Morgunblaðið - 31.08.1985, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
HVAÐ UNGUR NEMUR, GAMALL TEMUR
„Máluppeldi er
einn mikilvægasti
þáttur uppeldis“
— rætt viö Guðmund B. Kristmundsson, námsstjóra
Morgunblaftií/Emilla
Fjölmennt hefur verið á námskeiðunum. Hér má sjá þátttakendur á námskeiði um myndmennt í almennri byrjenda-
kennslu. Sigríður Jónsdóttir myndmenntakennari var verkstjóri.
„Fullt út úr dyrum
í hvert skipti“
— segir Jón Guðmundsson, forstöðumaður kennslumiðstöðvar-
innar um dagskrána „Hvað ungur nemur, gamall temur“.
„Það er mjög vaxandi áhugi með-
al kennara á þeim þáttum sem að-
stoða börn við nám. Einn mikilvæg-
asti þátturinn er kennsla móður-
málsins," sagði Guðmundur B.
Kristmundsson, námstjóri, í samtali
við blm. Mbl. en Guðmundur er leið-
beinandi á námskeiði í dag sem
hann nefnir „Samþætting móður-
málsnáms og annars náms“.
„Þetta er stutt námskeið sem
skiptist í tvennt, annars vegar er-
indi um móðurmálið og hvernig
það kemur fram í hverri einustu
námsgrein. Hins vegar kynni ég
verkefni þar sem sýnt er fram á
hvernig málið tengist öllum grein-
um og hvað við getum gert til að
leiðbeina börnum í kennslunni.
Grundvöllur þessa er sú skoðun
mín að kennsla móðurmáls sé
Morgunblaðið/Þorkell
Guðmundur B. Kristmundsson,
námsstjóri
tvenns konar, annars vegar er það
kennt sem sérstök námsgrein, til
dæmis bókmenntir, stafsetning,
málfræði, hins vegar er það
grundvallarþáttur sem tengist
öllu námi. Þar er til dæmis átt við
talað mál, lestur og ritun. Mikil-
vægt er að menn reyni að styrkja
þann þátt og nýti sér mátt móð-
urmálsins í allri kennslu. Sú skoð-
un að allir kennarar séu móður-
málskennarar er hárrétt. En það
er ekki nóg að segja það. Menn
verða að átta sig á því hvernig það
kemur inn í allt nám og nemendur
verða að læra að nota málið til að
tjá sig og koma skipan á hugsun
sína.“
Getur þú nefnt dæmi um það
hvernig hægt er að leggja verkefni
fyrir sem tengja saman móðurmál
og önnur viðfangsefni?
„Það er hægt að nefna mjög
mörg verkefni sem tengja saman
þetta tvennt. Eitt er hægt að taka
um bókasöfn sem víða skortir í
skólum eða eru mjög fátæklega
búin. Það er nauðsynlegt að hvetja
börn til þess að lesa og því er hægt
að „búa til“ bókasafn í bekknum. í
25 manna bekk er verið að lesa
mjög margar bækur. Hægt er að
búa til miða fyrir hverja bók sem
lesin er, eiginlega kjöl hverrar
bókar. Þannig má skapa mjög líf-
lega umræðu meðal barnanna um
lestur og getur það haft í för með
sér að lestur verður mun frjórri og
öflugri í bekknum en ella. Þegar
„safnið“ er orðið nokkuð stórt er
hægt að fara að athuga hvernig
hægt er að raða bókunum upp og á
þann hátt má kenna börnunum
svolítið um bókasöfn þó svo þau
séu ekki til staðar i skólanum.
Þetta er áhrifarík leið til að hvetja
börn til að lesa.
Annað dæmi um verkefni er
umferðarfræðsla, en það er hægt
að vinna með það viðfangsefni á
margan máta. Láta börnin lesa
bæklinga um umferðina sem er
annars konar texti en þau fást
venjulega við í skólanum. Það er
hægt að búa til dæmi um það sem
getur gerst í umferðinni og skapa
persónur sem lenda í ýmsum
ævintýrum í umferðinni o.s.frv.
