Morgunblaðið - 23.06.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1985
51
A DROTHNS HGI
Umsjón:
Séra Auður Eir Vjlhjálmsdóttir
Ásdis Emilsdóttir
Svavar A. Jónsson
Þessar konur eru í óðaönn við að hafa áhrif á stjórn Mthersku kirknanna. Þær vilja finna nýjar leiðir. Þær telja
að það sé engin lausn þótt konur komi til stjórnunar ef þær breyta engu frá því, sem er. Þær vilja að konur og
karlar geri breytingu í sameiningu.
Geta konur stjórnað?
Konum hafa nú opnazt dyr sem
áður voru lokaðar. Þær hafa fengið
ný tækifæri til að hafa áhrif. Það
er hugsanlega meira en tækifæri.
Það er hugsanlega skylda. Heil
kynslóð „kvenna sem voru fyrst-
ar“, hefur barizt hart til þess að
ungar konur gætu gengið brautina
sem þær ruddu. Samt veigra marg-
ar ungar konur sér við að nota
tækifærin sem bjóðast, svo að það
verða oft karlar sem taka við af
konunum sem brutu ísinn. Þetta á
sér orsakir djúpt í sálarlífinu og er
alls ekki óskiljanlegt. En það er
sorglegt einmitt nú þegar barizt er
fyrir því að hin þröngsýna, herskáa
og valdagráðuga lífsstefna víki
fyrir mannúðlegri stefnu, þar sem
hver einstaklingur fái að njóta
hæfileika sinna.
★ Konur geta haft sérstaka
stjórnunarhæfileika. Stjórnun
kvenna einkennist oft af tilfinn-
ingu fyrir hinum dýpstu þðrfum
annarra, þótt það sé ekki algilt.
Konur hafa oft tilfinningu fyrir
vaxandi spennu milli fólks og
geta gert sér grein fyrir duldum
sárindum, sem hindra mannleg
samskipti.
★ Konur geta tekið erfiðar
ákvarðanir. Þær eru sífellt að
taka ákvarðanir, oftast án þess
að gera mikið veður út af því.
Fáar konur gegna stjórnunar-
störfum og fólk þekkir nær ein-
göngu til stjórnunar karla. Bæði
konur og karlar misskilja því oft
þá eiginleika kvenna, sem er lýst
að ofan og telja umhyggju tákn
um veikleika og tilfinningu fyrir
líðan annarra skort á röggsemi.
★ Þau sem eru vön því að mál
séu kynnt í löngu, flóknu og
ógreinilegu máli, átta sig ekki á
einfaldri og skýrri framsetn-
ingu. Þegar unnið er í hópi kem-
ur enginn fram sem stjarna.
Fólk hefur enn ekki lært að meta
ágæti þess samstarfs, sem unnið
er í hópi en ekki í nafni eins í
hópnum. Þess vegna skilur fólk
sjaldan kosti leiðtoga sem kepp-
ast ekki við að bera af sam-
starfsfólkinu heldur láta alla
njóta sín.
★ Þú skalt hugsa þig um tvisvar
þegar þú heyrir sagt að kona sé
slæmur stjórnandi. Kannski er
hún að koma fram með aðferðir,
sem fólk hefur ekki kunnað að
meta til þessa.
★ Það er ólýsanlega sorglegt
þegar konur hafna náttúrulegum
hæfileikum sínum vegna þess
þrýstings sem hefðin leggur á
þær og taka í staðinn þátt í
þeirri samkeppni sem ríkir á
milli karla. Heimur sem er á
heljarþröminni, vegna þeirra
hugmynda að sumir þurfi að
sigra og aðrir eigi að tapa,
þarfnast sárlega hæfileika
kvenna. Þess vegna verða konur
að hætta á að vera fyrirmyndir
fyrir aðra leiðtoga, nota hæfi-
leika sína en berjast ekki í sam-
keppni við aðra.
★ Eins og allar mannlegar verur
geta konur fallið fyrir „trúar-
brögðum valdsins". Þær geta
misnotað völd rétt eins og karl-
ar. Það er mikilvægt að þróa
guðfræði, sem tengir vald og
kærleika. Konur þurfa að gera
sér grein fyrir því að vald er gjöf
Guðs. Páll segir það skýrt í síð-
ara bréfi sínu til Tímóteusar, 2.
