Morgunblaðið - 15.09.1985, Side 44

Morgunblaðið - 15.09.1985, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985 Framhlið Barbican Center, sem er staersta ráAstefnu- og listamiðstöð ( Vestur-Evrópu. „Alltaf að læra eitthvað nýtt“ — segja forráðamenn Barbican Center, en 3 ár eru liðin frá því að þessi stærsta ráðstefnu- og listamiðstöð í Vestur-Evrópu var opnuð. Blaðamenn Morgunblaðs- ins litu þar inn og ræddu við upplýsingafulltrúa staðar- ins, meðal annars um hvernig til hefði tekist og hvað væri á döfinni. að eru þrjú ár liðin frá því að hin stóra og glæsilega menningar- miðstöð Lundúnabúa, Barbican Center, var opnuð með pomp og prakt af Elísabetu II Englandsdrottningu. Var greint frá þessum viðburði hér i blaðinu og hvernig ætlunin væri að reka þessa eina stærstu listamiðstöð i heimi. En hvernig hefur tekist til með reksturinn og hvað er á döf- inni í nánustu framtíð? Við rákum inn nefið eina dag- stund, er við vorum á ferð í Lond- on ekki alls fyrir löngu, og rædd- um stuttlega við upplýsinga- fulltrúa staðarins um þessi mál og nutum leiðsagnar hans um húsið. Reyndar var blaðamaður ekki einn í för með fulltrúanum heldur 40 skólakrakkar, sem spurðu hinna ólíklegustu spurninga eins og hve mikil steinsteypa hefði farið í byggingu Barbican Center og var þá sagt að það hefðu verið 130.000. kúbik-metrar, sem samsvaraði því að hægt væri að leggja 19 mílna sex greina akbraut fyrir þetta magn! Allt þarf sínar skýringar. Fyrir þá sem ekki þekkja til Barbican Center er ekki úr vegi að rifja örlítið upp forsögu staðarins og greina frá því hvaða starfsemi fer fram innan veggja hans. Deilur um skipulag Barbican Center er í miðborg Lundúna í hverfi sem kallast Cripplegate. Þarna fóru áður fram lífleg viðskipti með vefnaðarvöru. í desember 1940 varð hverfið fyrir loftárás Þjóðverja og var lagt í rúst. Eftir stríð, þegar farið var að íhuga uppbyggingu eða upp úr 1952, var einkum rætt um að gera Cripplegate að verslunar- og viðskiptahverfi. Svo var það árið 1956 að hátt- virtur ráðherra húsnæðis- og skipulagsmála, Duncan Sandys, kom fram með þá hugmynd að skapa þarna íbúðarhverfi, með skólum, verslunum og opnum svæðum og öðrum þeim notaleg- heitum, sem prýtt geta gott íbúð- arhverfi. Enda þótt þess konar lóðanýting gæfi ekki eins mikið af sér í aðra hönd. Borgaryfirvöld tóku vel í hug- myndina og 1959 voru samþykkt drög að siíku hverfi, sem arkitekt- arnir Chamberlin, Powell og Bon gerðu. í þeim var gert ráð fyrir íbúðarhverfi svo og lóð undir hinn gamla og góða Guildhall School of Music and Drama, einnig var gert ráð fyrir listamiðstöð í hverfinu. Hver atburðurinn rak annan. I kringum 1965 fléttuðust Royal Shakespeare-Ieikflokkurinn og Lundúnasinfónían inn í framtíð- arskipulag Barbican Center og ár- ið 1970 var núverandi fram- kvæmdastjóri, Henry Wrong, ráð- inn til starfa. 1971 hófst svo sjálf smíði listamiðstöðvarinnar, sem var mikið vandaverk og flókið. Eftir 5 ár á Barbican Center að standa undir sér fjárhagslega Það kostaði Lundúnaborg 153 milljónir punda að koma Barbican Center á laggirnar. En þar með var borgin ekki laus allra mála. Að sögn upplýsingafulltrúans Judy Withyman greiðir borgin dá- góða upphæð með rekstrinum á ári hverju en ætlunin er að innan 5 ára verði Barbican Center sjálfri sér nóg fjárhagslega. Til að létta róðurinn hafa nokkrir salanna í Barbican Center verið leigðir út til ráðstefnuhalds, þó einkum Barbican Hall, sem er stór og afar fullkominn og vand- aður hljómleikasalur, þar sem Lundúnasinfónían hefur fast að- setur. Af þessu fást töluverðir fjármunir á ári hverju. Léttklassískir tónleikar best sóttir Lundúnasinfónían, með aðal- stjórnanda sinn, Claudio Abbado, í broddi fylkingar, heldur um 100 tónleika á ári hverju í Barbican Hall. Þá eru haldnir þar bæði kammertónleikar, einleikara- og einsöngstónleikar, óperu- og ein- staka popptónleikar. Sumir af þessum tónleikum standa undir sér fjárhagslega en flestir þurfa stuðning. Að sögn upplýsinga- fulltrúans er það ætlunin að flest- ir af þessum tónleikum verði styrktir af fyrirtækjum í framtíð- inni. Við spurðum hvernig tónleikar væru best sóttir?