Morgunblaðið - 27.07.1985, Page 46
***
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1985
st.
Úrskjjrður dómstóls
KSÍ í Jónsmálinu
• „Eru hinir ekki aö koma?“ Steve Cram, aem nýlega setti heime-
met í 1500 m hlaupi, veröur á meöal keppenda á Bielet í dag.
Hver vinnur
míluhlaupið?
Grand Prix-mótiö
GRAND Prix-frjálsíþróttamótiö
fer fram á Bíslet-leikvanginum í
Ósló í dag. Þar verða margir af
fremstu frjélsíþróttamönnum
heims. Stœrsti viðburðurinn
verður án efa keppnin í mílu-
hlaupinu.
„Þetta veröur örugglega
„draumamila“ hjá flestum sem
fylgjast náiö meö hlaupagreinum.
Þarna veröa mörg stór nöfn og
eru mörg þeirra aö keppa í fyrsta
sinn saman á þessu ári. I mílu-
hlaupinu veröa meöal annars eft-
irtaldir hlauparar: Sebastian
Coe, Steve Cram, Steve Scott,
John Walker, Jose Luis Gonzal-
es, Thomas Wessighage, Pierre
Deleze, Mike Hillardt og Chuch
Aragon. Þaö má alveg eins gera
ráö fyrir aö þaö veröi sett nýtt
heimsmet i míluhlaupi. Mörg
heimsmet hafa veriö sett á Bis-
let-leikvanginum á undanförnum
árum og telja margir hlauparar
aö hlaupabrautirnar á Bislet séu
með þeim bestu í heimi og svo
eru norskir áhorfendur frægir
fyrir aö hvetja hlauparana mikiö
og hjálpar þaö óneitanlega til aö
ná betri árangri en ella.
Steve Cram sem setti heims-
met í 1500 metra hlaupi í Nice
fyrir skömmu og hljóp þá á 3
min. 29,67 sek. hefur haldiö því
fram, aö míluhlaupiö á Bislet sé
merkilegasta hlaupiö á þessu ári.
Heimsmetið í 1500 metra hlaupi
hefst í Osló í dag
sem Sebastian Coe á er 3 mín.
og 47,33 sek. og var sett 1981.
„Ég verð aö hlaupa nálægt 3 mín.
og 45 sek. til aö eiga möguleika á
aö vinna í þessu hlaupi, en ég hef
ekki trú á því að þaö veröi sett
heimsmet að þessu sinni. Se-
bastian Coe og Steve Ovett hafa
oftsinnis á undanförnum árum
barist innbyröis um sigur í þess-
ari vegalengd og átt heimsmetiö
til skiptis, en þetta veröur örugg-
lega spennandi og skemmtilegt
hlaup,“ sagöi Cram, sem hefur
ekki verið þekktur fyrir að vera
að setja heimsmet heldur einblínt
á að vinna þá keppni sem hann
tekur þátt í. Heimsmetin eru
aukaatriöi hjá honum. „Aö setja
met án þess aö hafa mikla
keppni er ekki auövelt,” segir
Cram.
Það veröur án efa hart barist í
dag og er helst aö búast viö því
aö keppnin standi helst á milli
Cram sem er heimsmeistari og á
heimsmetiö í 1500 metra hlaupi,
og Coe, sem er tvöfaldur ólymp-
íumeistari i 1500 metra hlaupi og
á heimsmetið í míluhlaupi.
Þaö munu því allra augu bein-
ast aö þessu merkilega mílu-
hlaupi á Bislet í dag.
Enginn islendingur er meöal
keppenda á mótinu. Til stóö aö
Einar Vilhjálmsson, Oddur Sig-
urösson og Oddný Árnadóttir
myndu vera meö, en af því verö-
ur ekki.
DÓMSTÓLL KSÍ úrskuróaði í
fyrradag aö úrskurður aganefnd-
ar KSÍ frá 28. maí (í Jónsmálinu
svokallaöa) skyldu úr gíldi falla.
