á klarinettu, fiðlu,
trompet og píanó. Séra Sigurður
H. Guðmundsson flytur ræðu bæði
kvöldin.
Af öðru efni Sæluvikunnar má
nefna söngskemmtun Karlakórs-
ins Heimis og Rökkurkórsins
föstudaginn 22. mars. Stjórnendur
eru Rögnvaldur Valbergsson og
Stefán R. Gíslason og annast þeir
einnig undirleik. Einsöngvarar
eru Sigfús Pétursson, Sigurlaug
Guðmundsdóttir og Þuríður Þor-
bergsdóttir. Laugardaginn 23.
mars sýnir Leikfélag Siglufjarðar
sjónleikinn „Fjölskylduna" eftir
Claes Andersen. Leikstjóri er
Hörður Torfason.
Kvikmyndasýningar verða alla
daga vikunnar og dansleikir nokk-
ur kvöld. Þar leika hljómsveitirn-
ar Týról, Metan og hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar. Sælu-
vikunni lýkur svo sunnudaginn 24.
mars með jasskvöldi í Bifröst.
Nánari upplýsingar um Sæluvik-
una er að finna í prentaðri dag-
skrá, sem Félagsheimilið Bifröst
gefur út. Kári
„Vesturbæingar
ættu að gleðjast“
„Það ætti að ríkja fögnuður í
gervöllum Vesturbænum yfir því
að nú skuli loks eitthvað gert fyrir
Landakotstúnið, þennan helgasta
blett Vesturbæinga," sagði Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri, þegar
blm. Morgunblaðsins spurði hann
út í framkvæmdir sem nú er unnið
við á Landakotstúninu.
Hafliði sagði að þessar fram-
kvæmdir væru í samræmi við
samning þann sem gerður var
milli borgarinnar og Landa-
kotskirkju um túnið. Nú væri
unnið að lagningu bílastæða,
sem fyrirhugað væri að kæmu
meðfram Túngötunni og það
væri einungis hið góða tíðarfar í
vetur sem gerði það að verkum
að hægt hefði verið að byrja
vinnu þetta snemma vors, en
fyrirhugað er að framkvæmdum
við Landakotstún ljúki haustið
1986.
Hafliði kvað Landakotstúnið
stækka frekar en minnka ef
eitthvað væri við þessar fram-
kvæmdir, auk þess sem leiktæki
fyrir börn yrðu sett þarna upp.
Væri það í fyrsta skipti sem sér-
stök leikaðstaða yrði þar fyrir
börn, en þess væri full þörf því
nú væri börnum aftur að fjölga í
Vesturbænum með nýrri kyn-
slóð.
Á Landakotstúni er gert ráð
fyrir skrúðgarði á hlutanum nær
miðbænum, en meðfram hluta
Túngötu niður að horni Hóla-
vallagötu verða 28 bílastæði og
verða þau afmörkuð frá götunni
með gróðurkerjum. Þá verður
upphituð hellulögn frá kirkjunni
að Túngötu, svo hægt sé að aka
upp að kirkjunni, þegar þess er
þörf.
Frá framkvæmdunum við Landakotstún. MorKunblaðiA/ÓI.K.M.
Hafliði Jénsson garðyrkjustjóri - um framkvæmdirnar á Landakotstúni:
Sæludaganefnd, talið frá vinstri: Jón Örn Kristinsson, Björgvin Ragnarsson,
Berglind Olafsdóttir, Gísli Erlingsson, Ragnar Baldursson og Engilbert Ims-
land.
Sæludagar Fjölbrautaskólans
í Breiðholti með öðru sniði
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breið-
holti sá sér ekki fært að hafa Sælu-
daga með sama sniði og í fyrra.
Ástæðan fyrir því er sú trufíun sem
orðið hefur á kennslu vegna þess að
kennarar gengu út 1. mars sl.
Hópstarf, eins og var á síðustu
Sæludögum, fellur niður, en þess í
stað eru ýmsar uppákomur á dag-
inn frá kl. 13—16 og á kvöldin frá
kl. 20.30.
I dag, fimmtudag, kl. 13—16
Fáskrúðsfjörður:
Ég vil fá minn
mann frumsýnt
á sunnudag
Fáskrúðsfirði, 11. mars.
Á sunnudagskvöld var frumsýnd-
ur skopleikurinn Ég vil fá minn
mann, eftir Philip King. Leikstjóri
var Magnús Guðmundsson frá Nes-
kaupstað, en hann hefur alloft áður
leikstýrt hér á Fáskrúðsfírði.
