Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 59

Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 59
59 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985 Mynd þessi sýnir dreifíngu íslenskra námsmanna er fengu lánað hjá LÍN til náms erlendis námsárin 1973-74 og 1984-85. 1000 ----r™—.... ----- Urni»ij»<v)ur I9C3-04 Oílflog #fUr nám«gr«'n*9vlöurT> 4 ÉÍ'mÍÍilMKi1 ■ 1______________________________ HU Rjuc-Mj /takni 642 unuakj □ Náttúruvltindi I66umj«kj tl MjilDngítjnám 186umj»kj S féiágjvUindi 440 umsakj □ L'itr.ám, 436 umj*k,i ■ MugvUiMi 289 umj»kj Norfturlðnd 1109 umjakj. Norður-Amjrtké 5ð4umj»fcj Onnur Iðod 466 ^nj»*j. Skipting þeirra er fengu lánað hjá LIN til náms erlendis eftir námsgreinum veturinn 1983-84. að eiga rétt á þessari fyrir- greiðslu. Sérstaða sjóðsins „Sérstaða Lánasjóðsins er nokk- ur ef tekið er mið af öðrum sam- bærilegum lánastofnunum í Evr- ópu,“ segir Magnús. „Þetta felst m.a. í því að við lánum fyrir fram- færslukostnaði á hverjum stað eins og við reiknum hann út sam- kvæmt framfærsluvísitölum Efnahags- og framfarastofnunar- innar, OECD. Þetta veitir náms- mönnum mikið frelsi þegar þeir fara að velta fyrir sér hvert þeir vilja halda í nám. Við störfum eins og norski lánasjóðurinn að þessu leyti, en önnur lönd eru yfir- leitt með annað kerfi þar sem ekki er gert ráð fyrir jafn miklum sveigjanleika í þessum efnum," heldur hann áfram. Magnús segir að þessi sérstaða sjóðsins felist einnig í því að hann veiti námsmönnum ferðastyrki og aukalán fyrir maka og börn vegna ferða milli lögheimilis á íslandi og námsstaðar. „Þessu ákvæði er einnig ætlað að gera mönnum kleift að geta tekið ákvarðanir um námsland óháð ferðakostnaði," bætir Magnús við og segir að hins vegar hafi orðið nokkur breyting á greiðslum þessa ferðastyrks á síð- astliðnu ári er námsmönnum var gert skylt að sýna greiðslukvittan- ir fyrir greiddu fari áður en þeir fengju ferðastyrkinn útborgaðan. Áður var það hins vegar þannig að allir námsmenn erlendis fengu þessa styrki einu sinni á vetri hverjum, óháð því hvort þeir fóru á milli eða ekki. „íslenski lánasjóðurinn er einn- ig sérstakur fyrir þær sakir að við lánum jafnvel til náms í greinum sem hægt er að Iæra hér á landi. Þetta gera lánasjóðir námsmanna í Skandinavíu almennt ekki. Þetta hefur að mörgu leyti gefist vel og hafa margir innan menntakerfis- ins verið hrifnir af þessu frelsi, t.d. forráðamenn skóla þar sem fjöldi nemenda er takmarkaður vegna of lítillar aðstöðu. Hins veg- ar eru styrkir til vísindarann- sókna afar fátæklegir hér á landi. Víðast erlendis eru styrkjakerfi sem aðstoða nemendur í fram- haldsnámi. í Svíþjóð, Bandaríkj- unum og víðar hafa íslenskir Ljósm. Mbl RAX HEIMSINS MESTA ÚRVAL AF Z00M LJÓSRITUNAR- VÉLUM MINOLTA KJARAN ÁRMÚLA 22 REYKJAVÍK SÍMI83022 <=§oHúsnæðisstofnun ríkisins BREYTTUR EIMDAGI UMSOKIMA UM LÁJM TIL BYGGINGAFRAMKVÆMDA , ÁÁRINU 1986 1. IMÓVEMBER VERÐUR EIIMDAGI FRAA/IVEGIS í STAÐ 1. FEBRÚAR | 1 Þess vegna þurfa umsóknir vegna framkvæmda á árinu 1986 að berast fyrir 1. nóvember nk. Lán þau sem um ræðir eru þessi: - Til byggingar á íbúðum eða kaupa á íbúðum í smíðum. I r - Til byggingar íbúða eða heimila fyrir aldraða, og dagvistarstofnana fyrir börn og aldraða. - Til nýbygginga í stað heilsuspillandi húsnæðis. - Til framkvæmdaaðila í byggingariðnaði. - Til tækninýjunga í byggingariðnaði. j Ofangreindur eindagi gildir einnig fyrir framkvæmdaaðila í byggingariðnaði, sem vilja leggja inn bráðabirgðaumsóknir vegna væntanlegra kaupenda. Umsækjendur, sem eiga fullgildar lánsumsóknir hjá stofnuninni, er borist hafa fyrir 1. febrúar 1985, en gera ekki fokhelt fyrir 1. nóvember nk., skulu staðfesta þær sérstaklega, ella verða þær felldar úr gildi. Reykjavík, 4. september 1985 Húsnæðisstofnun ríkisins í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.