Morgunblaðiö birtir hór í heild
dómsúrskurð dómstóls KSÍ, með
leyfi formanns, Jóns Steinars
Gunnlaugssonar:
„Ár 1985, fimmtudagur 25. júlí,
kom dómstóll KSÍ saman í húsi
KSl i Laugardal.
Dóminn sátu Jón Steinar Gunn-
laugsson, dómsforseti, Hafsteinn
Guömundsson og Jón Gunnar
Zoega.
Fyrir var tekiö máliö nr. 2/1985,
KR gegn aganefnd KSl og knatt-
spyrnufélaginu Þrótti.
Þá komu í dóminn Gunnar Guö-
mundsson, formaöur knattspyrnu-
deildar KR f.h. áfrýjanda, Tryggvi
Geirsson og Guömundur Vigfús-
son, f.h. knattspyrnufélagsins
Þróttar.
Lagt var fram: nr. 28 greinar-
geró knattspyrnufélagsins Þróttar.
Dómsforseti beinir þeirri spurn-
ingu til umboösmanns knatt-
spyrnufélagsins Þróttar, hvort
hann óski eftir aö dómstóllinn fjalli
um þaö efnislega, hvort dæma beri
umræddan leik tapaóan Knatt-
spyrnufélagi Reykjavíkur, fari svo
aö dómstóllinn komist aö þeirri
niöurstöóu, aö ekki hafi átt undir
aganefnd KSÍ aö fjalla um málið.
Tryggvi Geirsson óskar eftir eft-
irfarandi bókun: „Knattspyrnufé-
lagiö Þróttur getur ekki fallist á aö
dómstóll KSÍ fjalli nú efnislega um
mál þetta, ef dómur ykkar gengur i
þá átt aö aganefndin hafi ekki haft
lögsögu í þessu máli. Viö teljum
okkur ekki hafa haft tækifæri aó
skýra okkar sjónarmiö varöandi
efnisatriöi nægilega enda hafa þau
ekki veriö til álita fyrir dómstólum
KRR og KSl heldur eingöngu
valdamörk aganefndar."
Gunnar Guömundsson óskaöi
eftir eftirfarandi bókun: „Vegna
mikils dráttar sem oröiö hefur á
máiinu, einkum vegna afstööu
sérráösdómstóls KRR, og fyrir-
sjáanlegs enn frekari dráttar á því
lýsir sóknaraöili, knattspyrnudeild
KR, því yfir aö falliö er frá aöal-
kröfu í málinu. Af því leiöir aö
sjálfsögöu aö varakrafan veröur
aöalkrafan og þrautavarakrafan
veröur varakrafan.
Fallist dómstóllinn á aöalkröfu
sóknaraðíla og til þess aö liöka
fyrir endanlegri lausn málsins,
samþykkir sóknaraðili meó hlið-
sjón af niöurstööu sórráösdóm-
stóls KRR aó máliö verói tekiö til
efnislegrar umfjöllunar í heild sinni
og endanlegrar afgreiöslu á
grundvelli fyrirliggjandi gagna í
málinu, enda væri tímasóun aö
vísa málinu á ný til sérráösdóm-
stóls KRR sem jiegar er búinn aö
afgreiöa máliö efnislega, en gífur-
lega brýnt er aö máliö dragist ekki
frekar á langinn."
Gunnar Guðmundsson tók til
máls og vísaöi til framlagöra
gagna og taldi máliö liggja skýrt
fyrir.
UM helgina fer urslitakeppni Poll-
amóts Eimskips og KSÍ fram á
Akureyri. Alls taka 12 lið þaft í
keppninni, 6 A-lið og 6 B-lið. í
undankeppninni kepptu alls 66
lið eða um 800 drengir á aldrinum
9 og 10 ára.
I keppni A-liöanna eru þessi liö i
úrslitum: UBK, ÍA, KA, ÍBK, Þróttur
N og KR. I B-liöakeppninni eru
þessi félög: Víkingur R. ÍBK, KA,
Tryggvi Geirsson reifaöi máliö
og vísaöi til greinargeröar sinnar.
Báóir aöilar lögöu máliö i dóm.
