Morgunblaðið - 05.07.1985, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1985
13
Flotta galleríið
Myndlist
Valtýr Pétursson
Nú er komin þridja sýningin i
galleríið, sem heitir um þessar
mundir Flotta gallerftð, en er ég
skrifaði seinast um sýningu á
sama stað, hét það Salurinn. Það
skiptir í sjálfu sér engu máli,
staðurinn er á Vesturgðtu 3 í
kjallaranum i því húsi, þar sem i
eina tíð var fataverslun og í aðra
tíð vélaverslun. Nú er þar sem sé
galleri, og er það ungt fólk, sem
að þvi stendur. Þarna eru til
sýnis ýmis verk, og er það kven-
fólk, sem þau hefur unnið, að
undanskildum Magnúsi Þór, sem
mun þekktari undir nafninu
Megas. Kritarmyndir og grafík
eru undirstaðan i þessari sýn-
ingu hjá kvenþjóðinni, en Megas
sýnir olíumálverk og kemur nú
miklu sterkari til leiks en á fyrri
sýningu á sama stað. Hann er
þegar á góðri leið með að skapa
sér sérstæðan stfl og tekur á
viðfangsefnum sínum með festu
og tilfinningu, minnir jafnvel á
suma af gömlu fóvistunum (þá
villtu), er létu einkum til sín
taka eftir seinustu aldamót.
Guðný Björk Richards á þarna
nokkrar litrikar teikningar, en
hún kemur sterkari út i sviðs-
mynd sinni, sem nú má sjá i leik-
ritinu Piaf sem sýnt er i Gamla
Bíói þessa dagana.
Margrét Birgis teiknar meðal
annars ýsubein og gerir því góð
skil. Sigrún Ögmundsdóttir sýn-
ir einnig nokkur tilþrif og þá er
hópurinn upp talinn.
Það er ekki hægt að segja mik-
íft um þetta fólk. Það er allt i
mótun og hefur sjáanlega mikla
þörf fyrir að koma verkum sín-
um á framfæri. Það er virð-
ingarvert framtak að stofna
gallerí, en það útheimtir mikla
vinnu og þolinmæði að halda
slíku fyrirtæki í horfinu. Engu
vil ég spá um, hver framvinda
verður hjá þessum hópi, en
nokkuð mörg gallerí hafa séð
dagsins ljós hér i borg og orðið
mismunandi langlíf. Vonandi
verður þetta framtak til að
þroska og efla þetta unga fólk í
anda og verki. Það er því lítið
annað að gera en óska því alls
hins besta og bíða framvindu
mála.
Þetta er ferskur hópur og
verkin tala sinu máli. Það er
skemmtilegt að koma við þarna í
kjallaranum á Vesturgötu 3, og
sem betur fer virðist Megas ætla
að lifa af konurikið á sýning-
unni.
Ina Salome
Myndlist
Valtýr Pétursson
í Gallerí Langbrók stendur nú
yfir sýning á verkum ungrar
listakonu. Ina Salome. Hún mál-
ar myndir sínar með textíllitum
á bómuilarefni og nær með þvi
alisérstæðum blæbrigðum, sem
sjaldséð eru á sýningum hér-
lendis. ína hefur sýnt verk sín
hér á samsýningum í nokkur
skipti, en ég held, að um hennar
fyrstu einkasýningu sé að ræða.
ína byggir verk sín á sterkan
og einfaldan hátt. Hún notar
stór form og fáa liti og nær
þannig fram sérstökum svip,
sem er einkennandi fyrir vinnu-
brögð hennar.
En ína er, eins og flestir aðrir
ungir listamenn, litt skrifað
blað, þótt ekki leyni það sér, að
hún hefur til að bera góða hæfi-
leika, sem geta komið að góðu
gagni, ef rétt er á haldið.
