Morgunblaðið - 20.07.1985, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1985
tíefc/nAttn
litla sem segir svo
mikið
TM R«g U.S. Pat. Off. —all rights restrved
®1985 Los Angeles Times Syndicate
Má ég biðja um tvo kassa
af stálnöglum, ég Ktla að
útbúa nýja rúmdýnu.
Anægjuleg
Vestmanna-
eyjaferð
Jóhanna Björnsdóttir skrifar:
í sl. mánuði kom ég til Vest-
mannaeyja og átti þar stutta en
ánægjulega dvöl.
Náttúrugripasafnið var skoðað,
gengið á fellin tvö, farið í Herj-
ólfsdal og Stórhöfða o.fl. o.fl.
En hápunktur ferðarinnar var
sigling umhverfis Eyjarnar á
bátnum „Bravo“ sem stjórnað var
af Hjálmari Guðnasyni. Inni í
Klettshelli spilaði hann fyrir
okkur tvö lög og bergmálið tók
undir. Hann fór með okkur í þrjá
hella í viðbót og sagði okkur
margt fróðlegt og skemmtilegt
bæði á íslenzku og ensku, en einn
Englendingur var með okkur.
Mig langar að koma hér á fram-
færi þakklæti okkar ferðafélag-
anna til Hjálmars fyrir þennan
ógleymanlega dag, ennfremur til
konunnar sem ég hitti á gisti-
staðnum Skútanum og kom mér í
samband við hann.
„Varasjóður“ í heilabúi kvenna?
[314 W»ndídatar brautskráðir frá HÍ:
|„Þjóðin á mik-
jinn varasjóð í
Iheilabúi kvenna‘(
— sagði Cuðmundur Magnusson rektorj
Hreiðar Sigtryggsson skrifar:
Við brautskráningu kandidata
frá Háskóla íslands 29. júní sl.
sagði Guðmundur Magnússon há-
skólarektor m.a.: „Þjóðin á mikinn
varasjóð í heilabúi kvenna."
(Mbl. 5. júlí 1985).
Hvað á háskólarektor við?
Eru þær 140 konur af (314
kandidötum) sem brautskráðust
frá háskólanum nú í vor einungis
varasjóður?
Var einhver að tala um jafn-
rétti?
Svör óskast!
Kjarnfóðurgjaldið
hækkar útgjöld heimila
Athugull skrifar:
Ágæti Velvakandi:
í nýrri skoðanakönnun Hag-
vangs, sem birtist í Mbl. 17. júlí
sl., er sagt frá fylgi flokkanna.
Kemur þar fram að Framsóknar-
flokkurinn hefur enn tapað frá
síðustu skoðanakönnun. Fylgi
Framsóknarflokksins er nú aðeins
lítill hluti miðað við fylgi Sjálf-
stæðisflokksins. Mörgum þykir
því merkilegt hvernig Fram-
sóknarmenn hamast í ríkisstjórn-
inni. Þeir þykjast eiga rétt á að
ráða þar til jafns við Sjálfstæðis-
flokkinnn sbr. kjarnfóðurgjaldið
sem nýlega hefur verið lagt á.
Landbúnaðarráðherra hefur
beitt bolabrögðum í ríkisstjórn-
inni og ber máliö ekki undir hana.
Vísast í þessu sambandi til leiðara
Mbl. 17. júlí sl. Því verður ekki
trúað að Sjálfstæðisflokkurinn
láti þessa hækkun viðgangast, sem
kemur til með að hækka útgjöld
heimilanna stórlega, því hér er um
að ræða þýðingarmikla fæðuteg-
und. Vonandi gera Sjálfstæðis-
menn sér ljósan styrk sinn og
koma í veg fyrir þessa hækkun á
nauðsynjavöru. Örugglega fá þeir
umbun fyrir.
Hættið að rífast
Klsa skrifar:
Það er alltaf veri að rífast um
hver sé besta hljómsveitin og að
þessi og hin eigi að koma á Lista-
hátíð fremur en aðrar. Samt er
alltaf verið að segja ykkur að það
sé ekki hægt, einhverra hluta
vegna. Það er t.d. margoft búið að
segja að hljómsveitin Duran Dur-
an sé löngu búin að ákveða ferðir
sínar í sumar en samt er alltaf
verið að biðja um það sama hér á
síðum dagblaðanna. Síðan vil ég
enda þetta stutta bréfkorn á því
að minna á að hver maður hefur
sinn eigin tónlistarsmekk.
Af hverju ekki Wham?
Tveir Wham!-aðdáendur skrifa:
Við viljum fá Wham!-þætti í
sjónvarpið nú þegar búið er að
sýna tvo Duran Duran þætti. Við
erum alveg vissar að fleiri eru
sammála okkur og við hvetjum
fleiri til að skrifa svo þetta verði
tekið til greina. Okkur finnst of
mikið dekrað við Duran Duran að-
dáendur.
í lokin viljum við biðja um að
okkur sé líka gert til hæfis við þá
sem dýrka Duran Duran.
Umhverfismynd
Gunnar Sverrisson, Þórsgötu 27, Rvík skrifar:
Mikil er orkan í gróðrinum hér,
því moldin er frjósöm við röðulshrif,
gangleri sérhver í mikilli tign,
sérhver svo nemur við urtabeð.
Mikil er orkan í gróðrinum hér,
duleindir lífsins í blaðgrænu her,
svellur þar fjörið í sérhverjum stilk,
hér öreindir skapa sér fallega mynd.
Mikil er orkan í gróðrinum hér,
sér dulálfar leika i brumknappa leik,
eða á blöðum á sérhverri þöll,
fegurðin göfgar hvern ganglera þegn.
Mikil er orkan í gróðrinum hér,
lífið og frjómögn í þögulli ró,
hér gefur því gildi við Þórsgötuna,
í sumarsins blíðu um ókomin ár.