Viöstaddir umboösmenn aöila viku
nú af dómþingi.
Var nú kveöinn upp svofelldur
dómur:
Meö dómi dómstóls KSÍ 4. júlí
1985 var lagt fyrir sérráösdómstól
KRR aö leggja efnisdóm á kröfu
áfrýjanda um aö úrskuröur aga-
nefndar KSÍ frá 28. maí 1985 yröi
úr gildi felldur. Þetta hefur sér-
ráösdómstóllinn ekki gert, heldur
tekiö úrskurö aganefndarinnar til
efnislegrar endurskoöunar. Meö
því aö úrskuröir aganefndar KSl
eru fullnaöarúrskuröir, sem ekki
veröur áfrýjaö, sbr. 4. gr. starfs-
reglna aganefnda KSÍ, þykir mega
túlka dóm sérráösdómstóls KRR
þannig, aö hann telji aganefndina
hafa skort vald til aö kveöa upp
úrskurö sinn, og þannig felist í hin-
um áfrýjaöa dómi afstaöa til
dómkröfu áfrýjanda. Málinu veröur
því ekki vísaö heim á nýjan leik af
þessum sökum, heidur tekiö til
efnislegrar úrlausnar um þá kröfu
áfrýjanda aö fella beri umræddan
úrskurö aganefndar KSl úr gildi.
Aganefndin starfar eftir Starfs-
reglum aganefndar KSÍ sem settar
eru í samræmi viö 5. gr. 4. tl.
dóms- og refsiákvæöa ISÍ. Skv.
þessum reglum hefur hún afmark-
aö starfssviö og innan þess á hún
fullnaöarúrskurö. Þaö á aö sjálf-
sögóu undir dómstóla knatt-
spyrnuhreyfingarinnar aö dæma
um mörk starfssviös nefndarinnar.
Komist dómstólarnir aö þeirri
niðurstöðu, aö nefndin hafi úr-
skuröaö mál sem á undir hana,
veröur þeim úrskuröi ekki hnekkt,
enda sé meöferö máls hjá nefnd-
inni ekki áfátt.
Til athugunar kemur þá hvort
nefndin hafi mátt úrskuröa um
ágreining þann, sem uppi er um
hvort skeyti sent KR hafi haft þau
áhrif aö leikbann umrædds leik-
manns hafi tekiö gildi, þrátt fyrir
aö móttakandi haldi því fram, aó
skeytiö hafi aldrei borizt honum.
Ákvæöi í lögum og reglum
íþróttahreyfingarinnar, sem fela
þaó i sér aö mál séu tekin undan
hinni almennu dómstólameöferö
og fengin sérstökum úrskuröaraö-
ilum ber aó túlka þröngt. Þau mál-
efni sem fengin eru aganefndinni
samkvæmt starfsreglum hennar
eru nánast aö formbinda tilgreind
viöurlög, sem ákveöin eru viö brot-
um, þar sem staöreyndir eru Ijósar
og óumdeildar sbr. upphafs-
ákvæöi 2. gr. starfsreglna aga-
nefndar KSÍ. Engan veginn er hins
vegar sjálfgefiö aö aganefndin eigi
úrskuröarvald ef deilt er um staö-
reyndir eöa lagaatriöi, sem teljast
vera forsendur fyrir því aö viöur-
lögum sé beitt.
I máli því sem aganefnd úr-
skurðaói 28. mai 1985 og hér er
deilt um var ágreiningur um þaö,
hvort skeyti meö tilkynningu um
leikbann tiltekins leikmanns heföi
þorizt áfrýjanda með þeim hætti,
KR, Fram og Þróttur N.
Þetta er í annaö sinn sem Polla-
mót Eimskips og KSÍ, hiö óopin-
bera Islandsmót 6. flokks í knatt-
spyrnu, er haldiö. Allir þátttakend-
ur í mótinu fá viðurkenningarskjal
með Ijósmynd af liöi sinu og í úr-
slitunum er keppt um farand- og
eignarbikara í A- og B-liöunum,
gull-, silfur- og bronsverölauna-
peninga í A- og B-liöum auk þess
aö leikbann tæki gildi sbr. 2. gr., 2.
mgr. starfsreglna aganefndar KSÍ.
