Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985
Eigandi og leiguliði Ytri-Rauðamels á Snæfellsnesi:
Sýknaðir af kröfum hreppsnefndar
um ógildingu byggingarbréfs þeirra
Kröfu hreppsins um viðurkenningu á ráðstöfunarrétti hreppsins á jörðinni vísað frá dómi
í AUKADÓMÞINGl Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu hefur verið kveðinn
upp dómur í máli sem Gyjahreppur
höfðaði á hendur landeiganda og
leiguliða jarðarinnar Ytri-Rauðamels í
Eyjahreppi. Gerði stefnandi þær kröf-
ur að byggingabréf um jörðina verði
dæmt ógilt, að viðurkenndur verði
réttur hreppsnefndar Eyjahrepps til
þess að ráðstafa jörðinni á þann hátt,
sem hagkvæmastur er fyrir sveitarfé-
lagið og að stefndu verði gert að
greiða málskostnað. Málið var af ýms-
um talið mikilsvert eignarréttarmál
og vísaði verjandinn mjög til eignar-
réttarákvæða stjórnarskrárinnar í
málsvörninni. Dómarinn sýknaði
landeigandann og leiguliðann af kröf-
um hreppsins í málinu, og gerði stefn-
anda að greiða þeim 40.000 kr. í
málskostnað.
Eigandi jarðarinnar Ytri-Rauða-
mels er Thor R. Thors, fram-
kvæmdastjóri, til heimilis á Sel-
tjarnarnesi. Jörðin liggur að Haf-
fjarðará eins og fleiri jarðir fjöl-
skyldunnar þarna. Jörðin var í ábúð
en ábúandi fluttist af henni
snemma árs 1982. Hreppsnefndin
krafðist þess að jörðin yrði leigð
fólki sem þar ætlaði að hafa fasta
búsetu og búrekstur og áskildi sér
rétt til að ráðstafa jörðinni sjálf
gerði landeigandi það ekki. í árs-
byrjun 1984 gerðu stefndu, Thor R.
Thors og Ingólfur Gíslason hrepp-
Lokatónleikar
Jassklúbbs
Reykjavíkur
LOKATÓNLEIKAR Jassklúbbs
Keykjavíkur á þessu starfstímabili
verða í kvöld í Lækjarhvammi á Hótel
Sögu og hefjast kl. 21.00.
Tvær stórsveitir koma fram á
tónleikunum, Big Band Kópavogs og
Big band Félags íslenskra hljómlist-
armanna. Guðmundur Ingólfsson
leikur ásamt félögum sínum og
nokkrir af máttarstólpum
Jassklúbbsins munu einnig láta til
sín heyra.
stjóri á Flesjustöðum í Kolbeins-
staðahreppi, með sér byggingabréf
um jörðina og hefur Ingólfur nytjað
hana frá þeim tíma en búið á
Flesjustöðum. Taldi hreppsnefndin
byggingabréfið „til málamynda til
að halda jörðinni utan ábúðar" og
samþykkti byggingabréfið með
þeim fyrirvara að verði leiguliðinn
ekki fluttur á jörðina á tilsettum
tíma skv. ábúðarlögum sé bygg-
ingabréfið fallið úr gildi og sé
hreppsnefndinni þá heimilt fyrir-
varalaust að taka jörðina til ráð-
stöfunar. Þessu mótmæltu báðir
stefndu. Jarðanefnd Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu samþykkti
byggingabréfið með þeim fyrirvara
að jörðin yrði i ábúð. Þess skal getið
hér að fjósbygging og mjólkurhús á
Ytri-Rauðamel fullnægja alls ekki
þeim kröfum sem gerðar eru til
framleiðslu á sölumjólk, skv. áliti
dýralæknis, og íbúðarhúsið er
heilsuspillandi, skv. áliti
heilsugæslulæknis.
