Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1985 53
Faxaflóakeppni Siglinga-
sambandsins hefst í dag
• „Stund milli strffa“. f Reykjavfkurhöfn. Myndin «r takin í Rsykjavfkurhðfn logndag í íslandsmeistaramóti
1983. Fremst á myndinni eru 3 af 10 bátum sem keppa f Faxaflóakeppninni 1985.
HIN árlega Faxaflóakeppni Sigl-
ingasambands Íslands hefst á
Fossvogi í dag, föstudag, 5. júlf,
meó því að bátar veróa rmstir kl.
12.00. Alls eru 10 bátar skráöir til
keppninnar, sem mun veröa ein
lengsta siglingakeppni sem hald-
in hefur verið á vegum Siglinga-
sambandsins.
Rásmarkiö veröur í Fossvogl,
eins og áöur greinir, en markiö í
mynni hafnarinnar í Ólafsvík. Bein
siglingalína er u.þ.b. 75 mílur, en
þar sem einungis má nota segl er
gefiö aö sigldar mílur veröa mun
fleiri þar sem krussa þarf í beiti-
vindi. Reiknaö er meö aö keppnin
taki 14—20 tíma, sem byggist á
leiöi, siglingahæfni báta og ýmsum
fleiri þáttum.
Viö markið, í mynni hafnarinnar
í Ólafsvík, veröur tímavöröur sem
skráir komutíma alira bátanna, en
hver bátur hefur fyrirframgefna
stigagjöf, til jöfnunar útreiknings til
vinnings. Því er engan vegin gefiö
aö fyrsti bátur í mark sé vinnings-
hafinn.
Áöur en bátarnir halda í keppn-
ina fer fram skoðun á búnaöi
þeirra, en þær reglur gilda aö eng-
inn bátur er skráöur til þátttöku
sem ekki hefur fengiö viöurkenn-
ingu á styrk, ásamt því aö um borö
séu öll öryggistæki, svo sem tal-
stöö, og annar öryggisbúnaöur
sem krafist er aö sé í bátum sem
þessum.
Fyrirséð er aö i Faxaflóakeppn-
inni taka þátt 10 bátar og allt aö
60 manns, bæöi í áhöfn og viö
skipulag í landi.
Keppnisstjóri er Daníel Friö-
riksson.
11 bátar eru skráölr tll keppnl, en nöfn
þelrra og sklpstjóra eru:
BAtur akipstjóH Ahðfn
Assa Arl Bergmann Elnarsson 3
Yrsa Þorgeir Bjömsson 5
Eva Askell Agnarsson 5
Krian Ingíbergur Vllhjálmsson 4
Pia Hatsteinn Matthiasson 5
Didda Gísli Sigurösson 5
Sœstjarnan Vlðar Otsen 2
EOS Siguröur Arason 3
Nornin Andrés Adolphsson 5
Salty Dog Ami Slgurösson 4
Venus Jóhannes Jónsson 3
Serena til
Juventus
ALDO Serena, sem talinn er
einn besti framherji í ítalskri
knattspyrnu, hefur samþykkt
aö fara til Evrópumeistara Ju-
ventus. Hann lék með Torino í
vetur, en var engu aö síöur „f
eigu“ Inter Milan, sem leigöi
hann til Torino.
Serena er 25 ára aö aldri og
hefur leikiö í landsliöi Italíu.
Hann þykir sérstaklega sterkur
skallamaöur. Hann kemur til
Juventus í staö Paolo Rossi,
sem ákvaö aö yfirgefa liöiö og
fer aö öllum líkindum til AC Mil-
ano — og mun þá leika viö hliö
Englendingsins Marks Hately í
framlínunni.
Júlímót
Jörundar
Á laugardaginn veróur hald-
ið golfmót í Grafarholti og er
þaö i vegum Rakarastofu Jör-
undar. Þaö er Jörundur Guö-
mundsson, landsþekktur
skemmtikraftur, rakari og
golfari, sem er bakhjarl móts-
ins.
Leiknar verða 18 holur meö
forgjöf og eru verölaun hin
veglegustu, meöal annars ferö
til Skotlands meö Norröna og
flug til baka. Eínnig fá menn
klippingu hjá Jörundi og ekki er
ólíklegt aö Jörundur mæti meö
skærin á fyrsta teig skömmu
áöur en mótiö hefst.
Ræst veröur út frá kl. 13 á
laugardaginn og er ekki aö efa
aö mikiö fjör veröur í þessu
móti.
UUIDSVIRIUUN
20ÁRA
ÖLLUM LANDSMÖNNUM BOÐIÐ í ORKUVERIN
í tilefni 20 ára afmælis Landsvirkjunar
er öllum landsmönnum boðið að skoða
orkuver fyrirtækisins alla daga
frákl.l3til 19, til 13. ágúst og taka
leiðsögumenn þar á móti gestum.
Ljósafossstöð, 15 MW, hóf framleiðslu 1937, 75 km frá Reykjavík.
írafossstöð, 48 MW, hóf framleiðslu 1953, 74 km frá Reykjavík.
Steingrimsstöð, 26 MW, hóf framleiðslu 1960, 79 km frá Reykjavfk.
Búrfellsstöð, 210 MW, hóf framleiðslu 1969, 122 km frá Reykjavík.
Sigöldustöð, 150 MW, hóf framleiðslu 1977, 161 km frá Reykjavfk.
Hrauneyjafossstöð, 210 MW, hóf framleiðslu 1981, 156 km frá Reykjavik.
Laxárvirkjun, 23 MW, hóf framleiðslu 1939, 76 km fró Akureyri.
f þessum orkuverum landsmanna eru framleidd
um 90% af heildarraforku íslendinga.
STARFSMENN LANDSVIRKJUNAR VONAST TIL AÐ FA
SEM FLESTA í HEIMSÓKN ÞESSAR SEX SUMARVIKUR