Varöar máliö sþurninguna um,
hvort leikbann telst nægilega til-
kynnt ef skeyti er sent af stað,
jafnvel þó þaö berizt aldrei til við-
takanda. Ágreiningurinn var því í
reynd um, hvort notaöur heföi ver-
ió í leik KR og Þróttar 13. maí leik-
maöur í leikbanni skv. 6. gr. 8 tl. i
starfsreglum aganefndar KSf.
Veröur ekki taliö, aö nokkurn tíma
hafi verið ætlunin aö fela aga-
nefndinni úrskuröarvald um slíkan
ágreining, enda væri þá veriö aö
taka undan hinni almennu dóm-
stólameðferð ágreiningsmál um
dæmigeröa réttarágreining varö-
andi framkvæmd knattspyrnu-
leikja og fela aganefndinni fullnaö-
arúrskuröarvald um hann. Heföi
ætlunin veriö aö fela nefndinni slíkt
vald, hefði þaö þurft að koma
ótvírætt fram í starfsreglum nefnd-
arinnar.
Meö hliösjón af framansögöu og
meö vísan til fordæmis í dómi
dómstóls KSl frá 26. ágúst 1980 í
málinu nr. 2/1980 er óhjákvæmi-
legt aö taka kröfu áfrýjanda til
greina og fella ur gildi úrskurö
aganefndar KSl frá 28. maí sl. um
aö leikur KR og Þróttar í 1. deild
13. maí 1985 skuli vera tapaður
KR meö markatölunni 0:3 auk
þess sem KR var gert aö greiöa kr.
50.000.- í sekt til KSl.
DÓMSORD:
Fyrrgreindur úrskuröur aga-
nefndar KSl frá 28. maí 1985 er úr
gildi felldur.
Jón Steinar
Gunnlaugsson (sign ),
Hafsteinn Guðmundsson (sign.)
SÉRATKVÆÐI JÓNS
GUNNARSZOÉGA
Fallist er á niöurstööu meirihluta
dómsins varöandi heimvísunar-
kröfu knattspyrnufélagsins Þrótt-
ar, aö túlka megi dóm sérráós-
dómstóls KRR þannig, aö hann
telji aganefndina hafa skort vald til
aö kveöa upp úrskurö sinn, og
þannig felst í hinum áfrýjaöa dómi
afstaöa tif dómkröfu áfrýjanda.
Aganefnd KSÍ eru fengin sér-
stök verkefni sem sett eru í sór-
stakri reglugerð fyrir hana, starfs-
reglur aganefndar KSÍ.
Skv. 3. gr. starfsreglna aga-
nefndar KSÍ sbr. og 6. gr. 8. tl.,
skal aganefnd KSl fjalla um þau
mál þar sem félag notar leikmann í
leikbanni. Ekkert hefur komiö fram
í máli þessu um aó aganefnd KSí
hafi fariö út fyrir starfsviö sitt eöa
aö nefndin hafi ekki gætt réttra
aöferöa vió niöurstööu sína frá 28.
maí 1985, jsegar hún úrskuröar aö
leikur KR og Þróttar í 1. deild 13.
maí 1985 skuli tapaöur KR meö
markatölunni 0:3.
Úrskuröur aganefndar er því
gildur.
Dómsorö úrskuröar aganefndar
KSí frá 28. maí 1985 er gildur.
Jón Gunnar Zoega (sign.)“
sem besti varnarmaöurinn, besti
markmaöurinn og markahæsti
leikmaöurinn fá sérstök verölaun,
bæöi í A- og B-liöakeppninni.
Urslitakeppnin hefst kl. 13 í dag
á KA-vellinum. I dag veröa leiknar
tvær umferðir. Á morgun veröur
síöan haldiö áfram kl. 10 og leikn-
ar þrjár umferðir. Verölaunafhend-
ing fer fram strax aö mótinu loknu.
Úrslit Pollamótsins á
Akureyri um helgina