Morgunblaðið - 15.09.1985, Side 22

Morgunblaðið - 15.09.1985, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985 AF INNLENDUM VETTVANGI FRÍÐA PROPPÉ Svavar fer einförum á meðan óánægja flokksmanna magnast — Af hinum „leiðinlega, ólýðræðislega og staðnaða kerfisflokki“ Alþýðubandalaginu og formanni þess Framtíð án fjötra var yfirskrift landsfundar 1983, en svo kaldhæðnis- legt sem það er, virðist formaðurinn hafa kosið að hneppa sjálfan sig og flokk sinn í eigin fjötra - fjötra einangrunar og gamalla drauga. Flokksmenn eru löngu saddir á sífelldri vöm forustumannanna á fyrri gjörðum, neyðaráætlunum og álstríðum. KRAUMANDI óánægja er meðal al- þýðubandalagsmanna og beinast nú öll spjót óánægjuaflanna að for- manninum, Svavari Gestssyni, sem farið hefur einforum. Deila menn m.a. hart á Svavar fyrir einræði og svo virðist sem hann hafi á skipuleg- an hátt síðustu misserin bitið af sér marga þá forustumenn flokksins, sem áður áttu með honum gott sam- starf. Framganga formannsins á framkvæmdastjórnarfundi sl. mánu- dag er talin gott dæmi um vinnu- brögð hins einræna formanns, en þar var tillögum hans, sem fundar- menn segja að hafi verið illa eða alls ekkert undirbúnar, hafnað og/eða breytt. Þá er mönnum tíðrætt um stefnuleysi flokksins og bágborna frammistöðu í stjórnarandstöðu, jafnt á landsmálavettvangi sem í borgarstjórn. Framundan eru stórir fundir innan Alþýöubandalagsins, miðstjórnarfundur í október og landsfundur í nóvember. Einn þing- manna Alþýðubandalagsins segir, að Svavar hafi látið að því liggja að hann ætlaði sér ekki í framboð til formanns á ný á landsfundinum, en menn telja minnkandi líkur á því að honum sé fært að gefa ekki kost á sér vegna ríkjandi ástands. A slfkt yrði iitið sem uppgjöf af hans hendi. Þá eru og raddir sem segja það flokknum lífsspursmál að fá nýjan formann, sem unnið geti með fiokksmönnum að því að rífa flokk- inn upp úr þeirri ládeyðu sem hann er kominn í. „Flokkurinn er leiðinlegur, ólýð- ræðislegur og staðnaður kerfis- flokkur, sem fyrst og fremst eyðir kröftum sínum í að verja það sem er eða það sem var. Sá flokkanna sem stendur einna dyggastan vörð um kerfið eins og það er, bendir ekki fram á veginn til nýrra möguleika eða nýrra framtíðar- vona. Hefur í augum flestra brugðist því að berjast fyrir bætt- um kjörum launafólks." Þessi lesning úr skýrslu svonefndrar mæðranefndar um stöðu Alþýðu- bandalagsins, sem kom fyrir al- menningssjónir i síðustu viku, er dæmigerð fyrir álit mjög margra alþýðubandalagsmanna á flokki sínum. Vandi flokksins virðist því tvíþættur, annars vegar for- mannskreppan og hins vegar stefnuleysið. Einn þingmanna flokksins segir enda að sú stað- reynd að ekki stefni í harðvítugar kjaradeilur á komandi mánuðum þýði að Alþýðubandalagið komi vopnlaust á þingi i haust — glæpnum hafi verið stolið af þeim með kjarasamningunum. Sterk öfl í gang gegn Sigurjóni Þó öll spjót séu á formanninum þá er ekki síður óánægja með for- ustusveitina í heild, sér í lagi þingmenn og borgarstjórnarfull- trúa. Kom m.a. fram í viðtölum við flokksmenn, að þegar eru sterk öfi farin að vinna gegn endurkjöri Sigurjóns Péturssonar efsta manns Alþýðubandalagsins i borgarstjórn, en hann virðist eiga litlum vinsældum að fagna hjá mörgum fiokksmönnum. Forustu- sveitinni er legið á hálsi fyrir marga hluti, aðra en þá að hafa brugðist launafólki, t.d. er hún sögð hafa brugðist gersamlega í andófi við nýju ratsjárstöðvarnar, algjört stefnuleysi ríki f sjávar- útvegsmálum og þingmönnum á landsbyggðinni er núið þvi um nasir að hafa brugðist því hlut- verki að halda fjármagni í heima- byggðum og stöðva fólksflótta til höfuðborgarinnar. Svavar og aðrir forustumenn hafa lagt mikið upp úr því undan- farið að Alþýðubandalagið sé verkalýðsflokkur og byggi á traustum samskiptum við verka- lýðshreyfinguna. Með þetta í huga hefur formaðurinn staðið klaufa- lega að samskiptum