Morgunblaðið - 31.08.1985, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUOARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
43
ClifT Richard. Sannkristinn mað-
ur, að sögn bréfritara.
Svíar og
Norðmenn
eru
hræsnarar
Reiður maður skrifar:
Kæri Velvakandi.
Þar kom loks að því að mér
ofbauð slepjan, hræsnin og
tvískinnungurinn í „frændum
vorum" Svíum, — og skinhelgi
Norðmanna ríður ekki við ein-
teyming þegar sá gállinn er á
þeim. Það nýjasta er fádæma
ókurteisi og drambsöm fram-
koma við frábæra listamenn á
borð við Cliff Richard og Shirl-
ey Bassey. Þau Richard og
Bassey eru bæði sannkristið
fólk. Þau hafa sungið sig inn í
hjörtu gervalls heimsins og eru
óumdeilanleg meðal helstu
listamanna popp- og alþýðu-
tónlistar í veröldinni. Og svo
þykjast peð á borð við Norð-
menn, Svía og Finna hafa á því
efni að setja sig á háan hest við
þetta fólk. Ástæðan er sú að
Richard og Bassey hafa sungið
í Suður-Afríku! Líkiega vilja
„frændur vorir“ ekki skilja að
tónlistin er það mál sem allir
skilja, hvort sem þeir tala ný-
norsku eða swahili, og þegar
Cliff Richard og Shirley Bass-
ey syngja fyrir hvíta sem
svarta í Suður-Afríku láta þau
einskis ófreistað til þess að
minna á málstað minnihluta-
hópanna þar. Bæði eru þau
andstæðingar aðskilnaðar-
stefnunnar (Bassey er reyndar
svört og á ættingja í Suður-
Afríku) og nota alheimsmálið
tónlist til þess að koma skoð-
unum sínum og málstað á
framfæri við hvíta sem svarta.
Hvergi nokkurs staðar við-
gengst meira trúarofstæki en í
Noregssveitum og slepjan í
Svíum er löngu heimskunn.
Það er undarlegt að þjóðir sem
þykjast svo kristnar að upplagi
að þær hafi efni á að dæma
aðrar, skuli standa í vegi fyrir
því að boðskapur Krists komist
til skila til allra manna í
syðsta hluta Afríku, hvítra
sem svartra.
Vel á minnst. Hvenær hafa
Norðmenn hugsað sér að hætta
að selja Suður-Afríkumönnum
olíu á laun? Verður það
kannski um svipað leyti og Svf-
ar hætta að selja þeim vopn
gegnum „hlutlausa" milliliði?
Guð bjargar þessu
J.H. skrifar:
Það hefur mikið verið talað um
friðarmál nú á undanförnum mán-
uðum, fundahöld og hver ráðstefn-
an eftir aðra, og nú á að halda
námskeið í friðarfræðslu. En það
sem einkennir þessi mál mest, er,
að það eru aðallega vinstrimenn
sem standa fyrir þessu brölti. Það
minnir okkur líka á hvaðan línan
er gefin og hversvegna þeir eru að
þessu. Jú, auðvitað til þess að
draga sem mest úr mætti vest-
rænna þjóða til að geta varist
áhlaupi að austan. En sem betur
fer, þá fáum við engu að ráða um
gang heimsmálanna, ekki frekar
en um gang himintunglana, allt er
þetta ákveðið fyrirfram fyrir
okkur. Fyrsta bænin í faðirvorinu
sem drottinn kenndi okkur er: „Til
komi þitt ríki“, en til þess að þetta
megi verða, þarf heimurinn að
breytast mikið, enda hefur hann
breyst mikið á síðustu árum, það
er ekki lengra en mannsævi síðan
fyrstu vélarnar voru búnar til, og
nú er hægt að fljúga — ekki ein-
göngu á milli heimsálfa á svip-
stundu heldur líka til annarra
hnatta, þess vegna nálgumst við
óðfluga Harmageddon sem bíblían
segir okkur frá, þegar kraftar
himnanna munu bifa, sem sagt
frumefnin munu leysast upp í
ógurlegum eldi.
