Morgunblaðið - 05.07.1985, Qupperneq 7
■............. .................................. ..........................................I-------------------
MOKGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUK 5 JÖLÍ 1985
------------------------ 1
Vaöið yfir Norðurá fyrir neðan Laxfoss við stigann og Nikulásarker.
Þeir hafa fengið einn á Eyrinni garparnir. Veiðin hefur glæðst talsvert í
Norðurá síðustu daga.
Tregt í Selá
„Veiðin byrjaði 1. júlí og þann
dag veiddust þrír smálaxar, 5,5 og
6 punda, en nokkru áður hafði
einn 12 punda fiskur náðst í til-
raunaveiði. Síðan hefur ekkert
veiðst, en veiðimenn séð eitthvað
kvikt í ánni," sagði Helgi Þor-
steinsson á Ytrinýpum í Vopna-
firði er hann var inntur eftir
veiði og horfum í Selá. Helgi
sagði ennfremur, að byrjunin
væri í samræmi við spár fiski-
fræðinga, þ.e.a.s. ekki væri reikn-
að með stórlaxagöngum að
nokkru marki, hins vegar myndu
trúlega koma nothæfar smálax-
agöngur og „vonandi eru smálax-
arnir sem veiddust á mánudaginn
undanfari þess sem koma skal",
sagði Helgi.
Þess má geta, að veiði er vart
hafin í Hofsá, einn og einn hefur
verið að renna í hana síðustu
daga, en talna úr ánni er ekki að
vænta fyrr en í byrjun næstu
viku.
Afspyrnulélegt
í Vatnsdalnum
„Það eru komnir 40 laxar á
land, það er nú allt og sumt, þó
sögðu þeir í morgun að hann væri
að ganga, þeir fengu þá þrjá ný-
gengna laxa, tvo litla og einn
stóran, alla á neðsta svæðinu.
Annars hafa þessir fiskar veiðst
vítt og breitt, meira að segja einn
í Álku," sagði Ingibjörg Þorkels-
dóttir í veiðihúsinu f Flóðvangi í
Vatnsdal í samtali við Morgun-
blaðið 1 gærdag.
Stærstu laxarnir til þessa vógu
14 pund og hafa nokkrir slfkir
verið dregnir upp á bakkann.
Svipaða sögu er að segja í flestum
eða öllum ám í Húnavatnssýslum,
veiðin er treg og það segir mikla
sögu að það skuli vera talað um
„göngu" þegar þrír laxar veiðast
á einum morgni í á þar sem veitt
er á sex stangir.
Álftá: glæddist
eftir rigninguna
„Það hefur eitthvað glæðst og
þá eftir rigninguna sem kom um
síðustu helgi. Þá veiddust fjórir
laxar og menn hafa séð dálítið af
laxi hér og þar f ánni síðan,"
sagði Páll Þorsteinsson í Álftár-
tungu í samtali við Morgunblaðið
f gærdag. Hann sagði laxana alla
hafa verið fremur smáa, en gat
þess að hann vissi ekki hvort
eitthvað hefði veiðst síðustu þrjá
dagana. Álftá er afar vatnslftil
um þessar mundir og sagði Páll
ennfremur, að stórar göngur
kæmu upp í ósinn á hverju flóði,
en hopuðu aftur, trúlega vegna
þess hve vatnið er lítið, „það þarf
að rigna og rigna vel ef laxinn á
að ganga upp ána," bætti Páll við.
Stórar göngur í Laxá í Leir.
„Það hafa komið stórar göngur
í ána síðustu dagana, Laxfoss er
fullur af fiski og strengirnir fyrir
neðan einnig. Þetta er yfirleitt
smálax, en vænir fiskar f bland.
Það komu 17 laxar á land í morg-
un,“ sagði Haukur Garðarsson í
samtali við Morgunblaðið í gær-
dag.
Laxá er vatnslitil um þessar
mundir, en samt er lax kominn
upp um allt. Framan af var al-
gengasta stærðin 9—12 pund, al-
gengt að fá 13—14 punda laxa, en
frá mánaðamótum að kalla hafa
5—6 punda laxar, feitir og falleg-
ir, verið tiðastir í aflanum. Það
veiðist bæði á flugu og maðk og
frá og með komandi helgi verður
eingöngu leyft að veiða á flugu
fram í ágúst. Bestu flugurnar til
þessa hafa verið Þingeyingur og
Black Sheep. Stærsti lax sumars-
ins til þessa veiddist í morgun, 16
punda lax.
Leiöréttingar
1 veiðifréttum Morgunblaðsins
í fyrradag var prentvilla ein
meinleg, þar sagði að Sverrir
Hermannsson iðnaðarráðherra
hefði dregið 110 laxa úr Kirkju-
streng í Þverá á einum morgni.