I heild er sýning ínu samstæð
og gefur góða innsýn í mynd-
heim hennar. Ina hefur næma
tilfinningu fyrir heitum litum og
kemst vel frá myndbyggingu
sinni, sem er ákveðin og einföld
eins og áður segir. Það eru að-
eins sjö verk á þessari sýningu,
enda er húsnæðið litið, en það
var verulega gaman að sjá þessi
verk og sjá, hvað listakonan
unga er að fást við í útlegð sinni
í Finnlandi, en þar mun hún bú-
sett um þessar mundir. Mætti
segja mér, að þar væri hún í góð-
um félagsskap, hvað textílvinnu
snertir, því að Finnar eru
fremstir manna á því sviði.
Það er ætíð ánægjulegt, þegar
ungir listarnenn koma heim eftir
að hafa stundað nám erlendis og
sýna verulegan árangur. Sú er
raunin þessu sinni, og ég óska til
hamingju með þessa snotru og
einlægu sýningu. Því má bæta
við, að ekkert þeirra verka, sem
á sýningunni eru, hefur titil, og
sýnir það í sjálfu sér, hvernig
listakonan hugsar — látlaust og
tilgerðarlaust. Þeir eru kraft-
miklir litirnir á veggjum galleri
Langbrókar þessa dagana.
JMtogmtMafeife
Áskriftarsíminn er 83033
Atmonna auglytinqaato'an h<
8 ^'&assafr,
’OOOnT**'
A/s,
lláHuvéla
marhaðurinn
Smiðjuvegur 30 E-gata,
Kópavogur Simi 77066
Sláttuvélar
wfyrir allar stærðir garða
0 Landsins mesta úrval viðurkenndra sláttuvéla.
Æ • Liprir sölumenn veita faglegar ráðleggingar.
Æ 0 Ars ábyrgð fylgir öllum vélum.
Æ 0 Öruggar leiðbeiningar um geymslu og meðferð sem tryggir langa endmgu.
Æ 0 r.óð varahtuta- og viðgerðarþjónusta.
m Yfir 20 tegundir sláttuvéla
Fisléttir Flymosvifnökkvar. sem Uægt er að legqja saman og hengja upp á
vegg eftir notkun 0 Rafsvifnökkvar 0 Bensinsvifnökkvar fyrir htla og
Æ meðalstóra grasfleti 0 Atvinnusláttuvélar fyrir fina grasfletijafnt sem
' sumarbustaðalóðir 0 Snotra með aflmiklum 3.5 hestafla motor 0
Hjólabúnaður stillanlegur með einu handtaki 0 Með eða án grassafnara.
Westwood garðtraktorar
Liprír. sterkir og fjölhæfir. 7.5—16 hestafla mótor. Margvislegir fylgihlutir
fáanlegir. Henta vel fyrir sveitarfélög og stofnanir.
Crittall gróðurhús
Margar stærðir. Einnig vermireitir.
Versliö þar sem úrvaliö er mest og þjónustan er best.
ggtEgjlFlymo/fflTffTTT
Westwood
hummel
hittið strákcma
hjá
(dag er stjörnudagur í Miklagarði.
Hittið íslensku íþróttastjörnumar.
Dagskráin er svona:
Kl. IS^-1600
Kemur knattspyrnustjarnan Ásgeir Sigurvinsson, gefur gestum
plakat og áritar.
Kl. 1600-™00
lOnMk »,»,30-
Mánud.-m<öv''kud' •* 9-20.00
..............9-21W
.............. ... Lokað ^
laugard-
Kemur íslenska landsliðið í handknattleik í heimsókn. Þar eru m.a.
Sigurður Gunnarsson, sem valinn var í heimsliðið á dögunum, Páll
Ólafsson „leikmaður Flugleiðamótsins" og markvörðurinn frækni
Einar Þorvarðarson. Strákarnir gefa einnig áritaðar myndir af liðinu.
Kl. 17°°-1730
Þá gefst viðskiptavinum einstakt tækifæri til að skora raunverulegt
mark hjá landsliðsmarkvörðunum, en það hefur ekki verið auðvelt
upp á síökastið._-—-rrr\
mssssss
0regiö^J^i.
Gerið hagstæð
og skemmtileg
helgarinnkaup.
/VIIKLIGdRDUR
MIKIÐFYRIRLlTIÐ
VI
jyx