„ Þeir léttklass- ísku,“ var svarið. En í tónlistarvali er farið afar gætilega og stjórnin hefur jafnvel fengið þá gagnrýni að vera ekki nógu djörf í tónlist- arvali, sagði fulltrúinn. Hún kvað svonefnda fjölskyldu- tónleika einnig vinsæla en þeir eru skipulagðir með börnin í huga. Tók hún sem dæmi tónleika þar sem mælst var til þess að börnin kæmu með bangsana sína með sér. Kvað hún það hafa verið skemmti- legt að litast um í salnum á þess- um tónleikum, þar sem bðrnin sátu og héldu þéttingsfast utan um þessa vini sína. Mahler, Vín og 20 öldin Um miðjan mars hófst í Barbic- an Center tónlistarhátíð undir heitinu Mahler, Vín og tuttugasta öldin. Er þessari hátíð ætlað að varpa ljósi á þá miklu grósku, sem var í listalífi Vínarborgar rétt fyrir og um aldamótin síðustu, er nýstefna í listum var að ryðja sér braut. í tenglsum við þessa hátíð verð- ur einnig flutt tónlist eftir nú- tímahöfunda, sem urðu fyrir áhrifum af brautryðjendunum. Jafnframt tónleikunum verða viðburðir er varpa ljósi á nokkra samtímalistamenn Mahlers eins og þá Arnold Schönberg, Alban Berg, Anton Webern, Gustav Klimt, Egon Schiele, Oskar Kok- oschka, Adolf Loos, Caspar Nehar, Sigmund Freud, Rainer Maria Rilke og Ludwig Wittgenstein. Sagði upplýsingafulltrúinn að það sem af væri hefði aðsókn að tónleikunum verið mjög góð en Mahler-hátíðin stendur fram í október með hléi yfir sumarmán- uðina. Utan tónleikanna í Barbican Hall eru haldnir ýmsir óformlegir tónleikar meðal annars í anddyri Barbican Center. Stundum eru sérstakir hádegistónleikar sem eru nokkuð vel sóttir af vinnandi fólki í nágrenninu. Alltaf uppselt á leiksýningarnar The Royal Shakespeare Comp- any hefur frá upphafi verið talinn órjúfanlegur hluti af Barbican Center. Hefur félagið tekið mjög virkan þátt í hönnun þeirra tveggja leiksala, sem það hefur til umráða, Barbican Theatre og The Pit. Salur Barbican-leikhússins er að ýmsu leyti sérstakur. Þegar gengið er inn í hann eru dyr fyrir hverja sætaröð, sem lokast og opnast sjálfkrafa, þegar sýningar hefjast og þeim lýkur. Sætarað-' irnar eru þannig að þær hvelfast fram á við þegar ofar dregur, þannig að fjarlægðin frá sviðinu verður aldrei meiri en 19,5 metrar. Þá hallar sviðið fram, þannig að það virkar stærra og gestirnir sjá betur það sem þar fer fram. Þegar við litum inn í leikhúsið fóru þar fram ljósaæfingar á leik- ritinu Mutter Courage eftir Bert- olt Brecht en með aðalhlutverk fer hin þekkta leikkona Judy Dench. Það var sérkennilegt að fylgjast með því hvernig ljósameistararnir söngluðu skipanir sín á milli og minnti það einna helst á er prest- ar tóna í kirkju. í Barbican Theatre eru einkum flutt leikrit eftir Shakespeare svo og leikrit samin á undangengnum 100 árum. Einnig kemur Shake- speare-flokkurinn fram í „Pittin- um“. Eru þar einkum flutt leikrit eftir samtímahöfunda. Aðsóknin að leikhúsunum er af- ar góð. Er sætanýting um 95%. En Barbican Theatre tekur 1.166 manns í sæti og “Pitturinn" 240 manns. Af leiksýningum, sem verða í gangi frá 8.-22. júní næstkom- andi, má nefna leikrit William Shakespeare, Hamlet og Ríkharð III, sem verða sýnd í Barbican Theatre og í Pittinum verða meðal annars sýnd leikritin The Party eftir Trevor Griffiths og Golden Girls eftir Louise Page. Nú stendur yfir Mahler-hátíð, sem er fjölsótt og tengjast henni fleiri menningarviðburður. Aðalstjórnandi Lundúnasinfóníunnar er ('laudio Abbado, en hljómsveitin hefur fast aðsetur í Barbican Hall.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.