Mikilvægast er þegar börn eru
að læra eitthvað nýtt, læra ný
hugtök, að við byggjum á þeirri
þekkingu sem þau þegar hafa. í 20
barna bekk er saman komin mikil
þekking og reynsla. Sú þekking er
annars konar en kennarans sjálfs.
Þessa þekkingu verður kennarinn
að viðurkenna og á henni verður
hann að byggja?
Minn draumur er sá að á hverri
kennarastofu fari fram lifandi
umræða um málstefnu og hvernig
hún verði best rekin í öllu skóla-
starfinu. í þeirri umræðu eru allir
kennarar jafnir og bera jafn mikla
ábyrgð. Máluppeldi er einn mikil-
vægasti þáttur uppeldis og það
getur haft alvarlegar afleiðingar
fyrir börnin ef það mistekst.
„Þessi dagskrá hefur slegið nýtt
aðsóknarmet hjá okkur og hefur ver-
ið fullt út úr dyrum í hvert skipti,“
sagði Jón Guðmundsson, forstöðu-
maður Kennslumiöstöðvarinnar,
þegar blm. Mbl. spurði hann hvernig
dagskráin um byrjendakennslu
„Hvað ungur nemur gamall temur“
befði gengið. „Á dagskránni hafa
bæði verið fyrirlestrar og námskeið
og hefur jafn mikill áhugi verið á
hvoru tveggja. Það hefur oft áður
komið í Ijós þegar námskeið hafa
verið um byrjendakennslu að kenn-
arar þess aldurshóps eru sérstaklega
áhugasamir. Ég er viss um að gildi
dagskrár sem þessarar er ótvírætt."
Ekki hægt art merkja neina
deyfð meðal kennara
Nú hefur starf kennara verið
mikið til umræðu, bæði launamál
þeirra og mat á starfinu, talað um
kennaraskort. Hefur hún ekki haft
nein áhrif?
„Með tilliti til þeirrar umræðu
sem verið hefur undanfarið, kem-
ur þessi mikla aðsókn og áhugi
nokkuð á óvart, og er á engan hátt
hægt að segja að við merkjum
neina deyfð meðal kennara."
í hverju felst hlutverk Kennslu-
miðstöðvarinnar?
„Kennslumiðstöðin er opin allt
árið um kring og fyrir utan nám-
skeið og fyrirlestra er hér mjög
öflugt og líflegt starf. Hér er mjög
gott gagnasafn fyrir kennara,
bæði sýnishorn af öllu námsefni
sem kennt er og fjölbreytt úrval
hjálpargagna. Kennarar geta und-
irbúið sig hér fyrir kennslu, búið
til bækur, kennsluspjöld og ann-
ars konar kennsluefni. Húsnæðið
hefur verið notað sem samkomu-
staður kennara, og sfðast en ekki
síst höfum við verið með útgáfu á
fjölrituðu kennsluefni eftir kenn-
ara, en ritröðin kallast Úr hug-
myndabankanum.
Aðsóknin í Kennslumiðstöðina
hefur verið mjög mikil undanfarið
ár og má segja að hún fari stöðugt
vaxandi."
Eru einhver námskeið á döfinni
hjá Kennslumiðstöðinni?
„í september verður . hér
dagskrá sem við nefnum „Stelp-
urnar og strákarnir í skólanum"
sem mun fjalla um jafnrétti í
grunnskólanum frá sem flestum
sjónarhornum. í nóvember mun
svo verða dagskrá um Heilsuupp-
eldi, um þær spurningar hvernig
hægt er að þroska einstaklinginn
líkamlega og stuðla að heilbrigði í
skólanum. Þessar dagskrár verða
hvor um sig í vikutíma og standa
yfir seinni hluta dags og á kvöld-
in.“
jHeáóur
á morgun
Lúk. 10.:
Miskunnsami Samverjinn.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00
í kapellu Háskólans. Dómkórinn
syngur. Organleikari Marteinn H.
