Morgunblaðið - 15.09.1985, Blaðsíða 23
frá dönskum
framleióanda
Leitió upplysinga
um verÓ
og afgreiÓslu
iVerslunardeild
'Sambandsins
Byggingavörur
Holtagöröum - Simi 812 66
Svavar óskar félaga Vilborgu til hamingju með kjör hennar í stöðu varaformanns á lands-
fundinum 1983. Hin aldna kempa og fyrrum óumdeildur foringi flokksins, Lúðvík Jóseps-
son, var þungur á brún, þegar kjöri Vilborgar var lýst og hann ræddi lágum rómi við Baldur
Óskarsson, lengst til vinstri á myndinni, á meðan formaðurinn minntist við varaformanninn.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
A JÁRNBRAUTAR-
STÖOINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
— 23
Tveir ökumenn
stinga af eftir að
hafa valdið tjóni
TVEIR ökumenn stungu sf eftir að
hafa misst vald á bifreiðum sínum
og valdið tjóni. Annar ók á Ijósastaur
og hafnaði bifreiðin að lokum á
tveimur mannlausum bifreiðum.
Bifreiðin var í óökufæru standi og
hafði maðurinn sig á brott á tveimur
jafnfljótum. Ekki hefur spurst til
hans síðan. Hinn ökumaðurinn náð-
ist skömmu síðar.
Volkswagen-bifreið var ekið
austur Laugalæk frá Sætúni.
Ökumaðurinn missti vald á bifreið
sinni, hafnaði á ljósastaur með
þeim afleiðingum að tvær línur
slitnuðu. Þaðan kastaðist bifreiðin
á kyrrastæðar bifreiðir við Laug-
arnesveg. Fólk heyrði mikla
skruðninga og sá til mannsins
þegar hann flýði. Hann hefur lík-
lega eitthvað slasast, því framrúða
bifreiðarinnar brotnaði og stýrið
hafði gengið til.
í hinu tilvikinu missti ökumaður
stjórn á bifreið sinni við Sætún
þegar hann hugðist beygja suður
Kringlumýrarbraut. Bifreiðin fór
upp á umferðareyju og hafnaði á
svokölluðum öndunartúða Hita-
veitu Reykjavíkur; túðar þessir eru
leiddir upp á yfirborð jarðar frá
neðanjarðardælum. Ökumaðurinn
ók á brott en náðist skömmu síðar.
fc
æet fi.3aMaT*iaa .ei siudaq\mx'Jíí .aiaA.iavrjoaoM
---------------------------------------------MORGUNBLAÐIP, SUNNPPAOUR-lðrSEPTEMBEIÞ198S- - ~
-----------— ............ .........—■ ■ ' - .......... ' ........................-..........
Glaðhlakkaleg forustusveit fagnar kjöri sínu á landsfundinum 1983.
Flokksmenn fmna m.a. að því að hvorki hafi heyrst né sést til þessar-
ar forustu síðan, þ.e. annarra en félaga Svavars.
Samskiptum hans og Ólafs Ragn-
ars hefur verið lýst hér að ofan en
Svavar er sagður hafa brugðist
mjög harkalega við, þegar Ólafur
Ragnar gaf opinberlegar yfirlýs-
ingar í tilefni af niðurstöðum
mæðranefndarinnar. Menn telja
að Svavar leiti nú orðið sjaldan
ráðgjafa. Ingi R. Helgason for-
stjóri Brunabótafélags íslands og
Guðmundur Hjartarson fyrrum
seðlabankastjóri eru nefndir sem
fyrrum dyggir ráðgjafar flokks-
foringjanna og munu þeir hafa
a veitt ráðherrum flokksins ómæld-
an stuðning í tíð ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsen. Talið er að
þeir hafi smám saman dregið sig í
hlé og einn viðmælandi segir, að ef
Svavar leiti yfir höfuð ráðgjafar
þá sé það helst til Sigurjóns Pét-
urssonar.
