Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAl 1985
19
Bókaklúbbur Almenna
bókafélagsins
íslenskar
smásögur
IV. bindi
komið út
HJÁ Bókaklúbbi Almenna
bókafélagsins eru komnar út ís-
lenskar smásögur, IV. bindi,
þýðingar. Ritstjóri og veljandi
sagnanna er Kristján Karlsson.
Með þessu bindi er lokið þessari
ritröð bókaklúbbsins, sem öll
ber heitið íslenskar smásögur.
í þessu sjötta bindi eru sögur
eftir 29 höfunda heimsbókmennt-
anna á þessari öld allt frá Bertolt
Brecht til sænska höfundarins
Ingvar Orri. Höfundarnir eru af
ýmsum þjóðernum og má t.d.
nefna Saul Bellow, Heinrich Bull,
Albert Camus, Jorge Luis Borges,
Graham Greene, William Heine-
sen, Ernest Hemingway, Natalia
Ginzburg, Julian Rúlof og Isaac
Bashevis Singer.
Kristján Karlsson ritar eftir-
mála um smásöguna og eðli henn-
ar og síðan er höfundatal fyrir
bindið og þýðendatal fyrir allt
verkið. Bókin er 482 bls. að stærð
og prentuð í Odda.
Verkakvenna-
félagið Framsókn:
Uppsagnar-
frestur hjá
fiskvinnslu-
fólki verði
lengdur
V’erkakvennafélagiö Framsókn
hélt aðalfund sinn í Hreyfilshúsinu
12. maí síðastliðinn. Segir meöal
annars í fréttatilkynningu frá félag-
inu: „Listi stjórnar og trúnaðarráð
var sjálfkjörin. Stjórnina skipa:
Ragna Bergmann, formaður, Elína
Hallgrímsdóttir, varaformaður,
Stella Stefánsdóttir, ritari, Kristín
Símonardóttir, Snjólaug Kristjáns-
dóttir, Guðrún Danelíusdóttir og
Anna Sigurðardóttir, meðstjórnend-
ur aðalstjórnar, Kristín Karlsdóttir,
Björk Jónsdóttir og Þóra Guð-
mundsdóttir, meðstjórnendur.
Samþykktar voru eftirfarandi
tillögur: Tillaga i áskorunarformi,
visað til Alþýðusambands íslands
og Verkamannasambands Islands,
að nú þegar verði fengin leiðrétt-
ing á launum, sem rýrnað hafa úr
hófi fram og eru langt fyrir neðan
mannsæmandi lifsafkomu. Ekki
síðar en í haust, þegar samningar
eru lausir, verði tryggt að launa-
og lánskjaravísitala fari saman,
svo og uppsagnarfrestur hjá fisk-
vinnslufólki verði lengdur frá því
sem nú er. Tillaga um breytingu á
félagsgjöldum, úr 1,2% í 0,9% af
öllum launum, sem tekur gildi 1.
júní 1985“
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
0
W \.
Stúdentar í Fjölbrautaskóla Garðabæjar ásamt Þorsteini Þorsteinssyni, skólameistara, lengst til hægri, og Gísla
Ragnarssyni, aðstoðarmeistara, til vinstri.
Stúdentar
í Garðabæ
HINN 18. maí sl. var Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ slitið í fyrsta
sinn og voru þá brautskráðir 17
stúdentar. Fimm útskrifuðust af
viðskiptabraut, þrír af málabraut,
þrír af félagsfræðabraut, tveir af
uppeldisbraut, einn af íþrótta-
braut, einn af heilsugæslubraut,
einn af eðlisfræðibraut og einn af
tónlistarbraut. Bestum náms-
árangri á stúdentsprófi náði Mar-
grét Einarsdóttir með einkunnina
A í nær öllum greinum.
Hátíðleg athöfn var haldin í
skólanum og fluttu ávörp m.a.
Þorsteinn Þorsteinsson, skóla-
meistari, sem afhenti prófskír-
teini, Ámi Ólafur Lárusson, for-
seti bæjarstjórnar Garðabæjar, og
sr. Bragi Friðriksson, sóknar-
prestur.
Nemendur skólans voru tæplega
300 á vorönn 1985.
Þú þarft ekki að vera lyfjafræðingur til
að geta nýtt þér Isleusku lyfjabókina...
ÞÚ ÞARFT AÐEINS AB
KUNNA STAFRÓFIÐ!
i
Islruska lyl'jabokin
opnar |»or svið, som
aliiHMiniiigi liofur vorið
lokað IiI |)t*ssa. Iliin
voilir |hm ilarlogar npp-
lysingar iiin oll |iau lyf,
soin skrað oru a Islamli,
iiiniliahi þoirra, nolkiin,
ahrif oi* ankavorkauir.
I hokiimi or mari>s
konar froðloikur iiin lyf
lyfjaiiotkiin, fjolili
ahomlini*a o}» varuað-
arorða.
I.yfjiiiitim or raðað i
stafrofsroð i hokinni.
Svo oinfalt or |>að.
1
1
s
\
i a
V \
\
MagnúsH°l9i K
ssiGiS|
%
NAUÐSYNLEG
HANDBÓK
Á HVERJU
HEIMILI!
líl VAKA Siðumiila 29 Simi .‘{2
{2800.