Morgunblaðið - 31.08.1985, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 31. ÁGCST 1985
11
Stjórnendur FS f vetur, frá vinstri: Sturlaugur ólafsson, aðstoóarskólameist-
ari, Ægir Sigurðsson, áfangastjóri, og Hjálmar Árnason, skólameistari.
MorgunblaAið/Eiiur Fniur
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Aldrei hafa fleiri
sótt um nám við
skólann en í vetur
KeflaTÍk 29. ágúst:
„VIÐ GERUM ráö fyrir aö á annað Jþúsund manns sæki kennslu
viö skólann í vetur,“ sagði Hjálmar Arnason, nýsettur skólameist-
ari viö Fjölbrautaskóla Suöurnesja. Einnig hefur Sturlaugur Ólafs-
son verið settur aðstoöarskólameistari til áramóta í veikindafor-
föllum Ingólfs Halldórssonar. Þaö mun eflaust mæöa mikið á
þessum nýju stjórnendum í vetur, því að aldrei hafa jafnmargir
sótt um nám viö skólann og nú. Kennsluhúsnæðið er fyrir löngu
orðið allt of lítið til aö anna allri þessari kennslu og í vetur
verður kennt á 7 stöðum víðsvegar í Keflavík.
í samtali við Hjálmar kom fram
að það sækja fleiri um nám f
dagskólanum en nokkru sinni áð-
ur, eða um 550 manns með flug-
liðabrautinni, en FS er eini skólinn
á landinu sem starfrækir flugliða-
braut. „í öldungadeildinni verða
um 225 nemendur og sýnist mér
að hin mikla aukning sem var þar
í fyrra ætli að halda sér. I meist-
araskóla verða 14, í réttindanámi
vélstjóra 20 og í réttindanámi
skipstjóra verða einnig um 20, er
þetta í fyrsta skipti sem það stend-
ur til boða. Við höldum áfram með
mjög merkilegt nám sem við byrj-
uðum með í fyrra, en það er starfs-
nám í nánum tengslum við fulltrúa
atvinnulifsins. Þetta eru einskonar
endurmenntunarnámskeið og við
gerum ráð fyrir að um 200 manns
sæki þau. Ennfremur verðum við
með allskyns námsflokka, allt frá
fyrirlestrum á einu kvöldi og upp
í nokkurra vikna námskeið," sagði
Hjálmar.
„1 heildina gerir þetta á annað
þúsund nemendur og er það mikil
aukning. Vandamálið er bara það
að húsnæði skólans er löngu
sprungið. í vetur kennum við á sjö
stöðum víðsvegar í bænum, svo að
sjá má að mjög brýnt er að hafist
verði handa við nýbyggingu hér
við skólann."
Fjölbrautaskóli Suðurnesja hef-
ur lagt mikla áherslu á það nú
undanfarið að efla hlut iðnkennsl-
unnar og hefur meðal annars verið
útbúinn bæklingur um möguleika
í verknámi við skólann. „Miðað við
þarfir atvinnulífsins er brýnasta
verkefnið að rífa upp iðnfræðsl-
una, enda æpir vinnumarkaðurinn
á fólk í ákveðnum greinum, t.d. í
málmiðnaði," sagði Hjálmar.
„Meðal annars með það i huga að
styrkja hlut iðngreinanna í skólan-
um var Sturlaugur ólafsson, tré-
smiður með kennararéttindi, ráð-
inn aðstoðarskólameistari til ára-
móta í veikindaforföllum Ingólfs
Halldórssonar."
Vetrarstarf FS hefst næstkom-
andi mánudag og fá nemendur þá
afhentar stundatöflur komandi
haustannar.
-EFI.
Fyrirspurn til Markús-
ar Arnar Antonsson-
ar útvarpsstjóra
Hr. útvarpsstjóri.
í viðtali sem Morgunblaðið átti
við Ingva Hrafn Jónsson 25.8.
sl., eru eftirfarandi orð höfð eftir
honum. „Ég hugsa, að Markús
örn hefði ekki ráðið mig, ef ég
hefði verið kommúnisti“. Þessi
orð hins nýskipaða fréttastjóra
verða ekki skilin öðruvísi en að
hann álíti, að þú látir stjórn-
málaskoðanir manna ráða úrslit-
um, er þú ræður menn til starfa
við Ríkisútvarpið. Vil ég nú fara
þess á leit við þig, að þú annað-
hvort staðfestir ellegar berir af
þér þessar getsakir fréttastjór-
ans opinberlega. Eigi áburður
hans við rök að styðjast, vil ég
og biðja þig að skýra almenningi
frá því, hvort sömu sjónarmið
ráða úrslitum er þú (eða deildar-
stjórar Ríkisútvarpsins) ráðið
menn til annarra starfa við
Ríkisútvarpið, og einnig frá því
með hvaða hætti þú aflar þér
upplýsinga um stjórnmálaskoð-
anir umsækjenda og/eða þeirra
sem ráðnir eru til einstakra
verkefna í útvarpi eða sjónvarpi.
Þakka blaðinu birtingu og út-
varpsstjóra væntanleg svör.
Virðingarfyllst,
Bríet Héðinsdóttir.
NYTT FRA MITSUBISHI!
n
Vr Á
m
íT'íb'l. LÍ
-
TREDiA 4WD
Argerd '86
Bíllinn, sem alla hefur dreymt um
Veröur kynntur í byrjun september
► Tregðumismunadrif ► Aflstýri
► 14 'felgur ► Rafstýrðir útispeglar
► Miðstýrðar hurðalæsingar
► og margt fleira
BÍLARNIR, SEM SELJAST MEST,*
ERU FRÁ MITSUBISHI.
Askriftcirsíminn er 83033
Verö frá kr. 577.000.-
PRISMA