Að Ieiksýningunni stóð leikhóp-
urinn Vera á Fáskrðusfirði. Þetta
er þriðja leikár hópsins og þriðja
stóra verkefni hans. Húsfyllir var
í félagsheimilinu Skrúð, þar sem
leiksýningin fór fram, og var
leiknum afburðavel fagnað. Leik-
endur og leikstjóri voru hylltir
með lófataki lengi í lok sýningar.
Leikendur eru 10 talsins, og að-
alhlutverkin eru í höndum þeirra
Inga Helgasonar, Grétu Hall-
dórsdóttur og Sigurveigar Agn-
arsdóttur.
Fyrirhugað er að sýna leikritið
viðar á Austurlandi.
verður fyrirspurnafundur í hátíð-
arsal skólans. Borgarstjórinn í
Reykjavík, Davíð Oddsson, situr
fyrir svörum. ICYE-AUS, Alþjóð-
leg ungmennaskipti verða kynnt.
Þá verður sýning Fjörulalla-
félagsins o.fl. á dagskrá. t kvöld
syngja Jellý-systur, blúsband og
Baldur Brjánsson koma í heim-
sókn auk MK kvartettsins.
Á morgun, föstudag, verður
kennsla í bridge og félagsvist,
tískusýning, hraðskákmót o.fl.
Um kvöldið skemmtir Ómar
Ragnarsson. Viktor og Baldur
koma. Leyninúmer frá útlöndum
lætur sjá sig o.fl. verður á
dagskrá.
Slysavarnadeildin Ingólfur:
Fjármagnar kaup á beltabif-
reid og björgunarbátum
með fyrirtækjahappdrætti
„ÞAÐ HEFUR sýnt sig í óveðrum á
höfuðborgarsvæðinu, hvað það er
mikilvægt að hafa til umráða bifreið,
sem er jafnvíg á auðri jörð og í
snjó,“ sagði Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélags ís-
lands, á fundi, sem boðað var til
með blaðamönnum í tilefni stór-
ræða, sem Slysavarnadeildin Ingólf-
ur í Reykjavík stendur í um þessar
mundir.
En deildin hefur fest kaup á
beltabifreið, sem hægt er að aka
jafnt á malbiki sem snió. og er
hún því afar mikilvæg við hjálpar-
störf bæði á höfuðborgarsvæðinu
og utan borgarmarkanna.
Einnig er væntanlegur til lands-
ins 25 feta björgunarbátur úr
harðplasti og gúmmíi, sem gengur
allt að 28 mílur og er að hluta
yfirbyggður. Hann er ætlaður til
björgunarstarfa á hafnarsvæði
Reykjavíkur og í Faxaflóa, þar
sem um 1000 opnir fiskibátar,
skemmtibátar, skútur og óskráðir
opnir bátar eru gerðir út. Er von á
fleiri bátum, svipaðrar gerðar, til
Morgunblaöið/Júlíus
Björgunarsveitarmenn við nýju beltabifreiðina, sem fer jafnt yfir malbik og snjóskafla. Fyrir miðju er formaður
Slysavarnadeildarinnar Ingólfs, Örlygur Hálfdánarson.
landsins og verða þeir væntanlega
notaðir úti á landsbyggðinni. Fer
einn slíkur til Sandgerðis og ann-
ar á Höfn í Hornafirði.
Örlygur Hálfdánarson, formað-
ur Slysavarnadeildarinnar Ing-
ólfs, skýrði einnig frá því á fund-
inum, að sótt hefði verið til borg-
aryfirvalda um leyfi til að byggja
við húsnæði björgunarsveitarinn-
ar í Gróubúð á Grandagarði til
þess að skapa betri aðstöðu til
geymslu og viðhalds hinna mörgu
tækja sveitarinnar og stækka
stjórnstöð hennar, björgunarskóla
og fundaaðstöðu.
Öll starfsemi í björgunarsveit-
um Slysavarnafélagsins er fjár-
mögnuð með frjálsum framlögum.
Til þess að standa straum af þeim
stórræðum, sem þeir standa nú í,
hafa meðlimir Ingólfs hleypt af
stokkunum fyrirtækjahappdrætti,
þ.e.a.s. miðarnir verða fyrst og
fremst sendir fyrirtækjum um
land allt. Vinningarnir eru bíla-
símar, sem vissulega geta komið
mörgum að gagni, og kváðust
björgunarsveitarmenn vonast til
þess að undirtektirnar yrðu góðar.
„Hér er um margfalt landsátak
að ræða og lýsir miklum stórhug
björgunarsveitarmanna," sagði
Haraldur Henrysson, forseti
Slysavarnafélags Islands, á fund-
inum. „Það er ómetanlegt, að til
skuli vera stór hópur manna, sem
jafnan er tilbúinn að leggja á sig
mikilvæg sjálfboðastörf, oft sólar-
hringum saman, við hættulegar
aðstæður."
i
■t
r
t