Morgunblaðið - 05.07.1985, Síða 36

Morgunblaðið - 05.07.1985, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1985 Minning: Jón Björnsson Stykkishólmi Fsddur 31. ágúst 1903 Dáinn 28. júní 1985 Hinn 28. júní sl. andaðist á St. Fransiskusspítalanum í Stykkis- hólmi Jón Björnsson, húsgagna- bólstrari, 81 árs að aldri, eftir langvarandi veikindi, sem hann bar af einstöku jafnaðargeði. Fimmtíu ár eru langur tími, en að sama skapi eftirminnilegur, þegar rifjuð eru upp svo löng og góð kynni. Nú að leiðarlokum skilja þau eftir minningar um sannkallaðan gentlemann, lífs- glaðan, með létta lund, og um fram allt góðan dreng. Barn að aldri kynntist ég honum. Síðast bar fundum okkar saman er við heimsóttum hann á spítalann 1 Stykkishólmi fyrir tveimur árum. Hversu grannt sem skoðað er finnast ekki nema hlýjar og góðar minningar um Jón Björnsson. Jón Björnsson fæddist að Karlsskála við Reyðarfjörð 31. ág- úst 1903, sonur Björns Eiríkssonar bónda þar og konu hans Guðrúnar Þorsteinsdóttur. Karlsskála- systkinin voru sex talsins og er Jón sá fyrsti sem kveður. Hin eru: Sigurbjörg, gift Magnúsi Stephen- sen, fyrrverandi bónda og bókara, Eiríkur, læknir, kvæntur Önnu Einarsdóttur, Sigríður, verzlunar- stjóri, ógift, Þorsteinn, sem lengi starfaði hjá Reykjavfkur Apóteki, kvæntur Guðrúnu Guðmundsdótt- ur og Helga, gift Inga Árdal, stór- kaupmanni. Svo oft minntist Jón á sitt æskuheimili að Karlsskála, að ekki leikur vafi á því að þar hefur búið gott fólk. Átján ára gamall hleypir Jón heimdraganum, og árið 1924, þá tuttugu og eins árs að aldri, kemur hann til Reykjavíkur að leita sér menntunar. Komst hann þar í nám í húsgagnabólstrun sama ár til Einars Waage, sem var með virtustu meisturum í þeirri grein í Reykjavík á þeim tíma. Jón lauk þar námi árið 1928. Hann var einn af stofnendum Sveinafélags hús- gagnabólstrara árið 1931 og sat í fyrstu stjórn þess og prófnefnd. Meistarabréf í iðn sinni fékk Jón árið 1936. Hann var heiðursfélagi í Sveinafélagi húsgagnabólstrara. Hinn 1. maí 1935 réðst Jón á húsgagnaverkstæði föður míns, Kristjáns Siggeirssonar á Lauga- vegi 13, og við það fyrirtæki starf- aði hann óslitið á meðan heilsa og kraftar entust, eða allt fram til júnímánaðar 1975. Það var mikil gæfa fyrir föður minn, þegar Jón réðst til starfa hjá honum. Hvorttveggja var, að þá um leið kom inn í fyrirtækið einn bezti fagmaður er þar hefur unnið, en saman fór sem sjaldgæft er vinnu- hraði og fyrsta flokks fagvinna. Svo var hitt, að með komu Jóns eignaðist faðir minn einn sinn bezta vin og samstarfsmann. Með árunum þróaðist einlæg vinátta milli fjölskyldnanna. Hinn 23. maí 1931 kvæntist Jón Bergþóru Bergsdóttur, dóttur Bergs Jónssonar, skipstjóra í Hafnarfirði, og konu hans Þóru Magnúsdóttur frá Miðseli í Reykjavík, en af þeim bæ dregur Seljavegurinn nafn sitt. Bergur starfaði sem skipstjóri á Kútter Surprice hjá hinu virta útgerðar- fyrirtæki Einars Þorgilssonar í Hafnarfirði, en Einar og Bergur voru sameigendur þess skips um 20 ára skeið, en fyrirtækið á sér 100 ára útgerðarsögu að baki. Jón og Bergþóra voru myndarleg hjón svo eftir var tekið. Hún var glæsi- leg kona, hlý og