Morgunblaðið - 11.07.1985, Page 5
Veitingamaður Broadway og Hollywood
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JtJLÍ 1985
5
Hyggst byggja nýtt
hótel og veitinga-
stað í Armúlanum
„ÉG GERI mér vonir um að hægt verði að byrja á þessu í haust þótt hönnun
sé ekki að fullu lokið," sagði Ólafur Laufdal, veitingamaöur í Broadway og
Hollywood, sem sótt hefur um leyfi til borgaryfirvalda til að reisa 4000
fermetra hótel og veitingastað á lóð sinni númer 9 við Ármúla í Reykjavík,
skammt austan við veitingastaðinn Hollywood.
„Hugmyndin er að þarna verði
60—65 herbergja hótel á fjórum
hæðum og svo á að giska 1200
manna veitinga- og ráðstefnusalur
i bakbyggingu," sagði ólafur
Laufdal í samtali við blm. Morg-
unblaðsins. „Umsóknin er hjá
bygginganefnd borgarinnar sem
stendur en ég geri mér vonir um
að málið verði afgreitt þaðan á
næstu dögum. Á lóðinni er búið að
byggja kjallara undir bakbygging-
una en vonandi verður hægt að
hefjast handa við grunn hótel-
byggingarinnar á þessu ári. Þetta
er náttúrlega óhemju dýrt fyrir-
tæki en hugmyndin er að gera
þetta vel og glæsilega úr garði.“
Hann sagði að í veitingasalnum,
sem yrði á tveimur hæðum með
svölum, væri gert ráð fyrir
skemmtanahaldi, ráðstefnum og
fundum og að inn í þann sal yrði
gengið um annan inngang en í
hótelið.
Afréttarmál Vatnsdælinga:
Sveinstæðingar áfrýja
úrskurði sýslunefndar
til félagsmálaráðuneytis
HREPPSNEFND Sveinsstaðahrepps hefur kært úrskurð sýslunefndar
Austur-Húnavatnssýslu í ágreiningsmálum Vatnsdælinga um beitarmál á
Grímstunguheiði og öðrum sameiginlegum afréttum þeirra til félags-
málaráðuneytisins. Krefst hreppsnefndin þess að úrskurður sýslunefndarinn-
ar um takmörkun beitar verði úrskurðaður ógildur vegna þess að nefndinni
væri ekki heimilt að kveða upp slíka úrskurði. Oddviti hreppsins efast um að
Sveinsstæðingar fari eftir úrskurði sýslunefndarinnar varðandi bann við
hrossaupprekstri á heiðina.
Þórir Magnússon bóndi á
Syðri-Brekku, oddviti Sveins-
staðahrepps, sagðist hafa fengið
miklar efasemdir um að úrskurður
sýslunefndarinnar stæðist
stjórnarfarslega séð, eftir að hafa
ráðfært sig við lögfræðinga. Ekki
vildi hana fara nánar út í efnisat-
riði að svo stöddu. Hann taldi
mjög vafasamt að úrskurðurinn
yrði virtur, en.vildi þó ekki full-
yrða um það vegna þess að hann
hefði ekki haldið fund um málið
enn. Hann sagði að mikil sam-
staða væri I hreppnum um málið
og gífurleg óánægja með það
hvernig að þessum málum hefði
verið staðið.
Eins og fram hefur komið hefur
hreppsnefnd Sveinsstaðahrepps
einnig höfðað mál til ógildingar á
ítölu heiðarinnar. Þórir sagði að
þeir teldu ólöglega að ítölunni
staðið, brotin hefðu verið lög í
meðferð málsins. Hann lagði á það
áherslu að ekki væri verið að ve-
fengja niðurstöðu ítölunnar, held-
ur hvernig að henni hefði verið
staðið.
„Athyglin leidd frá slæmu
ástandi gróðurs“
„Ég er mjög ósáttur við þessa
málshöfðun vegna þess að með
henni er verið að leiða athyglina
frá aðalvandanum, sem er hið
slæma ástand gróðurs á Gríms-
tunguheiði og annarra sameigin-
legra upprekstrarlanda Ás- og
Sveinsstaðahrepps", sagði Sveinn
Runólfsson, landgræðslustjóri,
þegar álits hans var leitað á
málshöfðun Sveinsstaðahrepps til
ógildingar ítölunnar.