við verka- lýðsforingja fiokksins á stjórnar- ferli sínum. Hvað eftir annað hef- ur verið sparkað i helstu málsvara fiokksins innan verkalýðshreyf- ingarinnar af fiokksmönnum, án sjáanlegra afskipta formannsins. Lítur nú helst út fyrir að endan- lega hafi verið skorið á samvinnu þar í milli með kjöri hins nýja verkalýðsmálaráðs flokksins, sem að stærstum hluta er slitið úr tengslum við gömlu foringjana. Einn slíkur segir um Svavar, að honum sé vorkunn og Alþýðu- bandalagið sé undir hans stjórn ekki svipur hjá sjón frá því sem var þegar Lúðvík gegndi for- mennsku. Lúðvík hafi látið allt nöldur og óánægju lönd og leið og haldið sínu striki. Svavar aftur á móti taki þetta alltof nærri sér og bregðist rangt við. Sá hinn sami verkalýðsforingi segist telja bága stöðu flokksins skiljanlega i ljósi þess að núverandi ríkisstjórn sé sterk. Hún hafi unnið allt öðru vísi en flestar fyrri ríkisstjórnir, beinskeyttar, og hafi tekist það sem fyrri ríkisstjórnum hafi ekki tekist, þrátt fyrir að þær hafi reynt, þ.e. að ná fram breytingum á launakjörum. Stjórnarandstað- an sé veik og sundruð og því ekki annað en eðlilegt að stærsti stjórnarandstöðufiokkurinn fái bágt fyrir. Einræni formannsins stað- fest í framkvæmdastjórn Vinnubrögðum Svavars er rétti- lega vel lýst með framgöngu hans á framkvæmdastjórnarfundi flokksins sl. mánudag, eins og fiokksmönnum er tíðrætt um. Þar endurspeglast ennfremur sam- skiptaörðugleikar hans og Ólafs Ragnars Grímssonar formanns framkvæmdastjórnarinnar. ólaf- ur var mjög náinn samstarfsmað- ur Svavars allt fram að síðustu áramótum en nú ræðast þeir varla við. Á framkvæmdastjórnarfund- inum var unnið að undirbúningi miðstjórnarfundar í október nk. þar sem ræða á m.a. stöðu flokks- ins í ljósi mæðranefndarskýrsl- unnar og utanríkismál. Svavar gerði að tillögu sinni á fundinum, að hann sjálfur hefði framsögu um stöðu fiokksins. Guðrún Helgadóttir kom þá með tillögu um, að Rannveig Traustadóttir, einn mæðranefndarfulltrúinn, flytti ennfremur framsögu og var sú tillaga studd af Ólafi. Helgi Guðmundsson ritari fiokksins gerði þá að tillögu sinni, að Ólafur Ragnar flytti framsögu með Svav- ari í stað Rannveigar, en Ólafur sagði slíkt ekki koma til greina. Svavar gerði einnig að tillögu sinni á fundinum, að Ólafur Ragn- ar, Guðrún Helgadóttir og Hjör- leifur Guttormsson flyttu fram- sögu á miðstjórnarfundinum um utanrikismál. ólafur Ragnar af- bað þátttöku í slíkum ræðufiutn- ingi. Málum þessum var frestað til framkvæmdastjórnarfundar nk. mánudag og var fátt um kveðjur milli formannsins og fram- kvæmdastjórnarmanna er fundin- um lauk. Þá gerðist það ennfremur á fundinum, að Ólafur Ragnar gerði athugasemd við að Hjörleifur Guttormsson fyrrum iðnaðarráð- herra flytji ávarp á námstefnu fiokksins um nýja sókn í atvinnu- lífinu sem fram á að fara sunnu- daginn 22. september nk. Sagðist Ólafur telja nærveru Hjörleifs þar setja „pólitíska slagsíðu" á nám- stefnuna og krafðist upplýsinga um hver tekið hefði ákvörðun um þann ræðuflutning. Helgi Guð- mundsson og össur Skarphéðins- son, sem sæti áttu i undirbúnings- nefnd námstefnunnar sögðu þá ákvörðun ekki frá nefndinni komna. Svavar svaraði engu fyrir- spurn ólafs en Hjörleifur Gutt- ormsson sagði í viðtali við undir- ritaða, að hann muni flytja um- rædda ræðu á námstefnunni að ósk formannsins og framkvæmda- stjóra flokksins, Einars Karls Haraldssonar. Hjörleifur dæmi- gerður „gamall staðnaður kerfískarl“ Hjörleifur virðist eiga undir högg að sækja hjá mörgum flokks- mönnum og er hann talinn bezta dæmið um „gamla staðnaða kerf- iskarla" í forustusveitinni, sem eyði öllum tima sínum í að rétt- læta gjörðir sínar f iðnaðarráð- herratíð sinni i stað þess að lfta fram á veginn og skapa aðlaðandi stefnu. Viðmælendum er og tíð- rætt um einræni fiokksformanns- ins og einræðisleg vinnubrögð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.