Lögmaður Eyjahrepps, Hjalti
Steinþórsson, gerði í fyrsta lagi þá
kröfu að byggingabréfið yrði dæmt
ógilt. Byggði hann kröfu sína á því
að bréfið fullnægði ekki þeim skil-
yrðum, sem sett eru um efni bygg-
ingabréfa. Ennfremur hafi leiguliði
ekki fullnægt skilyrðum ábúðarlaga
um búsetu á jörðinni. Þá liggi ekki
fyrir skilyrðislaust samþykki
hreppsnefndar og jarðanefndar á
byggingabréfinu. í öðru lagi krafð-
ist hann þess að viðurkenndur yrði
réttur hreppsnefndarinnar til þess
að ráðstafa jörðinni á þann hátt,
sem hagkvæmastur er fyrir sveitar-
félagið. I þriðja lagi krafðist hann
þess að stefndu yrði gert að greiða
málskostnað og benti á, að stefndu
hefði verið gefinn kostur á að bæta
úr þeim annmörkum samningsins
og framkvæmd hans og í lófa lagið
að komast hjá málshöfðun.
I^ögmaður Thors og Ingólfs, Jón
Steinar Gunnlaugsson, krafðist
þess að kröfu Eyjahrepps um rétt
til að ráðstafa jörðinni yrði vísað
frá og stefndu yrðu sýknaðir af
kröfum hreppsins. Byggði hann
sýknukröfu sína í fyrsta lagi á því
að sveitarstjórn eigi ekki að réttum
lögum neina aðild að dómkröfu um
hvort samningur, sem stefndu hafa
gert sín í milli, sé gildur eða ógild-
ur. Hann taldi að krafa Eyjahrepps
um rétt hreppsins til að ráðstafa
jörðinni fái ekki staöist vegna eign-
arnámsákvæðis stjórnarskrárinn-
ar, og leiði til þess, að sýkna bæri
stefnu af öllum dómkröfum. Þá
byggðust sýknukröfur einnig á því
að stefnandi geti ekki þvingaö Thor
til að gera þær úrbætur á húsum
jarðarinnar, sem þarf til að Ingólf-
ur, eða einhver annar ábúandi, taki
fasta búsetu á jörðinni. Lögmaður-
inn taldi það ekki koma til greina
að fái staðist gagnvart stjórnar-
skránni að fela stjórnvöldum vald
til að fyrirskipa mönnum tiltekna
ráðstöfun eigna sinna, sem hefði f
för með sér veruleg útgjöld fyrir þá.
Lokatónleik-
ar nemenda
Söngskólans
í Reykjavík
FYRSTU lokatónleikar Söngskólans i
Reykjavík verða í kvöld, fimmtudag-
inn 30. maí, og hefjast kl. 20.30 í tón-
leikasal skólans að Hverfisgötu 45.
Þar syngja Kristín Guðmundsdóttir
sópran, Hannes Birgir Hannesson
tenór og Dúfa S. Einarsdóttir alt.
Undirleikarar verða Jórunn Viðar,
Katrín Sigurðardóttir og Kolbrún
Sæmundsdóttir. Laugardaginn I. júní
kl. 15.00 syngja á sama stað þau
Margrét Pálmadóttir sópran og Þor-
geir Andrésson tenór við undirleik
Jórunnar Viðar og Guðrúnar A. Krist-
insdóttur.
Þessir fimm nemendur luku allir
í vor 8. stigs prófi frá almennri
deild skólans, en það er jafnframt
inntökupróf í einsöngvaradeild og
Sýknukröfur stefndu byggðust loks
á því, ef synjað yrði fyrrgreindum
sýknuástæðum, að fullnægt hafi
verið skilyrðum jarðalaga um öflun
samþykkis sveitarstjórnar og
jarðanefndar við byggingu jarðar-
innar.
Dómarinn, Jón S. Magnússon,
fulltrúi sýslumanns Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu, vísaði frá
dómi kröfum stefnanda um viður-
kenningu á rétti hans til að ráð-
stafa jörðinni. Niðurstaða hans
varðandi málið að öðru leyti varð
sú, að með tilliti til 2. mgr. 6. gr.
jarðalaga, væru ekki fyrir hendi
skilyrði til þess að ógilda bygg-
ingabréf stefndu um jörðina og
bæri því að sýkna þá af dómkröfum
stefnanda um ógildingu bygg-
ingabréfsins. Þá þótti og rétt að
stefnandi greiddi stefndum sameig-
inlega i málskostnað kr. 40.000.
söngkennaradeild.
