Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 5

Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985 FERÐASKRIFSTOfAN ÚRVOL Jæja þá, nú er loksins komið að því að hægt er að uppfylla óskir og drauma íslenskra ferðalanga: Ferðir til Cap d'Agde og á Rivieruna á stór- kostlegu verði, dvalartími að eigin vali frá 1-4 vikur og viðkoma í París á heimleið fyrir þá sem vilja. Cap d'Agde sumarleyfisbærinn er aðalstaðurinn okkar í Frakklandi. Þetta er frábær fjölskyldustað- ur með óþrjótandi viðfangsefnum fyrir alla aldurs- hópa, - hæst ber vafalaust vatnsskemmtigarðinn Aqualand að ógleymdum sjarmanum franska sem allstaðarliggur í loftinu og endalausri sólarströndinni. Rivieran - sú eina sanna, er frægari en frá þurfi að segja. Annað eins ævintýri og að dvelja þar í sumarleyfi ervarla hægtað hugsa sér. Ævintýraljóma stafar jafnt af listasöfnum og menningarviðburðum, filmstjörnum og merkjabúðum, spilavítum og veitingahúsum, sólinni og þér. París ersvo punkturinnyfir i-ið. Á heimleiðinni býðst Parísardvöl í 2, 7, 9 eða 14 nætur. Gist er á frábæru 4ra stjörnu hóteli, Montparnasse Park. Eiffelturninn, Notre-Dame, Sigurboginn, Mona Lisa og pilsaskvetturnar á Rauðu Myllunni bíða eftir þér. Dvalartími: 1-4 vikur. Brottför: 14/6, 5/7, 26/7, 16/8 og 6/9. Heimferð: Alla föstudaga og sunnudaga frá 21/6. Verð: 2 vikur 3 vikur Cap d'Agde frá kr. 24.500.- kr. 26.300,- Riviera frá kr. 25.700.- kr. 29.100,- Viðdvöl í París: 2 nætur kr. 2.200.- 7 nætur kr. 7.700.- Barnafsláttur: 2-11 ára kr. 8.000.- í afslátt 0-1 árs greiða kr. 2.000.- Ferðatilhögun: Cap d'Agde, flug um París, möguleiki á viðdvöl í París í heimleið. Riviera, flug um Luxemborg á útleið, heimferð um París með möguleika á viðdvöl. Einnig er hægt að dvelja bæði í Cap d'Agde og á Riviera í sömu ferð og hafa viðdvöl í París á heimleið. Innifalið: Cap d’Agde og Riviera. ftug, akstur milli flugvallar og gististaða, gisting, islensk fararstjórn. Paris: Gisting og morgunverður. Ferðaskrifstofan Ún/al við Austurvöll, sími (91)26900.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.