Morgunblaðið - 05.07.1985, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1985
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
fré Kirkjubæ,
lést 3. júlí í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Börnin.
t
Konan mín,
RAGNHEIÐUR GÍSLADÓTTIR,
Bergþórugötu 16 a,
andaöist aö morgni 3 þ.m.
Svanur Karlason.
t
Eiginmaöur minn og taöir,
JÓN ÞORSTEINSSON,
Skipholti 8,
Reykjavik,
andaöist i Landspítalanum þriöjudaginn 2. júlí.
Pélína Pélsdóttir,
Péll Ástþór Jónsson.
t
Eiginmaöur minn,
JÓN BJÖRNSSON,
Gróf, Reyöarfiröi,
fyrrverandi yfirfiskmatsmaöur,
andaöist í Fjóröungssjúkrahúsinu Neskaupstaö miövikudaginn 3.
júM.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Nanna Þorsteinadóttir.
t
Faöir okkar,
PÁLL KRISTJÁNSSON,
byggingameiatari,
Njélagötu 6,
andaöist á heimili sínu 3. júlí.
Ása Pélsdóttir,
Jón Pélsson,
Haraldur Pélsson.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
STEFÁN NIKULÁSSON
viöskiptafrssöingur,
Hringbraut 28,
Reykjavfk,
lést i Borgarspítalanum 3. júlí sl.
Sigrún Bergsteinsdóttir,
Bergsteinn Stefénsson,
Edda Níela,
Sigrún R. Bergsteinsdóttir,
Helga M. Bergsteinsdóttir.
t
Móöir mín, tengdamóöir og amma,
ANNA EINARSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 6. júlí kl.
14.00.
Einar B. Sigurösson,
Sigríöur Siguröardóttir
og synir.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
VILBORG JÓNSDÓTTIR
fré Ásléksstööum, Vatnsleysuströnd,
veröur jarösungin frá Kálfatjarnarkirkju laugardaginn 6. júli kl. 11.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á orgelsjóö Kálfat jarnar-
kirkju.
Friörik Davíösson,
Lúóvfk Davfösson,
Helgi Davfösson,
Hafsteinn Daviösson,
Þórir Davfósson,
Marinó Davíösson,
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Þórhildur Sigrún
Friðfinnsdóttir
Fædd 5. október 1945
Dáin 26. júní 1985
I dag er til moldar borin Þór-
hildur Sigrún Friðfinnsdóttir, sem
andaðist langt um aldur fram eft-
ir fárra daga sjúkdómslegu. Hel-
fregnin kom þó ekki óvænt, því að
fyrir þrem árum kenndi hún þess
meins, sem að lokum hafði betur,
þrátt fyrir hjálp færustu lækna og
hetjulega baráttu hennar sjálfrar
fyrir lífinu.
Er leið mín lá til borgarinnar
fyrir tæpum tveim mánuðum hitti
ég Þórhildi þar sem hún stóð við
störfin á hárgreiðslustofunni, glöð
og hress að vanda.
Og er ég nokkrum dögum síðar
heimsótti hana á fallega heimilið
hennar á Tómasarhaga 57 datt
mér ekki í hug, að það yrðu okkar
síðustu fundir, slíkt var þrek
Þórhildar, myndarskapur og glað-
værð.
Þá ræddum við margt og rifjuð-
um upp atvik frá bernskuárum
hennar í Skagafirði og hún hafði
orð á því að sig langaði að koma
norður í sumar og bað fyrir kveðj-
ur heim.
Við, frændur, ástvinir og vinir,
þökkum samfylgdina og einstæða
vináttu hennar til okkar og allra
annarra manna og málleysingja.
Og í trausti til hans, sem sagði:
„Ég lifi og þér munuð lifa," bros-
um við í gegnum tár, kveðjum og
segjum: „Við komum á eftir."
Frænka
í dag verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju Þórhildur Sigrún
Friðfinnsdóttir. Hún lést á Land-
spítalanum langt um aldur fram
eftir hetjulega baráttu við sjúk-
dóm sem varð henni að aldurtila.
Þórhildi og Þórarni, fyrrverandi
eiginmanni hennar, kynntumst
við hjónin fyrir 15 árum og héfur
t
Systir okkar og mágkona,
VILBORG BJÖRNSDÓTTIR,
Auaturgötu 5, Hafnartiröi,
veröur jarösungin frá Hafnarfjaröarkirkju í dag, 5. júlí, kl. 15.00.
Jóhann Björnaaon, Ingunn Símonardóttir,
Guöni V. Björnsson, Hallbjörg Gunnarsdóttir.
t
Þökkum af alhug auösýnda vinsemd og hlýhug viö fráfail
og jaröarför
ÁSU V. NORDQUIST.
