Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐiÐ, FÖSTUDAGUft 5. JÚLl 1985
25
Bandaríkin:
Skógareldar í
fjórum ríkjum
Lofl Angeles, 3. júlí. AP.
MIKLIR skógareldar geisa nú í fjóram ríkjum í Bandaríkjunum. Tveir menn
hafa látió lífið, en þúsundir mann hafa þurft að flýja heimili sitt vegna skógareld-
anna.
Er talið að íkveikja hafi valdið
skógareidunum, sem geisa i Kali-
forníu, Idaho, Washington-fylki og
Arizona, en 175 búðarhús og um 32
þúsund hektarar lands hafa eyði-
lagst.
Tjón af völdum eldanna, sem náðu
útbreiðslu fyrir viku, er nú talið
nema um 31 milljón dollara i Kali-
forníu einni.
Borgarstjórinn í Los Angles, Tom
Bradley, lýsti i dag yfir neyðar-
ástandi eftir að tveir höfðu farist í
skógareidunum og 65 íbúðarhús
eyðilagst. Borgarstjórinn f San
Diego Hoger Hedgecock, lýsti yfir
neyðarástandi í gær, en ástandið í
grennd við borgina hefur verið mjög
slæmt undanfarna daga.
Portúgal:
Þingrof 13. júlí og
síðan kosningar
Stjórn Craxis áfram við völd
AP/Símamynd
Francesco Cossiga, hinn nýi forseti Ítalíu, tekur I hönd Bettions Craxi, forsætisráðherra, eftir að forsetinn
hafnaði lausnarbeiðni stjórnar Craxis.
, 4. júlí. AP.
ANTONIO Ramalho Eanes, forseti
Portúgals, flutti ávarp í útvarp og
sjónvarp í Lissabon í gærkvöldi, mið-
vikudagskvöld, og sagðist hafa
ákveðið að leysa upp þingið 13. júlí
nk. daginn eftir að gengið verður frá
formlegri staðfestingu á aðild Portú-
gala að Evrópubandalaginu. Eanes
sagði að stjórn Mario Soares myndi
sitja fram yfir kosningarnar, sem
verða að fara fram innan 90 daga
eftir þingrof.
Eanes sagði að stjórnarkreppan
nú kæmi á afar óheppilegum tima
fyrir Portúgal. Erfið og flókin
staða væri í efnahagsmálum að þvi
ógleymdu að sveitarstjórnarkosn-
ingar ættu að fara fram f landinu f
haust og forsetakosningar nokkru
síðar.
Sú ríkisstjórn sem mynduð verð-
ur að kosningum loknum verður sú
16. síðan byltingin var gerð i Portú-
gal í apríl 1974 og sú níunda síðan
Eanes varð forseti fyrir tæpum tfu
árum.
Eanes sagði að hann hefði kosið
að biðja Soares og stjórn hans að
sitja fram yfir kosningar fremur
en velja utanþingsstjórn, enda væri
ákvörðun hans í meira samræmi
við breytingar á stjórnarskránni
Kínverjar vilja bæta
samskipti við Rússa
Mario Soares mun sitja fram yfir
kosningarnar.
um þessi atriði sem voru gerðar
fyrir þremur árum.
Eanes sagðist taka á sig ábyrgð-
ina af að boða þingrof en það væri
á ábyrgð flokkanna hvernig komið
væri. Hann ræddi við forystumenn
þeirra áður en hann hélt ræðu sína
til að freista þess að finna grund-
völl fyrir starfhæfri ríkisstjórn svo
að ekki þyrfti að koma til kosninga,
en hafði ekki erindi sem erfiði.
Peking, 4. júli. AP.
KÍNVERSKIR leiðtogar ámuðu ný>
um forseta Sovétríkjanna, Andrei
Gromyko, heilla með nýja embættið
sl. miðvikudag og fylgdu skeytinu
óskir um að sambúð nágrannaríkj-
anna tveggja færi batnandi.
í skeytinu óskuðu forseti Kína,
Li Xiannian, og Peng Zhen, forseti
alþýðuþingsins, Gromyko vel-
gengni í starfi, að sögn opinberu
fréttastofunnar Xinhua.
„Það er von okkar að með sam-
eiginlegu átaki, góðum og vina-
legum samskiptum milli Kína og
Sovétríkjanna takist að mynda tvö
stór og vinveitt nágrannariki á
grundvelli reglanna fimm um frið-
samlega sambúð tveggja ríkja,“
sagði í skeytinu.
Reglurnar fimm, sem fyrrum
forsætisráðherra Kína, Chou En-
Lai, setti fram árið 1954, eru
grundvöllur utanrikisstefnu Kin-
verja, en í reglunum er lögð megin-
áhersla á afskiptaleysi i stjórnmál-
um annarra landa.
Síðan Mikhail Gorbachev kom til
valda í Sovétríkjunum í mars sl.
hefur sambúð ríkjanna tveggja far-
ið ögn batnandi, þrátt fyrir að
Kínverjar segist enn hafa miklar
áhyggjur af afskiptum Sovét-
manna af Afganistan, Kambódiu
svo og hergæslu Sovétmanna við
landamæri Kína.
Búist er við að fimm ára við-
skiptasamningur milli ríkjanna
verði undirritaður í Moskvu í þess-
um mánuði.
Bjórverkfallið í
Danmörku leyst
Kaupmannahörn, 4. júlí. AP.
STARFSMENN bjórverksmiðja í
Danmörku hafa nú ákveðið að hefja
aftur störf eftir tæplega tveggja
mánaða verkfall.
