Morgunblaðið - 20.07.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1985
Alllangt af leið
— eftir Emil Als
Mér varð dálítið bilt við er ég
las leiðara Morgunblaðsins þann
13. júlí. Þar er í langri málsgrein
að finna þá skoðun, að samfélag-
inu beri að tryggja hamingju þjóð-
félagsþegnanna eftir því sem að-
stæður leyfa. Eftir að hafa full-
vissað mig um að ég væri ekki með
„Þjóðviljann" í höndunum varð
mér á að spyrja: Er Morgunblaðið
á leið burt frá frelsishyggju
Sjálfstæðisflokksins? Hvaða kíúð-
ur er þetta? Má nú ekki hamingj-
an vera í friði heldur? Næst fáum
við hamingjuráðuneyti og 25%
gjaldskyldu af uppmældri ríkis-
sælu til jöfnunarsjóðs þjóðfé-
lagshamingjunnar. Það er ærin
þungbær raun að sjá menn rugla í
blöðum um „Þjóðfélagið", þessa
þokuslæðu, og tönnlast á þessu
orði á öllum málþingum. Ef nú á
að knýta við það öðru illskýran-
legu hugtaki munu þolrifin í sum-
um taka að bresta. Orð og hugtök
af þessu tagi komast í uppáhald
hjá mönnum, sem þurfa oft að
breiða yfir ónákvæmni í andlegum
vinnubrögðum eða grunnfærni.
Þau er vinsæl hjá allmörgum
stjórnmálamönnum, of mörgum.
Hamingja er huglægt og ein-
staklingsbundið fyrirbæri, hverf-
ult, loftkennt og torskilið. Menn
gera sér ólíkar hugmyndir um eðli
og inntak lífshamingju og leita
hennar eftir ólíkum leiðum. Er
það vel. Einstefnumenn með stirð-
legar hugmyndir um þjóðfélag
sem er byggt og þróað líkt og stórt
fjárbú, bíða með öndina í hálsin-
um eftir því að taka ráðin af al-
menningi, sem ljóst er að kann
ekki fótum sínum forráð og skilur
ekki samhengi hlutanna. Svona
menn hafa ætíð verið varasamir
en aldrei eins og nú á tímum há-
tækni og einokunar í afgerandi
fjölmiðlum.
í skjóli hugmynda á borð við þá
sem sett var fram í leiðara Morg-
unblaðsins sjá afskiptasamir og
stjórnlyndir þingmenn og „félags-
fræðingar" sér leik á borði og láta
hendur standa fram úr ermum.
Nú skulu menn fá yfir sig „þjóð-
félag hamingju" hvort sem þeir
vilja eða ekki. Fyrr en varir er
Emil Als
„En það skulu menn at-
huga, að ef barnfóstru-
hlutverk ríkisins verður
aukið frá því, sem nú er,
mun það slæva ábyrgð-
arkennd þegnanna og
það sem er ef til vill enn
verra, svæfa samúðar-
kennd þeirra til með-
bræðra sinna.“
búið að steypa kringum okkur
þunglamalegt og kæfandi „þjóð-
félag“ sem með tímanum rýrir
möguleika og getu þegna sinna til
sjálfstæðrar hugsunar og per-
sónulegrar sköpunar. Helsti með-
byr þessarra skaðræðisgóðmenna
er andvaraleysi almennings.
Um þjóðfélög virðist gilda sú
þversögn, að þau verði þeim mun
auðskýrðari sem þau eru flóknari
og fléttaðri hörðum lagabálkum.
Það er vinnandi vegur að lýsa
þjóðfélögum á borð við Sovétríkin
eða Svíþjóð. Um samfélög Vestur-
landa gegnir öðru máli. Þau eru
hreyfanlegri, óskýrari á útjöðrun-
um, fara líkt og undan í flæmingi
þegar á að lýsa þeim. Það er gott
til þess að vita. Samfélagið á ekki
að híma þrúgandi yfir okkur við
hvert fótmál. Það má vera til eins
og góðlyndur ættingi, sem á dálít-
ið í banka og er fús að rétta manni
hjálparhönd þegar þess gerist
þörf.