Hið rétta var auðvitað 10 laxar.
Þá var haft eftir viðmælanda í
veiðihúsinu við Norðurá að trú-
lega væru komnir vel á þriðja
hundrað laxar úr ánni að Stekk
undanskildum. Síðar hefur komið
fram að þetta var hógvær ágisk-
un Norðurármanna, þeir hefðu
getað bætt um 100 fiskum við
ágiskun sína án þess að fara með
rangt mál. Þetta leiðréttist hér
með.
7
Hafnarfjörður:
Útboð ekki
ákveðið
í FRÉTT viðskiptablaðsins í gær
var ranglega sagt að Hafnarfjarð-
arbær hafi þegar ákveðið að bjóða
út skyldutryggingar fasteigna.
Hið rétta er, eins og kom fram
á baksíðu Morgunblaðsins, að
bæjarfélagið hefur sagt upp
samningi við Brunabótafélag Is-
lands, en ekki liggur fyrir hvort
samið verður við félagið aftur
eða leitað tilboða. Garðabær hef-
ur hins vegar ákveðið að útboð
skuli fara fram.
Helgar-
veðrid
UM HELGINA má, að sögn Veð-
urstofunnar, búast við breyti-
legri átt eða norðangolu. Hiti
verður líklega nálægt meðallagi.
Á hálendinu verður skýjað með
köflum en norðanlands hætt við
smáskúrum.
íslenskur lögfræðing-
ur fær málflutnings-
réttindi í New York
NÝLEGA stóðst islenskur lögfræð-
ingur, Magnús Gylfi Þorsteinsson,
próf það sem lögfræðingum í New
York er gert að ganga undir til að
öðlast málfiutningsleyfi (New York
State Bar Exam).
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er þetta i fyrsta sinn
sem íslenskur lögfræðingur öðlast
slík réttindi. Alls tóku 2414 lög-
fræðingar prófið en aðeins 47%,
eða 1129, stóðust. Talið er að þetta
próf ásamt sambærilegu prófi i
Kaliforníu sé hið erfiðasta sem lög-
fræðingar í Bandaríkjunum þurfa
að gangast undir til að öðlast mál-
flutningsréttindi.
Magnús Gylfi Þorsteinsson
fæddist í Reykjavík 1957. Hann
varð stúdent frá MR 1977 og út-
skrifaðist úr lagadeild Háskóla ís-
lands 1983. Hann starfaði sem
dómarafulltrúi hjá bæjarfógetan-
um í Kópavogi um skeið. Stundaði
framhaldsnám i Austurríki við
McGeorge School of Law í sam-
vinnu við háskólann í Salzborg vet-
urinn 1983—84. Hann hlaut styrk
austurrísku sjórnarinnar til að
stunda sjálfstæðar rannsóknir á
sviði mannréttinda. árinu 1983
starfaði hann í tvo mánuði á
dönsku lögmannsskrifstofunni
Kromann, Nerregaard & Friis.
Magnús Gylfi Þorsteinsson
Hann hefur verið i New York síð-
an í september 1984 og starfaði
sem nemandi hjá lögmannafyrir-
tækinu DeOrchis & Partners, sem
sérhæfir sig í sjórétti og alþjóða-
rétti.
Magnús Gylfi er búsettur 1 New
York og starfar þar sem lögfræð-
ingur. Hann er kvæntur Susan
Esposito, sem einnig er lögfræðing-
ur. Foreldrar Magnúsar Gylfa eru
Katrin Magnúsdóttir og Þorsteinn
Baldursson framkvæmdastjóri.
Málverkasýning opnuð í
Listasafni Háskóla íslands
LISTASAFN Háskóla íslands hefur Sverris Sigurðssonar, sem eru í
nú fengið húsnæði á efstu hæð í eigu safnsins, verður opnuð laug-
Odda, hinni nýju byggingu Háskól- ardaginn 6. júlf kl. 13.30. Verður
ans sem stendur fyrir neðan Árna- sýningin opin daglega fram eftir
garð sumri milli kl. 13.30 og 17.00. Að-
Sýning á verkum hjónanna gangur er ókeypis.
Ingibjargar Guðmundsdóttur og
Þessi reiknivél frá SHARP þjónar þér vel.
Hún er mikilvirk, snörogskýr. Húnprentarút 12
stafa tölurauk tveggja tákna. U.þ.b. 3,1 lína/sek.
og mínustölur írauöu. Fluorsent skjársem
þægilegt eraö lesa af. Ekki spillir verðið:
5,028.-stgr.
SHARP
—HLJÖMB/EfflM!
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999