Morgunblaðið - 05.07.1985, Síða 50
50
MORGUNBLAÐID, POSTUDAGUR 5. JÚLl 1985
„ 3tórf in-t! 135 cm hdr og a&e.\ns
9o Kg-"
mmmn
Ast er ...
... að vinna góö-
verk í sjálfboða-
vinnu.
TM Reo. U.S. Pat. 'Off.—all rights reserved
»1985 Los Angeles Times Syndicate
Ég veit það hljómar ótrúlega
en fyrri eigandi gat búið hér
þó hann vaeri láglaunamaður!
Reyndu að halda honum í
luefilegri fjarlægð næstu 10
loturnar!
HÖGNI HREKKVlSI
«»»|
»«* 1
Þessir hringdu . .
„í kvosinni“
góður
Ein úr Austurbænum hringdi:
Við vinkonurnar fórum út að
borða um daginn og varð „í
kvosinni" fyrir valinu. Ég vil
koma ánægju minni á fram-
færi með matinn, þjónustuna
og yfirleitt allt. Við höfum
ferðast mikið til útlanda og
finnst okkur veitingastaðurinn
„í kvosinni" á heimsmæli-
kvarða.
Harmonikku-
þættir á sama
tíma og fréttir
Olafur Guðmundsson hringdi:
Mér finnst alveg ófært að
harmonikkuþættirnir í útvarp-
inu skuli vera á þessum tíma,
klukkan 20.00 á laugardögum,
á sama tíma og fréttatímar
sjónvarpsins standa yfir. Er
ekki hægt að breyta þessu?
Þættirnir gætu t.d. verið síð-
ar á kvöldin. Ég hef virkilega
gaman af harmonikkutónlist,
en þetta samræmist engan veg-
inn.
„Ungt fólk
hefur orðið“
Elín Birna hringdi:
Ég vil koma á framfæri
kæru þakklæti til þátttakenda
umræðuþáttarins „Ungt fólk
hefur orðið" sem var í sjón-
varpinu 25. júní sl. Þátturinn
var í beinni útsendingu og
fannst mér hann reglulega
skemmtilegur. Ég vona að sem
flestir hafi notið þáttarins. Ég
vil þakka stjórnandanum,
Kristjáni Þórði Hrafnssyni,
fyrir sitt framlag svo og krökk-
unum Jónasi, Bjarnheiði,
Hrafni og Sigríði fyrir mjög
svo góða frammistöðu.
Ætla tann-
læknar að
endurgreiða?
Forvitin hringdi.
í síðustu viku kom það fram í
fjölmiðlum að tannlæknar
hefðu haft of háan taxta síðan
sl. febrúar. Ég vil því vita hvort
það sé von til þess að fólk það,
sem farið hefur til tannlæknis á
þessum tíma, fái endurgreitt.
Ég er ein af þeim, sem fór til
tannlæknis á þessum tíma og
hef greitt honum yfir 50.000
krónur og hef ég ekki neinar
kvittanir — ég gleymdi að biðja
um þær. Tannlæknarnir láta
mann aldrei hafa kvittun nema
maður biðji um þær og finnst
mér persónulega mjög óþægi-
legt að ganga á eftir svo sjálf—
sögðum hlut, sérstaklega ef um
er að ræða fólk sem manni er
vel við og vill ekki gera því neitt
til áráttu.
FÍB ætlar
að taka faglega
á málunum
að vanda
S.S. hringdi:
Gaman væri nú að bifreiða-
eigendur fengju að sjá þessa
háu herra hjá FlB sem hugsa
um hag þeirra og segjast ætla
að taka faglega á málunum við-
víkjandi bensínhækkuninni. Ég
myndi vilja bera fram þá ósk að
þeir yrðu til sýnis á Lækjar-
torgi og sem flestir kæmu ak-
andi og lokuðu umferðinni með
endurtekið í nokkra daga og
jafnframt fengju allir skýrslu
um hvernig gengi, því ætla má
að snarlega verði brugðist við
að vanda.
Er verið að stuðla að meiri
stéttaskiptingu í landinu með
stofnun einkaskóla?
Fegurðar-
samkeppni
fyrir krakka
Jóhanna, Ásgerður og Baddi f
Árbænum hringdu:
Við viljum endilega að
haldnar verði fegurðarsam-
keppnir fyrir krakka.
Orðin leið á rifrildi
Dagga skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég skrifa þér til að segja
hvað maður er orðinn hræði-
lega leiður á þessu rifrildi í
áhangendum mismunandi
hljómsveita. Það liggur við að
á hverjum degi birtist bréf um
þetta og ég er viss um að marg-
ir eru orðnir leiðir. Ég held upp
á Duran, U2, og Prince og það
er mjög leiðinlegt að þurfa að
sjá þessa aðdáendur rífast í
Velvakanda.
Getið þið ekki rifist um þetta
annars staðar? Ég er viss um
að hljómsveitirnar breytast
ekki neitt með þessu eða að-
dáendur þessara hljómsveita
sannfærist um að þær flytji
ekki annað en væmið gaul eða
innihaldslausa texta.
Allir hafa sinn smekk og því
verður ekki breytt með því að
rífast í Velvakanda.