6—7: „Fyrir þá sök minni ég þig
á að glæða hjá þér þá náðargjöf,
sem Guð gaf þér við yfirlagningu
handa minna. Því að ekki gaf
Guð oss anda hugleysis, heldur
anda máttar og kærleiks og still-
ingar.“ Konur verða að taka á
sig ábyrgðina og fyrirhöfnina
sem fylgir því að öðlast völd og
nota þau. Það er of mikið sem
þarf að gera til þess að helming-
ur mannkyns sé innilokaður í
anda feimninnar. Það þarf að
fæða hin hungruðu, frelsa hin
fangelsuðu, sigrast á misrétti
kynþátta og kynferðis. Og vit-
firring stríðsins verður að taka
enda.
Or The Church Woman, alkirkju-
legu amerlsku kvennablaöi.
Við sendum ykkur, kæru lesendur, 19. júní-
blómvönd með hamingjuóskum vegna 70 ára
afmælis kosningaréttar kvenna á íslandi.
Konur, hellið ykkur út í stjórnun
í staðinn fyrir að hella bara upp á könnuna.
En haldið nú samt áfram að hella uppá.
Karlar, við vitum öll hvað hússtörf eru mikilvæg.
Þess vegna eigið þið rétt á að taka þátt í þeim.
Hugsunin er eins og fallhlíf,
hún virkar ekki nema hús sé opin
hins vegar ber hún okkur áfram en ekki niður á við.
Til frelsis frelsaði Kristur okkur
látum ekki aftur leggja á okkur ánauðarok.
Prestastefna íslands
Prestastefna Islands hefst
þriðjudaginn 25. júní með messu
í Dómkirkjunni kl. 10.30. Kl. 14
verður prestastefnan sett á
sama stað. Þar flytur biskup
ávarp og yfirlitsræðu sína. Um-
ræðuefni prestastefnunnar er
Lima-skýrslan. Hún fjallar um
skírn, máltíð Drottins og þjón-
ustu og er árangur fimmtíu ára
samstarfs margra kirkjudeilda.
Miðað er að því að allir verði
eitt, eins og Kristur bauð, en
markmiðið er ekki að kirkjurnar
verði eins.
Framsöguræður verða fluttar
í Dómkirkjunni en umræður
fara fram i Menntaskólanum í
Reykjavík. Prestastefnunni lýk-
ur á fimmtudag með altaris-
göngu og synodusslitum. Synod-
userindi verða flutt í útvarpið.
Séra Björn Jónsson á Akranesi
flytur erindið „Þeir voru fyrstir
að kveikja ljósið" og Haukur
Guðlaugsson söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar nefnir erindi sitt
„Á hátíðarári tónlistar".
EnBKlHflk,
Ætli þessi kona geti stjórnað? Ætli það sé nóg fyrir hana að stjórna
heima hjá sér úr þvf hún á þetta litla barn? Ætli það geri hana verri
stjórnanda að eiga barnið? Ætli það geri hana betri stjórnanda? Ætli
konur, sem eiga cngin börn, leiti að stjórnunarstörfum til að komast yfir
vonbrigði sín yfir þvf að hafa aldrei orðið „það sem allar konur eru
skapaðar til“? Ætli konur vilji ekki eiga börn svo að þær geti tranað sér
fram til að stjórna? Hvaða texta rayndir þú velja þessari mynd, kæri
lesandi?
Skálholtsbúðir
★ f Skálholti eru tvö orlofshús fullbúin nauðsynlegum hús-
gögnum, eldhúsáhöldum, tækjum og rúmfatnaði fyrir sex
★ í þeim eru tvö herbergi auk stofu, eldhúss og sturtu.
* Húsin eru öllum opin, en starfsmenn kirkjunnar ganga
fyrir. Ef dvalið er eina viku er skipt á föstudögum. Nokkrar
vikur eru lausar í sumar. Verð fyrir vikuna er kr. 3.000,00.