Morgunblaðið - 15.09.1985, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
43
Opið hús —
Frjáls spilamennska í Borg-
artúni 18, á vegum þeirra Ólafs
og Hermanns Lárussona, hefst í
dag, laugardaginn 14. sept. Öll-
um frjáls þátttaka. Verið með
frá byrjun. Hefst kl. 13 eða fyrr.
Bikarkeppni
Bridgesambands
íslands
Um síðustu helgi fóru fram á
Hótel Hofi undanúrslit í Bikar-
keppni Bridgesambands íslands.
í fyrri leiknum áttust við sveitir
ísaks Sigurðssonar og Jóns
Hjaltasonar, báðar frá Reykja-
vík. Sveit ísaks sigraði örugg-
lega, eftir að hafa leitt allan
leikinn, með 88—68. Sveit ísaks
hefur því tryggt sér sæti í úrslit-
um Bikarkeppninnar. Með hon-
um eru í sveitinni Hermann
Lárusson, Júlíus Snorrason,
Ólafur Lárusson, Sigurður Sig-
urjónsson og Sturla Geirsson.
í síöari leiknum áttust við
sveitir Arnar Einarssonar frá
Akureyri og Eðvarðs Hall-
grímssonar frá Skagaströnd.
Fyrir síðustu lotuna áttu Akur-
eyringar 53 stig til góða og héldu
víst flestir að sá leikur væri af-
greiddur af þeirra hálfu. En
Skagstrendingar voru ekki á
sama máli, heldur unnu síðustu
lotuna með 56 gegn 3, þannig að
þeir jöfnuðu leikinn 106—106.
Samkvæmt reglugerð fyrir Bik-
arkeppni teljast þeir sem ofar
voru fyrir síðustu lotu sigurveg-
arar, endi leikur jafn. Þar með
var Örn Einarsson kominn með
pálmann í hendurnar. Þeir fé-
lagar leika því til úrslita í Bik-
arkeppninni 1985. Með Erni eru:
Hörður Steinbergsson, ólafur
Ágústsson, Pétur Guðjónsson,
Dísa Pétursdóttir og Soffía Guð-
mundsdóttir.
Óhætt er að segja að úrslit
einstakra leikja í Bikarkeppni
1985 myndu hafa verið nokkuð
óvænt. Að sveitir tsaks Arnar
Sigurðssonar og Arnar Einars-
sonar myndu spila til úrslita í
jafn sterku móti, hefðu fáir
hugsaö sér í byrjun. En báöar
sveitirnar hafa unnið til þessa
með því að senda „sterku" sveit-
irnar heim í innbyrðis viðureign-
um.
Urslitaleikurinn verður
spilaður um næstu helgi, laug-
ardag og sunnudag, á Hótel Hofi
v/Rauðarárstíg. Spilamennska
hefst kl. 13 báða dagana og spil-
uð verða 64 spil. Sveit ísaks mun
sitja fast N/S í opnum sal, en
sveit Arnar laust. Góð aðstaða
er fyrir áhorfendur á Hofi.
Stórmót á vegum
Bridgesambands
íslands
Síðustu helgi í september,
dagana. 28. og 29. sept., verður
haldið í Gerðubergi í Breiðholti
stórmót á vegum Bridgesam-
bands íslands og Samvinnu-
ferða/Landsýn.
Spilað verður eftir Mitchell-
fyrirkomulagi og mun Vigfús
Pálsson annast tölvuvinnslu í
sambandi við útreikning í mót-
inu. Niðurstöður ættu því að
liggja fyrir í hverri setu rétt um
leið og henni lýkur.
Stórglæsileg verðlaun verða í
boði auk þess sem keppt verður
um gullstig. Keppnisgjaldi verð-
ur stillt í hóf. Keppnisstjóri
verður Agnar Jörgensson.
Skráning í mótið er þegar haf-
in hjá skrifstofu BSÍ (ólafi Lár-
ussyni, s. 91-18350), en auk þess
er hægt að hafa samband við
Ólaf eða Jón Baldursson heima.
í sambandi við þetta mót sem
önnur á vegum Bridgesambands
íslands gildir sérstakur afslátt-
ur á flugi innanlands, sem er
30% afsláttur af fargjaldi. Þetta
er til að auðvelda utanbæjarspil-
urum þátttöku í sambærilegum
mótum sem þessum.