íslenski hesturinn vinsæll í Danmörku
Um síðustu helgi birtist grein í helgarblaði Berlingske Tidende um
íslenska hestinn og vinsældir hans í Danmörku.
í greininni segir m.a. að inn-
flutningur á hestum hafi aldrei
verið leyfður á íslandi síðan Al-
þingi samþykkti lög þess efnis
fyrir 900 árum og nú flytji ís-
lendingar út meira en 20.000
hesta á ári. í Danmörku eru nú á
milli 3.000 og 5.000 íslenskir
hestar og um síðustu helgi
kepptu 80 bestu hestarnir á
danska meistaramótinu, þar sem
þeir unnu til 13 verðlauna. Sjö
þeirra verða valdir til að keppa á
Evrópumeistaramótinu sem
fram fer í Svíþjóð í ágúst.
Til er sérstakt danskt-íslenskt
hestamannafélag og sagði Stef-
an Langvad, meðlimur í félag-
inu, að yfirleitt ynnu islensku
hestarnir ekki til verðlauna á
mótum, en sagði hins vegar að
menn nytu náttúrunnar og fé-
lagsskaparins mun betur þegar
farið væri í reiðtúra á íslenskum
hestum og væri það allt sem
máli skipti.
Stefan hefur verið dómari á
mörgum hestamannamótum, en
í ár fylkti hann fram tveimur
íslenskum gæðingum sem hann
festi kaup á í fyrra, þeim Sörla
og Klæng.
í greininni sagði að íslensku
hestarnir væru fremur dýrir og
stundum hækkaði verðið á þeim
um 10.000 d.kr. þegar þeir væru
fluttir milli landa. „íslenski
hesturinn er smærri en aðrir
keppnishestar sem fullorðnir
geta riðið, en það sama gildir
ekki um verðið á honum," sagði í
greininni.
Einnig sagði að hvergi væri
hægt að finna betri fjölskyldu-
hest en íslenska hestinn. Hann
væri vinalegur, blíður og hentaði
vel fyrir börn, jafnframt því sem
hann væri nógu sterkur til að
bera fullorðna, að sögn Stefans.
íslenski hesturinn væri auk
þess hagstæð langtímafjárfest-
ing, þar sem til væru dæmi um
að íslenskir hestar næðu 30 ára
aldri. íslenski hesturinn teldist
ekki fullvaxinn fyrr en fimm
vetra gamall, á meðan aðrar
hestategundir væru fullvaxta á
þremur til fjórum árum. En ís-
lenski hesturinn héldist við góða
heilsu í allt að tuttugu ár.
Dansk-íslenska hestamanna-
félagið var stofnað fyrir um 17
árum og telur nú um 1.000 með-
limi sem skiptast í um 30 klúbba
víðs vegar um Danmörku. Félag-
ið heldur landsmót öðru hverju
og gefur auk þess út bækur um
íslenska hestinn. Einnig á félag-
ið bók með íslenskum hestanöfn-
um, því forráðamönnum félags-
ins fyndist ótækt að láta hestana
heita „Pjuske" eða „Pjevs", þar
sem íslensku nöfnin lýsa oftast
útlitseinkennum hestanna eða
persónueinkennum.
BERLINGSKE
* Á^Vl 7,-4%
U)Rf>AG
Magasin
w.' WÍTV J Jí
SSSííSAS' J 1» «■»>»» I
Den lille store hest
Mndcrai cr dcn sv. ,<w
kkcíVt \an\iiw-hcM
% ui t dnft.. *{**•
l wepkowkn nw- - ■ ‘
«' ckvipagcr
!i! da»«n«vk.Mt\C'
swrrNkÆb
Greinin sem birtist ( helgarblaði Berlingske Tidende.
Verkfall 3.600 starfsmanna
Carlsberg- og Tuborg-bjórverk-
smiðjanna hófst 8. maí sl. vegna
deilna um atvinnuöryggi þeirra á
tímum örrar tæknivæðingar hjá
verksmiðjunum. í dag lýstu þei
yfir ósigri sínum og greiddi yfir
gnæfandi meirihluti starfsmann
anna atkvæði með tillögu um að
snúa aftur til starfa.
Forsvarsmaður bjórverksmiðj-
anna, Ole Andreasen, sagði hins
vegar að búast mætti við að bjór-
forði verslana myndi ekki komast
í samt horf fyrr en í lok mánaðar-
ins, en dagleg bjórneysla í Dan-
mörku er um fimm milljónir
flaskna, og eykst hún töluvert á
sumrin.
(ÍENGI
(iJALI)MIÐLA:
Lítil breyting
á dollar og gulli
London, 4. júli. AP.
Óverulegar breytingar urðu á
gengi dollars í Evrópu í dag og sömu
sögu er að segja um verð á gulli.
Viðskipti voru frekar lítil vegna
þjóðhátíðardags Bandaríkjamanna.
í London lækkaði dollar gagn-
vart sterlingspundinu. Kostaði
pundið 1,3157 dollara í stað 1,3105
í gær.
Gengi dollars gagnvart öðrum
gjaldmiðlum var á þann veg að
hann kostaði 3,0325 vestur-þýzk
mörk (3,0350), 2,5447 svissneska
franka (2,5403), 9,2370 franska
franka (9,2325), 3,4200 hollenzk
gyllini (3,4165), 1.936,50 ítalskar
lírur (1.931,00), 1,3588 kanadíska
dollara (1,3564) og 247,70 japönsk
jen (248,13).