Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
55
Réttw
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Kínversk matargerð nýtur vax-
andi vinsælda víða um lönd.
— Maturinn er góður.
— Undirbúningur tekur smá tíma.
— en eldun aðeins nokkrar mínútur.
Meðfylgjandi „kínverskur" réttur
er einn sá vinsælasti á Vesturlönd-
um. Margar uppskriftir eru til, þessi
er mín besta, en rétturinn er:
Sæt-súrt
svínakjöt
meö ananas
fyrir 4—5
3 stk. svínalundir (450—500 gr)
% — 1 gulrófa (200 gr)
1 lítil dós ananas
3 matsk. borðedik eða vínedik
3 matsk. sykur
1 matsk. kínversk soja
4 matsk. ananassafi
6 matsk. matarolía
ca. 2 matsk. kartoflumjöl
1 tsk. salt
1. Himnur eru skornar burt af
svínavöðvanum og skerið síðan í
1—1% cm þykka bita.
2. f þennan rétt eru venjulega
notaðir bambussprotar, en þar
sem þeir eru ekki alltaf fáanlegir
má nota gulrófu. Það er í raun
breyting sem bætir réttinn. Gul-
rófan er afhýdd, og síðan skorin í
2 cm strimla og þeir settir í sjóð-
andi vatn og snöggsoðnir (í 10
mín.). Þeir eru síðan færðir upp og
skornir í 2 cm þykka bita. Ananas-
inn er einnig skorinn í munnbita
stærð.
3. Setjið í skál soju, salt, sykur,
ananassafa, og 2 matsk. mataroliu
og blandið vel saman.
Kjötbitarnir eru siðan settir út i
og þeim velt fram og aftur i legin-
um og látnir marinerast smá
stund.
Bitarnir eru siðan teknir upp úr
og vökvinn látinn renna af þeim.
Stráið 2 matsk. af kartöflumjöli
yfir kjötið og látið kjötið þorna.
4. 4 matsk. matarolía er hituð vel
á góðri pönnu og kjötbitarnir
steiktir vel í feitinni, í ca. 5 min.
Þeir eru síðan teknir af pönnunni
og haldið heitum. Lögurinn sem
kjötið var marinerað i er bætt á
pönnuna og hitað í oliunni ásamt
ananas og gulrófnabitum (eða
bambusbitum) og steikt smá
stund (1 mín.).
5. % tsk. kartöflumjöl er hrært út
í 2 matsk. af vatni og sett út í til
að jafna sósuna. Kjötbitarnir eru
síðan settir út í og blandað vel
grænmetinu og sósunni.
Ath.: Ef sósan þykir ekki nógu
sterk þá má bæta við ediki 1—2
matsk. Þessi uppskrift er mjög
bragðmild. Rétturinn er borinn
fram strax með soðnum grjónum.
Verð á hráefni
Svínalundir 500 gr. 245.00
(Kjötmiðstöðin)
1 dós ananas (lítil) 35.00
gulrófa 13.00
Kr. 293.00
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Matsedill sem NaUSt
kitlar bragdlaukana S. 17759.
☆ Stjörnukvöld ☆
föstudaginn 15. mars. ódýr og frábær skemmt-
un. Hjördís Geirsdóttir flytur vinsæl lög frá
fyrri árum. Tvíréttuð veisla og skemmtiatriði
fyrir aðeins kr. 800.
Aðgangseyrir eftir kl. 22 kr. 200.
Borðapantanir í síma 99-1356.
Ath.: Opið fimmtudaga og sunnudaga frá
kl. 19.00.
Nýtt HÁRHÖLL SHS Nýtt
sími 14477
og
SNYRTISTOFA
ÖNNU BERGMAN
sími 22353
Laugavegi 82, inngangur frá Barónsstíg, 2. hæö.
Nýjustu línur frá London og Kaupmannahöfn.
VITRINGUR VIKUNNAR
Eins og fram hefur komið munum við fram-
vegis í fimmtudagsauglýsingum okkar fá get-
spaka „tippara" til að spá um úrslitin í ensku
knáttspyrnunni og fylla getraunaseðilinn út.
Síðasta fimmtudag fyllti Baldur Brjánsson
töframaðurút seðilinn og hafði 5 rétta.
Vitringur þessarar viku er hinn kunni hand-
knattleiksmaður Geir Hallsteinsson og hans
seðill lítur svona út.
Leikir 16. mar* 1985
1 X 2
1 Aston Villa - Everton 2
2 Liverpool - Tottenham r
3 Newcastle - Coventry X
4 Norwich - feundorland X
5 Nott’m Forest - W.B.A. i
6 Q.P.R. - Ipswich i
7 Watford - Chelsea /
8 Blackburn • Birmingham X
9 Brighton - Oxford i
10 Grimsby - Portsmouth X
11 Middlesbro - Sheff. Utd. X
12 Wimbledon - Hudd'field i
Spakmæh dagsins:
Dyggra er hollast dæmi að fylgja
ÚSAL
rg «
Idkk
Já, þaö er nú svo lifandi tónlist í lifandi umhverfi
á efri hæöinni hjá okkur í kvöld. Þaö veröur svo
sannarlega líf í tuskunum er hljómsveitin Kikk
meö Sigríöi Beinteins í fararbroddi spilar og
skemmtir fyrir landsmenn og aöra gesti í Holly-
wood.
Á neöri hædinni kemur svo
fram breski grínarinn, prins-
inn frá Covent Garden.
Hann er maður að okkar
skapi sem kemur fólki svo
sannarlega í gott skap í
skapandí stemmningu að
sjálfsögðu í Hollywood.
Einnig kemur fram gesta-
plötusnúöur. Hann er hár og
spengilegur enda hárprúöur
nei nei nei hárprúöur da da
da kapt. Keiors nei nei nei
Magnús Þór Sveinsson svo
það er ekki um annað aö
ræða á sjónvarpslausu
fimmtudagskvöldi en að
skella sór í Hollywood.