aðlaðandi og endurspeglaði heimili þeirra myndarskap þeirra beggja. Synir þeirra eru: Bergur, f. 1934, verkfræðingur, Rafmagnseftirlits- stjóri ríkisins, kvæntur Ingunni Guðmundsdóttur, þau eiga fjögur börn: Magnús, 23 ára, Bergþóru 22ja ára, Jón örn, 19 ára og Ás- gerði, 14 ára. Halldór, f. 1942, viðskiptafræðingur, forstöðumað- ur erlendra viðskipta Iðnaðar- banka íslands, kvæntur Kristínu Bjarnadóttur, þau eiga þrjú börn: Magnús Má, 21 árs, Valgerði, 16 ára og Bjarna Vilhjálm, 11 ára. Halldór er sonur Magnúsar Bergssonar, bakarameistara í Vestmannaeyjum, bróður Berg- þóru og konu hans Halldóru Valdimarsdóttur, og kom Halldór til Jóns og Bergþóru fjögurra mánaða gamalll eftir lát móður sinnar. Voru þeir synir báðir mikl- ir sólargeislar i lífi Bergþóru og Jóns. Reyndust þeir foreldrum sínum eins og bezt verður á kosið og var fallegt að fylgjast með þeirri umhyggju, sem þeir báru fyrir föður sínum í langvarandi veikindum hans. Árið 1975 fór Halldór og fjöl- skylda hans til starfa í Stykkis- hólmi og fluttist Jón þá með þeim þangað. Undi Jón sér þar vel enda þótt heilsu hans færi hrakandi. Árið 1979 lagðist hann inn á St. Fransiskuspítalann í Stykkis- hólmi og dvaldi þar í góðum hönd- um þeirra St. Fransiskussystra til æviloka. Þegar við nokkur úr fjöl- skyldu minni heimsóttum hann á sjúkrahúsið leyndi sér ekki að Jóni leið vel enda þótt sjúkdómurinn hefði sett mjög mark á hann. Okkur var ljost, að á betri umönn- un var vart kosið. Það var gest- kvæmt hjá Jóni þennan sólbjarta sumardag og útsýnið úr herberg- inu hans yfir Breiðafjörð fagurt. Og gleðin skein úr andliti hans yf- ir því að hafa fólk í kringum sig. Lengst af bjuggu Bergþóra og Jón á Bókhlöðustíg 6c. Það var myndarbragur yfir þeirra heimili, þar ríkti gleði, þau höfðu yndi af tónlist og léku bæði á píanó. Það er gott að minnast þeirra hjóna beggja. Nú þegar genginn er góður sam- starfsmaður og vinur fjölskyld- unnar, viljum við votta Bergi, Halldóri og fjölskyldum þeirra innilega samúð okkar og blessum minningu Jóns Björnssonar. Hjalti Geir Kristjánsson Látinn er í Stykkishólmi Jón Björnsson, húsgagnabólstrari á 82. aldursári. Er þar genginn góð- ur maður og gegn, eindæma skapgóður maður og æðrulaus sem hvergi mátti vamm sitt vita. Jón Björnsson var fæddur á Karlsskála við Reyðarfjörð 31. ág- úst 1903. Foreldrar hans voru hjónin Björn Eiríksson bóndi þar og kona hans, Guðrún Þorsteins- dóttir. Björn var sonur Eiriks Björnssonar bónda á Karlsskála og Sigríður Pálsdóttur, en af þeim er kominn mikill fjöldi niðja sem Eiríkur Benedikz hefur skráð. Má geta þess að tvær systur Björns, Pálína og Guðný, giftust til Fær- eyja. Guðný giftist Jóhannesi Pat- ursson, kóngsbónda þar, og varð hún því ættmóðir Patursson- ættarinnar sem mörgum er kunn. Þau hjónin á Karlsskála, Björn og Guðrún, eignuðust 6 börn sem á legg komust og eru þau þessi talin í aldursröð: Sigurbjörg, gift Magn- úsi Ó. Stephensen, bónda og bók- ara, sem nú er látinn. Eiríkur, læknir í Hafnarfirði, kvæntur Önnu Einarsdóttur frá Hafranesi við Reyðarfjörð. Sigríður, fyrrum verslunarstjóri Hygeu hf. í Reykjavík. Jón, sem hér er