Búast má við því að öll bestu
pör landsins taki þátt f þessu
fyrsta stórmóti keppnistímabils-
ins. Nánar síðar.
Sumarkeppni
Skagfirðinga
Síðasta spilakvöld í Sumar-
keppni Skagfirðinga í Reykjavík
var sl. þriðjudag. Þá mættu til
leiks 38 pör og var spilað í 3 rið-
lum. Úrslit urðu þessi (efstu
pör):
A-riðill
Guðni Kolbeinsson —
Magnús Torfason 195
Lovísa Eyþórsdóttir —
Vigdís Guðjónsdóttir 192
Anton R. Gunnarsson —
Friðjón Þórhallsson 185
Eyjólfur Magnússon —
Guðmundur Kr. Sigurðsson
183
B-riðill
Arnar Ingólfsson —
Magnús Eymundsson 189
Jakob Ragnarsson —
Jón Steinar Ingólfsson 188
Hildur Helgadóttir —
Karólína Sveinsdóttir 173
Hrannar Þ. Erlingsson —
Matthías Þorvaldsson 163
C-riðill
Steingrímur Jónasson —
Þorfinnur Karlsson 127
Andrés Þórarinsson —
Hjálmar S. Pálsson 126
Elísabet Jónsdóttir —
Leifur Jóhannesson 114
Friðrik Jónsson —
Guðjón Jónsson 112
Og eins og fram hefur komið
varð Anton R. Gunnarsson efst-
ur að stigum í Sumarkeppni
Skagfirðinga.
Á þriðjudaginn kemur hefst
svo Barometer-tvímennings-
keppni hjá félaginu. Þegar eru
29 pör skráð til leiks, en þátttak-
an verður hámark 36 pör. Enn er
því hægt að bæta við pörum.
Þeir sem áhuga hafa geta haft
samband við Ólaf Lárusson
(18350 - 16538) eða Sigmar
Jónsson (687070).
Barometerinn verður í 5 kvöld,
7 umferðir á kvöldi og 4 spil
milli para. Keppnisstjóri verður
að venju Ólafur Lárusson. Spilað
er í Drangey v/Síðumúla og
hefst spilamennska kl. 19.30.
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Vetrarstarf félagsins hófst sl.
fimmtudag með eins kvölds tví-
menningi. Til leiks mættu aðeins
10 pör og úrslit urðu eftirfarandi:
1. RagnarBjörnsson — stig
Sævin Bjarnason 142
2. Guðrún Hinriksdóttir —
Haukur Hannesson 129
3. Grímur Thorarensen —
Guðm. Pálsson 118
Meðalskor 108
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Laugavegur 34—80
Hverfisgata 4—62
Hverfisgata 63—120
Sjafnargata
Næstu tvo fimmtudaga, 12. og
19. sept., verður spilaður eins
kvölds tvímenningur en fimmtu-
daginn 26. sept. hefst þriggja
kvölda hausttvímenningur fé-
lagsins. Spilað er í Þinghól,
Hamraborg 11 og hefst spila-
mennska stundvíslega kl. 19:45.
Spilastjóri er Hermann Lárus-
son.
Bridsfélag
HafnarfjarÖar
16. sept. hefst spilamennskan
á ný eftir sumarleyfi með eins
kvölds tvímenningi. Spilað verð-
ur í íþróttahúsinu Strandgötu.
Félagar! Mætum vel. Nýir félag-
ar sérstaklega velkomnir. Spila-
mennskan hefst kl. 7.30 stund-
víslega.
Sun Hui mun matreiða fyrir ykkur öll kvöld
vikunnar nema mánudagskvöld frá kl.
17.00—22.00.
Einnig er alltaf til staðar hinn góði matseöill
Ning de Jesus.
Veislurnar
okkar
eru orðnar frægar um allan bæ. Litlar, stórar
og góðar veislur með austurlenskum mat og
skreytingum.
Opiðhjáokkurfrá
kl. 11.00—14.00 ogfrá
kl. 17.00-22.00 alladaga.
Manðarin
Nýbýlavegi 20
Sími 46212
—