Það er þegar búið að koma á
samtryggingu og stuðningi við
sjúka. Komin er fram athyglisverð
hugmynd um neikvæðan tekju-
skatt sem tryggi öllum lands-
mönnum lífeyri. Sameiginlega
berum við kvaðir vegna öryggist
útávið og verndar innávið. En það
skulu menn athuga, að ef barn-
fóstruhlutverk ríkisins verður
aukið frá því, sem nú er, mun það
slæva ábyrgðarkennd þegnanna
og það sem er ef til vill enn verra,
svæfa samúðarkennd þeirra til
meðbræðra sinna. Það er búið að
sýna okkur þessi „þjóðfélög hinn-
ar opinberu hamingju" þau verða
að lokum yfirþyrmandi og fóstra
meira ranglæti en þeim var í upp-
hafi ætlað að útrýma. Hamingju-
þjóðfélag ríkisins snýst á einni
nóttu í andstæðu sína — verður að
martröð.
Þaö ætlar seint að renna upp
fyrir mönnum, jafnvel mörgum
Sjálfstæðismönnum, að hin
þrautskipulögðu og njörvuðu sam-
félög með opinberum afskiftum
yfir allt sviðið verða óhjákvæmi-
lega víti á jörðu. Sum þeirra geta
um hríð haldið uppi skini frelsis
og lýðræðis en að lokum tekur lífs-
gleðin að hörfa og ævintýrin eru
gerð útlæg. Góðviljaðir glópar
munu, fái þeir til þess frjálsar
hendur, keyra áfram jafnréttisæð-
ið og hina samfélagslegu „ham-
ingju“ inn á lendur fáránleikans.
Þar mun hið mikla far standa á
grunni og farmurinn, hin ríkis-
rekna „mannúð“ breytast í kæf-
andi óloft.
Höíundur er læknir í Rcykjavík
HOLLUSTUBYLTINGIN/Jón Óttar Ragnarsson
Næring fyrir hugann II
Fæða og elliglöp
t síðustu grein minni um heil-
ann og næringuna var fjallað um
taugaboðefnið seratonín og með
hvaða hætti skortur á því getur
m.a. valdið varanlegu svefnleysi.
f þessari grein verður fjallaö
um annað og enn þekktara boð-
efni í heilanum: taugaboðberann
asetýlkólín og hvernig það teng-
isT sívaxandi faraldri: svo-
nefndri Alzheimerveiki.
Elli og elliórar
Eftir því sem meðalaldur jarð-
arbúa vex hækkar tíðni hvers
konar hrörnunarsjúkdóma á borð
við Alzheimerveiki og Parkinson-
isma.
Til þess að gefa nokkra hug-
mynd um það hvernig aldurs-
dreifing jarðarbúa er að þróast,
má nefna að árið 2000 er talið að
600 miiljónir manna verði 60 ára
og eldri.
Klliórar (e. senile dementia) er
talin hrjá 5% allra sem náð hafa
65 ára aldri og hvorki meira né
minna en 20% allra þeirra sem
orðnir eru 80 ára og eldri.
Bróðurparturinn af þessum
sjúklingum (um 60%) þjáist í
rauninni af Alzheimerveiki, en
afgangurinn af æðakölkun í
heilaæðum og fleiri hrörnunar-
sjúkdómum.
Alzheimer
Yfirleitt kemur Alzheimer-
veikin ekki fram fyrr en um eða
eftir 70 ára aldur. Frá því að
fyrstu einkenni koma fram þar
til dauðinn ber að dyrum líða oft
4-5 ár.
Fyrstu einkenni eru yfirleitt
minnistap, en síðan koma önnur
þungbærari einkenni fram,
þ.á m. óróleiki, taugaspenna,
þunglyndi, svefnleysi og geð-
truflanir.
Er talið að orsökin sé líklega
sú að svokallaðir Meynart-
kjarnar i heilanum hætta að
framleiða eitt mikilvægasta boð-
efni taugakerfisins, taugaboð-
berann asetýlkólín.
Kólín og asetýlkólín
Eins og seratonín á sér nær-
ingarefnið tryptofan sem undan-
fara á asetýlkólín sé annað nær-
ingarefni að undanfara. Þetta
efni er kólín sem stundum er tal-
ið til B-vítamína.
En hvaðan getum við fengið
kólín? Það kemur úr ýmsum
fæðutegundum sem kólínsölt.
