Morgunblaðið - 15.09.1985, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
radauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
kennsla
Frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík
Píanónemendur í æf ingadeild.
Getum bætt viö nokkrum nemendum í 3.-5.
stigi) í æfingadeild píanókennaradeildar.-
Hálft skólagjald.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans.
Skólastjóri.
fundir — mannfagnaöir
Verkafólk
Rangárvallasýslu
Aöalfundur verkalýðsfélagsins Rangæings
veröur haldinn sunnudaginn 29. september
nk. í verkalýðshúsinu Hellu og hefst kl. 17. Á
dagskrá venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Nafnlausa búöin
heldur námskeiö í bútasaum og fatasaum.
Upplýsingar og innritun í búöinni í síma
651212og 84222.
SÍDUMÚLA 31
Fiskibátur
Til sölu er sem nýr 15 tonna plastbátur, cat-
erpilla aöalvél. Vel búinn siglingar- og fiskileit-
artækjum.
Upplýsingar í síma 29455.
Aðalfundur
Hjálms hf. Flateyri árið 1985 verður haldinn í
matsal fyrirtækisins sunnudaginn 22. sept.
nk.og hefstkl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnurmál.
Stjórnin
Kristilegt félag
heilbrigöisstétta
Fundur í Laugarneskirkju, mánudaginn 16.
september nk. kl. 20.30.
Thailandsfarar sjá um fundarefniö. Kaffiveit-
ingar.
Stjórnin.
Auglýst eftir framboðum
til kjörnefndar Fulltrúa-
ráös sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
Samkvæmt ákvöröun stjórnar Fulltrúaráös sjálfstæöisfélaganna f
Reykjavfk or hér moö auglýst oftir framboöum til kjörnefndar Fulltrúa-
ráös sjálfstæöisfélaganna f Reykjavfk.
Framboösfrestur rennur út mánudaginn 16. september kl. 17.00.
Samkvæmt 11. gr. reglugeröar fyrlr Fulltrúaráö sjálfstæöisfélaganna
í Reykjavfk eiga 15 manns sæti í kjörnefnd og skulu 8 kjörnefndarmenn
kosnlrskriflegrikosninguaffulltrúaréöinu:
Samkvæmt 5. málsgr. 11. gr. reglugeröarinnar telst framboö gilt, ef
þaö berst kosningastjórn fyrir lok framboösfrests, enda sé gerö um
það skrifleg tillaga af 5 fulltrúum hiö fæsta og ekki fleirl en 10 fulltrúum.
Frambjóöandi hafi skriflega gefið kost á sér til starfans. Tllkynning um
framboö berist stjórn Fulltrúaráös sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík,
Valhöll viö Háaleitisbraut.
Stiórn Fulltrúaráös sjálfstæöisfélaganna
iReykjavík.
Aðalfundur Bersa
Aöalfundur Bersa FUS, Vestur-Húnavatnssýslu, veröur haldinn í mötu-
neytisaöstööu VSP, miövikudaginn 18. september kl. 21.00.
Dagskrá:
I.Skýrslastjórnar.
2. Kjördæmaþing Noröurlandakjördæmis vestra.
3. Skipulagsmál.
4. Kosningar.
5. önnurmál.
Nýir félagar sem og aörlr hvattir til aö mæta.
Stjórnin.
Kveðjuorð:
Óskar Petersen
Fæddur 12. september 1917
Dáinn 29. ágúst 1985
Góður vinur er farinn. Einn
skæðasti vágestur mannkyns hef-
ur enn einu sinni fellt mann á
bezta aldri.
Óskar fæddist á ísafirði, sonur
Sigríðar Gísladóttur og Konráðs
Petersen, vélstjóra, norsks manns,
er lézt er Óskar var kornungur.
Óskar ólst upp hjá móðurforeldr-
um sínum, þeim Gísla Gíslasyni
og Kristínu Þórðardóttur, er
bjuggu að Héðinshöfða á ísafirði.
Ásamt óskari ólust upp hjá
ástríkum móðuforeldrum þau
Agnede Simson og Axel Schiöth —
Diddi eins og hann var kallaður —
þau voru öll systrabðrn.
Á milli þeirra allra var mikill
kærleikur, en Axel lézt árið 1973,
langt um aldur fram.