Eitt af því sem mæðranefnd-
arskýrslan gerir að umræðuefni er
ímynd flokksins út á við og segir í
henni, að flokkurinn verði að
breyta henni m.a. með því að fleiri
komi fram fyrir hönd flokksins
„en þungbúnir og ábúðarmiklir
„gamlir“ karlar“, eins og það er
orðað. Þá er og nefnt sem mis-
heppnuð tilraun til að breyta þess-
ari ímynd kjör tveggja kvenna í
æðstu stjórn flokksins á síðasta
landsfundi, þ.e. Vilborgar Harð-
ardóttur í stöðu varaformanns og
Margrétar Frímannsdóttur í stöðu
gjaldkera, en að þær hafi ekki sést
né heyrst síðan. Þetta er og nefnt
sem dæmi um einræði flokksfor-
mannsins, sagt er að hann gæti
þess vandlega að sem minnst beri
á þessu fólki út á við.
Vandi Alþýðubandalagsins og
Svavars Gestssonar virðist að
framansögðu margþættur. Miðað
við stöðu mála á hann erfitt með
að draga sig í hlé á komandi
landsfundi en sterk öfl innan
flokksins vilja fá annan formann.
Hefur nafn Ragnars Arnalds til
dæmis verið nefnt sem hugsanleg-
ur sáttaaðili, en tiltölulega frið-
sælt virðist vera í kringum hann
innan flokksins, sem ekki verður
sagt um aðra sem tilnefndir hafa
verið eins og til dæmis Ólaf Ragn-
ar Grímsson. Líklegra er þó að
Svavar verði endurkjörinn á kom-
andi landsfundi og að samkomu-
lag náist um beinskeyttari stefnu
Alþýðubandalagsins, en þar með
eru vandamálin ekki frá, þvi mikil
„katlahreinsun“ virðist framund-
an, eins og einn viðmælandi minn
orðaði það.
Vindasamt í kringum
einfarann á toppnum
Borgar- og sveitarstjórnakosn-
ingar eru á komandi vori og menn
þegar farnir að brýna kutana gegn
Sigurjóni Péturssyni efsta manni
á lista Alþýðubandalagsins. Sigur-
jóni er margt fundið til foráttu og
lýsti einn viðmælandi stöðu hans
svo innan flokksins, að menn
gleymi aldrei þeirri ímynd sem
hann hefði gefið á forustumanni
flokksins í borgarstjórn, þegar
birst hefði mynd af honum í
dagblaði við laxveiðar í Elliðaán-
um með stóran digran vindil milli
tannanna. Öll hans framganga
væri í þeim sama stíl, lítt við hæfi
að mati hins almenna flokks-.
manns. Adda Bára Sigfúsdóttir
hefur lýst því yfir að hún fari ekki
fram á ný og flest bendir til að
forval verði um röðun frambjóð-
enda á listann. Auk Sigurjóns
munu Guðrún Hallgrímsdóttir og
Guðmundur Þ. Jónsson væntan-
lega gefa kost á sér á ný. Þá hefur
verið talið líklegt að Álfheiður
Ingadóttir taki þátt í slagnum en
samkvæmt heimildum undirrit-
aðrar mun hún alls ekki ákveðin í
því, telur nóg komið eftir átta ára
afskipti af borgarmálefnum. Af
öðrum nöfnum sem nefnd hafa
verið sem hugsanlegir frambjóð-
endur má tilgreina ritstjóra Þjóð-
viljans, Össur Skarphéðinsson. í
tilefni af hugsanlegu framboði
Þjóðviljaritstjórans er eftirtekt-
arvert að á meðan illdeilur hafa
magnast innan Alþýðubandalags-
ins og fylgið hrynur af flokknum
virðist hinn nýi ritstjóri hafa
treyst stöðu sína og ritstjórnar-
stefnu, þó harðlega hafi verið deilt
á hana af flokksmönnum og þá
sérstaklega af borgarstjórnarlið-
inu.
Þó margir forustumanna Al-
þýðubandalagsins, sem undirrituð
ræddi við vegna stöðu flokksins,
hafi orðað það svo, að allt þetta
uppistand sé ekki annað en
„stormur í vatnsglasi", eins og
mjög margir kusu að kalla það —
aðallega í fjölmiðlum má reikna
með að það verði vindasamt og
einmanalegt á toppnum í hrað-
minnkandi Alþýðubandalagi á
komandi mánuðum.