Ummæli Ezekiels spámanns:
„Þá munt þú (Gog, þ.e. Rússa-
veldi) brjótast fram sem þrumu-
veður, koma sem óverðursský til
þess að hylja landið“ benda ótví-
rætt til þess að reynd verði stór-
kostleg loftárás, vafalaust með
atómsprengjum, en Guð mun
brjóta þær gersamlega á bak aftur
með því að leysa náttúruöflin úr
læðingi enn frekar en orðið er, „Og
ég vil ganga í dóm við hann (þ.e.
Gog) með drepsótt og blóðsúthell-
ing, með dynjandi steypiregni og
haglsteinum, eldi og brennisteini
vil ég rigna láta yfir hann og yfir
margar þjóðir, sem með honum
eru. Og ég vil auglýsa mig dýrleg-
an og heilagan og gjöra mig kunn-
an í augsýn margra þjóða, til þess
að þær viðurkenni að ég er Jahve.“
Hinir guðlegu spádómar gefa til
kynna, að þriðju heimsstyrjöld-
inni muni verða ráðið til lykta
mjög skyndilega, og að fyrir guð-
lega meðalgöngu muni hún verða
„kyrkt í fæðingunni", því að öðr-
um kosti mundi hinum stóru þjóð-
um heimsins verða gjöreytt, þetta
minnir mann á spádóm Jesú, „því
þá mun verða svo mikil sprenging,
að engin hefur þvílík verið frá
upphafi heims allt til þessa, né
heldur mun verða. Og ef dagar
þessir yrðu ekki styttir, kæmist
enginn maður af, en sakir hinna
útvöldu munu þessir dagar verða
styttir."
Svo stórfengleg mun verða
framkoma eða birting hins guð-
lega máttar, að þjóðir jarðarinnar
munu verða forviða og skilja að í
sannleika er það máttur hins al-
máttka sem gegnum lausn og
frelsun ísraels er að framkvæma
frelsun sjálfra þeirra, eins og sagt
er fyrir í spádómsbók Ezekiels, 39.
kap. 21—22: „Og ég vil auglýsa
dýrð mína meðal þjóðanna og all-
ar þjóðir skulu sjá refsidóm minn,
þann er ég hef framkvæmt, og
hönd mína, er ég hef á þá lagt. En
ísraelsmenn skulu viðurkenna að
ég, Jahve, er Guð þeirra, upp frá
þeim degi og framvegis."
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Hve margir greiða
of háan toll?
Lárus Rúnar Ástvaldsson skrifar:
Um daginn fékk ég sendar
myndir frá Svíþjóð sem ég hafði
látið stækka fyrir mig þar. Eins og
við mátti búast komst tollurinn
með klærnar í sendinguna.
Ég fór á pósthúsið í Keflavík til
þess að leysa myndirnar út og
fékk þar skjóta og góða þjónustu,
þurfti ekki að bíða nema í hálf-
tíma meðan verið var að reikna út
tollinn. Ég þurfti að greiða 450
krónur fyrir myndirnar. Því brá
mér nokkuð þegar mér var sagt að
ég þyrfti að greiða 1707 krónur í
toll.
Ég sagði við stúlkuna sem af-
greiddi að þetta hlyti að vera
öfugt, 1707 kr. fyrir myndirnar og
450 krónur í toll, eitthvað hlyti að
minnsta kosti að hafa ruglast. Fór
hún því innfyrir aftur til að at-
huga málið. Eftir nokkra stund
kom hún fram aftur og kvað þá
uppúr með það að myndirnar kost-
uðu 450 krónur eins og upp var
gefið, hinsvegar væri tollurinn
ekki 1707 krónur heldur 252!
Þetta er örugglega ekki í fyrsta
sinn sem svona nokkuð gerist. Ef
ég hefði ekki verið eins blankur og
ég var, hefði ég sjálfsagt borgað
þegjandi og hljóðalaust það sem
upp var sett. Það er því eins gott
að treysta útreikningum tollar-
anna varlega.