Yngst barna þeirra Kristínar og
Gísla var Ólafur og var hann 8
ára, er Óskar fæðist, hann
drukknaði á bezta aldri frá konu
og tveimur ungum drengjum.
Óskar tregaði mjög þennan
frænda sinn, sem var sem bezti
bróðir og átti hann erfitt með að
sætta sig við bróðurmissinn.
Þótt húsbændur að Héðinshöfða
hafi séð vel um sína, þá var Gísli
afi Óskars orðinn fullorðinn mað-
ur og því þurfti Óskar snemma að
taka þátt í lífsbaráttunni og létta
undir með heimilinu, en Óskar
hafði mikinn metnað að vera
sjálfstæður og öðrum óháður.
Á uppvaxtarárum óskars var
ísafjörður með helztu kaupstöðum
þessa lands, blómleg útgerð og
verzlun og menningarlíf stóð með
miklum blóma.
Óskar unni æskustöðvum sínum
og heimilinu að Héðinshöfða
mjög. Óskar var vel greindur, en
um langa skólagöngu var ekki að
ræða, enda ekki sami tíðarandi og
nú, sjálfsagt þótti, að hver og einn
ætti að bjarga sér sjálfur í harðri
lífsbaráttunni.
Óskar var dverghagur og nánast
sjálfmenntaður rafvirki, allt lék í
höndum hans. Hann kom sér upp
góðu verkstæði heima í bílskúrn-
um sínum og undi þar öllum
stundum við smíðar og ófáir eru
þeir gripir, er hann smíðaði og
nutu þeirra ekki aðeins hans nán-
ustu, heldur var hann einatt óbeð-
inn að lagfæra eða smiða fagra
hluti sem hann gaf á báða bóga.
Óskar var vel á sig kominn,
meðalmaöur á hæð, fríður sýnum
og geislandi af lífsþrótti allt til
hins síðasta.
Hann flutti til Reykjavíkur um
1940 og hóf fljótlega störf hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, fyrst
við línulagnir og síðustu árin við
innheimtustörf, Rafmv. Rvk. var
hans vinnuveitandi í 45 ár.
Hann giftist árið 1945 ungri og
glæsilegri stúlku ættaðri frá Vest-
mannaeyjum, Ingibjörgu Finns —
Ebbu eins og hún var nefnd dags-
daglega. Ebba missti móður sína
fárra daga gömul og var alin upp
hjá móðursystur sinni, Sigrúnu
Finnsdóttur, og manni hennar,
Stanley Guðmundssyni, einnig var
Ebba meira og minna hjá móður-
ömmu sinni, Ólöfu Þórðardóttur,
er bjó í Vestmannaeyjum.
Ungu hjónin hófu búskap hér í
Reykjavík, fyrstu árin bjuggu þau
á Fálkagötu, en fljótlega réðust
þau í það að reisa sér hús að
Sörlaskjóli 72 og var það ekki
áhlaupaverk á þeim tíma frekar
en nú, en með mikilli útsjónarsemi
og óþrjótandi vinnu tókst það og
húsakynnin bera þeim fagran
vitnisburð, snyrtimennska og
glæsiieiki utan dyra sem innan er
með einstökum hætti, enda bæði
samhent um að fegra umhverfi
sitt. Allt var vandað, hvort sem
það var lítil stytta, er keypt var
eða heilir veggir settir upp og
bæði höfðu þau fágaðan smekk.
Ég sem þessar línur rita var svo
lánsöm að fá leigöa ibúð hjá þeim
Óskari og Ebbu, árið 1956. Þá var
erfitt að fá leiguhúsnæði og naut
ég þá frændsemi við Ebbu, en við
erum systradætur.
Við hjónin vorum ung og búin
að eignast tvær dætur, er við
fluttum í risið að Sörlaskjóli 72.
Ég var hálfkvíðin, hvernig sam-
búðin mundi verða, við svona
skyldar og þau Óskar og Ebba að
mér fannst þá svo miklu eldri og
reyndari, ekki víst að í svona nánu
sambýli héldist sú vinátta er fyrir
var. Við fundum fljótt að við vor-
um velkomin og óþarfur var kvíði
minn, því við styrktum ekki aðeins
frændsemina heldur eignuðumst
við þá beztu vini, sem við nokkrum
sinni höfum eignazt.