Svsrrir Torfason, Halldóra Gunnlaugsdóttir,
Viggó Nordquist, Krístjana V. Jónsdóttir,
Jónas Nordquist, Halla S. Jónsdóttir,
Elín Benson,
Thaódór Nordquist, Ingibjörg Marinósdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir og kveöjur sendum viö öllum þeim er sendu okkur
samúöarskeyti, blóm og minningarkort vegna andláts og jaröarfar-
ar móöur okkar,
BRYNGERÐAR FRÍMANNSDÓTTUR
fré Grímsay,
Klakksvík, Færayjum.
Sigmundur Baldvinsson,
Sigrid Jasparsan,
Kristín Elfassan,
Frímann Baldvinsson,
Ermenga Williams,
Sigurbjörg Nilsen
og fjölskyldur þairra.
t
Alúöarþakkir færum viö öllum þeim er auösýndu okkur samúö og
vinsemd vegna fráfalls og útfarar
FRIDRIKS A.H. DIEGO,
fyrrum deildarstjóra,
og þökkum sérstaklega Flugmálastjórn og starfsmönnum hennar
auösýndan viröingarvott og hlýhug.
Svanfrid A. Diago,
Sonja Diego,
Svarrir Gauti Diago,
Erla Diago,
Dóra Unnur Diago,
tangdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
Lokað
vegna jaröarfarar eftir hádegi föstudaginn 5. júlí.
Lögmannastofan, Ármúla 26,
Stefán Pálsson hrl.
Páll Arnór Pálsson hrl.
sú vinátta haldist fram til þessa
dags.
í nokkur ár rákum við sameig-
inlega Veitingastofuna Þrastar-
lund. Þá starfrækti Þórhildur
einnig hárgreiðslustofu Kristínar
Ingimundar í Kirkjuhvoli ásamt
vinkonu sinni, Steinunni Jónsdótt-
ur, en þær keyptu þetta fyrirtæki
og ráku það saman fyrstu árin, en
Þórhildur síðan ein með aðstoð
dóttur sinnar, Sigríðar Völu.
Við fjölskyldan eigum margar
góðar minningar um Þórhildi og
fjölskyldu hennar, bæði { leik og
starfi. Við vottum ættingjum og
aðstandendum hennar okkar inni-
legustu samúð og biðjum Guð um
að styrkja Guðrúnu, Sigríði Völu
og Bjarna litla á þessari sorgar-
stundu, en höfum hugfast að við
eigum dýrmætan sjóð til að varð-
veita, en hann er minningin um
góða konu.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“
(V. Briem)
Kristfn og Trausti
Hversu langt er nú á milli min og þín
manstu þegar fyrst við sáumst ástin mín
hefði ég vængi og væri eins frjáls og fugiinn er
mundi ég fljúga nú af stað á móti þér.
Þegar kvöldar skalt þú stara i stjarnaher
stjarna fögur brosir þá á móti þér
hún mun ætíð tii þín bera brosin mín
er hún blikar skær frá himni og til þín.
Úr IjéAinu Sljarnan eftir (iulnjju
Jónndóttur, (1968).
Þessar fallegu vísur komu okkur
í hug þegar við fréttum lát Tótu
skólasystur okkar, en þær var hún
vön að raula við dagleg störf.
Margar yndislegar minningar eru
tengdar Tótu og veru okkar á hús-
mæðraskólanum á Laugalandi,
þessi vetur er ógleymanlegur í
hugum okkar allra, margt var þar
brallað á kvöldvökum og i helgar-
fríum. Órjúfanleg vináttutengsl
mynduðust og hafa haldist, þrátt
fyrir að langt liði milli endur-
funda. Sérstaklega minnumst við
Tótu á 10 ára skólaafmælinu og
för okkar að Laugalandi, þar sem
hún hélt uppi fjöri og söng, þannig
munum við ætfð minnast hennar,
lifsglaðrar og kröftugrar f öllu
sem hún gerði.
Við vissum að Tóta átti við veik-
indi að strfða síðustu ár, en i
fyrravor þegar við héldum upp á
20 ára skólaafmæli okkar, gat hún
ekki verið með, þar sem hún var á
förum til útlanda með dóttur
sinni, full bjartsýni um að nú væri
sjúkdómurinn á undanhaldi, þvf
var það reiðarslag þegar við frétt-
um að Tóta okkar hefði látist 26.
júní. Skarð er nú fyrir skildi þegar
þriðja vinkonan úr hópnum góða
felur frá í blóma lífsins, en tilver-
an er oft óútreiknanleg og enginn
veit sína ævi fyrr en öll er, sárast-
ur er þó söknuður barna Þórhild-
ar, sem geyma munu f minning-
unni gullinn sjóð um ástrika móð-
ur.
Við vottum börnum hennar,
móður og öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúð og biðjum
þann sem öllu ræður að styrkja
þau í sorg sinni.
Skólasystur