Friöriksson. Sr. Þórir Stephen-
sen.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guös-
þjónusta í safnaöarheimili Ár-
bæjarsóknar kl. 11.00 árdegis.
Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guömundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Sameiginleg messa
4 Ás- og Laugarnessókn í Áskirkju
kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
annast messugjöröina. Organisti
Þröstur Erlendsson. Sóknar-
prestur.
BREIÐHOLTSPREST AK ALL:
Guösþjónusta kl. 11.00 í Breiö-
holtsskóla. Organisti Daníel Jón-
asson. Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guösþjón-
usta kl. 10.00. Sr. Hreinn Hjartar-
son messar. Organleikari Guöni
Þ. Guömundsson. Ath. sumartím-
ann. Sóknarnefndin.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guösþjónusta kl. 11.00. Organisti
Magnús Jónsson. Sr. Hreinn
Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guösþjón-
usta kr. 11.00. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son. Þriöjudag: Fyrirbænaguös-
þjónustakl. 10.30.
LANDSPÍTALINN: Guðsþjónusta
kl. 10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Arngrímur Jónsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón-
usta kl. 11.00. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guös-
þjónusta kl. 11.00. Prestur sr.
Siguröur Haukur Guöjónsson.
Organisti Jón Stefánsson. Sókn-
arnefndin.
LAUGARNESKIRKJA Laugardag
31. ágúst: Guösþjónusta í Hátúni
10b 9. hæð kl. 11.00. Sunnudag
I. sept.: Sameiginleg messa í Ás-
og Laugarnessóknum í Áskirkju
kl. 11.00. Þriöjudag 3. sept.:
Bænaguösþjónusta kl. 18.00.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guösþjónusta kl.
II. 00. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Miövikudag 4. sept.
fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Guömundur Óskar Ólafsson.
DÓMKIRKJA Krists Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl.
14. Rúmhelga daga er lágmessa
kl. 18 nema á laugardögum, þá kl.
14.
MARÍUKIRKJA Breiöholti: Há-
messa kl. 11. Lágmessa mánu-
dag-föstudagkl. 18.
KFUM ft KFUK, Amtmannsstíg:
Almenn samkoma kl. 20.30.
Ástríöur Haraldsdóttir talar.
Barnastund veröur í öörum sal
seinni hlutasamkomunnar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Útisam-
koma á Lækjartorgi kl. 16. Hjálp-
ræðissamkoma kl.20.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelf-
ía: Almenn guösþjónusta kl. 20.
LÁGAFELLSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. BirgirÁsgeirsson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Helgi
Bragason.
KAPELLAN St. JÓsefsspítala:
Hámessa kl. 10. Rúmhelga daga
messakl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl.8.
KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl.
14.Sóknarprestur.
GARÐAKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Örn Báröur Jónsson messar.
Organisti Þorv. Björnsson. Sókn-
arprestur.
KOTSTRANDARKIRKJA: kl. 14.
Sr. Tómas Guömundsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa
kl. H.Sr.TómasGuömundsson.
RE YNIV ALLAPREST AK ALL:
Messaö í Brautarholtskirkju, Kjal-
arnesl, kl. 17. Sr. Gunnar Krist-
jánsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 14.
Sr. Björn Jónsson.
BÆJARKIRKJA Borgarfirói:
Messa sunnudag kl. 14. Ferming:
Fermdur veröur Siguröur Ólafs-
son, Bæ. Sóknarprestur.
Kylfan
eða
konan
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Stjörnubíó: í blíðu og stríðu - The
Slugger’s Wife.
Bandarísk. Árgerð 1985. Handrit:
Neil Simon. Leikstjóri: Hal Ashby.
Aðalhlutverk: Michael O’Keefe,
Rebecca De Mornay, Martin Ritt,
Randy Quaid, Loudon Wainwright
III:
Eitt stykki rómantísk gaman-
mynd fyrir unga fólkið. Þessa
pöntun virðist Neil Simon, einn
afkastamesti og stundum snjall-
asti gamanleikjahöfundur
bandaríkjanna, hafa fengið frá