Ég kynntist Óskari nánar og
hans fólki, sem að mörgu leiti var
afar líkt, traust og tilfinningaríkt,
sem • ekkert aumt mátti sjá, ég
naut vinsemdar allra nánustu
ættmenna Óskars og þakka ég oft
fyrir að hafa kynnst því fólki.
Óskar var ákaflega góður heim-
ilisfaðir, heimilið var honum allt.
Hann var höfðingi heim að sækja,
lágkúra var ekki að hans skapi,
aldrei gleymist hvellur hlátur,
hans góðlátlega stríðni, hlýja
klappið og koss á kinn.
Óskar var sérstaklega barngóð-
ur maður, væri komið í heimsókn
til þeirra hjóna með barn eða barn
var'fyrir, þar sem hann kom, þá
leið ekki löng stund áður en barnið
var komið í fang Óskars eða á hné
og klingjandi hlátur beggja fyllti
stofuna, já hann var svo sannar-
lega „barna vinur mesti".
Öll þessi börn sem nú eru flest
uppkomin flytja þakkir fyrir góð
og vinsamleg kynni.
Þegar svo góður vinur, sem
Óskar var, er kvaddur, þá koma
svo margar minningar í hugann —
minningar um sameiginleg ferða-
lög um sveitir landsins og ánægju-
legar samverustundir á heimilum
beggja bæði á hátíðum og öðrum
tímum, minningar sem ylja þegar
horft er til baka. óskar og Ebba
eignuðust 3 börn, Sigrúnu, gift
Birni Gunnlaugssyni og eiga þau 3
drengi, Kristínu, ógift, og Gísla,
giftur Erlu Pétursdóttur og eiga
þau 2 dætur.
Þessi hópur hélt mjög vel sam-
an, kærleikur mikill og sannur
þeirra á milli. Þau voru honum
allt, ekki sízt síðustu mánuðina.
Vinur er farinn, en minningarn-
ar lifa um mann, sem minnst vissi
af sjálfum sér, mann sem var
glaðastur, er hann veitti mest,
mann sem hlustaði, mann sem
skildi.
Ebba mín, við hjónin, fjölskyld-
ur okkar og móðir vottum þér og
ykkur öllum okkar innilegustu
samúð og biðjum góðan Guð að
styrkja ykkur í ykkar sorg.
Pálína Sigurjónsdóttir
Kaupa Svíar hlut í Þörungayinnslunni?:
Heimamenn hafa
ekkiáhuga á
minnihlutaeign
l’.i u_t'a_a_1
Frá Sveini (ludmundssyni Midhúsum.
í GÆRKVÖLDI var fundur í Starfs-
mannafélagi Þörungavinnslunnar og
þinguðu heimamenn um stöóu mála
hjá fyrirtskinu og þá uppákomu aö
Svíar vilja kaupa 49 prósent í þörunga-
vinnslunni og umboósaðili þeirra hér á
landi Inntak sf. 3 prósent.
Á fundinum kom fram að heima-
menn eru ekki ánægöir með þá
framvindu mála og töldu sig ekki
hafa áhuga á stofnun hlutafélags
þar sem þeir væru minnihlutahóp-
ur, enda mun Alþingi verða að gera
lagabreytingar til að hægt sé að
taka þessu tilboði.
Inntak hefur áhuga á að ná meiri-
hlutaaðstöðu í Þörungavinnslunni
vegna breyttra markaðsaðstæðna og
nú kom það fram á þessum fundi að
sölumaður Þörungavinnslunnar, en
hann hefur unnið hjá fyrirtækinu
4—5 ár og hætti um síöustu mán-
aðamót er einn aðaleigandi Inntaks
sf. Heimamenn telja að sölu-
maðurinn hafi aldrei bent á þessar
nýju leiðir á meðan hann var sölu-
maður.
Á fundinum kom fram að fram-
leiöslan í ár verður um 3.000 tonn og
rekstur hefur gengið vel, sala á af-
urðum fer fyrst og fremst fram síð-
ari hluta árs og ekki er víst að tap
verði eins mikið og menn hafa ætlað
þegar ársreikningar verða gerðir.
Sú skoðun kom fram að Breiðfirð-
ingar sætu á gullkistu og ekki væri
ósennilegt að þeir tímar kæmu að
allir vildu Lilju kveðið hafa.