Morgunblaðið - 31.08.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
7
Jón Reykdal við eitt verka sinna.
Morgunbladid/Júlíus
Meginstefið byggt
á hughrifum
— segir Jón Reykdal, sem opnar stærstu einka-
sýningu sína til þessa á Kjarvalsstöðum í dag
„Meginstefið í þessum myndum
er landslag, ekki frá neinum sér-
stökum stöóum sem fólk getur
þekkt sig á, heldur aðallega byggt
á hughrifum," sagði Jón Reykdal
listmálari, er blaðamaður átti við
hann stutt spjall á Kjarvalsstöðum
á dögunum. Þar var Jón að leggja
síðustu hönd á að setja upp stærstu
einkasýningu sína til þessa, en hún
verður opnuð í dag, laugardag,
kl. 14.
„Ég sýni sextíu og fjögur verk,
unnin í olíu og þurrkrít á síðustu
tveimur árum. Þessar myndir
eru unnar á vinnustofu minni en
áhrifin eru að sjálfsögðu úr ýms-
um áttum. Á svona sýningu lítur
maður um öxl.“
Síðasta einkasýning Jóns var í
Norræna húsinu og á henni voru
bæði grafíkmyndir og málverk.
„Það er ágætt að hvíla sig á
grafíkinni um tíma,“ sagði Jón.
„Ég hef fengist mest við grafík-
ina síðustu árin, en í grafíkinni
er bara hægt að vinna örfá verk
á ári og langt frá því að manni
takist að útfæra allar hugmynd-
irnar sem fæðast. í málverkinu
getur maður unnið hraðar og
það hefur verið skemmtileg til-
breyting að fást við það.“
Ragnar Kjartansson við eitt verka sinna.
Ragnar Kjartansson sýnir í Ólafsvíh
RAGNAR Kjartansson myndhöggv-
ari heldur nú um þessar mundir sýn-
ingu á vatnslitamyndum á Kaldalæk
í Olafsvík.
Nokkrar konur í plássinu hafa
komið upp kaffihúsi með þessu
nnfni á sióntnnnnfTnrAint'nt Lnr
er þetta þriðja sýningin sem þar
er haldin í sumar. Þetta er jafn-
framt þriðja sýningin sem haldin
hefur verið á ólafsvík.
20 myndir eru á sýningunni sem
var opnuð um síðustu helgi. Hún
stendur yfir næstu tvær vikur í
t'iAhót
Ertu harðhaus?
/
cm
Volvo 340 87
Colt 88
_Cherry 89
_Lancer 89
__ Golf 93
Corolla 93
í sumum bílum getur þtfc
þurft á því að halda!
Rými er mjög misjafnt í bílum, jafnvel þó þeir eigi að heita af svipaðri staerð.
Mikilsvert atriði er að nóg höfuðrými sé í aftursæti fyrir fullvaxta fólk.en á það
vill skorta í sumum gerðum bíla. Berum saman tölur um höfuðrými í
nokkrum tegundum áþekkra bíla:
.
Höfuðrými í aftursaeti
MAZDA 323 Sedan 4 dyra Volkswagen Golf 3 dyra Datsun Cherry 5 dyra Toyota Corolla 5 dyra Volvo 340 5 dyra Mitsubishi Lancer 4 dyra Mitsubishi Colt 5 dyra 94 cm 93 — 89 — 93 — 87 — 89 — 88 —
MAZDA 323
Hatchback 1300 LX 3 dyra. Verð 369.000
Þarna sést svart á hvítu að hinn nýi
MAZDA 323 er rúmbestur allra þessara bíla,
þannig að vel fer líka um þá hávöxnu.
Forðastu því hausverk, berðu ekki bara saman
bæklingana þegar þú velur bíl, komdu, mátaðu
og reynsluaktu MAZDA 323. Verðið mun
koma þér þægilega á óvart, það setur þig svo
sannarlega ekki á hausinn.
MEST FYRIR PENINGANA
BILABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99
.. _. |Rorfinnl»Tní»i5>
't*4>----
Gódan daginn!