Morgunblaðið - 15.09.1985, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 15.09.1985, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985 Minning: Lára Pálsdóttir Tengdamóðir mín, Lára Páls- dóttir, andaðist að kvöldi hins 11. september 1985 á 85. aldursári. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn 16. september. Lára fæddist 20. febrúar 1901 að Tungu I Fáskrúðsfirði, dóttir hjónanna Elínborgar Stefánsdótt- ur og Páls Þorsteinssonar, er þar bjuggu. Var hún eitt af 14 börnum þeirra hjóna. Lára ólst upp og dvaldist að mestu í foreldrahúsum þar til er hún giftist áriö 1927 Þorvaldi Þorsteinssyni skipstjóra í Hrísey, þar sem þau hófu bú- skap. En sambúð þeirra varð ekki Iöng, því að Þorvaldur lést eftir eins árs hjónaband, á brúðkaups- degi þeirra, 21. mars. Þau höfðu eignast eina dóttur, Þórdísi, sem + Móðursystir mín, GUNNHILDUR ARNBJÖRNSDÓTTIR, andaöist á Elliheimilinu Grund 9. september. Jarösett veröur frá nýju kapellunni í Fossvogi miövikudaginn 18. september kl. 3 e.h. F.h. aöstandenda, Kristín Jónsdóttir. t Systirokkar, HULDA HALLDÓRSDÓTTIR, lóst hinn 9. þ.m. og veröur jarösungin frá nýju kapellunni í Fossvogi þriöjudaginn 17. septemberkl. 10.30. Blóm og kransar afbeönir. Petrína Halldórsdóttir Kohlberg Hafliði Halldórsson. + Móöirmín, LÁRA PÁLSDÓTTIR frá Tungu í Fáskrúösfirói, veröur jarösett frá Fossvogskapellu mánudaginn 16. september kl. 16.30. Pórdís Þorvaldsdóttir. + Maðurinn minn, faöir okkar, bróöir og tengdasonur, ÞÓRARINN ÁG. FLYGENRING, sem lóst 3. september, veröur jarösettur frá Bústaöakirkju mánu- daginn 16. september kl. 13.30. Sigríöur Valdimarsdóttir, Ólöf Flygenring, Valdímar Örn Flygenring, Ólafur H. Flygenring, Kristján Flygenring, Þórarinn Kampmann, Edda Flygenring, Ólöf Ingvarsdóttir. + Ástkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÓN SNÆBJÖRNSSON, Háaleitisbraut 30, veröur jarösunginn frá Háteigskirkju þriöjudaginn 17. sept kl. 13.30 Ásgeróur Bjarnadóttir, Bjarni Jónsson. Þuríöur Stefánsdóttir Herdís Jónsdóttir, Stefán Rögnvaldsson Snæbjörn Jónsson og barnabörn. + VILHELW F. JÓNSSON véletjóri, Dalbraut 21, Reykjavík, lés'. 4. september. Útförin hefur fariö fram kyrrþey aö ósk hins látna. Þá þökkum viö hjartanlega fyrir auösýnda samúö og vinarhug. Sigríöur Snorradóttir og allir aóstandendui. i i —"1 ‘■"l 1 + Innilegar þakkir sendum viö öllum er sýndu okkur samúö og vinar- hug viö andlái og útför MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUF frá Pálmarshúsi, Stokkseyri. Erla Þorkelsdóttír, Trausti Þorsteinsson, Oddný Þorkelsdóttir, Sigursteinn Guómundsson, barnabörn og barnabarnabörn. var tæpra þriggja mánaða, er Þorvaldur lést. Lára giftist ekki aftur og eignaðist ekki fleiri börn. Hún bjó nokkur ár í Hrísey, en fluttist þá með dóttur sína til Reykjavíkur og síðar Hafnarfjarð- ar, þar sem hún var um fjölda ára ráðskona hjá Gunnlaugi Krist- mundssyni, sandgræðslustjóra og kennara, og ólst Þórdís þar upp hjá henni. Þær mæðgur fluttust síðan til Reykjavíkur árið 1949, og þar bjó Lára ætíð síðan. Fyrstu árin bjó hún á heimili okkar Þór- dísar og annaðist það að mestu leyti, en síðar eignaðist hún sína eigin íbúð í Eskihlíð 29 og bjó þar í rúm tuttugu ár eða þar til er hún fór á Elliheimilið Grund í Reykja- vík í apríl sl. og þar lést hún eftir skamma legu. I Reykjavík starfaði hún árum saman að heimilishjálp á vegum Reykjavíkurborgar og ennfremur var hún lengi gæslu- kona á Þjóðminjasafninu. Dóttir Láru, Þórdís, bókasafns- fræðingur, settur borgarbókavörð- ur, giftist Jóni G. Hallgrímssyni, lækni. Hafa þau eignast 5 börn og eru 4 þeirra á lífi. Barnabarna- börnin eru orðin 4. Lára var ekki langskólagengin, en henni var mjög vel ljóst gildi góðrar menntunar og hvatti hún fólk óspart til að afla sér hennar ef tök voru á. Sjálf naut hún þeirr- ar menntunar, sem í æsku hennar var veitt í sveitum íslands og auk þess gafst henni, þegar hún var um tvítugt, kostur á að stunda nám sem „óreglulegur" nemandi við Flensborgarskóla í Hafnar- firði. Einnig stundaði hún tónlist- arnám um skeið. Eftir þetta var hún farkennari á Fáskrúðsfirði um tíma áður en hún gifti sig, og kirkjuorganisti var hún um skeið. Lára var fróðleiksfús með afbrigð- um og las mikið, einkum bækur um þjóðlegan fróðleik og ætt- fræði. Hún var mjög minnug og sagði vel frá. Nutu börn okkar þar óspart af. Lára unni landi sínu og þjóð og vildi hag íslands sem best- an. Eins og