Morgunblaðið - 11.07.1985, Page 21

Morgunblaðið - 11.07.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚLl 1985 21 Russes vus par Vladimir Sichov, sem komið hefur út á allmörgum tungumálum, þar á meðal norsku, sænsku og ensku: The Russians (Little, Brown & Company, 1981). Bókin, sem er löngu uppseld á öll- um málum, er óvenjulega opinská og nærfærin lýsing á daglegu lífi í Sovétríkjunum sem útlendingum er aidrei gefið færi á að sjá eða kynnast af eigin raun — lífi á rússneskum heimilum og sam- yrkjubúum, í strætum og húsa- sundum stórborga, í verksmiðjum og herbúðum, í óhugnanlegum fangabúðum og geðveikrahælum sovésku leyniþjónustunnar, KGB, í kirkjum og heimkynnum útskúf- aðra lista- og vísindamanna. Sérkennilegur og mjög persónu- legur myndstíll Vladimirs Sichov hefur gert hann einhvern virtasta og eftirsóttasta ljósmyndara Evr- ópu nú um stundir. Sigurður A. Magnússon Hal Calbom og Phil Davies Höfundar myndarinnar Iceland Crucible eru bandarískir kvik- myndagerðarmenn, sem átta sinn- um hafa verið sæmdir hinum eft- irsóttu Emmy-verðlaunum, sem veitt eru fyrir framúrskarandi sjónvarpsþætti. Þeir eru báðir búsettir í Seattle í Washinton- fylki og starfa þar. Hal Colbom stundaði nám í stjórnmálafræðum og síðar ensk- um bókmenntum og naut margra virðulegra styrkja, var m.a. Nat- ional Merit Scholar, Great Book Scholar og Frank Knox Fellow. Hann lauk BA-prófi í stjómmála- fræðum frá Harvard College árið 1971 og MA-prófi í enskum bók- menntum frá háskólanum í Exeter i Englandi árið 1976. Að námi loknu starfaði hann sem frétta- maður, höfundur og framleiðandi sjónvarpsþátta. Eftir átta ára starf hjá NBC, gerðist hann sjálf- stæður rithöfundur og kvik- myndaframleiðandi í félagi við Phil Davies. Phil Davies lauk BA-prófi í fjöl- miðlafræðum frá The Evergreen State College árið 1974. Eftir það starfaði hann um sinn sem frétta- ljósmyndari og síðan kvikmynda- gerðarmaður og framleiðandi hjá NBC. Á þeim árum var hann átta sinnum sæmdur Emmy-verðlaun- unum. Síðan 1983 hefur hann starfað sjálfstætt í félagi við Hal Calbom að gerð kvikmynda og myndbanda fyrir sjónvarp og einkafyrirtæki. Sigurður A. Magnússon Sigurður hefur samið nokkrar bækur á ensku, auk fjölmargra á íslensku, m.a. Northern Sphinx — Iceland and the Icelanders from the Settlement to the Present (1977 og 1984) og Stallion of the North — The Unique Story of the Iceland Horse (1978), sem komið hefur út á sjö tungumálum. Þá þýddi hann og ritstýrði The Postwar Poetry of Iceland (Uni- versity of Iowa Press, 1982) og rit- stýrði og gaf út Icelandic Writing Today (1982). Skáldsaga hans, Undir kal- stjörnu, hefur komið út á þýsku, Unter frostigem Stern, (1984), og ensku, Under a Dead Star (1985). Ljóð hans, smásögur og bók- menntagreinar hafa birst í safn- ritum og tímaritum á Norðurlönd- um öllum, í Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Hollandi, Grikklandi, ftalíu, Spáni, Ind- landi, Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada. GRJOTGRINDUR Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA KVORT KÝST ÞÚ GAT EÐA GRIND? BIFREIÐA SKEMMUVEGI 4 K0PAV0GI SIMI 7 78 40 Kverkstæðið nastás Eigum á lager sérhannaðar grjót- grindur á yfir 50 tegundir bifreiða! Ásetning á staðnum SERHÆFDIRlFIATOG Síðumúla33 símar 81722 og 38125 gorenie %^SKANDINAVIEN * Gæða ísskápar Gorenje isskáparnir eru að sjálfsögðu með hinu viöurkennda Danfoss kælikerfi. Gorenje HDS 201 K rúmar 200 lítra. Þar af er 185 lítra kælir og 65 litra djúpfryatir. Sjáltvirk af- trysting. Hæð 138 sm. Breidd 60 am. Dýpt 60 am. Sami gæðaflokkur og ísakápar í mun hærri verðflokkum. Gunnar Asgeirsson hf. Suðuriandsbraut 16 Simi 91 35200 Góðir afborgunarskilmálar. Látiö ekki happ úr hendi sleppa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.