minnst. Þorsteinn, fv. húsvörður í Reykja- víkurapóteki, kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur sem er látin. Helga, gift Inga Árdal, kaup- manni. Systkini Jóns eru öll á lífi og er Jón því hinn fyrsti sem fell- ur frá þessum káta og samheldna systkinahópi frá Karlsskála. Þegar Jón var að alast upp á Karlsskála var þar tvíbýli og margmennt. Margt ungt fólk var í sveitinni, söngur og hljóðfæra- sláttur mikið iðkaður og oft slegið upp dansi. Alla tíð hafði Jón hina mestu unun af góðri tónlist, sér- staklega góðum söng, og iðaði í skinninu ef hann heyrði góða danstónlist á gamla visu. Hann var alla tið hrókur alls fagnaðar og naut sín vel i glöðum hópi á góðri stund. Jón hleypti heimdraganum á þriðja áratugnum, hélt til Reykja- víkur og nam húsgagnabólstrun hjá Einari Waage. Jón vann að iðn sinni í Reykjavík meðan heilsa leyfði og lengst af hjá Kristjáni Siggeirssyni. Hafði hann unnið þar í 40 ár þegar hann lét af störf- um 1975, 72 ára gamall. Var hon- um sýndur heiður fyrir trú- mennsku í starfi, m.a. var hann gerður að heiðursfélaga í Sveina- félagi húsgagnabólstrara og Félag íslenskra iðnrekenda veitti honum heiðursskjal í tilefni af 40 ára af- mæli samtakanna. Jón kvæntist 23. maí 1931 Berg- þóru Bergsdóttur, fædd 8. nóv- ember 1904. Bergþóra var dóttir hjónanna Bergs Jónssonar, skip- stjóra í Hafnarfirði, og Þóru Magnúsdóttur frá Miðseli í Reykjavík. Þegar Bergur hætti sjómennsku fluttust þau hjón ásamt Óskari syni sínum til Reykjavíkur og bjuggu á Bók- hlöðustíg 6c. Á meðan Þóra lifði bjuggu þau Jón og Bergþóra lengst af í sambýli við þau á Bókhlöðu- stígnum, en fluttust árið 1956 í Blönduhlíð 3 og síðan árið 1969 í Álftamýri 10, þar sem þau áttu heimili sitt þar til Bergþóra lést árið 1972. Þau Bergþóra og Jón eignuðust einn son, Berg, sem fæddst 16. apríl 1934. Bergur varð stúdent frá Menntaskólanum I Reykjavík og hélt síðan til Múnchen í Þýska- landi, þar sem hann lauk námi í rafmagnsverkfræði. Bergur er nú forstöðumaður Rafmagnseftirlits ríkisins. Bergur kvæntist árið 1957, Ingunni Guðmundsdóttur frá Efri Brú í Grímsnesi. Ingunn er dóttir hjónanna Guðmundar Guðmundssonar bónda þar, sem nú er látínn, og Arnheiðar Böðv- arsdóttur frá Laugarvatni. Börn þeirra Bergs og Ingunnar eru: Magnús, rafvirki, fæddur 17. október 1961, Bergþóra, skrif- stofumaður, fædd 8. júlí 1963, Jón Örn, nemi, fæddur 27. apríl 1966 og Asgerður, fædd 3. maí 1971. Jón og Bergþóra tóku einnig dreng í fóstur, Halldór S. Magn- ússon, fæddur 30. apríl 1942, og ólu hann upp sem sinn eigin son. Halldór er sonur Magnúsar Bergs- sonar, bakara í Vestmannaeyjum, og k.h. Halldóru Valdemarsdóttur. Halldóra lést er Halldór var nokk- urra vikna og fól þá Magnús Berg- þóru systur sinni og Jóni uppeldi drengsins. Átti Halldór því láni að fagna í uppvextinum að eiga tvo pabba sem hann nefndi svo báða tvo. Reyndust þau Jón og Berg- þóra honum ætíð sem bestu for- eldrar. Halldór lauk einnig stúd- entsprófi frá MR og siðan námi I viðskiptafræði frá Háskóla Is- lands og stjórnunarfræðum í Bandaríkjunum. Halldór er nú forstöðumaður erlendra viðskipta í Iðnaðarbankanum. Halldór kvæntist árið 1963 