áður var sagt var henni mjög vel ljóst gildi góðrar menntunar, bæði fyrir landið í heild og hvern einstakling, og hún studdi dóttur sína til náms með ráöum og dáð. Samband þeirra mæðgna var mjög náið og traust og einkenndist af gagnkvæmri virðingu og skilningi. Láru féll sjaldan verk úr hendi og hún var afar dugleg, að hverju sem hún gekk. Hjálpsemi var ein- kennandi í fari hennar og ég held að ekki sé ofsagt, að hún hafi lifað til að hjálpa öðrum, bæði með beinum gjöfum, vinnu og hvers konar hvatningu. Hún var sífellt reiðubúin til að hjálpa okkur með- an heilsa entist og óteljandi eru þeir vinnudagar hennar, sem í skaut okkar féllu, og urðu þeir oft langir. Þeim lauk þó oftast með því að Lára leit í bók eða greip í handavinnu, en hún var bráð- myndarleg í höndunum. Hún unni mjög barnabörnum sínum og gladdist yfir framgangi þeirra, og síðar komu barnabarnabörnin, sem áttu hug hennar. Aldrei gleymdust afmælisdagar eða aðrir merkisdagar. Allan búskap okkar hjóna var Lára hjá okkur á stór- hátíðum og tyllidögum, ef frá eru talin þau ár, sem við bjuggum er- lendis, en þangað heimsótti hún okkur þó nokkrum sinnum. Hún hafði yndi af að ferðast og fannst hún fræðast mikið af því. Vorið 1984 fór hún ásamt Sigrúnu Láru, yngsta barnabarni sínu, til að heimsækja elsta barnabarn sitt, Þorvald, og fjölskyldu hans, til Ameríku og um hvítasunnuna á þessu ári fór hún til Svíþjóðar í sína fjórðu heimsókn til þess lands. Lára var mikill höfðingi heim að sækja og miðlaði óspart af því sem hún átti, og eitt hið síðasta, sem hún gerði, var að sjá til þess, að barnabörnin og barnabarna- börnin fengju að njóta af jarð- neskum eigum hennar. Skyldi eng- inn fara skarður frá borði. Svona var Lára. — Sjálf lifði hún fá- brotnu lífi, en var sjálfri sér næg og vildi það og henni var fjarri skapi að láta hafa fyrir sér. Hún lauk lífi sínu, trú þeirri hugsjón sem hún sjálf hafði mótað: traust, sjálfstæð og óháð öðrum. Við kveðjum með söknuði ær- lega, islenska konu, sem var öðr- um til eftirbreytni. Megi hún hvíla í friði. Jón G. Hallgrímsson Þórarinn Ág. Flygen- ring — Minning Fæddur 25. september 1932 Dáinn 3. september 1985 Þegar hjartfólginn vinur er skyndilega kallaður yfir móðuna miklu er erfitt að skilja tilgang þess, þí vitað sé að slíkt bíði okkar allra. Hann Þórarinn frændi var alltaf hlýr og góður við okkur, og sér- staklega við börnin okkar, sem hanri reyndist sem besti afi. Við viljum þakka honum fyrir sam- veruna hér á jörðu og megi hann uppskera eins og hann sáði. Elsku Didda, Lóló og Valdi, við biðjum þess að ykkur verði sendur styrkur og birta. Addý, Bogga, Frikki, Palli og börn. Við skyndilegt fráfali vinar okkar, Þórarins Flygenring, og að hafa áttað sig á þeirri staðreynd, er leitað á vit minninganna. Eftir sólríkt sumar og ánægju- legar samverustundir rifjast svo margt upp, sem þakka þarf, sem og öll hin fyrri ár. Þau sterku einkenni, sem Þórar- inn bar með sér, voru hógværð og tillitsemi og fjölfróður var hann. Okkur fannst hann lýsandi tákn um séntilmann, enda naut hann þess í starfi sínu, áralangri reynslu á opinberum stöðum og við kennslu í Hótel- og veitingaskóla fslands. Þessara góðu eiginleika hans fengum við notið í ríkum mæli. Þegar sumri fór að halla, voru okkur árlegu veiðiferðir farnar og ánægja og hvfld frá hinu hvers- dagslega látin ráða. Eins og sumri hallar, hallar æfi hvers og eins okkar, og við það erum við sátt. Við kveðjum hann í dag með virðingu og eftirsjá, þakklát fyrir að njóta samferðar og vináttu hans gegnum árin. Diddu, Lóló, Valda og fjölskylu þeirra séndum við dýpstu samúð- arkveðjur og biðjum þeim styrks gegn svo þungu áfalli. Auður, Raggi. Fríða, Gunni, Lilla, Siggi LEGSTEINAR 'i 1 i Birtíng afmœíis- og MOSAÍK H.F. minningar- Hamarshöfða 4 — Sirrm 8196G grema ATHYGU ska vakir: á þvr, ar 1 afmælis- o>, minningargreina, un fyrirvara. Þannij verður grein, setr birtaat á f miðviku- | dagsblaði, a< berast i síöastt. lagii ■ fyrir hadeg á mánudag og hlið- stæí' með greinai aðra daga í minningargreinurr skal hinr látnr ekk ávarpaður. Þess skat einnig getið, af marggefnu til- Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veítum fúslega upplysingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina - 9fi S.HELGASON HF 81STEINSMIÐJA ■M SKEMMUVEGI 48 SlMi 76677 efni, að frumort Ijóð uir hinn látna eru ekki birt á minningar orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.