Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAOUR 30. MAÍ 1985
3
Eggja-
taka í
Vest-
manna-
eyjum
Eins og loðnan er þjóðinni
nauðsynleg á vissum árs-
tímum má ef til vill segja
það sama um eggin í maí.
Já, egg fýlsins og svart-
fuglsins. Síðustu daga og
út maímánuð er einmitt
háannatími bjargmanna
við að sækja egg í björg.
Eggjatökumenn ánægðir með góðan feng úr „Slakkanum" í Álsey.
Gústi tínir egg úr barmi.
Framsóknarmenn á
móti því að Jarðborun-
um rfldsins verði
breytt í hlutafélag:
Iðnaðarráð-
herra staðráðinn
í að frumvarpið
verði að lögum
HÖRÐ átök eru nú innan ríkis-
stjórnarinnar vegna þeirrar fyriræti-
unar Sverris Hermannssonar iðnad-
arráðherra að Jarðborunum ríkisins
verði breytt í hlutafélag, og þær
seldar að hluta. I»að eru ráðherrar
Framsóknarflokksins í ríkisstjórn
sem leggjast gegn þessari ætlan iðn-
aðarráðherra.
Iðnaðarráðherra og Davíð
Oddsson borgarstjóri Reykjavíkur
hafa staðið í viðræðum vegna
þessa máls, en framsóknarmenn
hafa gagnrýnt að öðrum sveitar-
félögum en Reykjavíkurborg var
ekki gefinn kostur á aðild að fyrir-
tækinu, heldur var einungis samið
um að Reykjavikurborg og ríkið
sameinuðust um reksturinn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru borgarstjóri og iðnað-
arráðherra nú að leita leiða, sem
geri öðrum sveitarfélögum það
kleift að verða þátttakendur í
fyrirtækinu, eftir að það er orðið
að hlutafélagi.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra mun staðráðinn í að
keyra þetta frumvarp í gegn á
þessu þingi, enda liggur nú þegar
fyrir samningur Reykjavíkurborg-
ar og iðnaðarráðuneytisins um
þessa tilhögun.
Útför Krist-
jáns Sveins-
sonará
vegum
borgarinnar
MORGUNBLAÐINU barst I
gær svohljóðandi frétt frá
skrifstofu borgarstjórans í
Reykjavík:
„Útför Kristjáns Sveinsson-
ar, augnlæknis, heiðursborg-
ara Reykjavíkur, fer fram
föstudaginn 31. maí nk., kl.
13.30. frá Dómkirkjunni í
Reykjavík
Utförin verður gerð á vegum
Reykjavíkurborgar í virð-
ingarskym viö hinn látna.
Séra Þórir Stephensen jarð-
syngur."
fatnaöur er
ísérfíokki
Fullar búðir af glæsilegum sumarfatnaði
KARNABÆR
Austurstræti 22 — Laugavegi 66 — Glæsibæ.
Sími frá skiptiboröi 45800
Laugavegi 30
Umbodsmenn
um land allt