Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 26

Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 26
Með starfsemi Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins hefur tekist að minnka dánartíðni af völdum leghálskrabbameins en konur mœta þó ekki nœgilega vel til skoðunar. Á síðustu fjórum árum hafa 77 konur greinst með krabba og af þeim hafa 75% ekki mætt til leitar síðustu 3 ár fyrir greiningu sjúkdómsins. f ég hefði farið i skoðun hefði ég ekki þurft að fara í gegnum allar þessar þreng- ingar.“ Viðmælandi Mbl. er ein af hinum fjölmörgu konum sem hafa þurft að ganga í gegnum erfiðar aðgerðir vegna krabbameins. Hún segist reka stöðugan áróður fyrir því að konur notfæri sér þá þjónustu sem Leitarstöð Krabbameinsfé- lagsins býður upp á. „Það er erfitt að geta engu um kennt nema eigin trassaskap," segir annar við- mælandi blaðsins, kona sem þurfti að fara í fjöida skurðaðgerða á sl. ári vegna krabba- meins, en hún hafði aldrei sótt Leitarstöð- ina heim þrátt fyrir ótal ítrekanir þaðan. Hvemig myndir þú bregðast við lesandi góður ef læknir þinn tilkynnti þér einn góð- an veðurdag að þú værir með krabbamein? Flestir eiga eflaust erfitt með að svara því enda má segja að sjúkdómsgreiningin krabbamein hafi nánast verið sem dauða- dómur hér fyrir nokkrum árum. Enn er krabbamein meðal helstu dánarorsaka ís- lendinga og f dag er talið að um þriðji hver íslendingur fái einhverntíma krabbamein. En batahorfur hafa aukist á síðari árum, sérstaklega þó ef tekst að greina sjúkdóm- inn snemma og hægt er að beita áhrifaríkri meðferð. Mannskæðust krabbameina eru maga- krabbamein, lungnakrabbamein, ristil- krabbamein og brjóstakrabbamein. Oft er erfitt að greina byrjunarstig krabbameins, en mestum árangri hefur verið náð við leit að leghálskrabbameini, en krabbamein í kynfærum og brjóstum kvenna eru nú um 40% alls krabbameins f konum hér á landi. Frá þvi Leitarstöð Krabbameinsfélagsins tók til starfa í júní 1964 hefur verið reynt að finna þessa sjúkdóma á byrjunarstigi, forstig leghálskrabbameins eru vel þekkt og auðveld í greiningu með einfaldri, að- gengilegri og ódyrri aðferð. Frá byrjun leit- arstarfsins hefur tekist að minnka dánar- tíðni leghálskrabbameins töluvert. Frá 1%5—69 til 1975—79 minnkaði dánartfðnin um 60% sem byggist m.a. á því að með tilkomu leitar greinast fieiri konur á fyrsta stigi sjúkdómsins þar sem árangur með- ferðar er bestur. Forstig krabbameina f öðrum hlutum kynfæra og f brjóstum eru minna þekkt og öruggar aðferðir til grein- ingar þeirra eru ekki enn til staðar. Byrjun- arstig krabbameins í brjóstum eru t.d. erfið í greiningu, þar er nú mest stuðst við þreif- ingu brjósta og eitlastöðva, heilsufarssögu og kennslu í sjálfskoðun brjósta. Hjálpar- tækni við greiningu brjóstakrabbameins eru brjóstastungur og röntgenmyndataka af brjóstum kvenna. Krabbameinsfélagið hefur nú nýlega eignast tæki sem gerir stöðinni kleift að taka röntgenmyndir af brjóstum kvenna sem koma í krabbameinsskoðun. Talið er að hægt sé að greina u.þ.b. helmingi fleiri krabbameinstilfelli með slfkum myndatök- um og þar að auki fyrr en með þreifingu einni saman. Ef fjárveiting fæst til þessara hópskoöana geta þær hafist jafnvel á þessu ári. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins er nú til húsa f hinu nýja húsnæði Krabbameins- félagsins f Skógarhlíð. Dr. Kristján Sig- urðsson yfirlæknir stöðvarinnar sagði í samtali við blaðið að þar væri aðstaða til að skoða helmingi fleiri konur en f Suðurgöt- unni. „En því miður er aðstaöan ekki full- nýtt þar sem konurnar mæta ekki nægilega vel í skoðunina. Sumar konur koma hingað reglulega á tveggja ára fresti en aðrar stöku sinnum eða aldrei." Kristján sagði að á timabili hefði verið allt útlit fyrir að hægt væri að fækka þeim verulega sem væru með ieghálskrabba og mögulega útrýma dauðsföllum af völdum sjúkdómsins. En eins og sjá má á meðfylgj- andi línuriti hefur á ný orðið viss aukning á nýgengi og dánartíðni sjúkdómsins frá 1980. Aukning á nýgengi virðist að nokkru bundin við aldurshópinn 25—44 ára þar sem hækkunin er minni í öðrum aidurshóp- um. „Á tímabilinu 1980—1984 hafa 77 konur greinst með leghálskrabbamein, þar af eru 95% á fyrsta stigi sjúkdómsins. Þegar saga þeirra er könnuð kemur i ljós að % hlutar þeirra eða 75% hafa ekki mætt til leitar síðustu þrjú ár fyrir greiningu sjúkdóms- ins. Engin þeirra kvenna sem reyndist vera með sjúkdóminn á háu stigi hafði mætt til leitar frá 1964. Það virðist þvf að hluta til unnt að skýra þessa hækkun á nýgengi sjúkdómsins með þvf að konur mæta ekki nógu regluiega til skoðana á Leitarstöð Krabbameinsfélags lslands.“ — Hvaða konur eru í mestri hættu við að fá leghálskrabbamein? „Þær konur sem hafa ekki mætt til leitar í fimm ár eða lengur auk þeirra sem hafa greinst með forstigsbreytingar." Fyrstu árin sem Leitarstöðin var starf- rækt takmarkaðist leitin við konur á aldr- inum 25—59 ára sem búsettar voru á höfuð- borgarsvæðinu, en í dag fara skoðanir utan Reykjavíkur fram á 45 stöðum. Til að var- anlegur árangur náist af leitarstarfinu þarf að skoða konurnar á tveggja til þriggja ára fresti. Krabbameinsfélaglslands hefur yfir að ráða mjög fullkomnu tölvukerfi en með þvf er hægt að fylgjast náið með mætingum kvenna á hinum ýmsu leitarsvæðum lands- ins. Það vekur athygli að mætingu er mjög ábótavant f þéttbýliskjörnum kringum Reykjavík og Akureyri þar sem um 60% kvenna hafa mætt sfðustu þrjú árin meðan mæting er allt að 90% á vissum dreifbýl- issvæðum. Mæting hefur ætíð verið best í Norðurlandshéraði vestra, þar sem 83% kvenna hafa mætt sfðustu þrjú árin. Þó mæting kvenna hafi batnað frá 1979, eins og sjá má á meðfylgjandi lfnuriti, þá mætir um þriðjungur kvenna enn f dag ekki til hópskoðunar á þriggja ára fresti, sumar aldrei. Kristján hvatti konur eindregið til að notfæra sér þjónustu Leitarstöðvarinnar. „Við hvetjum konurnar til að koma á tveggja til þriggja ára fresti og viljum ein- dregið ná til þeirra kvenna sem hafa ekki komið hingað í langan tfma, sumar hverjar aldrei. Þessar síðastnefndu konur eru f mestri hættu og því fyrr sem þær koma því meira er hugsanlega hægt að gera fyrir þær ef eitthvað reynist vera að.“ En hvað segja konurnar sjálfar? Hvers vegna mæta þær ekki f skoðun? Við hittum að máli fjórar konur sem hafa fengiö krabbamein og þurft að ganga í gegnum miserfiðar aðgerðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.