Kristínu Bjarnadóttur, kennara, dóttur hjónanna Bjarna Vilhjálmssonar, fv. þjóðskjalavarðar, og Kristínar Eiríksdóttur frá Hesteyri. Börn Halldórs og Kristínar eru: Magnús Már, tölvunarfræðingur, fæddur 2. desember 1963, Valgerður, nemi, fædd 7. janúar 1969 og Bjarni Vilhjálmur, fæddur 28. nóvember 1973. Jón og Bergþóra voru mikið fjöl- skyldufólk og ræktu vel tengsl við systkini sín og fjölskyldur þeirra. Nánast var þó samband þeirra og umhyggja fyrir sonunum og barn- abörnunum eftir að þau komu til sögunnar. Vikulega fóru bréf milli Bergs og foreldra hans í báðar átt- ir öll árin 12 sem Bergur bjó í Þýskalandi og árið 1%3 bjuggu þau Jón og Bergþóra sumarlangt í Þýskalandi hjá Bergi þar sem þau kynntust barnabörnum sinum ungum. Þetta sumar naut Jón sól- ar og sumars í ríkum mæli, en hann var mikill sóldýrkandi. Sama ár tók hann að kenna Park- inssons-sjúkdóms sem síðan hrjáði hann í sívaxandi mæli og má raunar þakka einstaklega hraustbyggðum líkama, heilbrigðu líferni og stakri geðprýði hve lengi honum tókst að standast vaxandi ásókn sjúkdómsins. Það hamlaði honum mjög hve snemma talfæri hans urðu fyrir lömun og hann átti því erfitt með að tjá sig. Berg- þóra reyndist honum hin mesta stoð og stytta og tók að vinna utan heimilis þegar starfsþrek hans fór að dvína. I átta ár leiddust þau af stað í vinnuna um hádegi hvern dag. Sár harmur var kveðinn að Jóni er Bergþóra tók sótt og lagð- ist á sjúkrahús haustið 1971, það- an sem hún átti ekki afturkvæmt. Hún lést 4. maí 1972. Frá 1971 bjó Jón í skjóli sona sinna, fyrst I Reykjavík og í Garðabæ, en 1975 fluttist Jón með fjölskyldu Halldórs til Stykkishó- ms. Hann dvaldist þó oft langdvöl- um í Reykjavík hjá Bergi, en frá árinu 1979 naut Jón umönnunar St. Franziscus-systra og starfs- fólks þeirra á spítalanum í Stykk- ishólmi. Skulu þeim öllum færðar bestu þakkir fyrir að gera honum elli og erfiðan sjúkdóm svo létt- bær sem auðið var með umhyggju sinni og alúð. Að leiðarlokum eru efst I huga þakkir fyrir samfylgd við einstakt prúðmenni og snyrtimenni. Jón var sérstaklega lipur I umgengni og tillitssamur. Hann kvartaði aldrei en kunni góðar þakkir fyrir það sem gert var fyrir hann. Vafa- laust hefur hann ýmiss saknað úr heimilishaldi Bergþóru, en aldrei lét hann það á sér skiljast heldur lagaði sig að nýjum heimilishátt- um svo að ekki varð á betri sam- búð kosið. Dauða hans bar að á hógværan hátt eins og hann hafði lifað lífinu. Hann fékk hægt and- lát um óttubil 28. júní. Megi hann hvíla í friði. Kristín Bjarnadóttir Valborg Tryggva- dóttir — Minning Valborg Tryggvadóttir, Búðar- vegi 12, Fáskrúðsfirði andaðist 29. júní sl. í sjúkrahúsinu Neskaup- stað, eftir langvarandi og mikil veikindi. Valborg var fædd 21.10. 