Davíð kemur stórmannlega fram
Borgarbúi hringdi:
Mikið varð ég hrærð þegar ég
las í blöðunum hve stórmannlega
borgarstjórinn okkar brást við
þegar íbúar Teigahverfis kölluðu á
hann sér til fulltingis nú um dag-
inn. öllum vill þessi elskulegi
maður gott gera og fljótur að sjá
þá lausn á vandanum að allir geti
sætt sig við.
„Borgin bara kaupir húsið,"
sagði Davíð, „við getum örugglega
fundið einhver not fyrir það.“
Þetta kallar maður nú stór-
mennsku. Og hann gerir sér líka
grein fyrir hversu hrætt og ang-
istarfullt fólkið er vegna tilhugs-
unarinnar um það að utangarðs-
menn og fyrrverandi fangar eigi
að setjast að á meðal þess. Fólk
sem hefur unað sælt við sitt í frið-
sælu hverfi stendur nú allt í einu
frammi fyrir því að það á að
leggja veröld þess í rúst. Þetta
skilur borgarstjórinn, enda er
hann á þeirri skoðun að menn eigi
að hugsa um sjálfa sig og rækta
garðinn sinn, aðeins þannig megi
byggja upp réttlátt þjóðfélag. Það
er misskilin hugsjónamennska að
vilja hleypa svona fólki inn í mitt
íbúðahverfi og kann ekki góðri
lukku að stýra.
Ljósmynd E.G.
Haukur Ingi Hauksson Ijósmyndari og Sigurður Gunnarsson eigandi Hljóm-
vals.
Hraðframköllun í Keflavík
Vogum, 27. ágúst.
VERSLUNIN Hljómval í Keflavík
hefur aukið þjónustu við viðskipta-
vini sína, með því að hefja hrað-
framköllun á staðnum.
„Þetta virðist vera þróunin í
þessum málum," sagði Sigurður
Gunnarsson í Hljómval aðspurður
um ástæður þess að verslunin fór
út í þessa þjónustu. „Tæknin eykst
stöðugt, biðtíminn styttist og
framköllunin fer fram á staðnum.
Myndgæðin eru ekki síðri en fyrri
aðferð," sagði hann. Hjá Hljómval
eru notaðar Kodak-vörur við fram-
köllunina og unnið eftir stöðlum
frá Kodak. Sérstakur starfsmaður,
Haukur Ingi Hauksson, lærður
ljósmyndari, hefur verið ráðinn til
að hafa yfirumsjón með þessari
starfsemi.
Viðskiptavinir Hljómvals hafa
tekið þessu vel. „Fólk virðist fagna
þessu," sagði Sigurður að lokum.
E.G.
BILGREINASAMBANDIÐ
AÐALFUNDUR 1985
14. september
Aöalfundur Bílgreinasambandsins veröur haldinn laugar-
daginn 14. september nk. í Hótel Valaskjálf, Egilsstööum.
DAGSKRÁ:
Föstudagur 13. september
Komiö til Egilsstaöa.
Flug frá Reykjavík síödegis og frá Akur-
eyri kl. 10:00.
Laugardagur 14. september
Kl. 09:30—11:15 Sérgreinafundir.
Kl. 11:15—12:00 Niöurstööur sórgreinafunda.
Kl. 12:00—14:00 Hádegisveröur.
Hádegisveröarerindi: Sverrir Hermanns-
son, iönaöarráðherra.
Kl. 14:00—15:00 a) Samræmt skoðunarkerfi fyrir verk-
stæöi.
b) Viögeröarskýrsla.
c) Starfsreglur verkstæöa.
Kl. 15:30 Aðalfundur Bílgreinasambandsins
— Venjuleg aöalfundarstörf —
Kl. 19:30 Móttaka, kvöldverður og dansleikur í
Valaskjálf.
Sunnudagur 15. september.
Kl. 10:30 Skoöunarferö. Farið m.a. í Mjóafjörð.
Heimferö síðdegis sunnudag.
Stjórn BGS hvetur félaga aö mæta á fundínn á Egilsstöð-
um og tilkynna þátttöku til skrifstofu Bílgreinasam-
bandsins, Húsi verslunarinnar, 108 Reykjavík hiö fyrsta.
Stjórn
Bílgreinasambandsins.