Þrír söngkennarar útskrifuðust
nú úr skólanum, allt konur. Þær
eru: Ásta Valdimarsdóttir, Kristín
Jóhannesdóttir og Kristín S. Sig-
tryggsdóttir. Tvær hinar fyrst-
nefndu munu syngja á tónleikum í
sal skólans, mánudaginn 3. júní, kl.
20.30. Undirleikari á þeim tónleik-
um verður Guðrún A. Kristinsdótt-
ir. Lokatónleikar Kristínar S. Si-
gtryggsdóttur verða haldnir síðar.
Skólaslit Söngskólans verða í
Gamla Bíói sunnudaginn 2. júní og
hefjast kl. 15:00. Að þeim loknum
Síöasta sýning
á Grænu lyftunni
f KVÖLD kl. 20.30 sýnir Revíuleik-
húsið gamanleikinn „Græna lyftan" í
veitingahúsinu Broadway, í síðasta
sinn á þessu leikári. Leikritið hefur
fengið góðar undirtektir áhorfenda og
gagnrýnenda. Einkum hefur vakið at-
hygli hversu vel sýningin nýtur sín á
skemmtistaðnum.
Leikstjóri er Þórir Steingríms-
son, leikmyndina gerði Baldvin
Björnsson og tónlist er eftir Jón
ólafsson. Með helstu hlutverk fara:
Magnús Ólafsson, Lilja Þórisdóttir,
Steinunn Jóhannesdóttir og Bjarni
Ingvarsson. Myndin er af Bjarna og
Lilju í hlutverkum sínum.
kl. 16:00 hefjast svo á sama stað
lokatónleikar Söngskólans. Þar
koma fram nemendur af öllum stig-
um og syngja við undirleik píanó-
leikara skólans.
Starfsárið, sem nú er á enda var
tólfta starfsár skólans. í vetur
stunduðu um 150 manns nám við
skólann, 110 í dagskóla og 40 í öld-
ungadeild eða á kvöldnámskeiðum.
Prófdómari á lokaprófum var Da-
vid Lloyd, frá The Associated Board
of the Royal Schools of Music.
Skólastjóri Söngskólans I
Reykjavík er Garðar Cortes.
Nýútskrifaðir söngkennarar frá Söngskólanum í Reykjavík.
Talið f.v.: Kristín S. Sigtryggsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir og Ásta Valdi-
marsdóttir.
Bygging fjölbýlishússins við Stangarholt:
Kaupendur búnir
að greiða hundr-
uð þúsunda
inn á íbúðirnar
*
„Anægjuleg niðurstaða," segir formælandi
nágrannanna um ógildingu byggingarleyfisins
„ÉG HELD mínu striki, lít á þennan úrskurð sem misskilning, sem þarf að
íeiðrétta,“ sagði Böðvar Böðvarsson byggingameistari, einn af eigendum
Hvols hf. sem byggir fjölbýlishúsið við Stangarholt 3—9 en félagsmálaráð-
herra hefur fellt úr gildi leyfi Reykjavíkurborgar fyrir byggingunni.
Hvoll hf. og Reykjavíkurborg
gerðu samning um byggingu á
þessari spildu. Reykjavíkurborg
úthlutaði fyrirtækinu lóðinni og
Hvoll tók að sér að byggja dag-
vistarstofnun á lóðinni fyrir
gatnagerðargjöldunum. Sam-
þykkti byggingarnefnd teikningar
að 32 íbúða fjölbýlishúsi og veitti
síðan byggingarleyfi gegn mót-
mælum margra húseigenda á
svæðinu.