Auk þess er það hluti af
svonefndu lesitíni. Loks er hægt
að taka það inn í hreinu formi.
Það er því ekki að undra þótt
vísindamenn hafi fyrir alllöngu
farið að prófa sig áfram með
áhrif kólíngjafar á fólk sem þjá-
ist af Alzheimerveikinni.
Kólínsölt
Það fyrsta sem manni kemur í
hug er auðvitað að gefa kólínsölt.
Hafa margvíslegar tilraunir ver-
ið gerðar með því að gefa þessum
sjúklingum slík sölt.
Því miður breytist kólín í
görninni í annað efni. svokallað
trímetýlamín, sem við Islendingar
könnumst einkar vel við, því það
er efnið sem veldur óþef í
skemmdum fiski.
Þeir sem ekki vilja smám sam-
an fara að anga eins og skemmd
skreið ættu því að láta það vera
að taka stóra skammta af þess-
um efnum eins og sumir hafa
reynt.
Lesitín
En hvað er með lesitín? Lesitín
er fituefni sem inniheldur kólín,
eins og áður var sagt. Af þeim
sökum fer þetta efni aðra leið í
gegnum görnina út í blóðið.
Rannsóknir sem fram hafa
farið á áhrifum lesitíns á Alz-
heimerveikina hafa því miður
reynst afar erfiðar og hafa
a.m.k. ekki enn gefið nægilega
skýr svör.
Vandinn felst m.a. i því að
gefa verður stóra skammta (15
til 25 grömm á dag). Efnið verð-
ur að vera nægilega hreint og
ýmislegt fleira hefur reynst vera
vandkvæðum bundið.
Engu að síður hafa rannsóknir
þegar sýnt að lesitíngjöf getur haft
jákveð áhrif, enda þótt þau hafi
a.m.k. fram til þessa reynst vera
mun minni en vonað var í fyrstu.
Hitt verður þó að teljast allmik-
ill árangur að það skuli yfirleitt
hafa tekist að sýna að þetta efni
getur haft einhver jákvæð áhrif.
Það eitt gefur von.
Lokaorð
Svo virðist sem frumorsök
Alzheimerveikinnar sé sú að
vissar stöðvar í heilanum draga
úr eða hætta jafnvel framleiðsíu
á taugaboðberanum asetýlkólín.
Vandinn er auðvitað sá að í
flestum tilvikum má gera ráð
fyrir að skortur komi ekki aðeins
fram í einu slíku boðefni, heldur
tveim eða jafnvel fleirum sam-
tímis.
Það er því ljóst að hér verður
við ramman reip að draga. En
hinu má ekki gleyma að við er-
um hér að glíma við þá sjúk-
dóma sem erfiðastir eru viðfangs
af öllum mannsins krankleikum:
hrörnunarsjúkdóma í viðkvæm-
asta og margbrotnasta vef lík-
amans.
Ödýr, nýr LADA LUX bíll er betri en dýr notaður af annarri
gerð. Sjö punktar, sem við bendum á og skipta þig miklu máli:
I Verðið á LADA LUX er aðeins 283 þúsund
krónur. Greiðsluskilmálar eru hagstæðir.
2. Ársábyrgð er á öllum hlutum LADA LUX
bifreiðarinnar.
3. Sex ára ryðvarnarábyrgð er innifalin í verð-
inu, sé öllum skilmáíum ryðvarnar framfylgt
af hálfu eiganda.
4. Ábyrgðarskoðun fer fram á LADA LUX,
kaupéndum að kostnaðarlausu eftir 2000 og
500Ö km akstur.
5. Varahlutaþjónusta við LADA eigendur er af
opinberum aðilum talin ein su besta hér-
lendis. Mikið úrval alls konar aukahluta
fáanlegt á hagstæðu verði.
6. LADA LUX er afhentur kaupendum með
sólarhrings fyrirvara.
7. Eldri gerðir LADA bifreiða eru teknar á
sanngjórnu verði sem greiðsla upp í verð
nýja bílsins.
VERÐSKRÁ 11 /7 ’85
LADA 21013 208.000
LADA 2105 239.000
LADA 1300 station 253.000
LADA 1500 station 277.000
LADA SPORT 359.000
LADA LUX 283.000
BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ItMjEþ SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236