Morgunblaðið - 27.07.1985, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JULÍ 1985
fclk í
fréttum
JC félagar í Þórsmörk
Félagar úr JC-hreyfingunni tóku sig til og efndu til fjölskylduferðar í Þórsmörk. Það voru þátttakendur úr
Mosfellssveit, Reykjavík, af Seltjarnarnesi, úr Kópavogi og af fleiri stöðum sem fóru með. Ýmislegt var
sér til gamans gert og m.a. haldin grillveisla mikil og fegurðarsamkeppni þar sem Villi Þór rakari, sigurvegari
"'f' sl. árs var kynnir. Fjallkonuávarp flutti Sigurður Sigurjónsson þar sem hann rakti sögu íslands í léttum dúr.
Að kunna
ekki að
lesa ...
Þegar maður kann alls ekki að
lesa þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af því að fá sér sund-
sprett í næstu laug þó hún tilheyri
einhverjum öðrum sem kannski
gæti orðið obbolitið vondur og rek-
ið mann í burtu.
Anthony Quinn
er margt
til lista lagt
Sagt er að Anthony Quinn hafi náð hámarki leikferils síns er hann lék
Zorba í eina tíð. Fáum er samt kunnugt um það að Anthony Quinn
hefur sýnt mikla hæfileika og náð verulegum árangri sem málari og
höggmyndasmiður. Það er ekki ýkja langt síðan á markaðinn komu eftir-
líkingar af nokkrum listaverkum
tileinkuðum Zorba, ein stytta sem
kölluð er „Zorba-söngvar“ önnur
sem hlaut nafnið „Zorba-andi“ og
þriðja listaverkið er árituð sjálfs-
mynd . Á meðfylgjandi myndum
má sjá Reagan Bandaríkjaforseta
taka á móti slíku safni sem honum
var fært af Anthony Quinn sjálf-
um.