Einn íbúanna, Elísabet Guð-
mundsdóttir, skrifaði félagsmála-
ráðuneytinu bréf í febrúar sl. fyrir
hönd íbúa nokkurra húsa við
Skipholt, Nóatún og Stangarholt
og krafðist ógildingar á bygg-
ingarleyfinu. Töldu þau að með
með veitingu byggingarleyfisins
væri brotið gegn staðfestu aðal-
skipulagi svæðisins og þar með
gegn skipulagslögum að því er
nýtingarhlutfall varðar því sam-
kvæmt hinum samþykktu upp-
dráttum sé nýtingarhlutfall fjöl-
býlishússlóðarinnar 1,1 en það
hafi átt að vera um 0,6 samkvæmt
skilmálum aðalskipulagsbreyt-
inganna. Þá bentu þau á, að ekki
væri gert ráð fyrir tómstunda- og
leikherbergi bama í byggingunni.
Reykjavíkurborg mótmælti
kröfum og skilgreiningum kær-
enda. Var bent á að nýtingarhlut-
fall alls byggingarsvæðisins (það
er lóð fjölbýlishússins og dagvist-
arstofnunarinnar), sem teljist ein
lóð, sé 0,64, sem sé í samræmi við
skilmála aðalskipulagsins. Nýt-
ingarhlutfall sé aðferð til að meta
nýtingu á svæðum eða reitum og
hafi verið þannig notuð í sam-
bandi við öll nýskipulögð svæði.
Þetta var einnig álit skipulags-
Böðvar Böðvarsson byggingameistari við fjölbýlishússgrunninn við StangarholL Morgunblaíið/RAX
stjórnar ríkisins. Viðurkennt var
að ekki sé gert ráð fyrir tóm-
stundaherbergi í fjölbýlishúsinu,
enda hafi reynslan orðið sú, að
þau hafi yfirleitt verið tekin til
annarra nota og því hafi verið
hætt við að krefjast þeirra.
Hvoll hf. hefur þegar gert grunn
undir allt fjölbýlishúsið og þessa
dagana vinna 10 menn við að slá
upp mótum fyrir 1. hæð fyrri
áfanga, sem er helmingur hússins
með 16 íbúðum. Er stefnt að því að
steypa þann hluta hússins upp í
sumar og afhenda kaupendum í
mars á næsta ári. Böðvar Böðv-
arsson sagði að þegar væri búið að
selja 11 íbúðir af þessum 16 og
hefði hver kaupandi greitt inn á
kaupin mörg hundruð þúsund
krónur. Hann sagði að fljótlega
yrði byrjað á dagheimilinu.
„Það verða aðrir að svara fyrir
það, en það yrði augljóslega slæmt
mál,“ sagði Böðvar þegar hann var
spurður hvernig færi fyrir kaup-
endunum ef byggingaframkvæmd-
ir yrðu stöðvaðar en sagðist ekki
reikna með að sú staða kæmi upp.
Hann sagði að kaupendurnir ættu
kröfurétt á sig og hann síðan á
borgina ef illa færi. Böðvar taldi
þó enga ástæðu til að stöðva fram-
kvæmdir því að helmingur húss-
ins, sem hann væri nú að byggja,
væri með nýtingarhlutfall innan
marka aðalskipulags þó eingöngu
yrði litið á lóð fjölbýlishússins.
Elísabet Guðmundsdóttir sem
er í fyrirsvari fyrir nágrannana
sagði að niðurstaða félagsmála-
ráðuneytisins á kæru hennar væri
eðlileg og mjög ánægjuleg. Það
væru í gildi reglur um nýtingar-
hlutfall sem allir yrðu að fara eft-
ir, þarna sem annars staðar. „Ef
þessu máli hefði verið stungið
undir stól veit ég ekki hvar þetta
þjóðfélag væri á vegi statt," sagði
Elísabet.
Hún sagði að á þessu svæði
væru snotur cinbýlishús og allt í
einu hefði barnaleikvöllurinn ver-
ið tekinn og á honum byggt stór-
hýsi, sem í fyrstunni hefði átt að
vera 14 metra hátt og 80 metra
langt. „Þetta gengur ekki á ári
æskunnar," sagði Elísabet. Hún
sagði að nú hlyti eitthvað að ger-
ast í þessum málum, og sagðist
vera spennt að vita hvert fram-
haldið yrði.