Hann sagði að öllum gróðursér-
fræðingum bæri saman um að
heiðin hefði um árabil verið ofset-
in af búfé og gróðurverndarnefnd
sýslunnar hefði margsinnis bent á
hið alvarlega ástand afréttanna
undanfarin 15 ár. En miðað við
aðstæður þarna hefði búfé yfir-
leitt verið sleppt of snemma vors
og verið þar of lengi. Hann sagði
að í gróðurskoðunarferð í lok júní
hefði Grímstunguheiðin litið verr
út en tilraunareitur á svipuðu
gróðurlendi á Auðkúluheiði sem
viljandi hefði verið ofbeittur sl. 9
ár.
Sveinn sagði að á undanförnum
15 árum hefði Landgræðslan átt
viðræður við viðkomandi sveitar-
stjórnir um úrbætur í upprekstr-
armálunum og þær hafi leitt til
aðgerða sem heldur hefðu lagað
ástandið, en þó ekki verið nægj-
anlegar. Hefði þar strandað á
Sveinsstæðingum og oddviti
hreppsins ekki verið til viðræðu
um neinar úrbætur. Landgræðsl-
unni hefði því verið tvímælalaust
skylt að krefjast ítölu samkvæmt
ákvæðum í landgræðslulögunum.
Sveinn lagði á það áherslu að ítal-
an væri komin í gildi og bæri
hreppsnefndunum að framfylgja
henni. Annað væri ekki hægt að
segja um málið á þessu stigi,
fljótlega kæmi í ljós hvort
Sveinsstæðingar færu eftir úr-
skurði sýslunefndar um takmörk-
un beitar á heiðinni, sérstaklega
varðandi bann við hrossa-
upprekstri á heiðina.
Níu umsóknir
um sakadóm-
araembætti
í Reykjavík
NÍU umsóknir bárust um tvö emb-
ætti sakadómara í Reykjavík. Gert
er ráð fyrir að embættin verði veitt í
þessari viku. Um er að ræða ný emb-
ætti við Sakadóm Reykjavíkur þar
sem málum hefur fjölgað gífurlega á
undanförnum árum.
Umsækjendur um embættin
voru: Arngrímur ísberg, fulltrúi
við embætti lögreglustjórans í
Reykjavík, Egill Stephensen,
deildarlögfræðingur við embætti
ríkissaksóknara, Erla Jónsdóttir,
deildarstjóri hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, Gísli G. Isleifsson
deildarlögfræðingur hjá Verðlags-
stofnun, Hjörtur O. Aðalsteinsson,
settur aðalfulltrúi Sakadóms
Reykjavíkur, Ingibjörg K. Bene-
diktsdóttir, settur sakadómari í
Reykjavík, Júlíus Kristinn Magn-
ússon, fulltrúi við bæjarfógeta-
embættið í Hafnarfirði, Pétur
Guðgeirsson, yfirlögfræðingur við
embætti ríkissaksóknara og
Sturla Þórðarson, fulltrúi við
embætti lögreglustjórans í
Reykjavík.
Hótelgrunnurinn aem er að rísa í Ármúlanum
Kynnum,1
Mjóddinmi5^i
l^nnvíiTSÚ^vn.
Avartagrauta,
tilbúnaadtólaS15-
Ódýrustu
grillkolin
í bænum!!
3kg.
AÐEINS
1695
BlábeF
Nýkomin í flugi
ÓDÝR
148S?
GCÐ '
^ # AÐEINS
Lundi^irk^oo
glænýr ^
+J ^pr.stk.
Hamborgarar
m/brauði mm aa
AÐEINS
(pr.stk.
25
— GÓÐ KAUP — am
Beikon 258
.00
pr.kg.
Yfir 80 tegundir af fersku
grænmeti og ávöxtum.
JXgr
Meilste
cinnin: —-—
m
ser.
LÆKKAÐ VERÐ.
Glænýr LAX-
Opið til kl. 20 í Mjóddinni
Ath. Lokað á -en kl. 18 í Starmýri
laugardögum og Austurstræti
í sumar.
AUSTURSTRÆT117- STARMÝRI 2
MJÓDDINNI