Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ1985
Söngvakeppni
í Hollywood
fclk f
fréttum
ÍSLENSKUR HEIMSMEISTARI
í PÖNNUKÖKUBAKSTRI:
Bakaði 1892 pönnukökur
á átta klukkustundum
„Jú, ég er viss um aö ég heföi getaö fengiö pönnuktíkur í verölaun, en ég hafði bara ekki lyst á
þeim þá,“ sagöi Kristín Kristjánsdóttir, nýbakaður heimsmeistari í ptínnuktíkubakstri, í samtali við
Morgunblaðið.
Nemendur hótel- og veit-
ingaskólans gengust fyrir
matvæla- og framleiðslusýn-
ingu um helgina og var pönnu-
kökubaksturinn hápunktur
hennar.
Kristín bakaði 1892 pönnu-
kökur á átta klukkutímum,
sem þýðir að hún hafi bakað
rúmlea þrjár pönnukökur á
hverri mínútu. „Á klukkutím-
ann bakaði ég 222 kökur þegar
minnst var og 246 þegar mest
var,“ sagði Kristín.
Kristín sagði að sér liði
ágætlega í heimsmeistarahlut-
verkinu, en hún var ekki
ákveðin hvort hún myndi
reyna að verja titilinn þegar
fram líða stundir. „Ég geri ráð
fyrir að hótel- og veitingaskól-
inn geri þetta framvegis að
árlegum viðburði."
Kristín setti íslandsmet í
pönnukökubakstri fyrir stuttu
og sagðist hún ekkert hafa æft
sig síðan þá. „Ég hef aldrei
bakað mikið af pönnukökum
um ævina, heldur hugsa ég
bara um að ná takmarkinu á
vissum tíma. Það voru tveir
strákar í því að telja fyrir mig
á meðan ég bakaði og að sjá
um að nóg væri til af deigi, en
í deigið fóru aðeins 150 egg, 58
lítrar af mjólk og 30 kg af
hveiti."
Verið er að reyna að fá
heimsmetið í pönnuköku-
bakstrinum inn í heimsmeta-
bókina.
Kristín Kristjáns-
dóttir, heimsmeist-
ari í pönnuköku-
bakstri, hefði engan
tíma til að brosa
fyrir Ijósmyndara á
meðan hún var að
kljást við heimsmet-
ið.
Morgunblaðið/ RAX
„Músík hefur allt-
af loðað við mig“
— segir Guöjón Guðmundsson, sigurvegari
söngvakeppninnar
Morgunhlaðið/RAX
llluti dómnefndar, fremst frá vinstri: Andrea Jónsdóttir, Helgi
Kjarnason, Sigurgeir Sigmundsson, Sigríður Beinteinsdóttir og
Björgvin Halldórsson fylgjast
Sunnudagskvöldið 10. marz
var keppt til úrslita í
söngvakeppni á vegum Holly-
wood og Sóló sf. Sex söngvarar
tóku þátt í keppninni. Sigur-
vegari varð Guðjón Guð-
mundsson og hlaut hann 20
tíma í upptökusal að launum. í
af athygli með keppninni.
öðru sæti varð Sigurður Dag-
bjartsson, en í þriðja sæti
varð Sigríður Björgvinsdóttir,
eina stúlkan sem tók þátt í
keppninni.
„Eg hef sungið mikið fyrir
framhaldsskóla og er sjálfur í
Ármúlaskólanum," sagði Guð-
maður og banamein hans var hjartaslag sem hann
fékk meðan hann skokkaði í lystigarði í Philadelpiu.
John var formaður bandarísku Ólympíunefndarinn-
ar og átti í fórum sínum silfurverðlaunapening frá
Ólympíuleikum, en Kelly var í róðrarliði Bandaríkj-
anna. Á myndinni er hann með systur sinni, leikkon-
unni og furstafrúnni af Mónakó, Grace Kelly, en
myndin var tekin árið 1982 er þau systkinin
héldu blaðamannafund. Grace lést nokkru
síðar í bílslysi og dóttir hennar
Stefanía^>rinsessa var
hætt komin.