1914 á Fáskrúðsfirði og átti þar heirna alla sína lífstíð að undan- skildum 10 síðustu árum sem hún dvaldi mikið á sjúkrahúsum. Val- borg giftist 6. ágúst 1933 Ottó Vestmann, miklum sómamanni, og bjuggu þau á Fáskrúðsfirði. Þau hjónin eignuðust fimm mann- vænleg börn og eru þau hér talin eftir aldursröð: Pálína, gift, Trausta Gestssyni, eru þau búsett á Fáskrúðsfirði, Bára gift Guð- jóni Jónatanssyni og búa þau á Seltjarnarnesi, Guömundur, gift- ur Önnu Óskarsdóttur, og búa þau í Kópavogskaupstað, Ólafur, sem andaðist 24. apríl 1984, eftirlifandi eiginkona hans er Elísabet Sigurð- ardóttir og voru þau búsett á Sel- fossi, Unnur, gift Þjóðverjanum Ulfari Vilhjálmssyni og eru þau búsett í Reykjavík. öll eru börn og tengdabörn Valborgar og Ottós mestu myndarbörn og dugnaðar- fólk sem hafa komið sér heiðar- lega áfram, og séð sér og sínum farborða í þessu jarðneska lífi. Barnabörn Valborgar og Ottós eru 22 og 17 barnabarnabörn. Þau hjónin ólu upp tvö barnabörn sín, þá Garðar Harðarson og Vai Kristjánsson. öll hafa börnin og barnabörnin reynst afa og ömmu sinni vel enda mikil) kærleikur þar á milli. Hjónaband Valborgar og Ottós var til fyrirmyndar þrátt fyrir að þau væru ólík, Valborg var iífsglöö og söngkona mikil og tók þessu jarðrieska lífi réttum tökum á hverju sem gekk og kom það sér vel fyrir fólk sem var gefin í vega- nesti lífsgleði og á þeim erfiðu tímum, kreppuárunum miklu, milli 1930—1940 því þá var at- vinnuleysi hér á landi I algleym- ingi og oft lítið fyrir kaupstaða- fólk að borða, því þá þekktust ekki atvinnuleysisbætur sem nú eru veittar I ríkum mæli að ég eldri manneskja tel. Valborg var bæði húsmóðir og húsbóndi á sinu heimili enda maður hennar sextán vertíðir á Hornafirði og víðar langt frá heimili sínu eins og altítt var I þá daga, að eiginmennirnir voru frá áramótum og til 15. maí ár hvert á vertíðum, og aflinn oft lítill og mennirnir aðeins með skuldir meðferðis. Valborg var mikilhæf kona og vildi öllum gott gera, fólk treysti henni vel og sótt- ist eftir kynnum við hana, vegna þess hversu lífsglöð hún var, hún tók oft lagiö og sló á létta strengi og fór fólk léttara í skapi og áhyggiulausara frá henni og fannsí h'fið alveg dásamiegt. Ég kynntist Valborgu árið 1976 er við lágum báðar mikið veikar á Víf- ilsstaðahæli. Þegar Valborg hresstist var hún svo kát og létt í iund og lofaði guði fyrir hverja ánægjustumi að hafa heilsuna, oft, sagði hún mér þá aö hún hefði ekki þakkaó guö' heilsuna fyrr en eftir að hún missti hana. Valborg var mikill sjúklingur síðustu 10 árin og dvaldi mikið á sjúkrahús- um f Reykjavík einnig dvaldi hún á Rauðakrossheimilinu sér til hressingar eftir veikindin. Sl. tvö ár var hún á sjúkrahúsinu á Nes- kaupsstað og vildi aldrei eiga ann- ars staðar heima en á Fáskrúðs- firði þrátt fyrir að læknar segðu henni að hún yrði að vera í Reykjavík vegna veikinda sinna. Valborg og Ottó héldu jólahátíð í húsi sínu sl. jól, var það mikil gleði og hjá þeim báðum því tvö árin áður var hún á sjúkrahúsi um jólin, en fljótlega eftir nýárið var hún flutt á Noröfjörð þar sem hún dvaldi þar til hún lést aðfaranótt 29. júní sl. Ég er þakklát forsjón- inni fyrir að hafa fengið að kynn- ast Valborgu Tryggvadóttur. Guðsblessun fylgi vini mínum, Ottó Vestmann, og niðjum hans sem kveðja dugmikia konu og móður. Jarðarför Valborgar fer fram á rnorgun, laugardag frá Fá- skrúðsfjarðarkirkju. Sóknarprest ur sr. Þorleifur Kristmundsson jarðsyngur. Kegina Thorarensen, Sjúkra- hóteli Rauðakrosshótelsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.